BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

mánudagur, júlí 07, 2003

Mánudagur!

Það er einhver leiðindar mánudagur í mér :( ef það er hægt þá.
Dagurinn byrjaði svo sem allt í lagi þrátt yfir smá erfiðleika að vakna en svo hefur dagurinn einvhvern veginn legið bara niður á við......... því verr og miður.
Það virtist sama hversu mörgum e-mailum ég svaraði í dag þá komu bara fleiri en það er loksins vonandi að komast aðeins áfram núna en ég er enn í vinnunni. Mig langar mest til þess að fara heim og undir sæng og breiða hana yfir mig alla.
Annars ætla ég að vera algjör hetja í vinnunni í næstu viku og vera ein í 4 daga í bókunum........ Steffi ætlar nefnilega að skreppa til Þýskalands. Svo þeir sem vilja hitta mig er ráðlegt að reyna það í þessari viku hehe því ég verð ábyggilega ekki viðlátin í næstu og svo dauð eftir hana...........
Jamm jákvæðnin og bjartsýnin að gera út af við mig núna.

brostu framan í heiminn og heimurinn brosir við þér :-)

0 Mjálm: