BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

miðvikudagur, október 15, 2008

Ókeypis

Það besta í lífinu er ókeypis.

Er alveg að fíla þessar auglýsingar á skjá 1

Rétt í þessu voru tveir strákar að segja að sönn vinátta væri ókeypis og brosið líka og svo brostu þeir þessu rosalegu brosi.

Ef það fær mann ekki til þess að brosa þá veit ég ekki hvað.

###
Þarf að vakna á óguðlegum tíma á morgun (hmm er eitthvað guðlegt við tímann?) - plús það að taka strætó fyrir sjö.

Allt þetta til þess að komast í flug og það innanlands.

2 Mjálm:

Ella Bella sagði...

ég fæ alveg kjánahroll af þessum auglýsingum...

en já að leggja þetta á sig fyrir innanlandsflug, púff, skil það ef fólk er að fara í Leifsstöð ;)

en góða skemmtun...

Linda Björk sagði...

margar af þessum auglýsingum er einmitt svona kjánahrollur en í heildina þá yfirleitt brosi ég af þeim og þá er tilganginum náð ;)