BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

mánudagur, júlí 15, 2002

Dagskrá helgarinnar

Það er búið að ákveða dagskrá helgarinnar hér hjá okkur í þjóðgarðinum. Reyndar á morgun þriðjudag þá er létt kvöldrölt niður á Djúpalónssand sem ég verð með. Hist er við bílastæðið á Djúpalónssandi kl:20.00.
Föstudagur:
Létt kvöldrölt frá Arnabæ, Arnastapa kl:20.00
Laugardagur:
Barnastund frá tjaldstæðinu á Hellissandi kl:11.00
Gönguferð- gamla vermanna leiðin niður í Dritvík og yfir á Djúpalónssand kl:13.00, hist við bílastæðið á Djúpalónssandi.
Sunnudagur
Barnastund á Arnastapa kl:11.00, hist við Arnabæ

Látið sjá ykkur og sjáið aðra

0 Mjálm: