BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

sunnudagur, apríl 19, 2009

Sterk

Linda sterka

Var mikið búin að velta því fyrir mér hvernig ég ætti að koma sjónvarpinu ein inn og þegar ég rann í hlað og var búin að bera allt úr bílnum nema sjónvarpið ákvað ég að prófa.

Vit menn sjónvarpið er komið inn :) jeii þá loksins fer ég líka að geta séð alennilega á það og textann hehe

Annað hvort sjónin orðin svona slöpp eða hitt tv alltof lítið.

En búin að vera ansi strembin helgi, kláraði að pakka öllu niður í íbúðinni minni og þrífa, keyrði svo vestur og henti öllu inn þar.

Þannig að nú hef ég vikuna til að jafna mig í vinnunni.... ble verð sennilegast þvílíkt þreytt í vinnunni þessa vikuna. Þannig að mikið er ég fegin að séu aðeins 3 dagar fram að eins dags fríi :)

p.s. þessi póstur var fyrsti póstur frá nettengdum Gufuskálum

0 Mjálm: