BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

föstudagur, desember 31, 2010

Gleðilegt nýtt ár

Mjálmið hans Vargs óskar öllum Gleðilegs nýs árs!

Með þökk fyrir það gamla.

fimmtudagur, desember 30, 2010

Næst síðasti dagur ársins!

Jáhá, hef voðalítið annað að segja um þennan dag.

Svo fer bara að koma nýtt ár!

föstudagur, desember 24, 2010

Gleðileg jól

Mjálmið hans Vargs óskar ykkur Gleðilegra jóla og ánægjulegrar hátíðar!

þriðjudagur, desember 21, 2010

Hnútur

Með smá hnút í mallanum!

Í þokkabót erfitt að einbeita sér, sjæs.

mánudagur, desember 20, 2010

Áfram

Jamm sit hér áfram.

Veit samt ekki almennilega hvernig ég á að halda áfram....

laugardagur, desember 18, 2010

Nenna

Er ekki að nenna þessu!

Langar bara í jólafrí..........

föstudagur, desember 17, 2010

Jólagjafaleiðangur

Fór í fyrsta skipti í Kringluna áðan síðan ég kom suður.

Hef ekki saknað þess.

Annars fór ég í jólagjafaleiðangur og kom jafn tómhent tilbaka og ég fór, nei það er reyndar ekki rétt. Fór ekki alveg tómhent því ég þurfti að fara með pakka til að senda og jólakort og það fór.

En já þá ákvað ég að vera aktívari hér inni og skrifa eitthvað í þeirri von að ég verði meira aktívari í öðrum skrifum ;)

fimmtudagur, desember 16, 2010

Lubbi

Það er ég!

Jamm komin með þennan ógurlega lubba, sem er alltaf að þvælast fyrir mér og í andlitinu. Akkúrat sem ég þoli ekki ;)

Sumir mundu segja við mig - farðu í klippingu!

Svarið: er að spara það :)

þriðjudagur, desember 14, 2010

Af stað

Já komin aftur af stað og er það vel.

Svo er bara að halda sér á hreyfingu og ekki stoppa!

mánudagur, desember 13, 2010

Koma svo

Já já, get þetta svo sannarlega :)

sunnudagur, desember 12, 2010

Jáhá

Langt síðan síðast!

Spurning hvað veldur, almenn ritstífla sem hefur víðtækari áhrif heldur en á bloggið mitt?
Spennuleysi!

Eitt er þó víst að færra er um myndefni eftir að ég kom í borgina, helgast kannski af sömu rútínu dag eftir dag. Hafði gert mér áætlun fyrir nokkrum dögum að taka "skemmtilega" mynd á símann og pósta á blogginu svo stæði ekki í gömlum færslum dag eftir dag en skortur á skemmtilegum myndefnum hefur gert vart við sig.

what to do what to do!

Einhverjar hugmyndir?

laugardagur, nóvember 27, 2010

Löt eða hvað?

Undanfarna daga hef ég ekki getað haldið mig almennilega við efnið, spurning hvort þetta sé leti eða bara almenn andleysi við skriftir. Er ekki komin með ógeð en leið á hversu hægt gangi. Finnst skemmtilegt og áhugavert það sem ég er að gera og get ekki beðið eftir útkomunni EN eitthvað erfitt að finna andann!

Hvað gerir maður þá?

mánudagur, nóvember 22, 2010

Bros í daginn

föstudagur, nóvember 12, 2010

Áhugavert


Eru buxur hérna á hæðinni og á þeim er midi sem stendur að þær eru til gefins. Áður en ég las miðann hugsaði ég hvernig í fjáranum tókst aðilanum sem á buxurnar að týna þeim!

föstudagur, nóvember 05, 2010

Yndislegt veður



fimmtudagur, október 28, 2010

Fermingarafmæli

Tuttugu ár!

Á fermingarafmæli í dag - tuttugu ár síðan ég fermdist.

Shit!

mánudagur, október 25, 2010

Kalt

Já mér er kalt - kemur kannski ekkert á óvart :)

En mér leiðist að vera kalt, sérstaklega þegar ég er innandyra. Þrátt fyrir allt er ég í ull og flíspeysu, vantar greinilega að vera með ullarsokkana og fara í ullarbusurnar líka, til þess eins að vera ekki kalt inni!

Reyndar er mér bara kalt fyrir neðan mitti, þar sem ullin hættir ;) en spurning um að fara að taka ullarsokka og teppi með sér.

brrrrrr

þriðjudagur, október 19, 2010

Aðstaða


Er komin með þessa fínu aðstöðu og voða lukkuleg með hana.

sunnudagur, október 17, 2010

Lokasprettur!

Jæja ég er komin "heim" úr útlegðinni, komin úr Mývatnssveitinni, komin "heim" úr sumarbústaðinum og komin frá Egilsstöðum.

Þá er það lokaspretturinn, veit ekki hversu langur hann verður en vonandi frekar stuttur. Er nefnilega ekki með gott þol ;)

Síðan er það stóra spurningin hvað tekur við en ætlunin er að einbeita mér að lokasprettinum svo ég geti klárað hann.

Koma svo!

föstudagur, október 08, 2010

Skilti


Í göngutúrnum í gær rakst ég á þetta skemmtilega skilti.