BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

sunnudagur, maí 25, 2008

Eurovision

Jú jú - bara Eurovision partý í gær. Grillmatur og alles - mér til mikilla gleði að þurfa ekki að borða afganga ;)

En gáfum víst keppendum stig í gær - og Rússar voru í einu af neðstu sætunum hjá okkur, einnig reyndum við að spá fyrir í hvaða sæti Íslendingar mundu lenda.

Ég hafði það - mín spá komst næst en ég giskaði á 16. sæti.

###

Snæfellsnesið fagurt eins og endranær. Hrossagaukurinn alveg að heilla túristana.

Tjaldurinn svoldið vitlaus greyið - eða hann bara vissi ekki betur. Nefnilega verpti í hraunkassann hjá okkur - þar sem fólk getur prufað að ganga á skinnskóm á. Þess fyrir utan hefði hann ekkert geta legið á eggjunum miða við staðsetningu þar sem fuglar fælast við fólk.

Greyið tjaldurinn.

2 Mjálm:

Ella Bella sagði...

Voðalega erum við samrýmdar, ég sagði líka 16. sæti en fékk svo bjartsýniskast.

ætlaði bara líka að láta þig vita að ég setti myndir á myspace af mér ;)

Linda Björk sagði...

já og báðar útskrifumst sem stúdent 24. maí ;)

En flottar myndirnar og húfan fér þér vel.