BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

sunnudagur, maí 17, 2009

Ljósmyndafyrirsæta

Óafvitandi er ég orðin að ljósmyndafyrirsætu ásamt samstarfsmanni mínum (landverði) en það er annar samstarfsmaður (landvörður) sem tók þessa mynd og hefur hana meira segja á desktopinum á tölvunni sinni. En hún er semsagt búin að setja þessa mynd inn á ársskýrslu hjá Green Globe, í glærufyrirlestra og eitthvað annað.

Það skemmtilega við þessa mynd er að það sést ekki hver ég er ;) - en allavega sést í bakið á mér og samstarfsmanni mínum þar sem við erum að horfa út á hafið.

Skemmtileg mynd með flottum litum í :)

Hún er meira segja búin að prenta út myndina og ætlar að hengja hana upp í herberginu sínu - svoldið fyndið því við ljósmyndarafyrirsæturnar erum í sitthvoru herberginu við hliðina á henni.

Fær greinilega ekki nóg af okkur ;)

2 Mjálm:

Ella Bella sagði...

Það þarf að fara að kenna þér að horfa fram í myndavélar, þetta er hætt að ganga, þú ert komin á svo gamalsaldur að þú ættir að vera búin að læra þetta ;)

Linda Björk sagði...

nah... mar bara verður að sættast við sína galla ;)