BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

fimmtudagur, júlí 02, 2015

Vika

Búin að vera núna viku á hálendinu og ullarfötin óspart notuð :)

Fórum yfir í Öskju/Dreka á þriðjudaginn á námskeið og neyðaræfingu. Nýttum tækifærið á að skoða hið nýja Holuhraun í leiðinni í grenjandi rigningu. 

Mikið var nú samt gott að komast í sturtu þegar ég kom upp í Kverkfjöll en var búin að vera í Hvannalindum.

fimmtudagur, júní 04, 2015

Glepjast

Sýnist ég hafa látið glepjast af öllum samfélagsmiðlum. Þessum eins og facebook, instagram o.s.frv. að ég hef látið bloggið mitt alveg dala!

Sem er ekki gott!

Ástæða þess að ég er að skrifa núna er að ég var að lesa gamlar færslur og fannst það svo gaman, þannig að ég hugsaði hversu gaman það væri nú að lesa þessa færslu eftir nokkur ár. Þannig að um að gera að halda þessu bloggi á lífi :)

Þó þetta sé að mestu ferðablogg en þá er bara gott að skrifa inn á milli.

Já svo skulda ég líka enn yfirlitið fyrir 2014 - hef sko ekki gleymt því!

föstudagur, mars 20, 2015

Afmæli


miðvikudagur, mars 11, 2015

Þessi fallegi dagur


fimmtudagur, janúar 01, 2015

Nýársklæðnaður

Gönguskórnir passa við allt :)

Gleðilegt nýtt ár

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.


Hefur verið heldur lítið um færslur hér, virðist hafa gleymt mér á öðrum samskiptamiðlum.

Fljótlega kemur þó yfirlit yfir 2014

laugardagur, nóvember 08, 2014

Í dag



sunnudagur, nóvember 02, 2014

Dagurinn í dag


fimmtudagur, október 30, 2014

Öxaràrfoss


fimmtudagur, júlí 03, 2014

Post it



laugardagur, júní 28, 2014

Varahlutur

Birtir DSC00051.JPGVarahluti hefur ábyggilega aldrei verið eins flott innpakkaður, afmælisgjöf til bróður míns sem var tvítugur í gær og vildi varahluti í bíl í afmælisgjöf.

Hann fékk því varahlut í afmælisgjöf, óháð hvort hann gæti nýtt hann ;) en gaf honum reyndar líka aðra afmælisgjöf.

laugardagur, maí 31, 2014

Króatía

Skellti mér til Króatíu á dögunum, tilefnið var 3rd European Ranger training seminar.

Ferðalagið byrjaði nú ekki alltof vel þar sem fluginu mínu var aflýst á föstudeginum 9. maí þegar ég átti flug vegna verkfalls flugmanna. Þegar ég hringdi í Icelandair deginum á undan eða á fimmtudeginum og var að spyrja um möguleikana fyrir mig þar sem ég átti nú tengiflug á laugardeginum 10.maí frá London til Pula í Króatíu þá stakk þjónustufulltrúinn upp á að ég færi út á völl og reyndi að ná seinni part vélinni til London þann sama dag. Vélin var reyndar full en væri alltaf möguleiki á að fá sæti, þannig að ég hoppaði úr vinnunni á hádegi sólarhring á undan áætlun, fór heim og pakkaði á innan við klukkutíma og náði flugrútunni.

Þetta hafðist allt saman en þá var eftir að finna gistingu í London og hostelið sem ég á átti bókað kvöldið eftir var fullt, en eftir hálftíma í síma þá fann ég gistingu á öðru hosteli.

En tímínn í Króatíu var frábær, kynntist að vanda fullt af skemmtilegum landvörðum allsstaðar úr Evrópu þótt aðalaðdráttaraflið var Ástralinn hann Chris, það er bara eitthvað við Ástrali :) hann sló í gegn hjá okkur öllum.

Eftir ráðstefnu héldu nánast allir Íslendingarnir í þjóðgarðinn Plitvice ásamt Bretunum og tveimur Finnum. Upplifiði í fyrsta skipti að vera á bílaleigubíl en ég fékk far með tveimur af Íslendingunum og á leið okkar til Zagreb stoppuðum við í einum bæ þar sem við hlupum á undan stöðumælaverði til þess að fá ekki sekt!

Var reyndar mjög saklaust þar sem við tókum ekki eftir að það þurfti að borga í stöðumæli og vorum búin að ganga aðeins um bæinn þegar við tókum eftir stöðumælaverði sem var að sekta, eftir þetta pældum við í því hvort það hafi nú kannski verið mælir þar sem við lögðum. Þannig að við héldum tilbaka nema eitthvað var stöðumælavörðurinn líka fljótur í förum en við rétt náðum í bílinn og gátum keyrt í burtu. Bölvaðir útlendingar sem borga ekki í bílastæði.

En já þarf kannski að fara að ferðast meira í Evrópu í stað þess að fara alltaf svona langt!
 Nú fer ég líka að þekkja svo marga landverði í Evrópu!

fimmtudagur, apríl 17, 2014

Arggg....

Einhverra hluta vegna get ég ekki lengur sent myndir úr símanum mínum á bloggið mitt.

Spurning hvort ég þurfi að uppfæra símann minn!

fimmtudagur, mars 20, 2014

38

laugardagur, mars 08, 2014

Bústaðurinn



sunnudagur, mars 02, 2014

Ísar


Frelsinu fegin

Göngustígur



Þúfa



laugardagur, mars 01, 2014

Yndislegt veður


Á Múlafjalli, sést þarna í Botnsúlur.

Á leið á Múlafjall