BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

fimmtudagur, maí 07, 2009

Læst inni

Svei mér þá ef það er ekki að koma þetta trend að fólk læsi mig inni.

Var læst inni í vinnunni í morgun - nema það slæma við það að þegar ég loks hreyfði mig þá fór allt kerfið í gang. Þvílíkur hávaði.

Veit ekki hvort ég eigi að þora til Bolivíu ef einhver tekur upp á því að læsa mig þar inni líka....

En annars vil ég ekki annan dag eins og í dag... allt á afturfótum þar sem tölva fór ekki í gang, viðvörunarkerfið af stað, enginn sem svaraði símanum þegar ég hringdi og í þokkabót snjóaði.

Já kemur nýr dagur á morgun :)

0 Mjálm: