BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

mánudagur, maí 18, 2009

Hjólað í vinnuna

Loksins hjólaði ég í vinnuna - enda líka nýlega komin með hjólið hingað vestur.

En í morgun var þetta ansi erfitt enda með vindinn á móti mér og var ég alveg búin á því og var farin að efast um að ég gæti eitthvað unnið. Heimleiðin var mun betri því ég flaug næstum því áfram og var helmingi fljótari.

Þetta er reyndar bara um 3 km leiðin en finnst vera eitthvað lengra.

En allt hafðist þetta nú þannig að ég er komin með einhverja kílómetra í hjólað í vinnuna átakinu.

3 Mjálm:

Ella Bella sagði...

Til hamingju með alla kílómetrana þína ! mér tókst að næla mér í brúnku í dag úti í garði, gott dagsverk ;)

Linda Björk sagði...

öss....gastu ekki gert eitthvað nytsamlegt í garðinum á meðan? Þú getur kannski skellt þér heim til mín og slegið ;)

Ella Bella sagði...

ég tók til í garðinum á sunnudeginum og þreif þannig að ég hafði ekkert annað að gera en að gera ekki neitt... ljúfa líf