BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

miðvikudagur, júní 19, 2002

Ótrúlegt

Þegar ég læt eitt virka þá hverfur eitthvað annað. Eins og núna þá hef ég reynt að láta blogger takkan til vinstri á dálkinum virka í langan tíma og svo yaccs en þar Árni getur þú fengið svona komment ef þú ferð inn á þá síðu og skráir þig. Með því að fá það til að koma og virka hérna á síðunni þá tapa ég gömlu færslunum. Nenni ekki að reyna að gera meira í því núna. Ætti líka að fara að koma mér úr húsi og gera eitthvað að því sem ég þarf að gera þar sem er ekki enn búið að hringja í mig og ég beðin um að vinna. Ég er reyndar í laumi að vonast til þess að það verði ekki gert susss....

Hjartsláttur
Þeir sem horfa á hjartslátt á fimmtudagskvöldum geta átt von á því að sjá pabba þar, neibb hann er ekki þáttakandi þótt ég gæti alveg trúað honum til þess en hann er einkabílstjóri þeirra Mariko og Þóru á strætó. Hann sást í seinasta þætti :) margir segja að ég sé mjög lík honum og ef það er einhver lesandi sem les síðuna og þekkir mig ekki og þar af leiðandi ekki hvernig ég lít út þá getur hann séð pabba og veit þá hvernig ég lít út hahahahahaha

Hjartsláttur á fimmtudögum

0 Mjálm: