BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

þriðjudagur, júní 15, 2004

Home sweet home

Kom heim seinni partinn á sunnudaginn! Dauðþreytt!

Austurríkisferðin var fín, gaman að taka þátt í keppninni en maður fann fyrir þreytu í lokin. Við vorum tiltölulega sátt við okkar hlut en þegar kom að úrslitunum þá var ég að það minnsta kosti ekki sátt og olli vonbrigðum þótt við þessu væri að búast.

Kom mér líka á óvart að ég fann ekki fyrir óþægindum af dómurunum, fann sjaldnast fyrir því að þeir væru þarna nálægt mér og fylgjast gaumgæfilega með mér.

Verð að segja frá einum pósti í keppninni.
Þetta var semsagt bílslys, við komum að bíl sem hafði keyrt á háspennukassa og neistaflugið stóð í allar áttir. Við kölluðum á fólkið að vera kjurrt í bílnum þangað til allt væri orðið öruggt. Stuttu seinna kom rafmagnskall og sagði að öllu væri óhætt. Þá þutum við að bílnum og ég hjálpaði manni út að aftan. Það virtist vera í lagi með hann en bara í sjokki. Ég tók hann til hliðar og bað hann að setjast og fór að tala við hann. Ég tók síðan skoðun á honum til að sannfæra mig um það að væri ekkert brotið eða neitt sem væri að.... þegar ég tók eftir öðru eyranu...... og vá það var sjokk. Það vantaði alveg blöðkuna og svo var eitthvað fyrir eyranu (get ekki útskýrt þetta almennilega). Fyrsta sem mér datt í hug var bruni og skoðaði meira og kallaði síðan á Nonna. Maðurinn sem ég var að annast sagði mér að þetta væri normal en ég hlustaði ekki á hann því gat verið að hann vissi ekkert hvað hann væri að tala um, þangað til dómarinn blandaði sér í leikinn og sagði mér að þetta væri eðlilegt. Þannig að greyið maðurinn var bara með svona eyra og ég sem skoðaði það fram og tilbaka og var að dást að hvað þetta væri nú vel gert..... auli ég. En samt sem áður fegin að hafa ekki þurft að gera neitt :-)

En komin heim og er eitthvað þreytt á lífinu þessa daga..... get þó farið að hlakka til næstu helgi en þá er stefnt að því að fara á Hveravelli.

Linda til Hveravalla

miðvikudagur, júní 09, 2004

Týpiskt

Þegar ég er í kapp við tímann til þess að ljúka sem flestum verkefnum í vinnunni og reyna að hætta á skikkanlegum tíma þá liggur bara kerfisleigan niðri og ég get ekki gert neitt.

Er að verða frekar pirruð... búið að vera svona að vera klukkutíma núna.....

Ég þarf að staðfesta að minnsta kosti þrennt áður en ég fer, hvenær sem það verður.

urrr

Einn dagur

Styttist í þetta, núna er bara einn dagur þangað til við fljúgum til Austurríkis.... en ýmislegt enn sem vantar upp á búnaðinn, ekkert mikið svo sem en svo vantar peysurnar. Það er svoldið stórt atriði því ætlast til að við séum í "einkennisbúning".

Fór út að borða í gær með strákunum, var alveg mjög fínt. Eftir það héldum við upp í sjálfboðamiðstöð til að pakka dótinu saman. Ekki laust við að komin sé smá rígur á milli sumra.....ekki nógu gott mál ef verður síðan keppni innbyrðis því þá held ég að við séum ekki alveg að þunkera nógu vel sem lið.

En um að gera að hafa bara gaman af þessu og láta sólina sem á að vera úti sleikja sig og bera nóg af sólarvörn á mig svo ég fái ekki þetta stórskemmtilega sólarexem.

aðeins einn dagur áður en fer út til Austurríkis

þriðjudagur, júní 08, 2004

Hún á afmæli í dag... hún á afmæli í dag

Þá er komið af því að fyrsta systkinið mitt er komið af táningsaldrinum...... jamm litla systir mín er tvítug í dag.

Til hamingju með afmælið í dag Ellen mín og vonandi nýtur þú dagsins í botn!¨

2 dagar í Austurríki

mánudagur, júní 07, 2004

Arg!

Merkilegt að sumar þjóðir virðast bara vera verri en annað og leiðinlegra að díla við...... mánudagur ekki góður dagur!

En ég ætla að reyna það besta að snúa því við í dag!

Langar ekkert til þess að vera fúl og pirruð......er líka að fara út eftir 3 daga!

3 dagar í Austurríki

föstudagur, júní 04, 2004

Reykjavík

Mikið rosalega er ég stundum þreytt á því hvað Reykjavík virðist stundum alveg miðpunkur alls.....

enn 6 dagar í Austurríki

Vonbrigði

Mætti í morgun í vinnuna og sá fram á að ég gæti hætt snemma í dag (eftir mínar 8 klst) en svo kom mál upp sem gerði það að verkum að ég sé ekki fram á að ná að hætta "snemma", buuhhuu ég var farin að hlakka til að fara í jóga og eitthvað. Oh well.

Náði þó að eyða peningum í gær.... jamm er skóm ríkari og peningum fátækari!

Styttist óðum í Austurríki!

6 dagar í Austurríki

miðvikudagur, júní 02, 2004

Í dag...

.... er dagurinn sem mig langar að öskra, er dagurinn sem mig langar að stinga af frá öllu vera óskynsöm og eyða laununum mínum sem ég fékk í gær!

En í dag held ég bara áfram að vera ég sem þýðir að ég öskra ekki, verð skynsöm og sting ekki af.

Stundum er bara hreint og beint leiðinlegt að vera ég.

Get ég fengið að vera einhver annar!

Linda leiðinlega!

laugardagur, maí 29, 2004

Hópur

Ég er í hóp sem er á leið til Austurríkis að keppa í skyndihjálp eftir um 2 vikur.
Ég er eina stelpan í liðinu sem er alveg fínt, hins vegar rann upp fyrir mér um daginn munurinn á mér og strákunum. Undanfarið þegar við hittumst á æfingum þá hef ég viljað að við tölum um liðið, hvernig okkur gangi og hvað er að gerast og svona, hvað megi betur fara o.s.frv. Semsagt alveg fara oní saumana á öllu, ég hef kannski ekki verið rosalega dugleg í að gera þetta eða reyna að koma þessu á framfæri. Um daginn áttaði ég mig svo á að strákarnir virðast bara ekki vera á þessari línu, þeir meira láta þetta bara gerast og sjá til. Ég er að hugsa um að gera það líka núna :)

Linda að reyna að verða ein af strákunum

miðvikudagur, maí 26, 2004

Afmæli

Þá er komið að því, litli stóri bróðir minn er orðinn heilum sextán vetra í dag og tilvalið að vera sveitarlega í tali þar sem hann er á fullu í sauðburði í sveitinni þessa daga og kemst ekki einu sinni í bæinn til þess að fagna afmælinu sínu. Ég mun þó sjá hann um helgina væntanlega en ég "keypti" flugfar eða bókaði hann í flug á sunnudaginn.

Það er því bara ekki annað fært en að óska honum til hamingju með afmælið á síðu sem hann veit ábyggilega að ekki er til. Til hamingju með afmælið Adam minn :)vonandi nýtur þú dagsins!

Svo eru bara tónleikavakt aftur í kvöld!

hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag....

þriðjudagur, maí 25, 2004

Ísferð

Fór í ísferð í gær eftir vinnu, sem er svo sem ekkert til þess að tala um þrátt fyrir að við fengum okkur engan ís heldur bara pizzu, sem er síðan bara mjög algengt með ísferðirnar okkar :-)

Það sem ég vildi kannski einna helst minnast á að einn af ísfélögunum minntist á að hvernig væri að blogga allt það sem maður hugsar og hugsar akkúrat núna.
Ég vil meina að það sé ekki hægt upp að vissu marki, því ef maður ætlar að skrifa niður hugsanir sínar á blað akkúrat þegar þú ert að hugsa þær þá ertu að hugsa um hvað þú sért að hugsa. Þar af leiðandi ferðu að hugsa um það sem þú ætlar að skrifa og út kemur bara hugsun um hugsun. Eða hvað!

En svo getur þetta svo sem allt verið bara tómt kjaftæði....

Búin að ætla að fara að skrifa um greenpeace.... er enn í bið!

mánudagur, maí 24, 2004

Fleiri afmæli

Gulli frændi átti afmæli í gær! Hér með eru afmælihamingjuóskir komnar á framfæri :-) Til hamingju með afmælið í gær!

Betra er seint en aldrei ;-)

Svo í dag eru líka 8 ár síðan ég útskrifaðist sem stúdent úr MK!
Shit mar.... ekkert smá langt síðan!

Kom heim úr ferðinni í gær, svaf á Akureyri á föstudaginn og á Ósum á laugardaginn. Var hin fínasta ferð!

Linda svo miklu miklu nær

fimmtudagur, maí 20, 2004

Hamingjuóskir!

Hann Jens Ívar á afmæli í dag. Til hamingju með afmælið Jens minn og vonandi nýtur þú dagsins í dag!

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag......

miðvikudagur, maí 19, 2004

P.s.

Ef það er einhver sem hefur áhuga á að koma í bíltúr og fara norður um helgina með stoppum á farfuglaheimilinum þá bara hafa samband við mig :-) velkomin með!

Á ferðinni

Já það lítur bara út fyrir að ég verði á ferðinni á næstunni.

Á fimmtudaginn er áætlað að ég fari til Hveragerðis, Árnes og Laugarvatns að skoða farfuglaheimilin.

svo á föstudagskvöldið mun ég keyra í áttina norður til þess að skoða farfuglaheimili á leiðinni. Mun þó sennilegast gista í Grundarfirði á föstudagskvöldið og svo aka norður á laugardeginum og tilbaka á sunnudeginum :-)

Alltaf gaman að fara norður!

Í gærkveldi var hópefli hjá Buslurum og leðibeinendum. Til þess fékk ég tvo frábæra gaura úr hinu húsinu, þeir hafa áður verið með leiðbeinendum.
Eftir smá umræður fóru þeir með okkur í ýmsa leiki, þegar kom smá pása þá heyrði ég á samtal tveggja buslara að þótt þeir hafi komið um hálf sjö og klukkan væri níu þá væri eins og það væri bara smá stund liðin, var frábært að heyra það og sýndi það að þeim þótt skemmtilegt! Flestir ef ekki allir hafa farið ánægðir heim sem er frábært!

Linda á fleygiferð!

Á ferðinni

Já það lítur bara út fyrir að ég verði á ferðinni á næstunni.

Á fimmtudaginn er áætlað að ég fari til Hveragerðis, Árnes og Laugarvatns að skoða farfuglaheimilin.

svo á föstudagskvöldið mun ég keyra í áttina norður til þess að skoða farfuglaheimili á leiðinni. Mun þó sennilegast gista í Grundarfirði á föstudagskvöldið og svo aka norður á laugardeginum og tilbaka á sunnudeginum :-)

Alltaf gaman að fara norður!

Í gærkveldi var hópefli hjá Buslurum og leðibeinendum. Til þess fékk ég tvo frábæra gaura úr hinu húsinu, þeir hafa áður verið með leiðbeinendum.
Eftir smá umræður fóru þeir með okkur í ýmsa leiki, þegar kom smá pása þá heyrði ég á samtal tveggja buslara að þótt þeir hafi komið um hálf sjö og klukkan væri níu þá væri eins og það væri bara smá stund liðin, var frábært að heyra það og sýndi það að þeim þótt skemmtilegt! Flestir ef ekki allir hafa farið ánægðir heim sem er frábært!

Linda á fleygiferð!

mánudagur, maí 17, 2004

Bráðum

Blogga bráðum..... þarf að hafa tíma....... ætla að skrifa um bréfið frá greenpeace!

Bráðum........

stay tuned eða eitthvað

fimmtudagur, maí 13, 2004

Íhaldssöm

Ég er stundum alveg rosalega íhaldssöm og þá með einhverja fáranlega hluti! Stundum vil ég bara að ekkert breytist. Kannski árátta á því að allt í kringum mig eigi að vera eins fyrir öryggið mitt en svo get ég ráðið að fara eða koma! Kannski það sé málið.

En t.d. núna þá er bloggerinn búin að breyta um útlit og eitthvað meira´, ég fór að spá í hvort ég ætti að skipta um útlit á síðunni minni og gera einhverjar aðrar breytingar.... en nei íhaldssama ég ákvað að hafa minnsta kosti enn um sinn þetta gamla útlit og gera ekkert annað róttækt...... þó er smá að brjótast um í mér... en nei íhaldssemin heldur í mig.

Búin að vera með næturgest hjá mér frá því á sunnudag, er ekkert að standa mig rosalega vel í gestgjafahlutverkinu því ég hef ekkert komið heim seinustu tvö kvöld fyrr en seint og síðir og þá orðin svo þreytt að ég fer eiginlega bara beint að sofa. Held það sé meira segja ekki til neitt í ísskápnum.

Farin að finna fyrir aukinni vinnu í vinnunni, hef yfirleitt ekki komist heim eftir mína 8 klst í þessari viku.

Linda ekki í gestgjafahlutverkinu

miðvikudagur, maí 12, 2004

Ósýnileg

Sumt virðist einhvern veginn aldrei breytast en það er þá kannski bara meira ég heldur en eitthvað annað.

Fór á reunion hjá Öldutúnsskóla á laugardaginn og komst þvílíkt í grunnskólafílingin, ég varð ósýnileg. Jamm ég er mýslan sem gekk meðfram veggjum og er það enn.
En reyndar þá sá maður alveg að það var hellingur af fólki sem talaði við annað fólk sem ég minntist ekki eftir að hafa séð í grunnskólanum en það er allt annar handleggur.
En þetta var fínt bara, aldrei þessu vant við allar stelpurnar samankomnar og svona.
Var líka ágæt að sjá þetta lið aftur og sjá að fólk hefur breyst lítið í útliti allavega.

Puntkar yfir kvöldið:

*Fyndnasta atriðið - Þegar 110 kom upp í "happdrættinu" (útskýring Sigga vinkona var með 110 og þetta var skemmtinefnd til þess að skipuleggja næsta reunion og Sigga er þekkt fyrir að muna ekki nöfn eða hverjir eru hvað)
*Breytasta manneskjan - Strákur sem var vel yfir kjörþyngd á sínum grunnskólaárum og leit rosalega vel út í dag.
*Fyllsta manneskjan á svæðinu - Einhver sem ég þekki!
*Fyndnasta setning kvöldsins - Hún já, náði hún sér í maka!

En held það hafi nú líka skipt máli að ég var bara 2 ár með þessum krökkum í skóla og stelpurnar stóðu ögn betur að vígi því þær voru með þessum krökkum í skóla frá því sex ára..... held það spili töluvert inn í....

Linda ósýnilega

föstudagur, maí 07, 2004

Snúkí púkí

Mig langar að gera eitthvað af mér.... er í skrýtnu skapi. Væri til í að hoppa hérna á skrifstofunni, stökkva fram og kalla batman eða eitthvað.

You get the picture!

Langar að bralla eitthvað..... var að reyna að koma með tillögu að hafa einhverja hefð á föstudögum, sennilegast bara tilkomið vegna skapsins sem ég er í.

Kom póstur í gær til Steffiar þar sem beðið var um að engin kettir væru í rúminu, stakk upp á því við Steffi að hún ætti bara að skrifa tilbaka að við hefðum aðeins krókódíla og snáka inn á herbergjunum.

Það væri stundum svo gaman að svara einhverju út í hött þegar maður fær út í hött spurningar!

Finnst nokk merkilegt að núna hjá okkur á farfuglaheimilinu eru hjón sem eru búin að ferðast í 14 ár. Þau seldu bara húsið og bílinn, lifa á því og ellilífeyrnum. Eru búin að ferðast til um 145 landa.

Linda í weirdo skapi

fimmtudagur, maí 06, 2004

Reið

Nei ég er ekki reið við neinn vin, viðskiptavin, samstarfsfélaga eða einhvern sem ég þekki.

Ég er reið við heilalausa hálfvita!

Þessi heilalausu hálfvitar eru m.a. bandarískir og breskir hermenn ásamt Bush og því pakki.

Af hverju er ég reið við þessa heilalausu hálfvita?

Jú af því að undanfarið hef ég lesið hvernig komið var fram við íraska fanga og séð myndir um slíkan ófögnuð. Mér blöskrar alveg hreint, hvernig er hægt að vera svona heilalaus og svona ómanneskjulegt. Sem getur vakið upp spurninguna um hvað er manneskjulegt og hvað ekki en ætla ekki að fara út í það.

Fyrir utan það að Bandaríkin fóru út í Íraksstríðið vegna hugsanlegra kjarnorkuvopna og það allt þá var hann Saddam Hussein svo vondu svo vondur við sitt eigið fólk, fólkið í Írak en ooppsss hva bandarískir hermenn voru vondir við fangana sem teknir voru höndum. Greinilega ekki sama hverjir voru vondir við hvern og hvaða fólk það styður.

Get orðið svo reið ef ég hugsa um þetta þannig að maður ýtir þessu frá sér. Er það gott? Veit ekki en lítið sem ég get gert!
En þótt það sé lítíð sem ég get gert þýðir það þá sama að ég eigi ekkert að gera?

Ríkisstjórn Bandaríkjana reyndi að fela sig bak við það að hermennirnir þekktu ekki innihald Genfarssáttmála um meðferð stríðsfanga! Léleg afsökun og jafnvel þá er þetta ekki manneskjulegt, þú kemur ekki fram við aðra eins og skít. Fólk með heila og heilastarfssemi getur alveg sagt sér það sjálft.

ojj og viðbjóður á fólkið sem tók þátt í þessu, ojj og viðbjóður á fólkið sem vissi um þetta en gerði ekkert!

Linda sem vonar að þeim verði refsað og fylgt Genfarssáttmálanum

mánudagur, maí 03, 2004

Fyrst með fréttirnar!

Vil byrja á því að óska Heiðdísi vinkonu til hamingju með afmælið og LSJ og Ívari til hamingju með soninn,og Hafdísi til hamingju með litla bróður en samkvæmt áreiðanlegri heimild þá kom stór strákur í heiminn í kvöld. Til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn :-)

Nýja skrifborðið er komið upp, skrifstofan mikið betri fyrir vikið, stórbreyttist alveg hreint og er ekki lengur eins þunglamaleg. Er samt enn að venjast!

Fór til Gulla frænda í dag með blóm, hann var nefnilega að opna búð á Laugaveg 28 sem heitir Ósóma. Selur boli og voru nokkrir þarna skemmtilegir :-) sá svo í mátunarklefanum bílnúmerið A 1649 sem er eiginlega fjölskyldubílnúmerið. Malli afi var með númerið R 1649 og pabbi er víst búin að lofa Gulla frænda því líka en semsagt mamma hans Gulla og pabbi voru með A 1649. Finnst það rosalega cool :-)

Skot á pabba: Koma í rétta götu þegar verið er að pikka mann upp ;-)

Er búin að kaupa miða á reunionið sem er á laugardaginn og eru víst komnir um 129 manns sem er bara held ég ágætis mæting, hitti akkúrat Iðunni og vinkonur þegar við vorum aðkaupa miðana. Var nánast bara lítið reunion þegar maður mætti á kaffi Aroma til þess að kaupa miðann.

Er mikið að spegulera í því þessa daga hvert ég á að fara í frí (fæ frí í haust), áætla að ég verði á BÍF næsta vetur og sumar líka. Er komin með nokkrar hugmyndir sem ég er að melta en veit ekki alveg hvað ég á að gera. Þessar hugmyndir eru:

*Fara til Ástralíu í nóvember og vera 4-6 vikur
*Ferðast um Evrópu í september og vera 3-4 vikur
*Fara í málaskóla í nóvember

Langar alveg rosalega til Ástralíu en er mikið að spá í hvort ég eigi að slá því aðeins á frest til þess að geta safnað meiri pening (mun ekki geta náð að safna miklu fyrir) og fara í lengri tíma þá líka.
Á enn eftir að skoða mikið í Evrópu, mjög mikið og vil frekar vera í september þegar er aðeins hlýrra heldur en nóvember. Var í fyrra í nóvember og var frekar kalt.
Málaskóli, hefur lengi langað að fara í málaskóla en liggur svo sem ekkert á og svo líka spurning hvort það muni ekki líka bara slaga hátt í Ástralíuferð!

Jæja einhverjar hugmyndir eða tillögur um hvað ég ætti að gera?

Linda veit ekkert í sinn haus

föstudagur, apríl 30, 2004

Útborgað

Fékk útborgað í dag, strax farið aftur. Tekur ekki langan tíma hmm......... Merkilegt nokk samt sem áður, nú er ég búin að fá VR launahækkunina og var með eitthvað af aukavinnu í seinasta mánuði en samt finnst mér ég vera að fá jafn lítið útborgað. Held það borgi sig barasta ekki að vinna aukavinnu sem ég mun reyndar ekki komast hjá á næstu mánuðum.

Fáum ný skrifborð sennilegast um helgna, þannig að verður bara spennandi að koma í vinnuna á mánudaginn :-) jeeiiii loksins loksins.

Linda útborgunarfíkill

Skákmót á Kúbu

Ég hef verið á þessu torgi hér en að vísu spilaði ég ekki skák!

Linda sem hefur ekki spilað skák í Santa Clara

fimmtudagur, apríl 29, 2004

Reunion

Byrja á því að óska Siggu vinkonu til hamingju með afmælið! Til hamingju með afmælið :) og njóttu dagsins í botn jafnvel þótt þú fáir okkur ekki í heimsókn.

Að öðru tali þá verður reunion hjá Öldutúnsskóla núna 8. maí, ég frétti það í saumaklúbb semsagt núna seinast þar sem vinkonur mínar nema Sigga höfðu fengið bréf um þetta.
Ég tók þá ákvörðun þar sem ég hafði ekki fengið bréf að mæta ekki, (nei ég hélt ekki að þau væru vísvitandi að senda mér ekki bréf). Nema hvað núna áðan fékk ég símtal frá einum af þeim sem eru að skipuleggja reunionið til þess að láta mig vita og sagði mér það að þau hefðu verið með gamlan lista, lista frá því í 7 bekk þannig að þeir sem byrjuðu eftir það (m.a. ég og Sigga) hefðu ekki fengið neitt bréf.
Núna er ég því í djúpum ég þarf að taka ákvörðun, á ég að mæta eða ekki!

Seinast var reunion 1996 og því töluvert síðan, búin að frétta það hér að gellurnar úr j-inu ætluðu að mæta en við vinkonurnar vorum í k-inu. Þrjár af vinkonunum ætla að mæta og tvær sennilegast ekki og ég er á báðum áttum.

Skýtur upp líka þessi hugsunarháttur ég er ekki nógu flott, ekki að gera neina skemmtilega hluti og er bara auli og hef ekkert skemmtilegt til að segja frá....... gass hvað maður er nú eitthvað ..............

Linda að fara eða fara ekki!

miðvikudagur, apríl 28, 2004

Gjafabréf

Hunskaðist loksins í kringluna til þess að nota gjafabréfin sem ég fékk í afmælisgjöf, ætlaði samt ekki að nenna. Fékk félagsskap þannig að gerði það auðveldara að fara. En gekk mjög fljótt og vel fyrir sig. Fór í NEXT og tók tvær buxur og bol til þess að máta, fór úr klefanum og keypti bol og buxur! Hreint furðuverk. Er núna því buxum, bol og brjóstahaldara ríkar og á enn smá pening eftir. Fattaði of seint að ég hefði átt að fara í sokkabúðina til að versla mér sokka.

Fór á skyndihjálparæfingu í gær með liðinu sem á að fara út, vorum að æfa skoðun og mat. Þar fékk einn af strákunum að káfa á mér þegar hann tók mig í skoðun. Má þakka fyrir að ég er ekki á þeim tíma í tíðarhringnum þar sem brjóstin eru viðkvæmust hahaha! Hann þrýsti líka duglega á mjaðmirnar á mér en ég komst heil út úr þessu. Fattaði síðan í bíó hverju við höfðum gleymt, að tjekka á viðbeinunum. Ferlegt en erum búin að ákveða að nánast að fara í þetta á hverri æfingu svo við getum verið með þetta 100% eða allt að því....... ekki nema strákunum finnist svona gaman að þukla á hver öðrum ;-)

Fór á Kill Bill volume 2 í gær, fór í Laugarásbíó og myndin stoppaði tvisvar í byrjun. Ég og Birgir vorum búin að ákveða það að fara út ef það gerðist í þriðja skiptið og fá endurgreitt, en það kom ekki til þess en í staðinn er ég rosalega þreytt.
Pirrandi hvað fólk getur nú verið leiðinlegt í bíó, greinilega að einhverjum leiddist í gær og lét okkur hin finna fyrir því með því að geispa svona rosalega að það heyrðist um allan sal og ekki bara einu sinni.

Linda þreytta!

þriðjudagur, apríl 27, 2004

P.s.

Gleymdi að skrifa um uppgötvun mína eftir spilamótið í catan, en það eru sætir strákar sem spila catan, sá það alveg á laugardaginn (hlýt að fá prik frá einhverjum hahaha)!

Friends kvöld

Hitti Stebba í jóga í gær þar sem hann bauð mér í mat til sín og Guðmundu eftir jógað.

Hann grillaði þessar fínu lærisneiðar og svo var tekið sig til og horft á friends þætti og mjólk og sukkulaðibitasmákökur einhverjar maulaðar með....... jammí. Missti töluna af hve marga þætti við horfðum á.

Er reyndar frekar þreytt í dag og svo spá í þessu bloggi mínu því mér hreinlega finnst það ekki skemmtilegt..... þarf að finna eitthvað skemmtilegra til að skrifa um.......... en á móti kemur þá að ég held er það tímafrekara þarf að hugsa meira og skrifa það svo niður og gæti bara hreinlega verið mér ofviða. Hugsa að þess vegna hafi ég fest í þessum dag frá degi skrifum mínum því það er auðveldast.

En kannski bara að ég ætti að fara að nota heilann, nýta tíman betur og skrifa eitthvað þrælskemmtilegt!

Fyrir utan allt hitt sem ég þyrfti að gera líka.

Linda í umhugsun

sunnudagur, apríl 25, 2004

Pirruð

Ég er pirruð en þó mest á sjálfri mér.

Ég er pirruð vegna þess að ég var pirruð við góðan vin sem á í klemmu, klemmu sem þessi vinur kom sér sjálfum í. En allra mest pirruð að ég varð pirruð út í hann og lét bitna á honum í stað þess að styðja hann.

Var á Íslandsmeistaramótinu í Catan í gær, komst ekki áfram en Dagný frænka hélt þó heiðri fjölskyldunnar uppi og lenti í 4 sæti. Þau sem sjá um spilamótið eiga heiður skilið, boðið var upp á léttar veitingar, pizzur og gos. Ekki nóg með það heldur fékk maður líka hrókinn (spil) í lokin.

Lítur út fyrir það að ég sé að fara til Austurríkis í júní að taka þátt í FACE, skyggði þó smá á gleðina að þessi ákvað að draga sig úr.

Fór í jóga seinasta föstudag eftir langt hlé og mikið afskaplega var það gott, búin að vera nefnilega rosalega illt í öxlunum undanfarið en hefur eitthvað losað um.

Linda pirraða

miðvikudagur, apríl 21, 2004

Færeyjarferð

Færeyjarferðin var bara snilld.

Bjössi frændi dekraði við okkur, eftir að við frænkurnar vorum búnar að finna út rútuna til Þórshafnar frá flugvellinum (var sko ekkert erfitt) tók Bjössi á móti okkur niður á höfn. Þá tók hann okkur í smá bíltúr áður en stoppað var á Pizza 67 og okkur boðið upp á pizzu. Var hinn huggulegasti staður og stórskemmtilegt að skoða matseðilinn. Fyrir utan það að hann var á færeysku þá er þarna pizza sem heitir í höfuðið á Bjössa og heitir Bossanova, svo það stórskemmtilega er að ein pizza heitir eftir fasta kúnna sem kemur þarna víst oft.

Eftir át var haldið síðan heim til Bjössa en hann býr út í rassgati (hann er í afneitun með það sjálfur) eða í Norðasta horni. Kenndum honum Catan og tókum þrjú spil þar sem öll unnum eitt..... frændsystkinakærleikurinn mjög mikil þarna fyrst greinilega :-)

Fórum í skoðunarferð um nokkra staði, smökkuðum skerpukjöt og síðuspik. Snilldarferð semsagt.

Annað í fréttum er það að samvistarmakinn virðist bara vera búin að segja mér upp, gat meira segja ekki notað síma, bréf eða annað til að láta mann vita heldur bara hættir að hafa samband með öllu. Síðan þegar maður heyrir í samvistarmakanum er það til þess að biðja mann um að koma með dótið sitt sem var heima í saumaklúbbinn........... haldið þið að sé framkoma.

Pablo er líka farin úr húsi........ var frekar skrýtið svona fyrstu dagana. Hef alltaf verið að líta í hornið til hans til að athuga með hann. En það góða er að þarf ekki lengur að óttast það að ég sé að drepa hann úr hungri og ekki með fuglafjaðrir og annan ósóma lengur.

Var að byrja á páskaeggi nr. 6 í gær, var búin að koma með eitt niður í vinnu svo hægt væri að hjálpa mér með það og annað til Jens. Fékk nefnilega þrjú stykki :)

Var á skyndihjálparæfingu í gær........ gekk ekki svo vel

og síðast en ekki síst þá er ég orðin bíllaus og farin að taka strætó aftur.

Linda bíllausa

föstudagur, apríl 16, 2004

Ráðið í orð

Getur einhver lesið út hvað stendur hér? assumingnoagelimit

Tók mig smá tíma en tókst!

Linda svo klár í dag

Birta til

Jæja það er kannski aðeins farið að birta til hjá mér.

Í dag er fermingarafmæli hans pabba, sorry en nenni ekki að reikna út fyrir hvað mörgum árum síðan hehe. Til hamingju pabbi :)

Í dag er líka 11 ár síðan spangirnar voru teknar, var mjög góður dagur. Þurfti þó aðeins að bíða með að brosa því ef slíkt gerðist fékk fólk ofbirtu í augun. Til hamingju Linda :)

Í dag fer ég til Færeyja, var komin smá spenningur í gærkveldi þegar ég talaði við Guðmundu um hvað ég ætti nú að gera. Hún kom með fullt af góðum hugmyndum. Væri nú þrælgaman að fara með henni þar sem hún á nú ættir sínar að rekja þangað, hálf færeysk stelpan.

Í dag þarf ég líka að fara í bankann til þess að ná mér í nokkrar danskar krónur en nenni því ómöglega.

Í dag þarf ég líka að pakka, hmm....... talandi um að gera allt á síðustu stundu, nennti þessu ómöglega gærkveldi, henti síðan einhverjum fötum í rúmið í morgun. Þarf heldur ekkert mikið þar sem þetta eru nú bara 3 nætur.

Í dag er bloggerinn líka eitthvað leiðinlegur, fer ekki á síður hjá fólki með blogspot ef maður setur www fyrir framan og síðan komu íslensku stafirnir í eitthvað rugl.

Í dag þarf ég síðan að finna brosið og komast í ferðagírinn.

Svona er Linda í dag

fimmtudagur, apríl 15, 2004

Færeyjar

Færeyjaferðin á morgun, unreal!

Ef einhver er með góðar hugmyndir sem hægt er að gera eða eitthvað sem er möst endilega hafið samband við mig eða kommentið í komment kerfinu.

Er leið :( og veit ekkert hvað ég á að gera í því eða hvernig. Allt í hnút. Ekki gaman, hefur þar af leiðandi áhrif á Færeyjarferðina.

Tek Catan spilið með mér, vona bara að Bjössi sé til í að spila og verði ekki að vinna alveg allan tíman, vantar þó sárlega fjórðu manneskjuna. Tek líka skyndihjálparbók með mér........ lítur út fyrir þar af leiðandi að ég verði bara að spila og læra í Færeyjum. Kannski er betra loft þar sem gefur manni eitthvað kikk..... hahaha. Nei reyni að skoða og fara í göngutúra.

miðvikudagur, apríl 14, 2004

Þreytt

Er þreytt eftir andvökunótt og þyrfti því mikið koffín í dag til þess að halda mér uppi, drekk bara ekki kaffi.

Varð mjög reið í gærkveldi og er það enn sem gerði það að verkum að ég gat ekki sofnað og svo þegar klukkan á símanum hringdi í morgun þá glaðvaknaði ég þrátt fyrir að undanfarna morgna hefur það reynst voða erfitt.

Langar að láta ýmislegt flakka hérna en held ég láti það ógert, vil ekki seinna meir fara að skoða og taka út..... finnst það frekar hallærislegt.

föstudagur, apríl 09, 2004

Skrifandi

Sit hérna fyrir framan tölvuna mína með Dido í geislaspilaranum og bíð eftir því að skrifaandinn komi yfir mig. Þó ekki til þess að geta skrifað hérna á bloggið heldur til þess að geta haldið áfram með ritgerðina mína. Með þessu áframhaldi þá kemur hann ekkert og því er það bara spurning um að bíta á jaxlinn og skrifa. Held ég hafi heldur ekki þennan skrifanda í mér yfir höfuð. Að minnsta kosti aldrei orðið hans vör.

Vaknaði í morgun með góð fyrirheit, var búin að ákveða að leyfa mér að sofa út sem ég og gerði því ég spilaði catan í gærkveldi heima hjá pabba til að verða hálf þrjú.
Þreif pleisið þegar ég komst úr rúminu og þegar ég var að ljúka við það þá hringdi Ásdís í mig til að athuga hvort ég vildi koma í Bláa lónið með henni og samvistarmaka mínum.... en ég var dugleg og stóðst freistinguna og hún Sigga má fá stórt samviskubit. En samt sem áður með þessu áframhaldi þá hefði ég bara betur átt að fara í lónið í staðinn fyrir að hanga heima og verða ekki neitt úr verki.

Svo ég tali nú aðeins meira um catan þá held ég þetta sé barasta ekki fjölskylduvænt spil, ýmis ljót orð sem fjúka og annað í þeim dúr. Þau hlógu bara að mér þegar ég sagði þetta og enn meira síðan þegar ég kallaði litlu systir mína druslu því hún eyðilagði eitthvað fyrir mér og ætlaði að afneita henni sem systur. Hér með biðst ég hana afsökunar á því og að sjálfsögu afneita ég henni ekki. Ég var samt sem áður ekki með versta orðbragðið, sum önnur ætla ég barasta ekki að hafa eftir :-), á tímabili var ég farin að óttast um sambandsslit og annað en sem betur fer voru bara komnar hótanir um að fara ekki með ákveðnum aðila í golf og svona. Spurning hvort einhver hafi þó sofið í sófanum.

Gott að ljúka þessu blaðri og fara að skrifa á öðrum stöðum, eitthvað sem þarf miklu frekar og græði mun meira á :-)

Linda ekki í skrifstuði

miðvikudagur, apríl 07, 2004

Blaður

Var ótrúlega kalt í gær, svo kalt að ein samstarfskona sá aum á mér og lánaði mér peysu og svo fékk ég mér te, hlýnaði aðeins við það.

Flýtti mér síðan heim í gær og engin Sigga heima, nennti ómöglega að hlunkast beint fyrir framan tölvu aftur þannig að ég lagðist upp í rúm í smá tíma. Sendi þó Siggu sms um að hún væri að svíkjast. Hún hringdi þó einhverjum 15 mínutum síðar (að ég held) og greyið sagðist nú bara vera á Þjóðarbókhlöðunni þannig að hún var mjög dugleg. Fær klapp á bakið. Þannig að ég dröslaðist úr rúminu og kveikti á tölvunni.

Fór síðan og kíkti á þessar síður sem Sigga fann fyrir mig og komst á ótrúlega margar aðrar síður út frá því. Fann einn þjóðgarð í Ástralíu og var þrælskemmtilegt að lesa um hann. Hefði alveg getað gleymt mér þar en var nú að leita að einhverju tengt fötluðum og fann það þar. Hef ekki enn fundið neina þjóðgarða eins og í Skandinavíu og Englandi...... fann í Kanada en voru ekki með neinar upplýsingar um það sem ég þurfti. Það skemmtilega við þjóðgarðinn í Ástralíu er að þar var sagt frá krókódilunum og ýmsar varúðarráðstafanir sem gestir þurfa að gera eins og að tjalda að minnsta kosti 25 metra frá árbakka þar sem krókódílarnir geta annars komið, síðan eru skilti um að ekki megi synda. Hættulegt vegna krókódíla. Rakst síðan á könnun sem þjóðgarðurinn gerir og þar kom í ljós að eitthvað um 50% gestanna syndir þrátt fyrir að þeir viti um hættuna. Mundi ég þora því??? ónei... gleymið því.

Grunur minn fékkst líka staðfestur í gær að tortilla (mexikanskur matur) er algjörlega félagslegur matur. Er ekki góður nema í félagsskap.

Fékk áðan líka þennan gífurlega spennandi póst, það voru upplýsingar um veraldarvini. Getið séð heimasíðuna þeirra hér. Þeir bjóða upp á að sjálfboðaliðar fari viðsvegar um heiminn og vinni í ýmsum málefnum, sá til dæmis að hægt væri að fara til Ástralíu og vinna í stígagerð. Ég er byrjuð að láta mig dreyma..... gæti kannski líka verið góð hugmynd og gert síðan einhverja rannsókn út frá þessu til að vinna að hinni bs ritgerðinni minni....... hmm..... *hugsa* *hugsa*

Linda dreymin

þriðjudagur, apríl 06, 2004

Catan helgi

Þetta var eiginlega sannkölluð Catan helgi, þv íeftir bíó á föstudagskvöldið var tekin einn leikur í sæförunum (viðbót við Catan), laugardagskvöldið var svo tekið undir catan þar sem ég nota bene vann 2 skipti og svo lögðust ALLIR á eitt með að ég mundi nú ekki vinna aftur. Á sunnudagskvöldinu var mér boðið ímat til pabba og nöfnu og þar hélt ég áfram að bera út fagnaðarerindið og kenndi þeim spilið :-) sem hefur tekist svona frábærlega vel þar sem þau hringdu í mig aftur í gærkveldi til þess að athuga hvort ég vildi spila. Því miður var ég svo þreytt eftir kvöldið á undan (vorum að spila til hálf tvö) að ég var komin upp í rúm og háttuð klukkan níu þegar þau hringdu.

Annars var ég næstum því búin að ákveða að sparka samvistarmaka mínum. Samvistarmaki er eitthvað sem ég hef aldrei heyrt áður en Sigga fann í lögum núna um daginn og ákváðum að við værum samvistarmakar, svo er til makar og sambúðarmakar. En allavega ég var nærri búin að taka ákvörðun um að sparka henni þar sem hún sveik mig svona rosalega á laugardaginn, Sigga ákvað bara að mæta ekkert og þar af leiðandi var mér eitthvað voðalega lítið úr verki. Á sunnudeginum mætti hún reyndar svoldið seint en ákvað svo að fyrirgefa henni þar sem hún fann fyrir mig vonandi tilvonandi heimildir. Á eftir að skoða þetta betur en allavega henni var fyrirgefið og engar drastískar ákvarðanir teknar.

Í gær var ég svo sniðug því mig langaði til þess að fara á ljósmyndasýninguna hans Birgis (og Ágústar) í Smáralindinni í gær þannig að ég plataði Siggu með mér svo hún mundi nú ekki tuða um að ég kæmi seint :). ?rni og Jens komu einnig þannig að varð alveg ágætis ferð og fengum líka leiðsögn ljósmyndarans.

Svo að lokum þá er ég bara endalaust núna að hugsa um zombies eftir myndina á föstudaginn. Þegar ég keyrði heim í rigningunni þá var ég alltaf á varðbergi um að þeir myndu nú bara allt í einu birtast og svo líka áður en ég fór að sofa þá var seinasta hugsunin að þeir ættu nú auðvelt með að komast inn.

Linda sem ber út fagnaðarerindið

fimmtudagur, apríl 01, 2004

Aulinn ég

Vissi að ein bókun væri hrekkur sem ég fékk í dag, 2 persónur með 6 börn frá Búlgaríu ætluðu að koma hingað með hundana sína tvo og ferðast um í rútu. Ég svaraði samt samviskusamlega, kunni nú ekki við annað. Þessi aðili skrifaði líka allt of góða ensku til þess að vera trúverðugt...... en ég svaraði samt samviskusamlega og kvartaði í stelpunum. Sagði að það væri ábyggilega milli þá að koma til Íslands hahaha.

Svo var þetta náttlega Steffi sem var að hrekkja mig og hefur ábyggilega haft mjög gaman af þegar ég var að kvarta. Hún þarf heldur betur að fara að passa sig konan sú....... en þá er líka heldur ekkert að marka þetta sem ég setti inn sem svar sem ég fékk því það er allt frá Steffi.

Steffi fékk samt margar gagnlegar upplýsingar hjá mér og ein er það að ekki eignast sex börn og ferðast til Íslands það er bara rándýrt hehehe ;)

Linda enn að jafna sig

Lovely person

Það skín alveg í gegnum tölvupóstana hérna frá mér í vinnunni hvað ég er nú meiriháttar persóna, fékk svar áðan sem ég bara verð að setja hérna inn hluta af:

thank you so much. You are a very lovely person and I am already looking
forward to meet you in person when we come to Iceland.


Sumir gætu nú bara spurt sig hvað ég væri að gera sem Steffi gerði akkúrat, og ég spyr mig bara líka... what am I doing.

Linda hlessa yfir þessu öllu saman

Aprílgabb

Eins og 1. apríl getur nú verið skemmtilegur þá leiðist mér að vera á varðbergi í allan heila dag. Er þó búin að fatta aprílgabbið í Mogganum :-)

Steffi gat platað Markús all laglega í morgun svo vel að hún sagði honum nánast frá því samstundis aftur.... vildi ekki missa vinnuna sko ;-)

Grillið fínt í gær, loksins sá maður langtímaleigjenduna sem eru reyndar að fara á föstudaginn.

Linda á varðbergi

miðvikudagur, mars 31, 2004

Peningar

Maður er nú ekki lengi að eyða eins og 100 þúsund kalli, tekur um fimm mínutur eða minna. Fékk semsagt útborgað í dag og peningurinn er bara að klárast. Er nú reyndar að verða í betri málum heldur en mánuðina á undan. Minnkar fjöldi fólks sem ég skulda og því óþarfi fyrir þau að senda handrukkarana á mig.

Ætlar ekki að verða eins dugnaðardagur í dag og í gær ritgerðarlega séð. Er líka að fara í grillveislu niður í vinnu á eftir þar sem er kveðjupartí fyrir einn nemann okkar sem er á leið til Hollands aftur á morgun.

Linda over and out

Maki

Jæja, ég er barasta komin með maka eða svona almost, komin með hentugleika maka/sambýliskonu.

Það er í því formi að maki minn er heima á daginn þegar ég kem heim, sem gerir það að verkum að ég verð að þjóta heim eftir vinnu. Má ekkert slóra, ekki fara í jóga bara ekki neitt. Svo er sest niður rabbað smá við makan áður en sokkið sér niður í lestur og ritstörf. Þessi hentuleika maki og ég eldum síðan saman og borðum. Eftir mat er síðan haldið áfram í lestri og ritstörfum og síðan fer hentuleikamakinn bara til síns heima en ég sit eftir og glápi aðeins á sjónvarpið áður en ég fer að sofa.

Já þessi hentuleika maki er engin önnur en Sigga, í gærkveldi var tekin smá pása á lærdómi til þess að elda og borða. Elduðum reyndar svoldið mikið hefði dugað fyrir svona 4-5 manns (héldum að við værum með svo stórt heimili) og svo klikkaði ég á því að taka með mér afgang í vinnuna. Er frekar fúl.

hmm........ hentuleika makinn þyrfti eiginlega líka að laga til og þrífa..... hvað segir þú Sigga? Kem ég heim í hreina og fína íbúð? hahaha

Annars byrja ritgerðasmíðin voða hægt hjá mér því ekki einn stafur er komin á blað frá því síðast er einhvern veginn bara að hita mig upp í þetta.

Flugmiðinn til Færeyja komu í hús í gær...

Linda ekki alveg makalaus hehehe

þriðjudagur, mars 30, 2004

Skoskur hreimur

Jíhaaa var að tala við Skota........ æðislegur hreimur... jammí. Týpískt að Steffi hafi þá sem eru með skemmtilegu hreimana. Ég fæ bara norðurlandabúa.......

skotar jíahhaa

Fáfræði og pirringur

Ég ætla að byrja á því að óska afmælisbarni gærdagsins henni Dagnýju frænku til hamingju með afmælið og svo litlu frænku henni Eydísi Öglu en hún átti 2ja ára afmæli á sunnudaginn.
Spiluðum Catan í tilefni afmælisins hennar Dagnýjar, þar sem Dagný vann einn leik og ég annan. Enda náttlega ekki annað hægt þar sem við erum að fara að spila á Íslandsmeistaramótinu!

Að öðrum málum þá var ég um daginn í umræðum um aðgengi var eitthvað að ræða um ritgerðina mína (nota bene þessar samræður voru á msn). Svo var umfjöllunin komin út í aðgengi hjá Gullfoss og ég var að tala um almennt aðgengi fyrir ferðamenn á þessu svæði því leiðin að fossinum er orðin frekað úttröðkuð og eitthvað þarf að gera.

Nema svo kemur þessi setning: "alveg ótrúlegt hvað þessir vanskaplingar eru heimtufrekir". Áður en ég fór að æsa mig þá spurði ég nú aðilann hvað hann ætti við þessu og fékk staðfest að hann var að tala um fatlaða. Í staðinn fyrir að ausa yfir hann skömmum og öðrum ókvæðis orðum ákvað ég að hætta þá stundina að tala við hann í þetta skipti, sagði bara að við værum augljóslega ekki að tala sama tungumálið og ég nennti ekki að tala við hann.

Málið er bara að ég er enn þvílíkt pirruð yfir þessu og trúi ekki enn þessum fordómum og gífurlegri fáfræði........ einhverjum sem greinilega finnst hann yfir öðrum hafin...... Hvað getur maður gert við svona fólk.
Langar mest til þess að sparka í afturendan á viðkomandi en eins og sagt er ofbeldi leysir engan vanda. Ef ég hefði haldið áfram að tala við þennan aðila á þessu augnabliki þá hefði bara ljót orð fengið að fljúga og ég sennilegast þá engu skárri.

Linda að pirrast yfir heimsku fólks

sunnudagur, mars 28, 2004

Spilamótið

Haldið ekki að stelpuskömmin hafi komist áfram í spilamótinu á laugardaginn þannig að nú hef ég rétt á því að taka þátt í Íslandsmeistaramótinu hahahaaha og sumir ekki sáttir.

Spilamótið var þannig að þeir sem urðu í fyrsta sæti eftir fyrsta spilið komust áfram, þeir sem urðu í 2 sæti (voru með mesta fjölda stiga) komust í 2. umferð. Ég varð semsagt í 2. sæti á borðinu mínu, svo komust líka Dagný frænka og Pétur frændi í aðra umferð en Jens og Geir þurftu að halda heim á leið. Ég reyndar rétt slapp svo inn í aðra umferð því við vorum 4 sem voru með sex stig og þurftum að kasta upp á hverjir 2 héldu áfram, og tókst mér að fá gott á teningana.

Ég og Pétur frændi lentum því miður saman á borði ekki það að sé leiðinlegt að spila með honum heldur það getur þá bara annað unnið sem í þessu tilviki var ég :) og svo vann Dagný á sínu borði. Þannig að við frænkurnar tökum þátt í Íslandsmeistaramótinu í Catan. Vona bara að það verði ekki haldið meðan við erum í Færeyjum. Yrði svo týpískt.

Áfram áfram áfram.....

föstudagur, mars 26, 2004

Föstudagspúki

Það er einhver púkí í mér sem ég get ekki fengið útrás fyrir. Leiðinlegt!

Langar að hoppa um, dansa brjálæðislega, gera eitthvað klikkað........ en I´m so behaved að ég geri ekki slíkt.

Eftir vinnu mun ég fara heim til mín þar sem Sigga á að vera núna og læra..... jamm dugnaður þvílíkur. Ég er með slíkt aðhald að Siggu að annað eins hefur bara ekki þekkst, held meira segja að það skili einhverjum árangri. Verst að það er ekki að gera neitt slíkt hjá mér. Líka pínku erfitt að þjóta beint heim úr vinnu til þess að sitjast niður aftur fyrir framan tölvu og fara að einbeita sér að ritgerðinni. En þetta er hið besta mál. Er sannfærð um að nú hafist þetta.
Það góða við þetta að miklar planneringar erum um kvöldmat hjá okkur Siggu, eins og er nú bara alvanalegt með Siggu :) það besta við það að ég nýt góðs að því. Siggu finnst nefnilega svo gaman að elda, gæti alveg hugsað mér að fara í fæði hjá henni. Hugsa að ég yrði nú enn búttaðri fyrir heldur en ég er ef ég mundi gera það.

Fer sennilegast með síðan Siggu og Ásdísi á eitthvað JC kvöld í klúbbnum í kvöld og svo er það Catan á morgun. Tókum æfingarspil í gær, ég vann ekki :( en seinna spilið sem við tókum var alveg ótrúlega jafnt.

Jæja, tókst ekki að hleypa púkanum út við skrifin.... sjáum til hvað gerist á eftir, hvort ég geri Siggu vitlausa með rugli á eftir.

Föstudagspúkinn hefur lokið máli sínu

fimmtudagur, mars 25, 2004

Niðurstöður

Komið út úr blóðprufunni og það sem ég vissi að það leiddi ekkert í ljós.

Læknirinn sagði við mig þegar hann hringdi að hafa samband við sig aftur ef þetta kæmi upp aftur og í rauninni þyrfti ég að prófa íbúfen og ef ég fæ þessa verki aftur eftir það þá er bara er þetta íbúfenið sem hefur svona rosaleg áhrif á mig. Er samt ekki alveg að þora því þótt mig langi til þess að ganga úr skugga um þetta.

Þessa nótt sem ég var vakandi af kvölum þá var mér hugsað til Litháans sem fannst í höfninni á Neskaupsstað, þvílíkar kvalir sem maðurinn hefur gengið í gegnum og fannst mér alveg nóg með mínar. Í þokkabót fékk hann enga læknishjálp. Get ekki imyndað mér annað en að það sé hryllingur.

Spila Catan í kvöld og svo er það spilamótið á laugardaginn.

Spilafíkil

miðvikudagur, mars 24, 2004

Læknaheimsókn

Dreif mig til læknis áðan eftir fyrirlestur hjá mömmu og bossinum mínum. Varð þetta líka þvílíkt heppin bara að geta fengið tíma á heilsugæslustöð. Mikil munur peningalega séð og læknalega séð. Fannst ég ekki alveg eins og illa gerður hlutur þarna á heilsugæslustöðinni eins og ég er á læknavaktinni. Læknirinn tók meira segja eftir því að ég væri öll á iði og spurði hvort það væri vegna verkjanna.
Hann skoðaði mig á mér lappirnar, órakaðar og allt. Vissi að ég hefði átt að gera eitthvað í þessu í gær í einni af sturtuferðunum mínum. Fór í einar þrjár sturtuferðir í gær, tvær í gærkveldi og ein um hálf fimm í nótt. Allavega hann fann ekkert og fannst ótrúlegt að þetta væri íbúfen. Fannst samt nokkuð sniðugt ef ég mundi prófa að taka íbúfen aftur til þess að sjá hvort þetta mundi gerast.
Hann sendi mig í blóðrannsókn þannig að á hádegi á morgun kemur nú í ljós hversu heilbrigð ég er :-) og verkir í löppunum er nú bara fullkomnlega eðlilegt.....

Annars er afmælisbarn dagsins hún Erla frænka, til hamingju með afmælið. Hún er ábyggilega eina af systrum hennar mömmu sem ég man hvenær á afmæli en allt mars mánuðinum að þakka :)

Linda læknadýr

Kvalir

Ömurlegt kvöld vægast sagt, beilaði á vinnunni um níu í kvöld og treysti mér ekki í jóga fyrir kvölum í löppunum. Er síðan bara búin að vera að reyna að bíta á jaxlinn en gengur ekki nógu vel. Þýðir ekkert að vera í neinum pollýönnuleik núna takk fyrir. Hringdi meira segja í mömmu til þess að "væla". Tókst að sofna smá en vaknaði rétt fyrir þrjú og gengur ekkert að sofa því mér er svo illlllttttttttt.

Linda ekki hin hressasta

þriðjudagur, mars 23, 2004

illt

Buuhuuu, mér er illt í fótunum aftur, núna grunar mig sterklega að þetta sé íbúfenið því seinast tók ég líka íbúfen og var illt í fótunum. Finnst það samt eitthvað svo fáranlegt. Spurning um að gera eina tilraun enn seinna.

Var samt að lesa mér til um lyfið og aukaverkanir á doktor.is en kom ekkert fram að illt í fótunum væri einkenni. Þannig að ég er kannski bara kolrugluð og með ímyndunarveiki.

Linda með ímyndunarveiki

Krappí krapp

Ekki skemmtileg að vakna upp með hausverk, gerir það að verkum að ég er frekar lengi að koma mér úr rúminu og af stað.

Alveg búin að sjá það að nauðsynlegt er fyrir mig að eiga oftar afmæli því mjög nauðsynlegum þrifum var loksins komið í verk á sjálfan afmælisdaginn. Eftir jógað þá skundaði ég á bensínstöð þar sem ég dældi lofti í dekkin á gamla skrjóð og gaf honum smá þvott líka. Eftir það hélt ég heim á leið og tók páfagaukinn og íbúðina í gegn.
Þegar ég kom heim þá með mín heillaskeyti og ég að sjálfsögðu furðaði mig á því þar sem ég átti nú ekkert stórafmæli, datt helst í hug að hann Árni væri eitthvað að hrekkja mig. Svo var nú aldeilis ekki heldur var rítsíminn að senda mér heillaóskir, skil nú ekkert í því..... var eiginlega bara auglýsing... but why?

Eftir matinn hjá mömmu þá henti ég mér heim til þess að hafa tilbúið áður en gestirnir byrjuðu að koma, það er semsagt skemmst frá því að segja að þetta var meira ostakvöld heldur en nokkurn tíman rauðvínskvöld og ekkert spilakvöld. Fólk var ferlega lélegt að drekka þetta rauðvín, Guðmunda, pabbi og Ellen (spurning samt um litlu systur) fá þó öll plús í kladdan fyrir að hjálpa til með rauðvínið. En samt stend ég uppi með helling af rauðvín sem ég veit ekkert hvað ég á að gera við :(

Það er spilamót í Catan á laugardaginn og ég er búin að skrá mig, rosalega getur maður orðið húkt á þessu spili.

Haldið þið ekki að ég hafi gleymt aðal fréttinni en ég er loksins búin að bóka flugið til Færeyja, jamm ég er á leið til Færeyja þriðju helgina í apríl með Dagný frænku jeeeiiiii.

Linda að fara taka þátt í spilamóti

mánudagur, mars 22, 2004

I am a Hippy



Which America Hating Minority Are You?


Take More Robert & Tim Quizzes
Watch Robert & Tim Cartoons


laugardagur, mars 20, 2004

Dagurinn

Ég útnefni mig sem afmælisbarn dagsins í dag.

Þegar ég var yngri og bjó fyrir norðan þá yfirleitt þegar ég vaknaði á morgnana þá var hrúga af pökkum á skrifborðinu við hliðina á rúminu mínu. Þannig að það fyrsta sem ég gerði var að opna pakka. Þá var sko gaman að lifa :-), fékk smá nasaþef af þessu núna því Birgir lét mig fá pakka í gærkveldi og geymdi ég hann á náttborðinu. Þannig að þegar ég vaknaði í morgun fékk ég að opna pakka. Út kom þessi forláta bók um hann Gretti.

Dekrið í gær var bara mjög fínt, það var verið að hreinsa húðina á okkur með maska og fleira. Birgir var allavega mjög ánægður þannig að lítur út fyrir að ég sé komin með hugmyndir af afmælis- og jólagjöfum fyrir hann næstu árin heheehe

Jæja ég á eftir að þrífa og laga til, ásamt því að fara í jóga.

Linda afmælisbarn

föstudagur, mars 19, 2004

Niðurtalning

Eina ástæða þess að ég skrifa her er til þess að geta haldið áfram að telja niður :-)

Er að fara í einhverskonar "dekur" í kvöld til Dagnýjar frænku, hef ekki hugmynd um hvað það felur í sér en tókst að draga Birgi með mér. Við ætlum nefnilega að gera eitthvað saman í kvöld þar sem hann ætlar víst að stinga af úr bænum á morgun :( hann er víst ekki hrifin af spilakveldi.

Ég er orðin rosalega mikil ógnvaldur, hún Skotta þorði ekki annað en að blogga þegar ég kvartaði yfir því að væri ekki búið að koma lengi lengi hjá henni. Allt fyrir mig gert :-) hahaha Annaðhvort er ég svona rosalega mikil dekurrófa eða rosalegur ógnvaldur...... hmm.......

1 dagur.....

fimmtudagur, mars 18, 2004

Laugardagskvöldið

Rauðvín-, osta- og spilakvöld verður hjá mér á laugardagskvöldið. Þeir sem hafa áhuga á að mæta koma um hálf níu níu leytið.... er nefnilega að spá í að leyfa mömmu að bjóða mér í mat áður ;-). Ég veit ég er svoooo góð.

2 dagar

miðvikudagur, mars 17, 2004

Pablo

Hann Pablo gerði mér aldeilis grikk áðan!

Málið er að Sigga vinkona kom áðan og dinglaði bjöllunni, eins og lög gera ráð fyrir þá opnaði ég fyrir henni, eitthvað hefur páfagauknum brugðið og rauk hann út úr búrinu síðan og fram á gang. Hurðin upp var opin og ég var ekki nógu fljót að stökkva til og loka hurðinni upp þannig að Pablo flaug þangað :( , ég var ekki viss hvort einhver væri heima uppi og vildi því ekki æða á eftir fuglinum. Sigga tjáði mér þó að einhver væri heima og náði ég tali af húsfreyjunni til þess að láta hana vita að páfagaukurinn væri nú uppi og akkúrat þá kom annar sonurinn heim.
Ég fór upp til þess að reyna að veiða fuglinn en var nokkuð vonlaus barátta þar sem hann er svo mikil mannafæla og ég vissi það að ég ætti aldrei eftir að ná honum. Uppi er einstaklega hátt til lofts og fuglsgreyið hefur ábyggilega fengið víðáttubrjálæði. Páfsi kom sér náttlega fyrir hátt uppi, stráksi lánaði mér kúst svo ég gæti ef til vill fengið Pablo til þess að koma niður. Í byrjun flaug hann bara á milli hæðstu staðanna (gáfaður páfsi) á endanum hefur hann eitthvað hræðst og flaug fram..... hófst þá leitin að honum aftur. Hann fannst í þvottahúsinu, ég ákvað að loka mig þar inni til þess að reyna að ná fuglinum.

Það að sjálfsögðu tókst ekki, hann vildi ekki koma til mín og alltaf þegar ég reyndi að gera tilraun til þess að reyna að veiða hann flaug hann í burtu. Nokkuð vonlaus staða.
Því ákvað ég að skokka niður til þess að ná í búrið hans þar sem það er hans öruggi staður. Fór síðan inn í þvottahúsið aftur með búrið og reyndi að loka hann inn í það sem tókst að lokum með smá þolinmæði.
Refsingin hans er semsagt núna að vera með lokað búr.

Annars er ég og Sigga að reyna að vinna eitthvað í þessum ritgerðum okkar og hefur mitt framlag í kvöld/dag eftir eltingaleikinn verið sú að hjálpa Siggu við beinagrindina og býst ég við þakkaræðu í ritgerinni í staðinn.

Tíminn runninn út sem ég hafði til þess að blogga og best að fara að reka Siggu áfram hehehe.

3 dagar

þriðjudagur, mars 16, 2004

Afmælismánuðurinn mars

Stefán hennar Guðmundu er afmælisbarn dagsins í dag! Til hamingju með afmælið Stebbi og megir þú njóta dagsins :-).

Styttist líka óðum í að ég verði afmælisbarn dagsins. Alveg hreint ótrúlega margir sem eiga afmæli í mars.

4 dagar

mánudagur, mars 15, 2004

Vændi

Eins og í fyrr færslunni segir þá fór ég á myndina Monster í gær sem var mjög áhrifamikil. Fékk maður bæði samúð með Lee vændiskonunni ásamt hennar fórnarlömbum.

Ég er ekki frá því að ég hafi skipt um skoðun á vændi en er samt ekki alveg búin að móta það alveg enn. Ég var alfarið á móti því að þetta væri leyft. Það er náttúrulega ekki hægt að banna annað þ.e.a.s. leyfa að selja sig en um leið að banna kaupa sér þessa "þjónustu" eða öfugt. Sér sérhver maður að það gengur ekki upp.

Jafn sorglegt og mér finnst að sumir skuli á einhvern hátt leiðast út í að selja líkama sinn (sem er mjög algengt og á ekki bara við um vændi) þá ætla ég að taka það aðeins úr jöfnunni. Því myndin opnaði aðeins augu mín varðandi þá sem eru að kaupa vændisþjónustu. Einhvern veginn hefur mér tekist að flokka þá alla undir sama hatt og ekki pælt mikið í kaupendum eingöngu í seljendum.

Ég veit ekki alveg hvernig á að orða þetta svo það valdi engum misskilning, en t.d. fatlaðir einstaklingar sem hafa jú kynþörf eins og aðrir en sumir hverjir eiga kannski erfiðara með að fá útrás fyrir þessari kynþörf þá væri auðveldast fyrir þá að geta keypt sér þessa "þjónustu", einnig ef maki hefur lent í slysi og getur því ekki stundað kynlíf en hinn makinn stendur uppi með þessa þörf en getur ekki fengið útrás fyrir henni og því væri auðveldara fyrir þann aðila að kaupa sér þessa "þjónustu".
Sumir gætu náttúrulega snúið auðveldlega út úr þessu og sagt að þetta væru þá bara aumingjar sem gætu ekki náð sér í eitthvað til að fá þessa útrás án þess að borga fyrir það..... en það er ekki svo einfalt.

Ég varð að taka seljendurnar úr þessari jöfnu vegna þeirrar ástæðu að ég get ekki sagt og mér finnst það ekki í lagi að selja líkama sinn, finnst það mjög sorglegt þegar fólk neyðist til þess og já eflaust neyðast sumir til þess en ástæðurnar eru ábyggilega eins margar og við erum mörg.

Vændi eða ekki vændi!

Afmæli

Litli litli bróðir minn á afmæli í dag, Til hamingju með 3 ára afmælið Númi Steinn :-), ég mun koma og knúsa þig.

Var að koma af monster..... sú mynd er rosalega áhrifarík. Ætla mér að skrifa meira um hana en nenni því ekki akkúrat núna.

Góða nótt

laugardagur, mars 13, 2004

Laugardagur til lukku

Mér til mikillar ánægju er mér hætt að vera illt í fótunum mínum, spurning síðan hvort ég drepi þá ekki endanlega með því að vera í háhæluðum!

Ég er búin að fara í klippingu....jeeiii...... annars er aldrei að marka fyrsta dag eftir klippingu, ekki fyrr en maður er farin að sjá um þetta sjálfur. Hentugasta klippingin fyrir mig er þegar ég þarf ekki að gera neitt :) það var það þægilegasta við stutta hárið :-)

Er að fara á árshátíð í kvöld. Kvíði fyrir, spurning sem maður spyr sig þá af hverju í ósköpunum er maður að fara en það er persónulegt sem ég ef til vill skrifa um seinna.

mamma setti út á það í gær að ég bloggaði sjaldan....haha. Hún sem er farin að kíkja daglega víst, gerir það að verkum að þá þarf hún ekki að hringja í mig eins oft því hún veit hvað ég er að gera og er enn á lífi hahahaha er bara að grínast í þér mamma.

Linda sem er ekki lengur ill í löppunum

föstudagur, mars 12, 2004

Pollýönnuleikur

Jamm sit hérna upp í rúmi að reyna að leika pollýönnuleikinn!

Pælið í því hva mar er heppinn að muna eftir því að sársaukinn í fótunum var svo miklu meiri seinast að ég er bara hamingjusöm yfir því að þeir eru ekki eins slæmir núna. Sannkallaður pollýönnuleikur.

Annars er ég líka að vorkenna mér smá..... ekki það að einhverjir aðrir geri það...ónei....verð bara að gera ALLT sjálf og þar á meðal að vorkenna mér.

Lindu sem er illt í löppunum

sjæs

Var allt að verða klikk hérna í vinnunni, bara allt á öðrum endanum hörku stuð..... svo erum við líka að plana að koma eitthvað af hmm..... hvernig á ég að orða það nemanum, tvö sem vinna á næturvöktum og svo einn sem er í þrifum og vinnur fyrir gistingunni saman, allt i því markmiði að þau geti þá deilt með sér herbergi og meira losnar sem við getum bókað í. Erum búin að koma þeim saman eina nótt og bara bíða og sjá hvort eitthvað gerist úr því hahaha!

Annars af öðrum fréttum að þá er mér ógisslega illt í löppunum mínum...... eitthvað frá lærum og niður úr samt aðallega í kálfunum.... er farið að líkjast því þegar mér var þetta þvílíkt illt að ég gat ekki sofið fyrir verkjum og var erfitt að vinna lika.... vona bara að það sé ekki það sama :( því það er svo vont. Við erum líka að tala um það að þá var ég farin að hugsa mér að fara til læknis en þá náttlega fóru verkirnir.
Það er kannski bara málið.... ég segist ætla að fara til læknis og þeir hverfa.... hvernig væri það?

Verkja Linda

fimmtudagur, mars 11, 2004

Hætt að urra

Jæja, er hætt að urra og smá saman fer að sjást í vígtennur þegar annað munnvikið kiprast upp á við og kannski hitt líka sem á endanum myndar bros! Eða við skulum vona það.

Var að skoða heimabankann hjá mér sem gefur tilefni til að munnvikin síga niður en það er allt annar handleggur.... visa kortið mitt er sennilegst brunnið yfir um þar sem yfirlitið er ekki til staðar eða þannig lít ég á það. Getur gefið tilefni til þess að ég fari bara og nota það fullt og þykist ekki vita hvað er komið mikið inn á eða þá að það sé þá komið svo mikið að ég legg því til hliðar.

