BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

sunnudagur, júní 01, 2003

Þetta og annað!

Hafði ekki hugmynd um hvernig fyrirsögn ég ætti að hafa. En fyrir ekki svo löngu síðan skrifaði ég á bloggið að það hafði maður sem ég hafði verið að svara í tengslum við vinnuna og bókað, hann nefndi að ef allir á Íslandi væru eins yndislegir og ég þá yrði ferðin hans yndisleg. Allavega þessi maður er komin og farin nema hvað þegar hann kom þá spurði hann eftir mér, en eitthvað leist stelpunni í móttökunni ekki á hann þannig að hún sagði honum án þess að athuga að ég væri ekki komin í vinnuna. Henni fannst hann nefnilega láta það í ljós að tölvupóstarnir sem fóru okkar á milli hefðu verið svo spes. Þegar hún kom til mín og sagði mér frá honum þá var ég heldur ekki yfir mig spennt að hitta hann þannig að seinna þennan sama dag þá spurði hann aftur eftir mér og hún sagði þá að ég væri í fríi. Allavega svo kom helgi og ég mætti á mánudagsmorgun í vinnu og enn spurði maðurinn eftir mér þannig að ég ákvað að hitta hann sem var allt í lagi, fannst þetta hálf skondið allt saman. Svo þegar maður fór þá kvaddi hann mig líka og tjáði mér að hann ætlaði að koma aftur um veturinn og fór að spurja mig um það. Sagan er ekki búin hér því ég var að fá tölvupóst frá honum aftur þar sem hann var að þakka fyrir sig sem er alls ekki óvenjulegt að fólk gerir eftir að það kemur heim. Nema það óvenjulega við þennan tölvupóst er að hann sendi mynd af sér á baki íslenska hestinum! Jamm sumir eru furðulegir en aðrir........ spurning hvort ég prenti hana ekki bara út og hengi upp á vegg hérna í skrifstofunni hehehe

bla bla

0 Mjálm: