BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

miðvikudagur, ágúst 14, 2002

Þar kom að því

Ég held ég hafi keyrt á kríuunga áðan milli Hellissands og Rifs :( það hlaut að koma að því. Þessir vesalingsungar eru svo seinir að taka við sér og byrja að reyna að fljúga þegar bílinn er eiginlega alveg komin að. Ég reyndi að vísu að sveigja frá honum en hugsa að það hafi ekki tekist.

Ég var að frétta það að ég verð ein hérna í vinnunni þangað til ég fer og mun ég fara með rútunni á laugardaginn nema einhver elskulegur bjóði sig fram til að sækja mig :) þá er það alveg vel þegið heehehe. Ég verð reyndar ekki laus fyrr en seinni partinn svo lengi sem einhver kemur í göngu með mér um Öndverðarneshólana.

sumarið senn á enda

0 Mjálm: