BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

fimmtudagur, nóvember 24, 2011

Árstíðir

Er svo kolfallinn fyrir hjómsveitinni Árstíðum að við hvert tækifæri sem ég kemst í að hlusta á þá "live" þá reyni ég að komast.

Seinasta laugardagskvöld voru þeir með útgáfutónleika sem voru hrein snilld.

Þeir spiluðu m.a. lag úr tölvuleik (megaman), ekki að ég þekki tölvuleikinn en þessi bútur var svo flottur. Það var bara chello, fiðlur og "víolin" sem spiluðu og ég var algjörlega kúrekinn á sléttunni.

Þeir eru líka með himneskar raddir og sungu án undirspils lands míns föðurs sem þeir sögðust hafa sungið oft á tónleikaferð sinni um Rússland, í löngu lestarferðum.

Það skemmtilega við þessa hljómsveit er fyrir utan náttúrlega hjóðfærin er að þeir syngja allir :)  Þeir eru svo flottir. Á heimasíðunni þeirra er hægt að hlusta á nokkur lög af nýja disknum. Góða skemmtun :)

föstudagur, nóvember 11, 2011

Bið

Endalaus bið þessa dagana, þannig að allt er á "hold"

En annars er þessi færsla í boði dagsetningarinnar 11.11.11

Góða helgi

fimmtudagur, nóvember 03, 2011

Þjóðvegurinn


Alltaf hressandi að komast aðeins út fyrir bæjarmörkin.