BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

sunnudagur, febrúar 22, 2009

Langar

Yfirleitt þá langar manni svo mikið, svo mikið að ekki er hægt að gera það allt og því verður að forgangsraða. Nú eða hlutirnir einfaldlega að bíða útaf einum eða öðrum ástæðum.

Hinsvegar ætla ég að reyna að ráðast á þá hluti sem mig langar að gera núna og eru gerlegir og ekki mikið mál.

Mig langar nefnilega mikið í mexíkósúpuna nema sú súpa er betri í félagsskap. Er svona félagsskapsmatur. Ég meina eru allnokkrir réttir sem eru algjörlega félagsskapsmatur og annar sem mér dettur í hug er racklett. Ég meina það er ekkert gaman að hafa racklett ef maður er einn að dunda sér við að steikja kjötið sitt :)

En allavega áfram um mexikósúpuna - þar sem þetta er félagsskapsmatur þá þýðir það náttúrulega að fólk komi og borði með mér. En ég get ekki ákveðið eða veit ekki hverjum ég ætti að bjóða í mat. Þannig að ég ætla að bjóða fólki að bjóða sér í mat til mín. Þeim sem hafa áhuga á að fá mexíkósúpu. Kannski réttilega að taka það fram að ég hef hugsað mér að bjóða þeim sem ég þekki ;)

En allavega þeir sem hafa áhuga hafi sambandi, hvort sem er í gegnum kommentin, tölvupóst, síma, sms eða í persónu.

p.s. fyrstur kemur fyrstur fær :)

2 Mjálm:

Nafnlaus sagði...

Pant ég pant ég, nammi namm, ég sleiki út um!!!

Guðmunda

Linda Björk sagði...

Fyrstur kemur fyrstur fær :) þá er bara að ákveða tímann og hvort þú komir með alla strákana þína :)