BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

fimmtudagur, mars 25, 2004

Niðurstöður

Komið út úr blóðprufunni og það sem ég vissi að það leiddi ekkert í ljós.

Læknirinn sagði við mig þegar hann hringdi að hafa samband við sig aftur ef þetta kæmi upp aftur og í rauninni þyrfti ég að prófa íbúfen og ef ég fæ þessa verki aftur eftir það þá er bara er þetta íbúfenið sem hefur svona rosaleg áhrif á mig. Er samt ekki alveg að þora því þótt mig langi til þess að ganga úr skugga um þetta.

Þessa nótt sem ég var vakandi af kvölum þá var mér hugsað til Litháans sem fannst í höfninni á Neskaupsstað, þvílíkar kvalir sem maðurinn hefur gengið í gegnum og fannst mér alveg nóg með mínar. Í þokkabót fékk hann enga læknishjálp. Get ekki imyndað mér annað en að það sé hryllingur.

Spila Catan í kvöld og svo er það spilamótið á laugardaginn.

Spilafíkil

0 Mjálm: