BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

laugardagur, mars 20, 2004

Dagurinn

Ég útnefni mig sem afmælisbarn dagsins í dag.

Þegar ég var yngri og bjó fyrir norðan þá yfirleitt þegar ég vaknaði á morgnana þá var hrúga af pökkum á skrifborðinu við hliðina á rúminu mínu. Þannig að það fyrsta sem ég gerði var að opna pakka. Þá var sko gaman að lifa :-), fékk smá nasaþef af þessu núna því Birgir lét mig fá pakka í gærkveldi og geymdi ég hann á náttborðinu. Þannig að þegar ég vaknaði í morgun fékk ég að opna pakka. Út kom þessi forláta bók um hann Gretti.

Dekrið í gær var bara mjög fínt, það var verið að hreinsa húðina á okkur með maska og fleira. Birgir var allavega mjög ánægður þannig að lítur út fyrir að ég sé komin með hugmyndir af afmælis- og jólagjöfum fyrir hann næstu árin heheehe

Jæja ég á eftir að þrífa og laga til, ásamt því að fara í jóga.

Linda afmælisbarn

0 Mjálm: