BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

fimmtudagur, júlí 17, 2003

Vinna!

Sú sorglega staðreynd er komin í ljós en líf mitt er vinna og vinna er mitt líf....... er ég ekki skáldleg. Ég ætti kannski að segja upp íbúðinni og fá bara að liggja í einu rúmi hérna á farfuglaheimilinu..... er hvort sem er nógu mikið hérna fyrir :-) en þetta minnkar í vetur og þá verður kannski bara ágætt að geta haft sitt pleisi fyrir sig.
Búin að vera ein hérna í bókunum síðan á mánudaginn, en það hefur alveg gengið ágætlega þótti reyndar voða sorglegt að missa af góðviðrisdeginum í gær.
En stefnan er tekin á Grænland á mánudaginn að skoða Grænlenska grund í 4 tíma eða svo :-) bara krossleggja fingurnar og vona að ég komist með.

Draumóramanneskjan Linda

0 Mjálm: