BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

þriðjudagur, mars 02, 2004

Súrt

Var að hlusta á súran símsvara áðan.....vá.... einhver sem röflaði í 2 mínutur og já ég hlustaði allan tímann hehe. Heyrði ekki nógu vel hvað aðilinn sagði en heyrði þó banani, upp í rass og þrumuguð.

Bílinn farinn upp í kópavog til kunningja pabba sem ætlar að líta á hann, húmor gærdagsins var sá að eftir að pabbi var búin að berjast við altinatorinn í bílnum í hellings tíma og setti síðan allt saman aftur og við tilbúin að ýta bílnum úr skúrnum þá ákvað ég í ganni að athuga hvort bílinn færi í gang..... pabba fannst ég heldur bjartsýn. Ég starta og ekkert gerist.......... við því að búast því bílinn hefur ekki gert það undanfarið, ég af einhverri rælni prófa aftur....og hvað bílinn hrekkur í gang. Veit ekki hvor var meira hissa ég eða pabbi.
Eftir það voru tilraunir gerðar í næstu brekku, að drepa á bílnum og starta aftur........... gekk stundum og stundum ekki.

Linda á stórskrýtnum bíl

0 Mjálm: