BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

miðvikudagur, júlí 30, 2003

Soddans asni

Jamm ég get verið soddans asni, ég var að verða hálf fúl yfir því að engin kommentaði neitt. Hélt bara að enginn elskaði mig! Já það er samsem merki þarna á milli hehehe
En ég hef komist að öðru það er einhverjum þarna úti sem þykir vænt um mig! jíibíi.
En aðallega það að kommenta kerfið sýnir ekki á bloggernum að það sé búið að kommenta eitthvað en ég prófaði að skoða og það voru skilaboð til mín :-) Þannig að ég hef ástæðu til þess að brosa aftur.
Ég er reyndar að spá í hvort ég ætti ekki að skipta þessu komment kerfi út því ég fór inn á yaccs til þess að reyna að laga þetta en þá bara fann ég ekki þar sem það er hægt. Allavega þetta bull er held ég að fara að verða óskiljanlegt!

Svo ég svari Guðmundu þá var borðfélagi minn á Krús Thai lítill 2 ára snáði :-), hann var eitthvað að sniglast þarna í kring og svo tók hann sig bara til og settist hjá mér. Foreldrunum fannst þetta voða sniðugt og sagði að hann hefði nú ekki gert þetta áður. Þetta segir nú bara um aðdráttarafl mitt..... eða er það ekki!

Linda að plana

0 Mjálm: