BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

mánudagur, júní 24, 2002

Breytt plan

Hlutirnir eru breytir og ég er að fara núna á föstudaginn á Snæfellsnesið og kom það bara í ljós í dag. Skrýtin tilfinning sem ég hef núna, mikil tilhlökkun og spenningur en jafnframt kvíðin og hlakka ekkert svo til að yfirgefa Jens.

Í gær þá fórum við í skírn, en það var verið að skíra litla stelpuna hans Bjössa frænda og Önnu Maríu. Hlaut hún nafnið Eydís Agla. Ég er bara nokkuð sátt við nafnið finnst það bara mjög fallegt. Skírnin var á Hellissandi þannig að ég gat sýnt Jens og mömmu svona hér um bil hvar ég mundi koma til með að halda næstu 7 vikurnar eða svo. Þegar við vorum að keyra í gegnum Þjóðgarðinn þá get ég svarað fyrir það að Árni mætti okkur, tók reyndar ekki eftir því hvort einhverjir fleiri voru í bílnum. Hins vegar segir hann ekkert meira á heimasíðunni sinni hvort hann hafi eitthvað farið á Snæfellsnesið á sunnudaginn.

4 dagar í Snæfellsnes

0 Mjálm: