BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

þriðjudagur, febrúar 24, 2004

Þreyta

Skil þetta ekki, er gjörsamlega að sligast niður af þreytu núna og þetta helltist svona skyndilega yfir mig. Svaf samt mjög vel í nótt og fór að sofa á skikkanlegum tíma. Sem betur fer er ekki vinna upp í síma í kvöld þar sem nýja úrtakið er ekki tilbúið.

Bílavesen heldur áfram að sjálfsögðu og pabbi komin í málið.... er að redda nýjum rafgeymi fyrir mig þannig að vonandi verður nýjum rafgeymi skellt í bílinn í kvöld, ef ég sef bara ekki yfir mig ;-) hahaha

Helgin var fín, horfði á 8 seríu af friends (jamm geðveiki), spilaði Catan allt laugardagskvöld og fram á nótt.....hefði getað verið skemmtilegra hefði ég unnið að minnsta kosti einn leik en var svo nálægt því nokkrum sinnum, svekkjandi. En jú það var mjög gaman þrátt fyrir tap og komu nokkrar gullnar setningar fram þetta kvöldið.
Fór í bíó á Cold mountain á sunnudagskvöldið, mjög fín mynd og Jude Law svo sætur (slef)! og Rene kellingin var mjög góð og ég sem var eiginlega með grænar fyrir henni.

Svo heldur bara rútinan sama gang en reyndar fór náttúrulega stundaskráin mín fina út um þúfur... jamm gott ef það var bara ekki fyrsta daginn!

Svo er spurning hvort ég komist heim á eftir á bílnum og svo aftur niður í bæ í kvöld ef skipt verður um rafgeymi!

LInda þreytupúki

0 Mjálm: