BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

mánudagur, júlí 07, 2003

Hnútur í maganum

Ónei.......BBC sjónvarpsstöðin gerði hálftíma þátt um Reykjavík fyrir stuttu síðan sem þeir sýndu síðan 16. júní, nema hvað þar var Farfuglaheimilið í Reykjavík kynnt sem aðalgistingin í bænum og þar af leiðandi voru þeir að taka hér upp. Síðan var ég að heyra að ég hafði sést :(
Ég vissi það að ég hefði átt að loka mig inn á skrifstofu bak við hurð meðan þeir voru hér........ grrr.... En eitthvað er það sem er að trekkja að hér því það er mjög mikið bókað...... muhahahaha
Maður verður nú aðeins að hefja sjálfan sig upp.......... en er með hnút í maganum yfir að fara að horfa á þetta.

Linda í tremmu

0 Mjálm: