BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

miðvikudagur, apríl 29, 2009

Viðburðarríkur dagur

Held að sé óhætt að segja að þetta hafi verið ansi viðburðarríkur dagur í dag - einum of.

Merkilegt finnst mér líka hvað ég fékk mikinn fyrirvara á símamanni sem kom til þess að setja upp adsl sjónvarpi hjá mér. En hann hringdi akkúrat þegar ég var að leggja af stað í Hvalfirðinn og þá bara að lenda næstum því fyrir utan.

Ótrúlegt alveg hreint - ég komst því ekki en staðahaldari hleypti honum inn - þannig að nú er ég komin með fullt af stöðvum. Sem er gott vont. Var reyndar að vonast bara til þess að fá þetta eftir helgina.... en oh well það verður þá bara að vera agi.... hahahaha

En já dagurinn endaði hinsvegar ekki vel :( - þar sem löggan stöðvaði mig, heldur dýrt gaman þar...hmmm... reyndar ekkert gaman!

2 Mjálm:

Ella Bella sagði...

Glanninn systir mín ;)

vonandi verður reikningurinn ekki of hár hehe

Linda Björk sagði...

hann verður hár :(