BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

mánudagur, janúar 31, 2005

Tímamót

Í dag eru ákveðin tímamót í lífi mínu og á morgun á miðnætti hefur líf mitt tekið breytingum!

Já því í dag skilaði ég inn b.s. ritgerðinni minni - loksins. Mér finnst þetta mikið afrek fyrir mig því þetta hefur verið löng fæðing (lengri en hjá fíl).

Á morgun er aðrar breytingar því á morgun mun ég flytja inn í MÍNA íbúð. Já krakkar mínir ég er búin að fjárfesta í íbúð. En flestir vita þetta svo sem :-)

Á morgun mun líf mitt því hafa tekið stakkabreytingum. Hef ekki lengur ritgerð hangandi yfir hausnum og mun útskrifast úr HÍ (vonandi 7,9,13) og mun hafa eignast mína fyrstu íbúð og er því ekki lengur á leigumarkaðinum.

Ég get þá vonandi farið að taka skref í rétta átt - í átt að draumnum mínum!

shit shit shit

0 Mjálm: