Bið
Þarf að bíða og er ekkert sérlega góð í því.
Stefni samt á að nota tímann og krossa yfir to do listan sem ég var að gera.
já já
mánudagur, janúar 31, 2011
fimmtudagur, janúar 27, 2011
fimmtudagur, janúar 20, 2011
Seinustu metranir
Get gjörsamlega ekki skrifað inngang, er fyrimunað að gera það.
Er að stressast upp!
Hrædd um að verða með seinustu blaðsíðurnar í margar vikur!
föstudagur, janúar 14, 2011
Myndefni
Ég hef hugsað í smá tíma að setja inn "skemmtilegar" eða áhugaverðar myndir (sem mér finnst) inn á síðuna til þess að setja smá líf en merkilega nokk þá hef ég barasta ekki rekist á neitt skemmtilegt myndefni.
Spurning hvort það sé vegna þess að ég er komin í borgina, tók fleiri myndir úti á landi eða hvort sé af skorti fyrir áhugaverða lífi. Fer eingöngu milli A og B og svo frá B til A. Ef ég er ekki í skólanum að vinna í mastersverkefninu mínu þá er ég "heima".
Hvað heldur þú?
miðvikudagur, janúar 12, 2011
Gærdagurinn
Gærdagurinn fékk broskall hjá mér á dagatalinu :)
um 7000 orð og 15. bls.
Dagurinn í dag virðist vera fýlukall, svipað og flestir hinir dagarnir. Verð að hífa mig upp, svo gaman að fá broskall.
Jafnvel þótt ég gefi mér þá sjálf......
miðvikudagur, janúar 05, 2011
mánudagur, janúar 03, 2011
2010
Lesið fullt af bókum þetta árið, langt síðan ég hef lesið svona mikið - er reyndar að gleyma þá 2006 en las ágætlega mikið á ferðalaginu mínu :)
Hugsa að ég hafi heldur aldrei keypt mér svona mikið af bókum - kannski með undantekningum árið 2006 (en þá var mikið skipt á bókum).
Staðsett á nýjum stað.
Fór líka á nýja staði og hentist þvert og endilangt yfir landið, bæði til að hitta vini og ættingja og taka viðtöl.
Uppgjör ársins 2010 það sem ég vil opinbera hahah :)
laugardagur, janúar 01, 2011
föstudagur, desember 31, 2010
fimmtudagur, desember 30, 2010
Næst síðasti dagur ársins!
Jáhá, hef voðalítið annað að segja um þennan dag.
Svo fer bara að koma nýtt ár!
föstudagur, desember 24, 2010
þriðjudagur, desember 21, 2010
mánudagur, desember 20, 2010
laugardagur, desember 18, 2010
föstudagur, desember 17, 2010
Jólagjafaleiðangur
Fór í fyrsta skipti í Kringluna áðan síðan ég kom suður.
Hef ekki saknað þess.
Annars fór ég í jólagjafaleiðangur og kom jafn tómhent tilbaka og ég fór, nei það er reyndar ekki rétt. Fór ekki alveg tómhent því ég þurfti að fara með pakka til að senda og jólakort og það fór.
En já þá ákvað ég að vera aktívari hér inni og skrifa eitthvað í þeirri von að ég verði meira aktívari í öðrum skrifum ;)
fimmtudagur, desember 16, 2010
Lubbi
Það er ég!
Jamm komin með þennan ógurlega lubba, sem er alltaf að þvælast fyrir mér og í andlitinu. Akkúrat sem ég þoli ekki ;)
Sumir mundu segja við mig - farðu í klippingu!
Svarið: er að spara það :)
þriðjudagur, desember 14, 2010
mánudagur, desember 13, 2010
sunnudagur, desember 12, 2010
Jáhá
Langt síðan síðast!
Spurning hvað veldur, almenn ritstífla sem hefur víðtækari áhrif heldur en á bloggið mitt?
Spennuleysi!
Eitt er þó víst að færra er um myndefni eftir að ég kom í borgina, helgast kannski af sömu rútínu dag eftir dag. Hafði gert mér áætlun fyrir nokkrum dögum að taka "skemmtilega" mynd á símann og pósta á blogginu svo stæði ekki í gömlum færslum dag eftir dag en skortur á skemmtilegum myndefnum hefur gert vart við sig.
what to do what to do!
Einhverjar hugmyndir?
laugardagur, nóvember 27, 2010
Löt eða hvað?
Undanfarna daga hef ég ekki getað haldið mig almennilega við efnið, spurning hvort þetta sé leti eða bara almenn andleysi við skriftir. Er ekki komin með ógeð en leið á hversu hægt gangi. Finnst skemmtilegt og áhugavert það sem ég er að gera og get ekki beðið eftir útkomunni EN eitthvað erfitt að finna andann!
Hvað gerir maður þá?
