BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

laugardagur, nóvember 22, 2008

Borgar sig

Stundum borgar sig að hanga upp í skóla og skrifa á bloggið.

Símtalið sem ég var að vonast eftir seinasta laugardag kom í dag - mamma var að hringja og bjóða mér í mat!

Jeii þannig að núna er búið að borga sig að hangsa upp í skóla. En nei ég var aldeilis ekki aðgerðarlaus.

Mér tókst að búa til kort - eða merkja inn á kort þá staði sem ég fór í ferðinni minni 2006. Aldeilis dugleg. Læri sko mikið á því.

En kortið er komið hérna hægra megin á síðuna - alveg neðst.

En næst þegar ég fer í ferð - þá get ég haft kort sem sýnir staðsetninguna nákvæmlega þegar ég er þar.

Hversu kúl er það.

2 Mjálm:

Ella Bella sagði...

Rosalega var ég fegin í gær þegar að ég heyrði að mamma þín bauð þér í mat... leiðinlegt að vita af þér einni borða slátur á laugardagskveldi !

Linda Björk sagði...

hehe

En þú ert með slátrið mitt ;) þannig að hefði nú ekki einu sinni getað borðað slátur :)