Afmæli
Pétur Ágúst bróðir á 9 ára afmæli í dag, til hamingju Pétur minn einnig á Pétur frændi afmæli í dag og er hann 19 ára að mig minnir. Til hamingju Pétur. Vona að þið báðir eigið góðan dag!
Ég sé að talan á teljaranum hleypur alveg upp, veit ég ekki alveg hvað er að valda því. Annars eru augun mín betri, fór til læknis og fékk einhverja augndropa við þessu.
Brúðkaup
Ég var í brúðkaupi hjá Sólrúnu vinkonu minni og Bjarna á laugardaginn var. Þau fengu alveg frábært veður og þetta var yndislegur dagur og ég vona að þau séu ánægð með hann. Ég get rétt ímyndað mér hvernig brúðgumanum líður þegar hann er að bíða eftir brúðinni í kirkjunni því þegar ég var að bíða fann ég fyrir vaxandi hnút og fiðring í maganum eftir að hún mundi ganga inn kirkjugólfið og ef mér skildi líða svona hvernig ætli brúðgumanum líði? Ég hef ekki reynslu sjálf í þessu þannig að ég get með engu móti sett mig í spor brúðinnar sem gengur inn kirkjugólfið. Annars var ég ekki smá ánægð því presturinn talaði um að gott væri að eiga góða vini því í þessu tilfelli hafi þau kynnst í gegnum vini og að sjálfsögðu tók ég það til mín. Málið er að Birgir er vinur hans Bjarna og ég er vinkona hennar Sólrúnar og má segja að þau kynntust í gegnum okkur :)
Kvöldið var líka mjög fínt og góður matur og skemmtiatriði. Við vinkonurnar vorum svo góðar að við vorum búnar að semja nýjan texta við lagið og þá stundi Mundi og koma þeim upp á brúðhjónin og held ég bara að það hafi tekist nokkuð vel. Diskótekið ok var að spila og var ekki góð tónlist fyrr en Ásdís fór aðeins að skipta sér af og athuga hvaða geisladiska maðurinn átti. Þá loksins var hægt að fara út á dansgólfið og dansa. Ég lifði kvöldið af þrátt fyrir að hafa verið í háum hælum, hærri en ég er í vanalega þar sem strigaskór er uppáhalds skófatnaður minn. En þegar ég kom heim um kvöldið og fór úr skónum þá var eins og gólfið væri mjög bylgjótt og það var stórfurðulegt að ganga.
miðvikudagur, september 11, 2002
föstudagur, september 06, 2002
Sjónvarpsgláp
Það kom að því að mér hefnist fyrir allt þetta sjónvarpsgláp, enda fer ég ekki að sofa á kvöldin fyrr en öll dagskrá er búin og stundum á öllum stöðvum jafnvel þótt ég hafi ekki afruglara. En allavega þá virðist ég vera komin með einhverja augnsýkingu :( ég er öll rauð og bólgin á öðru auganu og svo þessi mikli gröftur. Ég var bara heppin að hafa getað opnað augun í morgun. Vaknaði ábyggilega tvisvar í nótt til þess að þurrka úr augunum. Smekklegt ha!
Annars er ekkert að frétta af mér og ég er ekki búin að koma neinu af stað og virðist best í því að gera ekki neitt þessa dagana og heldur ekki mikil löngun til þess að gera eitthvað annað.
1 dagur í brúðkaup hjá Sólrúnu og Bjarna
fimmtudagur, september 05, 2002
Andvaka
Í nótt var ég andvaka og vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera. Reyndar datt mér í hug að taka upp skólabók til þess að lesa og var eiginlega nokkuð viss um að þá mundi ég detta út af strax en hins vegar langaði mér ekki til þess. Hins vegar sá ég þessa videospólu sem var merkt systur minni og ákvað að kíkja á hana og sjá hvað væri á henni. Þar voru fréttir af skjá einum síðan 16.júni 2000 en hún hafði tekið það upp fyrir mig því í fréttatímanum kom lítil „frétt“ um Buslara sem voru að leggja af stað til Danmerkur. Það var frekar skemmtilegt að horfa á þetta aftur og einnig að sjá hvað var í fréttum á þessum degi. Þá var mikið verið að spá í rigningu sem átti að vera á 17.júní í Reykjavík en eins og sumir muna kannski etir en þá reið stór jarðskjálfti yfir og skyggði hann á allt rigningartal á 17.júní eða það get ég að minnsta kosti ímyndað mér, ég var náttúrulega í Danmörku þegar þessi ósköp dundu yfir. Eftir fréttirnar kom síðan kindergardencop sem er alveg ágætis mynd en sem betur fer sofnaði ég yfir henni.
Vil líka óska Jens til hamingju með nýju vinnuna!
þreytt
miðvikudagur, september 04, 2002
Öskjuhlíðin
Á mánudaginn var ég í litun og þegar ég var búin þá komst ég að því að ég var tiltölulega nýbúin að missa af strætó og þar sem var svo gott veður ákvað ég að ganga heim. En ég var stödd hjá Bústaðarkirkjunni. Þetta var mjög notaleg ganga þótt ég hafi kannski verið dáltið lengi á leiðinni en meðal annars þá gekk ég Öskjuhlíðina á leiðinni heim. Þetta er þvílíkur staður og ekkert smá slæmt þetta leiðinlega álit sem Öskjuhlíðin hefur á sér ekki endilega að fólk haldi þetta frekar bara að það fyrsta svona yfirleitt sé neikvætt þegar minnst er á Öskjuhlíðina og með djók í huga. Þegar ég kom þangað þá var þvílíkt magn af fuglum, þeir voru bókstaflega allsstaðar held alveg örugglega að þetta hafi verið þrestir þarna út um allt. Einnig sá ég tvær kanínur að spóka sig um þarna, eins og þetta eru nú falleg dýr þá eru þetta svo mikið skaðræðisskepnur.
Annars er ég að búa til systrablogg núna og veit ekki hvort það nær fyrir augum „almennings“ það fer eftir systur minni hvað hún er tilbúin í og hvort hún muni nú eitthvað skrifa. Ellen mín núna er semsagt komin áskorun á þig :)
Svo er það að frétta að ég kikknaði á fjallgöngunni með honum Árna á laugardaginn, smá eftirsjá að hafa ekki reynt en það er svona. Upphaflega átti kannski að vera fundur með kennara einum á laugardeginum en hann varð síðan á sunnudeginum. Já ég er ekki búin að segja frá því en ég verð aðstoðarkennari í einu námskeiði í vetur sem heitir Ferðamálafræði, smá kvíði fyrir það en vona að þetta reddist bara allt saman. Hryllilegt að hugsa til þess að þurfa að fara yfir verkefni og gefa einkunnir! Kennarinn sem kennir þetta námskeið er á Akureyri þannig að aðgangur að honum verður mjög takmarkaður.
Það styttist óðum í brúðkaupið hjá Sólrúnu og Bjarna en það er á laugardaginn, reyndar er því búið að seinka um hálftíma því það átti að vera annað brúðkaup hálftíma á undan þeim og það er svoldíð tæpt. En það verður ábyggilega gaman og við vinkonurnar búnar að plana hitt og þetta.
3 dagar í brúðkaup hjá Sólrúnu og Bjarna
fimmtudagur, ágúst 29, 2002
Láta mig vita
Búin að ákveða það að herma eftir Árna og senda út tölvupóst til þeirra sem vilja þegar ég uppfæri eitthvað hér á heimasíðunni. Þannig að sendið mér póst um að þið viljið vera á póstlista hjá mér sem varar ykkur við ef ég skrifa eitthvað hérna á síðuna.
Stjórnlaus
Ég er orðin stjórnlaus og farin að eyða peningum hægri vinstri. Hugsa að það þurfi að fara að leggja mig inn. Í dag var ég að eyða í föt sem er ekki mjög líkt mér, í gær fór ég í plokkun og litun og á mánudaginn mun ég eyða enn meiri pening þegar ég læt lita á mér hárið og fæ mér jafnvel strípur.
Hey gestur nr. 1000 kominn og farinn og meira segja komið upp í 1015, nema þetta hafi ég verið endalaust að refresha hehehehe. Nei ég geri ekki slíkt ;)
Það getur verið að ég fari í fjallgönguna á laugardaginn með Árna og ábyggilega bunch af ókunnugum. Er nokkuð búð upp á Akrafjalli? Hef ábyggilega gott að því að rífa mig út og af stað í staðinn fyrir að loka mig inni, þótt hitt sé meira freistandi að vissu leyti.
bring it on
þriðjudagur, ágúst 27, 2002
mánudagur, ágúst 26, 2002
Háskólinn
Ótrúlegt að þetta sé síðasta önnin mín í Háskólanum (ef allt gengur vel), og það eru enn fullt af námskeiðum sem mig langar til þess að taka. En því miður þessa önn verð ég að halda í mig og taka bara þessi tvö sem ég er skráð í ásamt ritgerðunum til Bs gráðu. Þannig að ef ég fer út á vinnumarkaðinn þá sé ég mig í anda enn í háskólanum að taka hin og þessi námskeið.
Í fréttum áðan heyrði ég það að ekki svaraði kostnaði (að ég held) að byggja upp járnbraut milli Reykjavíkur og Keflavíkur, ég fagna þeirri niðurstöðu og vonandi koma aldrei lestir á Íslandi. Þetta mundi vera svo mikil sjónmengun og ég held að lestin mundi ekkert fækka bílum á Reykjanesveginum.
Engar lestir á Íslandi takk
laugardagur, ágúst 24, 2002
Afmæli
Ásdís vinkona á afmæli í dag og óska ég henni innilega til hamingju með afmælið. Hún er reyndar stödd í Englandi núna að ég held í London og er að búddast eitthvað. Til hamingju með afmælið Ásdís.
hmm...
Ég var að lesa gestabókina mína og þakka „dyggum lesendum“ síðunnar fyrir :) málið er að þessa dagana hef ég ekki verið neitt voða hress þannig að ég hef látið eiga sig að blogga, hef voða lítið að segja. Þyrfti að fara að gera eitthvað í ritgerðinni minni en kem mér ekki að því. En vonandi fer þetta að koma hjá mér.
laugardagur, ágúst 17, 2002
Afmæli
Guðmunda vinkona á afmæli í dag, til hamingju með afmælið Guðmunda mín :) vonandi áttu góðan dag. Einnig var ég að frétta það um daginn að systir hennar mömmu á einnig afmæli í dag, og stórafmæli en hún er fimmtug. Til hamingju með afmælið Dóra frænka. Vonandi átt þú einnig góðan dag.
Þá eru afmæliskveðjum lokið í bili. Svo virðist sem Snæfellsnesið ætli að kveðja mig með stæl í dag, bæði með góðu veðri og reyna að gera mig eitthvað hrædda. Þannig er því nefnilega háttað að í gær þegar ég kom hingað á skrifstofuna þá var ekkert rafmagn en mér tókst að slá því aftur inn. Þetta var í raun ekkert til þess að óttast neitt, þetta getur komið fyrir. Hinsvegar í gær þegar ég var að horfa á fréttirnar í Drottningunni þá bara búmm varð rafmagnslaust. Þar sem ég hef ekki kannað húsið nógu vel að minnsta kosti samkvæmt ákveðnum aðila þá ákvað ég að hringja í Jens því hann er búinn að kanna húsið eitthvað. Það eru nefnilega tvær rafmagnstöflur þarna og aðra gat ég ekki opnað. Hann sagði mér það sem ég vissi nú þegar en það var ekkert óeðlilegt í rafmagnstöflunni nema hvað það vantaði svona aðalrofa. Allavega þá þurfti ég að hringja í Guðbjörgu til þess að fá númerið hjá umsjónaraðila húsins. Það kom síðan maður sem var alveg jafn hissa og ég nema honum tókst síðan að opna rafmagnstöfluna sem mér tókst ekki og þar var aðalrofinn. Ég fékk rafmagnið aftur.
Þá hefði maður haldið að þetta væri nóg, mér finnst frekar skrýtið að í allt sumar hefur ekkert slegið út en svo gerist það á tvisvar sama daginn. Nei þetta var ekki nóg því þegar ég kom á skrifstofuna í morgun þá var rafmagnslaust að hluta. Það var talvan og ljósin fyrir ofan mig sem hafði slegið út.
Mér finnst þetta pínku skrýtið en getur svo sem alveg átt sínar eðlilegu skýringar þótt ég viti ekki hverjar þær eru.
Lindu sem hlakkar til að komast heim!
föstudagur, ágúst 16, 2002
Lítill heimur
Ég var að lesa það áðan á heimasíðunni hans Árna að hann væri búin að eignast lítinn frænda. Nema hvað móðirin er fyrrum nágranni minn úr Hafnarfirði, pabbi hennar var að hjálpa pabba að smíða í húsinu hans og á tímabili bjuggum við líka í kjallaranum hjá þeim meðan var óíbúðarhæft í húsinu hjá okkur.
Fyndið hvað þetta er lítill heimur.
over and out
Drottningin
Húsið sem ég bý í hérna fyrir vestan heitir Drottning eins og ég hef minnst á áður. En það hús er mjög sérstakt fyrir margar sakir. Fyrir það fyrsta þá eru engin ljós í því þannig að við þurfum að hafa lampa, reyndar er ljós í einu herbergi og það er Ruv herbergið og það ekkert smá ljós því það eru ein 4. Í öðru lagi þá er klósettið milli tveggja herbergja þannig að ef það var einhver annar staddur í húsinu heldur en ég og Þórunn sem var einnig í Drottningunni þá þurfti hann að fara í gegnum annað hvort herbergið mitt eða Þórunnar til þess að komast á klósettið ásamt því að læsa tveimur hurðum og muna að opna þær aftur. Svo er það eldhúsið sem er varla eldhús því þetta er bara smá innrétting. Því þar sem vaskurinn er þar kemur ísskapur undir honum og við hliðina á vaskinum eru einnig tvær hellur. Allt á sömu innréttingunni hins vegar höfum við ekki notað þessar hellur því svo til við hliðina er eldavel upp á borði með ofni þannig að þar höfum við eldað. Þetta er mjög sérstakt hús.
er að koma heim
fimmtudagur, ágúst 15, 2002
Tvær nætur
Núna á ég bara eftir að sofa tvær nætur í Drottningunni. En ég bý í húsi sem heitir Drottnig fyrir þá sem ekki vita það. Það er smá blendin tilfinnig að vera að fara heim. Ég er reyndar búin að komast að því að ég hlakka mikið til að fara heim en samt sem áður finnst mér pínku leiðinlegt að vera að fara héðan. En svona til þess að halda áfram þessu kjaftæði þarna kem ég með eitt enn.
Which Sex and the City Player Are You? Find out @ She's Crafty
miðvikudagur, ágúst 14, 2002
Hey það kom ekki það sama, ég las að ég væri bedtime story svo kemur eitthvað allt annað á kodanum sem ég setti hérna inn. Oh well, ekki að það skipti einhverju máli. Þetta er allt sama kjaftæðið.
Þar kom að því
Ég held ég hafi keyrt á kríuunga áðan milli Hellissands og Rifs :( það hlaut að koma að því. Þessir vesalingsungar eru svo seinir að taka við sér og byrja að reyna að fljúga þegar bílinn er eiginlega alveg komin að. Ég reyndi að vísu að sveigja frá honum en hugsa að það hafi ekki tekist.
Ég var að frétta það að ég verð ein hérna í vinnunni þangað til ég fer og mun ég fara með rútunni á laugardaginn nema einhver elskulegur bjóði sig fram til að sækja mig :) þá er það alveg vel þegið heehehe. Ég verð reyndar ekki laus fyrr en seinni partinn svo lengi sem einhver kemur í göngu með mér um Öndverðarneshólana.
sumarið senn á enda
þriðjudagur, ágúst 13, 2002
Chicago
Ég var víst ekkert búin að minnast á það en þegar ég var í bænum seinast þá keypti ég og Jens flugmiða til Chicago :) þannig að við erum á leiðinni út að vísu ekki fyrr en í október. En mikið hlakka ég til. Við ætlum að heimsækja Óla og Tinnu sem vonandi verða búin að koma sér fyrir en þau vita held ég ekki enn að við erum að koma smá bögg en vonandi reddast það. Við urðum líka þannig að grípa gæsina því það var tilboð tveir fyrir einn til Bandaríkjanna. En ég er mjög ánægð. Ég held ég sé búin að reyna að fá Jens út með mér í ein 3 ár. Mér finnst samt skondið að svona eina landið sem ég hafði ekki áhuga á að ferðast til var Bandaríkin og svo er ég á leiðinni þangað núna.
Ces't la vie
sóðar
Hvernig stendur á því að þetta margir hverjir sem reykja þurfa alltaf að henda sigarettustubbunum í náttúruna. Hvað með að safna þeim saman og henda þeim síðan í næsta rusl. Þetta er viðbjóðslegt. Ég var í gær á Djúpalónssandi og þar var ég að tína upp rusl og mest megnis var þetta sígarettustubbar. Ég bara skil ekki svona fólk.
Núna eru allir gestir farnir frá mér, en Jens var hérna hjá mér um helgina og svo kom Guðmunda á laugardagskvöldið og þau fóru á sunnudaginn. Þegar þau fóru þá kom Birgir með danskan vin sinn með sér og voru þeir að fara áðan. Ætluðu að keyra til Stykkishólms og fara vatnaleiðina tilbaka.
Það er þetta blíðskapaveður hérna enda kannski komin tími til þar sem var búið að vera ekkert spes veður hérna í 3 ef ekki 4 vikur.
burt með sígarettustubba
mánudagur, ágúst 12, 2002
Linda litli hræðslupúki
Hér með viðurkennist að ég er algjör gunga. Á laugardaginn var laugardagsgangan í Öndverðarneshóla en þar sem enginn kom með mér :-/ þá bara fór ég sjálf því ég hafði ekki alveg gengið alla þessa leið sem ég ætlaði að ganga. Allavega á þessari leið sem er mjög flott þá er hellir sem heitir Grashólshellir. Þegar ég kom að honum með mitt vasarljós ákvað ég nú að kanna hann aðeins meir. Ég klöngraðist niður og fór inn en þegar ég kom inn kom einhver óhugur í mig. Hellisgólfið var eitthvað mjúkt og það var svo dimmt þarna inn og ég var ein, þannig að ég forðaði mér hið snarasta út. Var næstum því viss um að ef ég mundi ekki sökkva ofan í hellisgólfið þá mundi ábyggilega koma einhver stór úlfur að éta mig jafnvel þótt engin úlfur sé til á Íslandi. Alveg makalaust hvað maður getur hrætt sjálfan sig. En annars var nú alveg yndislegt að ganga þarna. Ég var næstum því alveg ein í heiminum.
þannig fór um sjóferð þá
laugardagur, ágúst 10, 2002
Alltaf í bænum
Svo virðist bara sem ég er alltaf í bænum, reyndar kom ég aftur hingað í gær á Snæfellsnesið. Ég held ég kunni bara mjög vel við mig hérna á nesinu því þegar ég er í bænum þá er ekki laust við það að ég sakni þess að vera ekki á Snæfellsnesinu og umhverfisins þar. Hins vegar þegar ég er ekki á Snæfellsnesinu þá sakna ég ekki umhverfisins í bænum neitt sérstaklega. hmmmm..... hvað ætli sé hægt að lesa út úr þessu!
Það fer að líða að lokum hjá mér hérna á Snæfellsnesinu en það er um vika eftir. Þetta er ekkert smá rosalegt hvað þetta hefur liðið hratt. Allir landverðirnir eru hættir þannig að ég er orðin ein eftir ásamt Þjóðgarðsverði en hins vegar er hún að nota tækifærið meðan ég er hérna og er í fríi þannig að ég er einni landvörðurinn. Svo til þess að vera samkvæmt sjálfri mér þá hugsa ég að ég komi með dagskráina um helgina.
Dagskrá helgina
9.-11 ágúst.
Föstudagurinn 9.ágúst.
Kl. 20.00 Kvöldrölt.
Um klukkustundar rölt frá Arnastapa.
Lagt af stað frá veitingahúsinu Arnabæ, Arnastapa.
Laugardagurinn 11.ágúst.
Kl. 11.00 Barnastund frá tjaldsvæðinu á Hellissandi.
Fræðslu- og leikjadagskrá fyrir börn á aldrinum 5-12 ára en allir velkomnir.
Rannsóknir, sögur og leikir.
Kl. 13.00 Laugardagsgangan.
Gönguferð um Öndverðarneshóla.
Gangan tekur um 3-4 tíma í heildina og er ekki erfið.
Munum eftir góðum skóm, nesti og léttri lund!
Hittumst við afleggjarann út á Öndverðarnes.
Sunnudagurinn 12. ágúst.
Kl. 11.00 Barnastund á Arnarstapa.
Fræðslu- og leikjadagskrá fyrir börn á aldrinum 5- 12 ára en allir eru velkomnir.
Rannsóknir, sögur og leikir.
Kátir krakkar leggja af stað frá veitingahúsinu Arnarbæ.
Hittumst á bílastæðinu við Djúpalónssand.
Þáttaka er gestum að kostnaðarlausu og eru allir velkomnir!
Sjáumst.
Landverðir.
landvörðurinn er vinur minn :-)
föstudagur, ágúst 02, 2002
Verslunarmannahelgin
Föstudagurinn 2.ágúst.
Kl. 20.00 Kvöldrölt.
Um klukkustundar rölt frá Arnastapa.
Lagt af stað frá veitingahúsinu Arnabæ, Arnastapa.
Laugardagurinn 3.ágúst.
Kl. 11.00 Barnastund á Hellnum.
Fræðslu- og leikjadagskrá fyrir börn á aldrinum 5-12 ára en allir velkomnir.
Rannsóknir, sögur og leikir.
Hittumst við Gistiheimilið Brekkubæ
Kl. 13.00 Gönguferð
Gengið í spor Jóhannesar Helgasonar frá Gíslabæ í fylgd Sæmundar Kristjánsonar sagnamanns á Rifi. Hist við syðri mörk þjóðgarðsins og gengið að Purkhólum.
Gangan tekur um 3 tíma í heildina og er ekki erfið.
Munum eftir góðum skóm, nesti og léttri lund!
Sunnudagurinn 4.ágúst.
Kl. 11.00 Barnastund frá tjaldsvæðinu í Ólafsvík.
Kl.13.00. Gönguferð
Seinni áfangi göngu í spor Jóhannesar Helgasonar frá Gíslabæ í fylgd Sæmundar Kristjánssonar sagnamanns á Rifi. Hist við brúna yfir Móðulæk og gengið að dánarstað Jóhannesar.
Gangan tekur um 3 tíma í heildina og er ekki erfið.
Munum eftir góðum skóm, nesti og léttri lund!
Kl.16.00. Barnastund á Búðum
Hist við kirkjuna.
Kl.16.00. Gönguferð í Búðahrauni.
Hist við kirkjuna.
Mánudagurinn 5.ágúst
Kl.11.00. Barnastund á Arnarstapa.
Hittumst við veitingahúsið Arnarbæ.
.
Þáttaka er gestum að kostnaðarlausu og eru allir velkomnir!
Landverðir.
fimmtudagur, júlí 25, 2002
Dagskrá helgarinnar
Föstudagurinn 26.júlí.
Kl. 20.00 Kvöldrölt.
Um klukkustundar rölt frá Arnastapa.
Lagt af stað frá veitingahúsinu Arnabæ, Arnastapa.
Laugardagurinn 27.júlí.
Kl. 11.00 Barnastund frá tjaldsvæðinu á Hellissandi.
Fræðslu- og leikjadagskrá fyrir börn á aldrinum 5-12 ára en allir velkomnir.
Rannsóknir, sögur og leikir.
Kl. 13.00 Gönguferð
Gönguferð að Öndverðarneshólum.
Gangan tekur um 3-4 tíma í heildina og er ekki erfið.
Munum eftir góðum skóm, nesti og léttri lund!
Hittumst við afleggjarann út á Öndverðarnes.
Sunnudagurinn 28.júlí.
Kl. 11.00 Barnastund á Arnarstapa.
Fræðslu- og leikjadagskrá fyrir börn á aldrinum 5- 12 ára en allir eru velkomnir.
Rannsóknir, sögur og leikir.
Kátir krakkar leggja af stað frá veitingahúsinu Arnarbæ.
Þriðjudagurinn 30.júlí.
Kl.20.00 Létt kvöldrölt á Djúpalónssand.
Hittumst á bílastæðinu við Djúpalónssand.
Miðvikudagurinn 31.júlí.
Kl.11.00 Barnastund á Arnarstapa.
Hittumst við veitingahúsið Arnarbæ.
Þáttaka er gestum að kostnaðarlausu og eru allir velkomnir!
Landverðir.
hægt að kíkja á www.natturuvernd.is líka
sunnudagur, júlí 21, 2002
Jeppaleikur
Helgin er búin að vera fín vinnulega séð, á föstudaginn var ég og annar landvörður í hálfgerðum jeppaleik en við fórum slóða sem er eiginlega bara fær jeppum. Vorum mikið úti við á föstudaginn og einnig í gær sem er meiriháttar. Á föstudaginn vorum við líka að ganga slóða til þess að sjá hvort við þyrftum að stika hann og á leiðinni óð Svanhildur eiginlega í gegnum rjúpnahóp eða hóp af ungum án þess að taka eftir því og rjúpan var ekkert sérlega sæl með það. Rjúpan hefur ekkert smá marga unga, við náðum ekki að telja þá en þeir voru ábyggilega á bilinu 6-8 ungar sem voru þarna með í för. Þetta var alveg rosalega sætt. Þetta er held ég í fyrsta skipti sem ég er að upplifa það að sjá svona mikið af ungum hjá hinum og þessum fuglum og það er meiriháttar. Í gær hljóp til dæmis spóa ungi á undan bílnum okkar áður en hann fattaði að hlaupa út í móa, svo voru einnig kríu ungar við veginn þar sem við vorum að keyra í gær.
Starfið er mjög skemmtilegt en því miður hefur ekki verið vel mætt í göngurnar hjá okkur og það er frekar niðurdrepandi að vera með göngu en hugsa til hvers að undirbúa sig þegar enginn mætir :( þannig að rífið ykkur upp á rassinum og mætið í göngur með okkur. Þær eru alls ekki erfiðar og þið kynnist landinu ykkar og fáið örnefni og sögu beint í æð :) og það er alls ekki langt frá Reykjavík um 2,5- 3 klst akstur. En annars líður að því að ég fari bráðum í frí og fer ég þá heim. Það er ekki laust að það sé smá tilhlökkun að komast aðeins heim. En ótrúlegt en satt þá er ég búin að vera hér í mánuð.
koma svo
mánudagur, júlí 15, 2002
Dagskrá helgarinnar
Það er búið að ákveða dagskrá helgarinnar hér hjá okkur í þjóðgarðinum. Reyndar á morgun þriðjudag þá er létt kvöldrölt niður á Djúpalónssand sem ég verð með. Hist er við bílastæðið á Djúpalónssandi kl:20.00.
Föstudagur:
Létt kvöldrölt frá Arnabæ, Arnastapa kl:20.00
Laugardagur:
Barnastund frá tjaldstæðinu á Hellissandi kl:11.00
Gönguferð- gamla vermanna leiðin niður í Dritvík og yfir á Djúpalónssand kl:13.00, hist við bílastæðið á Djúpalónssandi.
Sunnudagur
Barnastund á Arnastapa kl:11.00, hist við Arnabæ
Látið sjá ykkur og sjáið aðra
sunnudagur, júlí 14, 2002
Sveitaball
Það var sveitaballsstemming hjá okkur í gær, en á Sandara gleðinni þá voru hvorki meira né minna en tvö böll á Hellissandi, annað var í félagsheimilinu Röst þar sem hljómsveitin Bít var að spila og þar var 18 ára aldurstakmar og vínveitingar. Hitt ballið var í Salthúsinu þar sem Land og synir voru að spila og þar var 16 ára aldurstakmark. Eins og einhver orðaði það nettlega að við urðum að velja milli fermingarpeninganna sem var í salthúsinu eða ellilífeyrisþegana í Röst. Einn vinur hans Jens valdi fermingarpeningana frekar. Þannig að við enduðum á Land og synir með honum Hreimi sæta (reyndar finnst mér hann ekkert sætur). Þetta var mjög áhugavert og skemmtum við okkur ágætlega. Sáum meira segja stelpuslagsmál að hluta. Það var einhver ein lítil sem réðst á sér eldri konu og stærri. Brjáluð gella. Ég hugsa að ég láti þetta duga í bili.
Njótið lífsins
föstudagur, júlí 12, 2002
Sandara gleði
Það verður Sandara gleði hérna á Hellissandi um helgina. Annars um helgina þá er kvöldrölt klukkan átta í kvöld frá Arnabæ á Arnastapa. Á morgun er gengið í Búðahraun en hist er við Búðakirkju klukkan eitt. Ásamt því að barnastund á sunnudaginn á Arnastapa kl.11.00 og fjöruferð á morgun í Krossavík á Hellissandi kl.11.00 Mikið að gerast.
Jens mun líka koma til mín um helgina :) ásamt tveimur vinum. Ég er nefnilega alltaf lengst að vinna um helgar.
Drífa sig
sunnudagur, júlí 07, 2002
Helgin
Fór í mína fyrstu gönguferð á föstudagskvöldið, þ.e.a.s. ég var að leiðsegja fólki. Bjuggumst reyndar ekki við að neinn mundi koma þar sem veðrið var svo leiðinlegt. En okkur til mikillar ánægju og pínku skelfingar fyrir mig þá komu 7 manns. Þetta var allt fjölskylda en að ég held þá bara gekk þetta mjög vel, reyndar þurftum við að stökkva yfir einn læk sem var orðið svoldíð mikið í en það hafðist. Á laugardaginn þá komu 8 manns í göngu með okkur sem er bara nokkuð gott. Svo var barnastund í dag á Ólafsvík og mættu um 30 krakkar sem var kannski smá of mikið en við erum reynslunni ríkari :)
Næstu helgi er síðan Sandara gleði hérna á Hellissandi.
Á Snæfellsnesið allt að gerast
miðvikudagur, júlí 03, 2002
Plan fyrir helgina
Ef það eru einhverjir sem hafa áhuga á að koma í gönguferðir þá er hér dagskráin sem Þjóðgarðinum Snæfellsjökli um helgina.
Föstudag:
Létt kvöldrölt kl. 20.00, brottför frá Arnabæ á Arnastapa.
Laugardag:
Barnastund á laugardag kl:11.00, brott frá Arnabæ á Arnastapa.
Ganga Dritvík- Djúpalónssandur kl.13.00, hist á bílastæðinu við Djúpalónssand.
Sunnudagur:
Barnastund kl:11.00 á Ólafsvík, farið frá tjaldstæðinu.
þá vitið þið það
Hugmyndasnauð
Veit ekkert hvað ég á að setja í hausinn :) vonandi að hugmyndirnar detta ekki úr kollinum bara við það eitt að fara að vinna sem landvörður. Búið að vera mjög fínt á enn eftir að lesa heilmikið. Á köflum er samt stundum einmanalegt hérna enda bý ég ein og þarf að elda mér ein og svoleiðis þannig að það er ekki gaman. En ég hef samt verið dugleg að elda þótt ég hafi síðan kannski ekki alveg haft lyst á matnum. Sjónvarpið er borðfélaginn minn þessa stundina. Þetta lagast sennilegast samt allt á morgun því þá kemur einn landvörður í viðbót sem mun búa á sama stað og ég. Annars er ég að undirbúa barnastund út á Arnastapa og vona bara að einhverjir mæti. Veðrið gæti verið skemmtilegra en það er búið að vera þoka hérna á Gufuskálum og Hellissandi en hins vegar er veðrið svo breytilegt að það gæti verið allt öðruvísi sunnanmegin.
gott í bili
þriðjudagur, júlí 02, 2002
Snæfellsnes
Er enn á lífi, gaman en erfitt enn sem komið er :) búin að ganga þónokkkuð en á eftir að læra heilmikið.
gönguferðir
föstudagur, júní 28, 2002
Snæfellsnes hér kem ég
Þá er dagurinn runninn upp og ég bruna brátt úr bænum. Færslunum mun pottþétt fækka hér á síðunni þar sem ég hef að öllum líkindum ekki aðgang að tölvu í starfinu mínu en ef ég kem eitthvað heim í fríium þá er aldrei að vita nema ég skelli inn einni færslu eða svo til að segja líka hvernig gangi í nýja starfinu. Best að fara að klára að pakka saman.
vertu með virtu landið
miðvikudagur, júní 26, 2002
Sjáðu hvaða týpa þú ert
Ég held að seint muni ég verða læknanemi, hvernig ætli landafræðineminn sé eða ferðamálafræðineminn?
2 dagar í Snæfellsnes
mánudagur, júní 24, 2002
Breytt plan
Hlutirnir eru breytir og ég er að fara núna á föstudaginn á Snæfellsnesið og kom það bara í ljós í dag. Skrýtin tilfinning sem ég hef núna, mikil tilhlökkun og spenningur en jafnframt kvíðin og hlakka ekkert svo til að yfirgefa Jens.
Í gær þá fórum við í skírn, en það var verið að skíra litla stelpuna hans Bjössa frænda og Önnu Maríu. Hlaut hún nafnið Eydís Agla. Ég er bara nokkuð sátt við nafnið finnst það bara mjög fallegt. Skírnin var á Hellissandi þannig að ég gat sýnt Jens og mömmu svona hér um bil hvar ég mundi koma til með að halda næstu 7 vikurnar eða svo. Þegar við vorum að keyra í gegnum Þjóðgarðinn þá get ég svarað fyrir það að Árni mætti okkur, tók reyndar ekki eftir því hvort einhverjir fleiri voru í bílnum. Hins vegar segir hann ekkert meira á heimasíðunni sinni hvort hann hafi eitthvað farið á Snæfellsnesið á sunnudaginn.
4 dagar í Snæfellsnes
laugardagur, júní 22, 2002
Ótrúleg
Ég er stundum alveg hreint ótrúleg, núna um daginn þegar ég var að vonast eftir því að fara ekki að vinna sem ekki gekk upp þá gleymdi ég gleraugunum mínum heima og fattaði það ekki fyrr en eftir að ég var komin upp í löduna hans Birgis og komin af stað. Ég reyndar ákvað að halda áfram í Bókhlöðuna og koma svo við heima aftur áður en ég færi úr 101 svæðinu. Mikið var nú þægilegra að hafa gleraugun. Reyndar þoli ég ekki að hafa gleraugu :( það er svo miklu miklu betra að þurfa þau ekki. Einungis um tvö ár síðan ég byrjaði að nota þau og ég held að ég þurfi sterkari gleraugu :( ekki gaman. Svo hitt sem ég er ekki samkvæmt sjálfri mér með en það að á miðvikudagskvöldið eftir vinnu hjá símanum þá ákvað ég að kíkja til pabba sem ég og gerði. En á leiðinni heim þá þurfti ég að koma við í búð og þar sem klukkan var eftir ellefu eða nálægt hálf tólf um kvöld þá var eiginlega bara um 10-11 að ræða í Lágmúla. Nema þegar ég kem á svæðið þá er alveg ógeðslega margir í búðinni og voru allir þrír kassarnir opnir til þess að afgreiða fólk. En gettið hvað ég geri, ég fer að hneykslast á fólki að vera að versla þarna á þessum tíma en hvað var ég að gera!
Bíða bíða en sú blíða
miðvikudagur, júní 19, 2002
Ótrúlegt
Þegar ég læt eitt virka þá hverfur eitthvað annað. Eins og núna þá hef ég reynt að láta blogger takkan til vinstri á dálkinum virka í langan tíma og svo yaccs en þar Árni getur þú fengið svona komment ef þú ferð inn á þá síðu og skráir þig. Með því að fá það til að koma og virka hérna á síðunni þá tapa ég gömlu færslunum. Nenni ekki að reyna að gera meira í því núna. Ætti líka að fara að koma mér úr húsi og gera eitthvað að því sem ég þarf að gera þar sem er ekki enn búið að hringja í mig og ég beðin um að vinna. Ég er reyndar í laumi að vonast til þess að það verði ekki gert susss....
Hjartsláttur
Þeir sem horfa á hjartslátt á fimmtudagskvöldum geta átt von á því að sjá pabba þar, neibb hann er ekki þáttakandi þótt ég gæti alveg trúað honum til þess en hann er einkabílstjóri þeirra Mariko og Þóru á strætó. Hann sást í seinasta þætti :) margir segja að ég sé mjög lík honum og ef það er einhver lesandi sem les síðuna og þekkir mig ekki og þar af leiðandi ekki hvernig ég lít út þá getur hann séð pabba og veit þá hvernig ég lít út hahahahahaha
Hjartsláttur á fimmtudögum
þriðjudagur, júní 18, 2002
Ég er búin að gefast upp í bili. Var að reyna að koma upp þannig að hægt sé að koma kommentum til mín eftir hver skrif. Virðist ekki takast þótt ég hafi farið í einu og öllu eftir leiðbeiningunum sem sett voru. Reyni aftur seinna.
Njótið þess að vera til
Á lífi
Jamm ég er á lífi, leist samt vel á þá hugmynd sem forvitni hvítvoðungurinn kom með :) að senda mig á hressingarhæli. En voðalega er ég forvitin, hver ertu forvitni hvítvoðungur?
Svo virðist vera að ég er farin að lifa fyrir helgarnar. Ég átti mér loksins líf um helgina og var bara mikið að gera í félagslífinu svona miðað við venjulega. Föstudagskvöldið þá var grillpartý hjá vini hans Jens þar sem hann var 25 ára. Var þetta svona „ekta“ grillpartý þar sem borðað var úti og mikið rosalega var kalt. Þeir sem muna eftir föstudagskvöldinu muna þá eftir því að hitinn hafi lækkað töluvert og var mikið skýjað. Annars spiluðu strákarnir svona ruddakörfubolta og ég er eiginlega mjög hissa á því að enginn hafi slasað sig neitt verulega á honum. Einnig kíktum við í Mekka sport til þess að taka nokkra leiki. Aðallega þó vegna þess að afmælisbarnið var svo kokhraust og sagði að enginn gæti unnið sig í fótboltaspili og vildi fara í Mekka sport til þess að sanna það. Hann var nokkuð góður en þó tókst Jens að vinna einn leik af nokkrum sem þeir spiluðu :)
Eftir að hafa brunnið smá í sólinni á laugardaginn fórum við í annað grillpartý en það var til Árna og Arndísar og var þar margt um manninn. Ég held ég geti næstum því fullyrt það að ég, Birgir og Jens höfðum mest fyrir matnum okkar :) reyndar gerði Jens ekk mikið heldur kom verkunum á mig og Birgir. Mútaði Birgir reyndar með bjór. En maturinn var alveg þess virði. Ummmmmmm hvað þetta var gott.
En takk fyrir þetta heimboð Árni og Arndís :) þetta var alveg þrælskemmtilegt og rosalega góður matur ;)
Á sunnudeginum lágum við síðan í leti, við horfðum á Brotherhood of the woolf og var sú mynd mjög góð og get ég hiklaust mælt með henni. Eftir videoglápið þá náði mamma í okkur því hún hafði boðið okkur í grill :) og í þetta skiptið þurftum við ekki að koma með. Gott að fara í mat til mömmu hehehe en eftir matinn þá skutlaði ég Jens í Breiðholtið til þess að fara að spila. Keypti síðan ís til þess að bjóða mömmu og strákunum upp á og glápti síðan á sjónvarpið heima hjá mömmu.
17.júni gerðum við heldur ekki neitt. Fórum ekki í bæinn. Reyndar ætluðum við að fara en varð ekkert úr því fyrr um daginn, svo reyndar kíktum við í bæinn til þess að fá okkur að borða en þá voru allir á leið úr bænum. Komust að því að veðrið var ekki upp á marga fiska þannig að við hættum við að fara í bæinn um kvöldið, hreinlega nenntum því ekki. Kannski er aldurinn farin að segja til sín hjá okkur. Hljómsveitirnar sem voru að spila voru heldur ekkert aðdráttarafl.
bíðið spennt eftir næstum skrifum :)
mánudagur, júní 17, 2002
grrrr....
Það virðist ekki hafa tekist, nenni ekki að pæla í þessu núna. Er svöng. Fylgist með síðunni :)
Nýtt
Komið með nýjan fídus á síðuna. Núna getið þið kommentað á skrifin mín :) skammast í mér eða hrósað hehe. Skrifa meira fljótlega
Systir hans Jens á afmæli í dag. Til hamingju með afmælið Eva :) kærastinn hennar átti víst afmæli í gær og var 25 ára. Til hamingju Ívar.
Það er komin 17.júní
fimmtudagur, júní 13, 2002
þriðjudagur, júní 11, 2002
mánudagur, júní 10, 2002
ha ha ha!
Take the What High School
Stereotype Are You? quiz, by Angel.
Þetta er ekki ég!
but you never know, do you!
Star Wars
Var að sjá Star Wars í annað skiptið, fór með tveim bræðrum mínum. Hélt reyndar að þeir væru ekki búnir að sjá myndina. Nefnilega þegar Haukur Atli hringdi í mig og ég spurði hann á hvaða mynd honum langaði til þess að fara á þá var svarið bara star wars, spiderman eða eitthvað. Þar sem ég er búin að sjá þær báðar og hélt að ég mundi hafa meira gaman af að sjá star wars aftur heldur en spiderman. Svo kemur bara í ljós þegar ég sótti þá að þeir voru báðir búnir að sjá myndina. Fannst hún frekar langdregin svona í annað skiptið.
stundum spilar Jens allt of mikið
Áskorun hefur verið tekin!
Betra er seint en aldrei er víst eitt máltæki sem er til :) en hér með vil ég koma þeirri tilkynningu á framfæri að Árni hefur tekið áskoruninni minni og búin að uppfæra heimasíðuna sína og hvet ég ykkur til þess að skoða. Einnig er komið nýtt inn á síðunni hans sem ég hvet alla eindregið til þess að lesa en það heitir Gullmoli.
Ég mun missa af survivor í kvöld :( en ég er að fara í bíó með bræðrum mínum tveim. Maður getur nú ekki neitað svona sérstaklega í ljósi þess að þeir spurja afskaplega sjaldan. Sjaldan er einu sinni ekki rétta orðið því þeir hafa aldrei spurt mig áður :)
Star Wars
laugardagur, júní 08, 2002
Afmæli
Ellen systir á afmæli í dag. Af öllum þessum systkinafjölda sem við eigum þá hefur hún þann heiður að vera eina systir mín og sú sem er næst mér í aldri :) en til hamingju með afmælið Ellen mín. Vona að þú njótir dagsins. Hvað langar þér annars í afmælisgjöf?
Það er alveg hrikalegt en ég hef ekki kveikt á tölvunni í tvo daga, hugsið ykkur. Ég sem yfirleitt alltaf kíki að minnsta kosti einu sinni á dag á tölvupóstinn minn og stundum oftar.
Frekar leiðinlegt að hafa ekki einu sinni frí frá þessum leikskóla á laugardegi, reyndar voru það ekki leikskólakrakkar sem vöktu mig í morgun heldur var eitthvað verið að gera á leikskólanum þar sem hávært vinnutæki var við störf og spangólandi bæjarstarfsmenn. Ekki vinsælt.
Ég og Jens erum búin að taka út grillið en við grilluðum á þriðjudaginn í góða veðrinu og svo aftur á miðvikudeginum, á þriðjudeginum plötuðum við pabba með okkur í smá bíltúr til þess að sækja hjólið mitt en ég er búin að vera á leiðinni í heilt ár að ná í það en loksins varð eitthvað úr því. Í leiðinni fengum við lánað hjólið hans Birgis fyrir Jens svo hann gæti hjólað í vinnuna. Hann hefur reyndar komið mér mjög á óvart og hjólað :) En mikið er samt gott að hafa hjól til dæmis er ég fljótari út í búð núna á hjólinu heldur en labbandi. Tek bara bakpokann með til þess að geyma vörurnar í þegar ég hjóla tilbaka.
laugardagur til lukku
þriðjudagur, júní 04, 2002
Frábært veður
Ef það hefur farið framhjá einhverjum þá var frábært veður í dag og þvílík synd að vera inni að vinna :( núna blótar maður því svona hálfpartinn að vera að vinna. En hins vegar var ég á smá flakki í dag, var að útrétta smá fyrir vinnuna þannig að það var fínt fyrir utan það hvað var ógeðslega heitt í bílnum.
sól sól skín á mig
mánudagur, júní 03, 2002
Biðin endalausa
Hér með skora ég á Árna að fara að rita eitthvað á síðuna sína. Ég er orðin mjög óþolinmóð. Árni farðu að taka þessi mál föstum tökum :)
Einnig skora ég á Jens að fara að klára heimasíðuna sína og koma henni á netið en ég held að þetta verði alveg rosalega flott heimasíða hjá honum loksins þegar hún kemst fyrir almennings sjónir. Svo í lokin þá vil ég minnast á það að ég held að blogger henti líka honum Birgir vel :) og hann ætti að koma sér upp einum slíkum.
Áskorunum er lokið í bili
Allt svo gott
Eftir að hafa lesið textann um brúðkaupið þá er frekar fyndið því allt tókst svo mjög vel og var mjög gott. Mjög góður orðaforði hjá mér :)
batnandi manni er best að lifa
Helgin
Þá er þessi helgi liðin. Þar sem Jens fékk útborgað á föstudaginn þá hélt hann upp á það með því að eyða peningum :) hann semsagt var að verðlauna sjálfan sig fyrir mánuðinn með því að fara í Nexus og kaupa teiknimyndasögu, roleplay bók og einhver tímarit. Hann lánaði mér lika pening svo ég gæti „verðlaunað“ mig. Ég átti reynar innleggsnótu í Mál og menningu síðan árið 2000 (maður þarf að vanda valið vel) og eyddi ég henni í íslenska fuglavísinn. En bókin eins og nafnið segir til um er um íslenska fugla en ég þarf væntanlega eitthvað að vita um þá áður en ég fer að vinna sem landvörður.
Á laugardagsmorgunin vorum við svo dugleg að vakna klukkan hálf níu en við vorum búin að fá tilkynningu um að það ætti að vera vorhreingerning í húsinu og ákváðum að gera okkar hlut. Þegar við komum fyrir framan íbúðina sem átti að hittast þá voru þau þegar byrjuð. Reyndar vorum við ekki mörg eða aðeins sex og það eru um 22 íbúðir í húsin ef ég hef talið rétt. Mismunandi hvort það eru par-, einstaklingsíbúðir eða tvíbýli. Þannig að þetta var einstaklega léleg mæting. Það var búið að segja okkur að þetta væri frá níu um morguninn til þrjú um daginn. Ég lenti í því skemmtilega að smúla veggina og hurðirnar og fyrir vikið var ég rennandi blaut. Hins vegar þá vorum við ekki lengi að þessu þótt við værum aðeins sex. Því öllu var lokið um hálf ellefu leytið nema við höfum gleymt einhverju.
Eftir smá hvíld eftir þrifin þá var komin tími til að klæða sig upp því við vorum á leið í brúkaup hjá Bellu og Óskari. Þetta var mjög fallegt brúðkaup og reyndar kom svoldið fyndið fyrir í kirkjunni þar sem gestir og brúðurin hlógu því brúðgumanum tókst ekki að setja hringin á hana Bellu svo hún tók bara málið í sínar hendur og hjálpaði til. Eftir kirkju var síðan haldið í veisluna sem tókst vel til og Sigga vinkona stóð sig vel sem veislustjóri. Bella söng líka lag til Óskars sem var mjög gott. Við vinkonurnar vorum líka búnar að ákveða að hafa brúðkaupsleik þar sem spurt er út í hlutverkið innan hjónabandsins og það tókst einnig mjög vel. Sagan sem Aldís og Sólrún voru búnar að búa til var mjög góð.
Þar sem allt þetta brúðkaupsstand var búið frekar snemma þá ákváðum við Jens að skella okkur í bíó og sáum Residental Evil, sem var bara ágætis afþreying samt spurning hvort þetta hafi verið afþreying þar sem við vorum á nálum allan tímann. Ég er farin að þola svona spennu mjög illa og er alltaf mjög „tense“ en það fyndna er að Jens er ekkert betri.
Sunnudagurinn fór síðan í ekki neitt. Við reyndar ákváðum að nota bílinn meðan við höfðum hann enn og skelltum okkur í bónus og loksins þurfti ég ekki að fara ein. Eftir það keyrði ég Jens upp í Breiðholt þar sem hann fór að spila og ég fór til ömmu gömlu í heimsókn.
svo er bara að halda áfram að vinna
föstudagur, maí 31, 2002
Táningur
Nú vil ég spyrja lesendur hvort þeir hafi heyrt orðið táningur og geta sagt hvað það þýðir. Einnig hvort þeim finnist að táningur og unglingur sé það sama. Endilega svarið mér annað hvort með því að senda tölvupóst eða skilja eftir skilaboð í gestabókinni. Mjög mikilvægt að fá einhver svör.
Annars var ég að fá mitt fyrsta private í gestabókina :) mjög spennandi og loksins eitthvað sem ég get lesið. Lítur út fyrir að ég sé sennilegast að fá meiri vinnu, fór í atvinnuviðtal í dag og sá sem ég talað við var mjög jákvæður en þetta er einungis hlutavinna, ekki mjög spennandi en....... vil ekki segja meira fyrr en það er komið á hreint.
1 dagur í brúðkaup hjá Bellu og Óskari
fimmtudagur, maí 30, 2002
Þreytt
Ekki laust við að maður sér þreyttur eftir vinnudaginn enda kannski ekkert sniðugasti tíminn sem ég fór að sofa í gærkveldi. Allavega við vorum svo dugleg að skella okkur í sund í Suðurbæjarlauginní í Hafnarfirði áður en við fórum í mat til mömmu. Ég fékk þær fréttir í gærkveldi að Númi Steinn litli litli bróðir sé byrjaður að ganga og gerðist sá viðburður um helgina. Reyndar frekar fyndið að sjá hann ganga en æfingin skapar meistarann.
Ég er líka búin að komast að því að það er ekkert sniðugt fyrir okkur að hafa bíl því þá verðum við svo löt og nennum ekki að elda. Þannig að það er farið „auðveldustu“ en jafnframt dýrari leiðina í að nærast. Jamm þú hefur eflaust giskað rétt, við förum á næsta skyndibitastað. Seinasti vinnudagurinn hans Jens á morgun og þá kannski verður hægt að elda aftur.
2 dagar i brúðkaup hjá Bellu og Óskari
miðvikudagur, maí 29, 2002
Vinnulýður
Það lítur út fyrir það að ég sé barasta komin með vinnu en að vísu með þeim fyrirvara að ef ekkert sé að gera þá sé ég send heim. Það er sko betra en ekkert og finnst mjög gott að þurfa ekki að „lifa“ á Jens í júnímánuði.
Annars hlakka ég bara mjög mikið til júlímánaðar. Ég er enn að bíða eftir seinustu einkunn minni og það eru komnar 3 vikur síðan prófið var........ grr........ þoli þetta ekki.
3 dagar í brúðkaup hjá Bellu og Óskari
þriðjudagur, maí 28, 2002
Gemsar
Horfðum á þessa mynd í gærkveldi og mikið rosalega er ég fegin því að við fórum ekki á þessa mynd í bíó. Mér finnst þetta frekar þunnur þréttandi, ég var eiginlega að bíða allan tímann að myndin mundi hefjast. Það voru þarna alveg áhugaverðar persónur og Jens var alveg sannfærður að það hefði verið hægt að gera meira úr myndinni. Annars vil ég bara segja það að Jens er stundum alveg rosalegur tuðari. Hann tuðaði þvílíkt um vekjaraklukkuna í gær.
Alvöru survivor þáttur í gær, bara lýsa ánægju minni yfir því að geta horft á alvöru survivor þátt og er alveg ágætlega sátt við gang mála þar. Finnst reyndar Sean að verða skemmtilegri núna en hann var fyrst. Skemmtilegur húmor sem hann kemur stundum með.
Vil líka benda á að niðurtalning er hafin í brúðkaup Bellu og Óskars.
4 dagar í brúðkaup hjá Bellu og Óskari
mánudagur, maí 27, 2002
Vantar meira kjöt á beinin
Ég er ekki að tala um mig heldur greinina mína en það virðist vera samdóma álit þeirra sem hafa lesið. Þannig að þá er bara að reyna að bæta einhverju djúsí við, er þaggi? pfff....... upphefst þá kapphlaupið mikla.
enn 5 dagar í brúðkaup hjá Bellu og Óskari
Hnútur í maganum
Jamm ég er með hnút í maganum. Nú gætur einhverjir spurt sig nú hvers vegna þar sem prófin eru búin, sumarið svo að segja komið og ekkert ætti að blasa við nema tóm hamingja. En nei, ég var að skrifa grein og er bara með hnút í maganum yfir henni. Hef ekki áður skrifað svona þvílíkt og líður bara hreint ekki vel yfir því. Búin að vera að senda greinina til nokkra aðila til þess að lesa yfir og kommenta á hana. Verð bara að bíta á jaxlinn og harka þetta af mér.
Annars var Sigur rós og Hrafna Galdur frábær á föstudagskvöldið. Magnað að hlusta á þetta, hefði reyndar viljað sjá betur en tónlistin var náttúrulega fyrir öllu. Samt fyndið að kallinn sem sat fyrir aftan okkur hrópaði eftir að tónleikarnir voru búnir aftur frá byrjun. Ég hefði alveg viljað fá smá meira. Þetta er líka búin að vera einstaklega dýr helgi hjá okkur Jens, aðallega þó hjá Jens þar sem hann borgaði svona fyrir flest allt þessa helgi sökum blankheita og vinnuleysis hjá mér.
5 dagar í brúðkaup hjá Bellu og Óskari
sunnudagur, maí 26, 2002
Adam á afmæli í dag!
Litli stóri bróðir minn á afmæli í dag, jamm hann Adam bróðir er 14 ára í dag. En hann er þess heiðurs aðnjótandi að vera elsti litli bróðir minn :) Til hamingju með afmæli Adam minn.
Helgin að verða lokið og búið að vera mikið að gera um helgina. Var að vinna á föstudag og laugardag. Síðan í dag er ég búin að vera á skyndihjálparnámskeiði í allan dag. Það byrjaði reyndar ekki vel því þegar ég kom um níuleytið þá beið allt fólkið fyrir utan því við vorum læst úti. Þegar var búið að hringja nokkur símtöl og redda manni til þess að opna fyrir okkur þá byrjuðum við námskeiðið bara úti á plani. Það var mjög fínt þar sem veðrið var frábært. Reyndar pínku svekkt yfir því að eyða heilum góðum sunnudegi inni á námskeiði. Reyndar er alltaf gott að rifja upp skyndihjálpina en......... á meðan var Jens í sundi og svona.
skrifa skrifa skrifa......
fimmtudagur, maí 23, 2002
Þúsund þakkir
Það borgaði sig að auglýsa eftir aðstoð við að laga vinstri dálkinn hér á síðunni. Fékk sendan tölvupóst þar sem mér var bent á síðu þar sem ég fékk upplýsingar til þess að láta íslensku stafina koma. Þakka ég sá sem sendi mér upplýsingarnar alveg kærlega fyrir. Kann ekki við að nefna aðilann hér þar sem ég veit ekki hvernig sá aðili mundi taka því :)
í skýjunum
Sigur rós
Ég og Jens erum að fara á tónleikana með Sigur rós á morgun, Hrafna galdur. Hlakka ég mikið til. Mér finnst þetta alveg stór góð hljómsveit, við fórum á tónleika með þeim þegar stúdentaráð að ég held bauð háskólanemum á tónleika með þeim á 80 krónur. Vá fyrir utan tónlistina þá var þetta líka svo flott og eitthvað svo dulmagnað. Ég hét mér því að reyna að komast á næstu tónleika sem þeir mundu hafa. Ég var meira segja orðin svo örvæntingafull um tíma að ég var farin að leita á netinu eftir tónleikum sem þeir voru að halda víðsvegar um heiminn. Ég hefði sko alveg verið til í að fara eitthvert út á tónleika með þeim. Ekki það að mér langar náttúrulega alltaf eitthvert út :)
Helgin
Virðist vera alveg þéttskipuð hjá mér. Fer á tónleikana á föstudaginn, svo á laugardaginn var Sigga að bjóða okkur stelpunum heim til sín í kökur þar sem systir hennar er að útskrifast. Einnig er systir hans Jens búin að bjóða okkur í partý um kvöldið svona Eurovision/kosningapartý. Það er samt spurning hvort við förum í það því getur verið að Jens fari í ferðalag með buslurum þar sem sárvantar leiðbeinendur. Ég kemst því miður ekki með þar sem ég þarf að mæta á skyndihjálparnámskeið á sunnudaginn frá 9-17 takk fyrir hjá Náttúruvernd ríkisins.
skyndihjálp...
Afmæli
Næstum því búin að gleyma að óska Gulla frænda til hamingju með afmælið :) Til hamingju Gulli með árin 32.
Star Wars
Ég fór á Star Wars í gærkvöldi með Jens og vini hans og hafði bara mjög gaman af. Ég ætla eiginlega ekkert meir að tala um myndina svo ég skemmi ekki fyrir einhverjum sem eiga eftir að sjá hana. En ég verð þó að tala um kjólana og fötin sem senator Amidala eða Padmé var í, þvílíkir ævintýrakjólar. Ég fór að hugsa um aftur þegar ég sá star wars myndirnar og fötin sem princess Leia var í voru þvílíkt flottir. Ekki það að ég sé mikil kjólakona en þetta var svo ævintýralegt :)
Bloggerinn er að gera mig gráhærða ef ég sé ekki orðin það fyrir. Núna fyrst kemur færslan sem ég setti í gær þótt ég hafi póstað henni í gær og svo eru stafirnir farnir allir í rugl aftur. Eins og þetta var flott.
Njótið dagsins
miðvikudagur, maí 22, 2002
Eitthvað meira en litið undarlegt er á seyði hérna. Núna eru stafirnir allir komnir í rugl aftur, ég vissi að ég hefði átt að láta þetta alveg vera. Svo kemur ekki bloggið sem ég var að skrifa rétt áðan.
Sjáum hvað gerist núna.
Auglýsing
Auglýsi hér með eftir einhverjum sem getur farið með mig út að ganga. Ég er í engu formi og hugsa að ég þurfi að vera í einhverju áður en ég byrja að vinna sem landvörður. Ég fór í smá göngutúr áðan um bæinn og er næstum því dauð eftir þann göngutúrinn. En ég er líka búin að komast að því að heppnin fylgir mér ekki í dag. Allavega ég fór í bæinn til þess að ná í skattkortið hans Jens niður á skrifstofur Landspitalans. Þegar því var lokið þá ákvað ég að prófa að kíkja á ömmu gömlu þar sem ég var svo nálægt við heimili hennar. Nei nei hún var þá ekki heima, ábyggilega einhversstaðar úti að spila. Þannig að ég ákvað að labba niður í Eymundsson til þess að kíkja á fuglabækur og komst að þvi að nákvæmlega sömu bækur eru til í Mál og menningu. Ég á nefnilega innleggsnótu í Mál og menningu og því ákvað ég að ganga þangað til þess að kaupa mér íslenska fuglavísinn. Þegar ég kom í Mál og menningu þá var bókin ekki til :( einstök heppni. Á laugardaginn var ég í Mál og menningu og þá var bara ein bók í hillunni en ég ákvað að bíða aðeins með að kaupa bókina því mig minnti að það væri líka til önnur fuglabók sem væri betri en ég hugsa að ég hafi haft rangt fyrir mér. Allavega eftir þetta þá ákvað ég að ganga upp á Hlemm til þess að athuga hvort pabbi eða litla systir væri að vinna. En nei nei gat ekki séð að hvorugt hafi verið að vinna. Þannig að ég hélt þá aftur niður laugaveginn og ákvað að sækja skattkortið mitt. Mér til mikillar yndisánægju þá var starfsmannadeildin lokuð þegar ég kom á staðinn. Þannig að ég fæ að fara aftur í göngutúr niður í bæ.
Linda formlausa
Undarlegt á seyði
Stafirnir eru komnir í lag á vinstri hlið síðunnar minnar og ég gerði ekki neitt, þetta er eitthvað undarlegt........ hvað er að gerast? Ekki það að ég sé ekki ánægð en þetta er hið undarlegasta mál.
Linda stórgáttuð
Litla systir
Haldið að það sé nú, litla systir farin að rífa kjaft við mig í gestabókinni minni og segir síðan að henni finnist fyndið að stóra systir sín sé farin að blogga, hva er ég of gömul ertu að segja það? Nei annars er hún nú vænsta skinn og var ábyggilega pínku sár að ég lét hana ekki vita, annars hélt ég að hún væri yfirleitt ekki mikið á netinu að minnsta kosti er ég aldrei að fá tölvupóst frá henni.
Svo held ég barasta að ég sé að falla í húsmóðurhlutverkið aftur :( því verr og miður. Reyndar þarf ég lika að gerast rithöfundur en ég er alveg búin að sjá það að ég mundi ekki hafa agan í það að gerast rithöfundur ef ég ætlaði að vinna heima.
ekki hanga í tölvunni
þriðjudagur, maí 21, 2002
Vargur fyrstur með fréttirnar
Afmælisgjafirnar eru farnar að streyma inn í hús. Arndís og Árni voru í mat hjá okkur og færðu Jens þennan dýrindis konfektkassa, stundum mundi ég vilja að ég borðaði konfekt svo mikið súkkulaði :). Einnig kom mamma við með afmælisgjöf til Jens.
Hvað varð um Boston Public? Enginn Boston Public þáttur og var heldur ekki seinasta þriðjudag, hvað er að gerast! Núna er eitthvað sem ég hef ekki hugmynd um hvað er, en er ekki Beðmál í borginni á eftir??
Linda sjónvarpssjúklingurinn
Hjálp
Það hafa margir kíkt á síðuna mína í dag :) fjöldi heimsókna rokið upp úr öllu valdi en enn hefur enginn þorað að skrifa í gestabókina mína :( því miður. Allavega þá þarfnast ég smá hjálpar hér. Því eins og sést þá á vinstri dálkurinn erfitt með að skilja eða sýna íslenska stafi og þeir sem hafa einhverja hugmynd um hvernig má laga þetta þá er öll aðstoð vel þegin og netfangið mitt er eins og sjá má hér til vinstri vargur@hotmail.com.
jæja ég ætla að reyna að fara að gera eitthvað af viti :)
hafið það gott í dag
Hugrekki
Ákvað að vera hugrökk og láta fleiri vita af síðunni minni. Spurning hvernig fólk tekur þessu :) oh well. Láta á þetta reyna. Ef þú ert að kíkja á síðuna mína endilega skrifaðu í gestabókina mína en hún heitir talaðu við Varg með pínku skrítnum stöfum :)
bíta á jaxlinn
Andlaus og vitlaus
Á einhvern frábæran hátt tókst mér að eyða út færslunni sem ég var að skrifa, þar sem ég sagði einmitt að ég nennti ekki að skrifa. En þar sem ég vil ekki valda lesendum mínum vonbriðgðum þá........ muhahaa!
Helgin var mjög fin, mest lítið gert og mikið borðað. Eðalhelgi, það var meira segja slegið upp stuttu harmonikkuballi á laugardagskvöldið en það varði stutt vegna „tæknilegra“ örðuleika :)
Á afmælisdaginn hans Jens þá vildi hann mest lítið gera eftir að við komum heim. Langaði ekki í neinn fínan mat enda líka búin að vera borða grillmat alla helgina þannig að honum langaði í eitthvað létt þannig að subway varð fyrir valinu og bragðarefur í forrét og eftirrétt. Svo langaði honum til að spila. Surprise surprise. Þannig að hann bauð strákunum hingað heim og þeir voru að spila. Ég hinsvegar glápti á survivor sem ég varð þvílíkt fyrir vonbrigðum með þennan þátt. En þetta var svona upprifjunarþáttur hvað er búið að gerast og þannig. Engin spenna ekkert gaman. Svo var ég að lesa og dotta yfir sjónvarpinu það sem eftir var kvöldsins.
vona að þetta takist núna
mánudagur, maí 20, 2002
Jens á afmæli
Til hamingju með afmælið Jens minn :) jamm hann er 25 ára strákurinn í dag. Við erum búin að vera í sumarbústað um helgina.
hann á afmæli í dag....... hann á afmæli í dag..........
laugardagur, maí 18, 2002
klikk
Síðasta færsla ætlaði að koma tvisvar fram, vonandi hef ég komið í veg fyrir það með því að bulla meir hérna :)
klikk klikk
spurning
Spurning hvort ég verði nógu hugrökk og láti fleiri vita af veifleiðaradagbókinni minni. Enn sem komið er vita ekki mjög margir af henni. Ætti kannski að láta ættingja og fleiri vini vita af henni eða ekki. Er ekki viss. Erfið ákvörðun. Á líka eftir að laga hana því vinstri dálkurinn er í tómu klúðri og á eftir að laga hann. Ef ég bara kynni...... kannski ég bíði aðeins með að láta fleiri vita af henni.
huglausa Linda
Húsmóðurhlutverkinu hent til hliðar
Já lesandi góður þú last rétt, húsmóðurhlutverkinu hefur verið hent til hliðar en spurning hvort það sé ekki bara mjög tímabundið. Málið er að á fimmtudaginn hringdi ég til manns frænku minnar en hann er eigandi bókbands hér í bæ (um að gera að nota samböndin) til að spurja hann um vinnu. Ég var að vinna hjá honum fyrir öll jól þegar ég var í framhaldsskóla. Hann reyndar gat ekki lofað mér neinu en honum vantaði agalega mikið manneskju akkúrat núna. Þannig að ég var að vinna á fimmtudaginn og föstudaginn hjá honum spurning bara hvort ég fari á þriðjudaginn. En allavega þá er ég enn í atvinnuleyt fyrir júnímánuð.
pizzugerð
Þrátt fyrir að húsmóðurhlutverkinu hafi verið hent til hliðar var ég samt sem áður svo myndarlega að ég gerði pizzu handa okku í kvöldmatinn í gærkveldi. En ég er agalega montin þessa dagana að geta gert það. Ég hef nefnilega aldrei haft neina trú á mér í bakstri og heldur ekki áhugan til þess þannig að mér finnst þetta reyndar rosalegt sport að geta gert þetta :)
Minni á að Jens á afmæli á mánudaginn, hann verður 25 ára strákurinn :)
Fimmtudagurinn
Birgir hringdi í mig á fimmtudaginn þegar ég var á leiðinni heim úr vinnunni sem er svo sem ekki frásögu færandi en málið er að hann var eitthvað rosalega leyndardómsfullur. Hann sagði mér að hann ætlaði að koma í heimsókn til mín og sýna mér eitthvað. Reyndar sagði hann einnig að ég ætti að koma út þegar hann kæmi. Ég reyndar pældi ekki mikið í því, datt reyndar í hug að hann væri kannski á einhverjum nýjum bíl og einnig datt mér í hug að hann hefði látið breyta bílnum en fannst það ótrúlegt þar sem hann er á móti slíkum breytingum. Allavega hann kom og ég fór út, og það sem hann sýndi mér (reyndar tók ég strax eftir því og hann þurfti ekki að benda mér á það) var breyting á bílnum en reyndar mér hafði ekki dottið þetta í hug. Reyndar þótt hann hafi lengi lengi vel talað um að honum langaði í þetta á bílinn sinn. Ertu orðin spenn/ur að vita hvað þetta er?
Hann fékk sér topplúgu á Löduna sína, mér finnst það geðveikt fyndið. Það reyndar kemur vel út og kemur sér ábyggilega vel í sumar þar sem að bíllinn er alltaf svo heitur, nefnilega þetta er lada og ekki með góða loftkælingu ;)
Svo va Birgir líka svo góður að hann bauð mér með í bíó á forsýningu Ali G þar sem hann hafði unnið miðana á undirtónum :) þetta var ágætismynd en ég hefði aldrei farið á hana í bíó og borgað 800 kr til að sjá hana. Til hamingju með topplúguna á bílnum Birgir.
Jens verður 25 á mánudaginn
fimmtudagur, maí 16, 2002
Gleymdist
Ég er búin að setja upp gestabók sem heitir tjáðu þig við Varg en íslensku stafirnir koma ekki fram, þarf reyndar aðeins að breyta henni finnst hún ekki nægilega flott.
tjáðu þig
Frábært veður
Í gær var frábært veður og mér sýnist það vera líka í dag. Ég meira segja fór út úr húsi í gær en eyddi reyndar deginum í því að fara í bónus til að kaupa inn og svona. Það er ekki gaman að fara einn í Bónus alveg búin að fatta það. Reyndar held ég að Jóhannes í Bónus hafi sjáflur verið á svæðinu þegar ég var þar.
Ég er svo dugleg að ég er ekki búin að snúa sólarhringnum við enda fer ég líka alltaf með Jens að sofa á kvöldin þar sem hann þarf að vakna snemma til vinnu, ætli það sé ekki bara ágæt því ég hef ekkert að gera á nóttunni.
mig vantar vinnu......
miðvikudagur, maí 15, 2002
Símhringing
ha ha ha!
Fékk simhringingu í gær þar sem ég var spurðu um bloggerinn, hvort ný uppfærsla væri ekki á leiðinni :) Meðan ég var að tala í símann þá uppfærði ég bloggerinn minn þar sem ég var búin að skrifa textann en lenti í vandræðum í gær með að setja hann inn. En þá var ég skömmuð fyrir það að segja hver hafði verið rekin út í survivor. Hér með biðst ég innilegrar afsökunar á þessu og næst skal ég hafa viðvörun. En allavega var gaman að símtalinu :)
Njótið dagsins
Bs ritgerðin
Stór ákvörðun hefur verið tekin, en ég ætla að fresta ritgerðinni minni og því mun ég væntanlega ekki útskrifast fyrr en í október ef allt gengur að óskum. Þetta var rosalega erfið ákvörðun en það tókst á endanum og ég er alveg ágætlega sátt við þetta.
Húsmóðurhlutverkið
Sagan af húsmóður í vesturbænum heldur áfram.
Ég tók mig til og byrjaði að þrífa hérna á mánudaginn og þvílíkt og annað eins. Merkilegt hvað alltaf er mikið drasl út um allt og skítugt eftir að maður er búin í prófum en sökum þess að ég fór í Blóðbankan á mánudaginn með henni Siggu þá kláraði ég ekki að þrífa. En ég var mjög dugleg þó þegar ég kom heim úr Blóðbankanum því ég eldaði í fyrsta skipti fisk (ekki hlæja að mér). Mitt áhugasvið liggur ekki á matseldinni þannig að þá er kannski ekki skrýtið að ég hafi ekki eldað fisk. Enda er fiskur víst orðinn svo dýr núna.
En allavega þá kláraði ég að þrífa á þriðjudeginum þannig að nú get ég boðið mömmu og strákunum í mat í kvöld án þess að skammast mín neitt mikið yfir rusli. En alveg ótrúlegt hvað manni líður oft vel yfir því að vera búin að þrífa þá er svo gott að vera heima :) jafnvel þótt ég hafi verið með einhvern leiðindahausverk í gær.
skúra, skrúbba.....
þriðjudagur, maí 14, 2002
Ég held ég ætti að hætta að fikta í síðunni núna, virkar ekki það sem ég er að reyna að gera. Búin að týna blogger takkanum og alles.
Survivor
Loksins var gert eitthvað af viti í þessum þætti og hann John kosinn út, það er ótrúlegt hvernig og hverjir hafa alltaf verið kosnir út í þessum þáttum hingað til. Þessi leikur sem þau fóru líka í þar sem vinningurinn var friðhelgin var líka nokkuð magnaður og opnaði augun hjá nokkrum.
Gæsun
Það tókst mjög vel til að gæsa Bellu. Stuttu eftir að ég var búin í prófinu mínu þá fór ég út á Reykjavíkurflugvöll því við vorum búnar að ákveða að hittast þar, en stelpurnar þá voru búnar að ræna Bellu úr vinnunni fara með hana í Mecca Spa í nudd og pottinn. Eftir að því lauk þá héldu þær í Heiðmörk í ratleik þar sem Bella átti að leysa hinar ýmsu þrautir. Í verðlaun fékk hún síðan skot þannig að þær allar voru svona léttar á því þegar þær loks komu út á flugvöll. Út á flugvelli var ég búin að tala við mann þar til að biðja hann um að kalla Bellu upp og gæsahópinn þegar þær kæmu. Hann tók vel í það og því þegar þær komu þá var Bella kölluð upp ásamt okkur og sagt að við værum að fara í útsýnisflug til Grænlands. Þegar við komum síðan að upplýsingaborðinu var Bellu afhent umslag. En þar var miði sem stóð á að þetta væri bara djók og hún átti að fara upp í bíl aftur. Þannig að út í bíl héldum við.
Þá var kominn tími til að skipta um bílstjóra, Linda sambýliskona hans pabba hafði verið að keyra þær út um allt fyrr um daginn en við fengum bílinn hans pabba lánaðan svo við gætum allar verið saman í bíl. Þannig að við héldum upp í Breiðholt til að skila Lindu og ég tók síðan við akstrinum. En þá héldum við áleiðis út úr bænum, fyrsta stopp var Litla Kaffistofan þar sem við skildum Bellu eina eftir í sma tíma svo hún gæti nú skrifað niður hugleiðingar sínar og pælt í því hvað hún væri nú að fara að gera :) en hún átti að rita niður hvar hún sæi sig eftir 30 ár.
Síðan ókum við sem leið lá og reyndum að rugla Bellu smá í ríminu og plata hana upp úr skónum með því að fara nokkra hringi í hringtorginu við Hveragerði og fara til Selfoss og snúa svo aftur við. En við enduðum síðan í sumarbústaði í Vaðnesi en Sigga og Aldís höfðu farið þangað kvöldið áður til þess að skreyta með blöðrum og búa um og hafa þetta huggulegt sem var mjög svo notarlegt.
Eftir að við komum í sumarbústaðinn þá var byrjað að huga að grillinu og pottinum. Við fengum líka þennan æðislega mat, grillpinna með kjöti og grænmeti á en kjötið var búið að liggja í mareneringu í þrjá daga. Þetta var þvílíkt lostæti. Eftir matinn voru allir tiltölulega þreyttir en við höfðum það þó af að skella okkur í pottinn þar sem við höfðum það mjög gott og fengum kampavín til þess að skála fyrir Bellu. Þegar við vorum komnar upp úr pottinum þá breyttist þetta eiginlega í náttfatapartý og var þetta bara mjög kósý, var ekki mikið um drykkju enda flestar þreyttar eftir hamagang dagsins.
sunnudagurinn
Ótrúlegt en við vorum vaknaðar klukkan hálftíu á sunnudagsmorgun og um tíuleytið voru flestar stelpurnar að fá sér afgang af matnum síðan kvöldið áður. Þannig að morgunmaturinn saman stóð af kjóti og sósu. Síðan þegar við vorum búnar að liggja á meltunni í smá stund þá var skellt sér aftur í pottinn og deginum bara tekið rólega með hvítvín í hönd sem var mjög fínt. Það var mjög góð tilfinning að geta bara slappað af og ekki gert neitt og ekki hafa samviskubit yfir því að eiga að vera að læra.
Þegar við vorum búnar að ganga frá og lagðar af stað í áttina heim þá komum við fyrst við á pizza 67 í Hveragerði þar sem við fengum okkur smá næringu og síðan stuttur göngutúr í Eden. Síðan tók við keyrslan heim og öllum skilað aftur til síns heima :)
Þetta var mjög góð helgi og lukkaðist mjög vel.
laugardagur, maí 11, 2002
Gæsapartý!
Loksins get ég upplýst hvað ég er að fara að gera eftir prófið sem ég var að ljúka. En við erum að fara að gæsa Bellu vinkonu, þvílíkur spenningur í gangi. Segi meira frá því síðar :)
Þarf að rjúka
Ég er farin og hef gaman af
Frábært veður!
Gæti ekki verið betra veður en fyrir það sem gerist í dag. Frábært!
illa drukkin...... inn í skógi......hvar er tjaldið...... vonandi skemtir þú þér vel!
Leti
Ég er ekki að lesa og ætti svo að vera að lesa. Þessar stefnur, straumar og allir þessir kallar sem þurfa að muna einungis um 3 konur eða svo. Ég sem meira segja „sendi“ Jens að spila, ekki það að hann þurfi yfirleitt mikla hvatningu við. Veit ekki hvað ég að gera við mig. Kannski er þetta eitthvað svona dult dæmi að ekki ná að fara yfir allt efnið því einhverja afsökun verð ég að hafa fyrir því að fá ekki betri einkunn........ eða hvað!
varist gæsaflug......
föstudagur, maí 10, 2002
Vorblíða í próflestri
Ég verð nú bara að segja það að mér finnst ekki hafa verið þessi bongó blíða undanfarna daga sem ég hef verið að lesa undir próf. Það finnst mér nefnilega yfirleitt alltaf einkenna próflestur að veðrið úti hefur verið alveg þvílíkt gott en ég hef ekki fundið fyrir því. Það eina sem hefur virkilega pirrað mig stundum undanfarna daga í próflestri eru krakkarnir á leikskólanum. Ótrúlegt að þau öskri bara til þess eins að öskra. Stundum eru fóstrurnar ekkert betri og eru að öskra líka. Það er sko ekkert sældarlíf að búa við hliðina á leikskóla.
Jens var himinlifandi yfir Star Wars í gær, tjáði mér það að hann mundi sko koma með mér þegar ég færi að sjá hana, þá hef ég að minnsta kosti bíófélaga :) vona bara að hann bjóði mér.
halda áfram að lesa.......
fimmtudagur, maí 09, 2002
Ein ég sit heima
Jamm ég sit ein heima og ætti að vera að lesa undir próf núna en er í smá pásu núna sem kannski er búin að standa full lengi yfir. Allavega þá er Jens að fara á Star Wars forsýningu í kvöld....... buuhuu og ég sit heima og les undir próf. Haldið að það sé nú. Reyndar er þetta svona feðgadæmi, Jens er að fara með pabba sínum og bróður í bíó.
Lesturinn hefur gengið aðeins betur í dag heldur en í gær, reyndar ekki enn búin með lágmark lesskammtinn en ég ætla að hafa þetta. Virðist þó vera að ég verð að lesa eitthvað langt fram á kvöld. Prófið er síðan 11.maí og er síðasta prófið mitt jíibbíi allavega þangað til í desember ;) En ég hlakka til laugardagsins og liggur þar fleira á bakvið heldur en próflok ;)
lesa lesa lesa
Einbeitningaskortur
Ég þjáðist af miklum einbeitningaskorti í gær sem gerði það að verkum að ég las afskaplega lítið og það sem ég las man ég ekki svo vel eftir. Ég kannski tók mig ekki sterkum tökum í sambandi við lærdóminn en hugurinn var hinsvegar á fullu en í allt öðrum málefnum. Ég var mikið að hugsa um hvað ég ætti að gera í sambandi við Bs verkefnið mitt en er bæði og komin á niðurstöðu sem ég geri en það er samt alltof erfitt að taka afgerandi afstöðu. Ef ég ákveð að fresta Bs ritgerðinni minni þá upplifi ég það pínku eins og ég hafi gefist upp og mér líkar það engan veginn. En ef ég held áfram með ritgerðina og stefni á að klára hana þannig að ég muni útskrifast í júní þá er ég samt sem áður hrædd um að þetta verði ekki alveg nógu vandað verk og framsetning á kortinu verði ekki alveg jafn góð og skemmtileg eins og það gæti verið. Það segir sig sjálft hvað ég eigi að gera en....... það er svo erfitt!
Eða þá að ég er að gera þetta svona erfitt fyrir sjálfri mér.
Í önnur mál þá var ég að skoða heimasíðuna hans Árna en hann er búin að setja upp nýja könnun og hún er snilld, hvet þig til þess að fara og kjósa um það hvort hann eigi að byrja að blogga eða ekki.
að vera eða vera ekki
miðvikudagur, maí 08, 2002
Taktu þátt í spurningakönnun, ég var að reyna að setja þetta hérna til hliðar en íslensku stafirnir eru í einhverju fokki :( og ég nenni ekki að reyna að finna út úr því núna enda ætti ég líka að fara að hunskast til þess að lesa eitthvað.
taktu þátt
Erfið ákvörðun!
Núna stend ég frammi fyrir erfiðri ákvörðun í sambandi við Bs ritgerðina mína. Annarsvegar að fara á fullt að skrifa þegar ég er búin í prófum og skila henni þannig að ég nái að útskrifast í júní eða þá að bíða með það þangað til í haust og hafa vettvangsvinnuna veglegri og vinna að henni í sumar. Skynsemin að hluta til segir mér að bíða með hana og vinna að henni í sumar enda vil ég líka gera þessa ritgerð góða en svo er líka annað að ef ég klára ekki núna þá eigi þetta eftir að dragast og lendi í vandræðum með LÍN og svona....... hefur þú einhverja ráðleggingu handa mér? Allar uppástungur vel þegnar :)
Gærdagurinn
Setti mér takmark í gær hvað ég ætlaði að lesa mikið og það tókst áður en Jens kom heim :) annars er ég farin að fíla mig eins og húsmóðir þessa dagana og það er ekki góð tilfinning. (NB! Ég hef ekkert á móti húsmæðrum) Af hverju? Jú vegna þess að Jens er farinn að vinna núna og vinnur langan vinnudag og þess vegna hefur það núna síðustu daga ég ein sem hef tekið ákvörðun um hvað eigi að hafa í kvöldmat og verið byrjuð að elda þegar hann kemur úr vinnunni. Svo fór ég líka ein út í Bónus um daginn og þvílíkur hryllingur.
En eftir kvöldmat í gær var ég líka þrældugleg en reyndar ekki við lesturinn. Vinur hans Jens var að flytja og ég ákvað að fara yfir og hjálpa þeim þar sem ég var búin að ná takmarki mínu með lesturinn ákvað ég að „verðlauna“ sjálfa mig með því að fara aðeins út og hreyfa mig. Það var heldur betur hreyfing í lagi því þau bjuggu á þriðju hæð og þurfti því að ganga upp og niður þessar blessuðu tröppur. En ég býst við að ég hafi bara haft gott af þessu öllu saman.
veit ekki mitt rjúkandi ráð........
mánudagur, maí 06, 2002
Áskorun!
Ég var að skoða heimasíðuna hans Árna aftur en greinilegt er að hann er ekki mikið að lesa undir próf......... kemst upp um þig kallinn minn. Því núna þá er svona hreyfimynd á það er að segja þar sem hann er að telja niður í dagana þar sem Jens á afmæli það hreyfist fram og tilbaka. Kallast það þá ekki hreyfimynd?
Allavega hér með ætla ég að skora á Árna að byrja svona vefleiðara bara fara inn á blogger.com og start new account :)
Ekki hefur miklu verið áorkað í dag og er helst til um leti að kenna eins og svo oft áður. Var reyndar þreytt þegar ég kom heim úr prófinu í dag þannig að ég kíkti i rúmið í smá stund en svo hef ég verið að prenta út glærur sem voru í námskeiðinu í vetur og svona skipuleggja. Ég er reyndar held ég ekki eins slæm og Sigga vinkona við skipulagninguna hehehe því hún virðist stundum taka meiri tíma í að skipuleggja námsefnið og glósur heldur en að lesa fyrir prófin. Smá skot á þig Sigga mín ;)
bara drífa þetta af.......
Tvö búin, eitt eftir + ritgerð!
Var að klára enn eitt prófið og vil sem minnst um það segjar. Reyndar finnst mér líka oft að segja hvernig mér gekk í prófum sérstaklega þar sem ritgerðaspurningar eru því mér gengur yfirleitt ekki vel í þeim :(
Allavega þá er eitt próf eftir, ætla samt að taka pínku ponsu hvíld því ég er svo þreytt núna og byrja svo á fullum krafti.
Skoðaði heimasíðuna hans Árna í gær og sá að hann var að telja niður í afmælið hans Jens :) en hann er að verða 25 ára.
Og áfram heldur svo....
sunnudagur, maí 05, 2002
Helgin
Fullt að gera um helgina og lá við að ég hefði ekki tíma til þess að lesa undir próf. Á föstudagskvöldið ákváðum ég og Jens að skella okkur í bíó á Spiderman sem var mjög góð
NB! Jens fannst hún bara ekki geta verið betri.
Á laugardeginum þá var verið að opna ljósmyndasýningu á vegum Fókus klúbbsins en hann Birgir er í klúbbnum og er með þrjár myndir á sýningunni. Þannig að ég fór þangað á opnunina sem mér var boðið á :) var mjög fínt og margar mjög góðar myndir þarna. Ekki skemmdi heldur fyrir að veitingar voru í boði. Mamma bauð síðan mér og Jens í mat á laugardagskvöldinu sem ég reyndar eldaði og var bara mjög fínt þó ég segi sjálf frá. Eftir matinn og meltunina þá fórum við í partý til Siggu sem var að halda upp á afmælið sitt sem var 29. apríl en partýið var haldið hjá henni Aldísi. Reyndar stoppuðum við ekki mjög lengi þar sem ég átti að vera heima og lesa undir próf. Leiðindartími til þess að eiga afmæli á ;-) en þessi fær maður víst ekki ráðið.
Á sunnudeginum vaknaði ég sem betur fer fyrir hádegi til þess að lesa og gekk ágætlega. Mamma hringdi svo til þess að bjóða okkur í vöfflur og rukka okkur um bílinn en ég var búin að vera á honum alla helgina. Eftir vöfflur var síðan haldið heim á leið til þess að halda lestri áfram sem hefur gengið svona upp og ofan.
Núna er ég í pásu sem reyndar hefur staðið kannski full lengi, en eins og vanalega þegar ég er á netinu þá kíki ég á nagportalið eftir að hafa skoðað póstinn minn til þess að sjá hvort einhverjir hafa vefleiðarar hafa skrifað eitthvað skemmtilegt. Svo skemmtilega vildi til að ég las vefleiðarann sem heitir Valur. Þar voru nýkomnar myndir inn hjá honum sem ég ákvað að kikja á og rakst ég þar á myndir af Ellen systur og Atla kærasta hennar í partýi.
Lítill heimur.
Afmælisóskir!
Dagný Ósk dóttir hennar Sólrúnar vinkonu og Bjarna unnusta hennar var 1 árs í gær. Til hamingju með afmælið Dagný (of lítil til að lesa en...) og til hamingju með dóttur ykkar :).
Lestur heldur áfram
föstudagur, maí 03, 2002
Heiðdís á afmæli í dag
Hún Heiðdís vinkona á afmæli í dag.
Til hamingju með afmælið Heiðdís mín og vonandi áttu góðan dag.
partý partý partý!
Og þá veit ég það!
Eftir sex ár þá hugsanlega veit ég hvað var að hrjá mig þegar ég svona skyndilega lamaðist öðrum megin í andlitinu í maí 1996. Fór til heimilislæknisins sem gat ekkert gert og vissi ekkert en sendi mig upp á bráðamóttöku þar sem margir læknar vildu skoða mig og sjá en höfðu ekki hugmynd um neitt og sendu mig heim. Loksins frétti háls-, nef og eyrnalæknir um mig í gegnum vinnufélaga pabba og vildi endilega að ég færi í súrefniskútinn upp á Borgarspítala. En þessi súrefniskútur er m.a. notaður fyrir kafara sem fá kafaraveikina. En samkvæmt vefleiðara sem ég var að lesa, en bróðir hennar að því virðist var að fá sama sjúkdóm og ég fékk, þá heitir hann Bell´s Palsay.
Það er þó ágætt að læknar viti hvað þetta er í dag. Þetta var fremur óþægilegt og lét ég ekki sjá mig utandyra í nokkra daga. Var nýbyrjuð að vinna á nýju Gistiheimili og við vorum að taka það í gegn þegar ég lamaðist í andlitinu. Ég fékk þá frí þangað til ég skánaði. En ég var komin viku síðar til vinnu en það tók alvega heilan mánuð að verða betri, meðan þá var tal mitt skrýtið, var pínku þvoglumælt. Ég skammaðist mín frekar mikið þegar ég var að reyna að tala við gesti gistiheimilisins. Reyndar þá var ég á næturvöktum fyrst um sinn sem var fínt.
Linda allta að læra eitthvað nýtt!
fimmtudagur, maí 02, 2002
Eitt búið!
Þá er mitt fyrsta próf vorsins lokið, ætla ekkert að kommenta á það hvernig mér gekk hins vegar fengum við verkefnin í hendurnar sem við höfum unnið í vetur og það var bara súper. Reyndar er kortið inn í því sem ég ætla að nota í Bs ritgerðinni minni og það er öðruvísi en ég bjóst við. Já ég veit ég gerði það og ætti að vita hvernig það er en hins vegar að sjá það á prentuðu formi en ekki í tölvuskjá er allt allt öðruvísi.
Nú eru tvö próf eftir og ritgerð............ ég hlakka svo sannarlega ekki til næstu viku.
og þá er bara að herða upp hugann og halda áfram
1.maí
Ég fór að ég held fyrsta skipti í dag í 1.maí kaffi. Ég hef ekki farið í kröfugöngu á fyrsta maí og yfirhöfuð þá bara man ég ekki hvað ég hef verið að gera á fyrsta maí, jú í fyrra var ég að lesa undir próf eins og ég átti að vera að gera í dag. En hvað gera ekki blankir og svangir háskólanemar til þess að fá sér að borða :) Jens var reyndar hræðilega hneykslaður á mér að hafa aldrei farið í kröfugöngu, reyndar fór hann ekki núna heldur fórum við einungis í kaffið hjá BSRB. Ég var reyndar mjög tvístígandi hvort ég ætti að fara. En ég sló til og fór með Jens og viti menn við stóðum þvílíkt út úr, ekki bara það að ég kom þarna eins og sauður í jogging buxunum og flís peysu (maður þarf ekki að dressa sig upp fyrir próflestur) meðan allir hinir voru svona frekar fín þá gat ég ekki séð nokkurn þarna á okkar aldri. Það var eldra fólk og svo börn sem voru á svæðinu og stungum við svo sannarlega í stúfa við alla hina. Það sem var á boðstólnum var ekki svo slæmt og gátum við seðjað okkar sárasta hungur þarna. Svona til þess að vera ekki alslæm þá mun ég líka vera í BSRB í sumar þar sem ég verð landvörður.
Sigurrós
Við vorum að ákveða í dag að skella okkur á tónleikana með þeim sem eru 24.maí á Listahátiðinni og nú er bara að vona að við fáum miða.
Ég ætla að reyna að halda próflestri áfram!
þreytt