BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

laugardagur, mars 13, 2004

Laugardagur til lukku

Mér til mikillar ánægju er mér hætt að vera illt í fótunum mínum, spurning síðan hvort ég drepi þá ekki endanlega með því að vera í háhæluðum!

Ég er búin að fara í klippingu....jeeiii...... annars er aldrei að marka fyrsta dag eftir klippingu, ekki fyrr en maður er farin að sjá um þetta sjálfur. Hentugasta klippingin fyrir mig er þegar ég þarf ekki að gera neitt :) það var það þægilegasta við stutta hárið :-)

Er að fara á árshátíð í kvöld. Kvíði fyrir, spurning sem maður spyr sig þá af hverju í ósköpunum er maður að fara en það er persónulegt sem ég ef til vill skrifa um seinna.

mamma setti út á það í gær að ég bloggaði sjaldan....haha. Hún sem er farin að kíkja daglega víst, gerir það að verkum að þá þarf hún ekki að hringja í mig eins oft því hún veit hvað ég er að gera og er enn á lífi hahahaha er bara að grínast í þér mamma.

Linda sem er ekki lengur ill í löppunum

0 Mjálm: