BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

sunnudagur, janúar 11, 2009

Baðherbergið

Baðherbergið mitt er mjög vinsælt.....

af kóngulóm.

Var með tvær milli jóla og nýárs og var að fá eina nýja núna. Velti mikið fyrir mér hvaðan þær koma.

En þessi nýja er eitthvað feimnari því sá bara glitta í hana í gær og hef ekkert séð hana í dag.

Spennandi tímar

6 Mjálm:

Ella Bella sagði...

Já Hemmi Gunn

ef það eru ekki silfurskottur þá eru það kóngulær !

annars bíð ég bara í rólegheitunum eftir að finna svoleiðis kvikindi heima hjá mér

Linda Björk sagði...

já - tók nokkur ár hjá mér ;)

Það fyndna að eftir að kóngulærnar "fóru" þá birtist ein silfurskotta þannig að ég ætla að leyfa þessari að vera í smá stund enda næ ég henni ekkert á næstunni þar sem hún lætur ekki sjá sig mikið ;)

Nafnlaus sagði...

Iss og svo er ég viss um að þú segist búa ein !
Ásta D

Linda Björk sagði...

erfitt að neita því að ég búi ein... fann eina inn í stofu áðan og það fannst mér full langt gengið og lét hana fjúka. Hef á tilfinningunni að það sé verið að yfirtaka íbúðina mína.

Ég er kannski lent í hústöku-kóngulóm....

Nafnlaus sagði...

Núna er akúrat tímin til að horfa á Harrý Potter og leyniherbergið og Hringadrottinssögu mynd 3 ...hehehehe.....

kv. Ásta D

Linda Björk sagði...

næs

vonandi verða þær ekki eins stórar... sjæs... annars kalla ég bara til Harry Potter og fleiri :)