Aldís á afmæli í dag! Til hamingju með afmælið......... vissi að það var einhver ástæða að ég fór hingað inn til þess að blogga.

Linda.......

miðvikudagur, mars 10, 2004

urr

Ekki ánægð og ekki sátt. Mar fær bara skít í sig þegar verið er að reyna að gera eitthvað........svo ég er hætt!

Fari þetta bara fjandands til......... mér er sama.

mánudagur, mars 08, 2004

stone heart
Heart of Stone


What is Your Heart REALLY Made of?
brought to you by Quizilla


Þá vitið þið það!

föstudagur, mars 05, 2004

Fólk

Fólk fólk fólk...... þó ekki með Sirrý.

Hvernig dettur fólki í hug að maður heiti kær kveðja??

Ég meina á undirskriftinni á tölvupóstinum kemur:

kær kveðja/ Best regards

Linda Björk

og út frá þessu koma oft tölvupóstar:Dear kaer kvedja. Ég meina common, það fyndnasta var þó að áðan fékk móttakan símtal þar sem spurt var um kær kveðja...og hún skildi ekki upp né niður og sagði að engin ynni hér með slíku nafni. Síðan sá hann víst nú annað nafn og bað um Steffi. Þetta er þó algengara að Steffi fái pósta merkta kær kvedja heldur en ég.... allavega mín tilfinning en ekki hávísindaleg könnun á bak við.

Mér finnst pínku skrýtið að vera í vinnu þar sem ég er spurð hvaðan ég er......ok þarf að vísu mjög oft (þarf og þarf ekki) að spurja hina og þessa sem mar er að sjá og eru að vinna að spurja þá hvaðan þeir séu... og á móti er ég spurð. Lenti í þessu áðan... það er furðulegt.

Linda furðulega eða ekki!

miðvikudagur, mars 03, 2004

Klósettsetningar

Einhverja hluta vegna er búið að hengja upp miða á klósetting hérna uppi í vinnu nr. 2, á einu þeirra stendur:

Horfðu um öxl...........

bremsuför í skálina - sest á sálina


Á því næsta stendur:

Horfðu um öxl...........

Klósettburstinn er vinur þinn


Á því þriðja stendur:

Horfðu um öxl.........

Bremsuför boða ekki gott


Hvað er málið! Akkuru stendur þetta þarna.... ég er bara ekki að ná þessu.... er verið að reyna að biðja starfsfólk um að ganga betur um salernin eða bara einfaldlega á að vera einhver húmor!

Linda sem veit ekkert í sinn haus

þriðjudagur, mars 02, 2004

Póstkort!

Fékk póstkort í dag sem er ekki merkilegt í sjálfu sér en þetta var þræl merkilegt póstkort. Þetta póstkort var ritað 11. september 2003 í Ljubljana og samkvæmt ritara póstkortsins sett í póst stuttu eftir, póststimpillinn á kortinu er síðan 24. febrúar 2004 og þetta kemst í hús 2. mars 2004........ það finnst mér alveg stórmerkilegt og slær póstkortin frá Kúbu alveg út.

Súrt

Var að hlusta á súran símsvara áðan.....vá.... einhver sem röflaði í 2 mínutur og já ég hlustaði allan tímann hehe. Heyrði ekki nógu vel hvað aðilinn sagði en heyrði þó banani, upp í rass og þrumuguð.

Bílinn farinn upp í kópavog til kunningja pabba sem ætlar að líta á hann, húmor gærdagsins var sá að eftir að pabbi var búin að berjast við altinatorinn í bílnum í hellings tíma og setti síðan allt saman aftur og við tilbúin að ýta bílnum úr skúrnum þá ákvað ég í ganni að athuga hvort bílinn færi í gang..... pabba fannst ég heldur bjartsýn. Ég starta og ekkert gerist.......... við því að búast því bílinn hefur ekki gert það undanfarið, ég af einhverri rælni prófa aftur....og hvað bílinn hrekkur í gang. Veit ekki hvor var meira hissa ég eða pabbi.
Eftir það voru tilraunir gerðar í næstu brekku, að drepa á bílnum og starta aftur........... gekk stundum og stundum ekki.

Linda á stórskrýtnum bíl






You Are Most Like Miranda!


While you've had your fair share of romance, men don't come first

Guys are a distant third to your friends and career.

And this independence *is* attractive to some men, in measured doses.

Remember that if you imagine the best outcome, it might just happen.



Romantic prediction: Someone from your past is waiting to reconnect...

But you'll have to think of him differently, if you want things to work.




Which Sex and the City Vixen Are You Most Like?
Take This Quiz Right Now!



Find the Love of Your Life
(and More Love Quizzes) at Your New Romance.


mánudagur, mars 01, 2004

Útborgunardagur!

Jeeiiiii.......... segi nú bara ekki annað!

laugardagur, febrúar 28, 2004

Höfuðverkur!

Loksins náði ég rétta númerinu hjá Bjössa frænda og búin að ná sambandi við hann..... er síðan búin að vera á netinu að reyna að finna góð fargjöld og það er nú meiri hausverkurinn...... væri minnsta málið ef ég væri bara ein en þar sem við erum þrjár þá eru sjaldnast til þessi ódýru fargjöld :( en kannski ég sé búin að finna lausn...bara verð að hóa í hinar tvær og við ákveða okkur fljótt.... bara finnst samt rosalega pirrandi að það skuli vera dýrara að fara til Færeyja heldur en til Danmerkur eða London!

Linda vonandi á leið til Færeyja!

fimmtudagur, febrúar 26, 2004

Bílalækningar

Ekki leið bílgarminum mikið betur eftir að skipt var um rafgeymi sem var gert á þriðjudagskvöld. Þannig að nú orðið verð ég að passa að leggja í brekkum til þess að láta renna í gang.
Eftir lækniskoðun áðan þar sem læknirinn kom í vitjun þá var sjúkdómsgreiningn sú að þetta væri sennilegast altinatorinn sem væri að gera bílnum lífið leitt (og mér) þannig að á morgun verður hents upp í vöku til að tjekka á nýjum altinator (ekki hugmynd hvort það sé rétt skrifað) og svo ætlar bílalæknirinn að skipta um og athuga hvort garminum fer ekki að líða betur og fari í gang svona án allra vandræða.

Vegna óvissu um það hvort bílinn fari í gang eða ekki þá hef ég ekki þorað að stökkva inn í búð til þess að kaupa eitthvað í matinn þannig að þess í stað hef ég leitað að lúgum til þess að kaupa fljótlegan mat (góð afsökun!) sem var t.d. gert áðan.... nema þar þarf ég einnig að hafa í huga að bílinn ofhitni nú ekki og varð ég að vera orðin svoldið stressuð með það í lúgunni fyrr í kvöld.... en það reddaðist.


Linda á bílgarmi

miðvikudagur, febrúar 25, 2004

Samband

Þarf að ná sambandi við Bjössa frænda í Færeyjum.....svo Bjössi ef þú lest þetta endilega hafðu samband. Netfangið mitt er hérna á síðunni. Búin að reyna númerin fjögur sem er í færeysku símaskránni og númerið sem Dagný frænka lét mig fá en nada. Við frænkurnar erum nefnilega að hugsa um að gera okkur ferð til Færeyja :)

Ár síðan ég fékk í kampavín í vinnunni seinast og því komið ár síðan ég byrjaði að vinna hérna, en ástæða er að Raval er þrítugur í dag. Búin að búa í sveitinni í ár líka.....voða miklar breytingar fyrir ári síðan.

Linda þarf að ná sambandi...

þriðjudagur, febrúar 24, 2004

Þreyta

Skil þetta ekki, er gjörsamlega að sligast niður af þreytu núna og þetta helltist svona skyndilega yfir mig. Svaf samt mjög vel í nótt og fór að sofa á skikkanlegum tíma. Sem betur fer er ekki vinna upp í síma í kvöld þar sem nýja úrtakið er ekki tilbúið.

Bílavesen heldur áfram að sjálfsögðu og pabbi komin í málið.... er að redda nýjum rafgeymi fyrir mig þannig að vonandi verður nýjum rafgeymi skellt í bílinn í kvöld, ef ég sef bara ekki yfir mig ;-) hahaha

Helgin var fín, horfði á 8 seríu af friends (jamm geðveiki), spilaði Catan allt laugardagskvöld og fram á nótt.....hefði getað verið skemmtilegra hefði ég unnið að minnsta kosti einn leik en var svo nálægt því nokkrum sinnum, svekkjandi. En jú það var mjög gaman þrátt fyrir tap og komu nokkrar gullnar setningar fram þetta kvöldið.
Fór í bíó á Cold mountain á sunnudagskvöldið, mjög fín mynd og Jude Law svo sætur (slef)! og Rene kellingin var mjög góð og ég sem var eiginlega með grænar fyrir henni.

Svo heldur bara rútinan sama gang en reyndar fór náttúrulega stundaskráin mín fina út um þúfur... jamm gott ef það var bara ekki fyrsta daginn!

Svo er spurning hvort ég komist heim á eftir á bílnum og svo aftur niður í bæ í kvöld ef skipt verður um rafgeymi!

LInda þreytupúki

föstudagur, febrúar 20, 2004

Það munar ekkert um það




You're Watership Down!

by Richard Adams

Though many think of you as a bit young, even childish, you're
actually incredibly deep and complex. You show people the need to rethink their
assumptions, and confront them on everything from how they think to where they
build their houses. You might be one of the greatest people of all time. You'd
be recognized as such if you weren't always talking about talking rabbits.



Take the Book Quiz
at the Blue Pyramid.



Ég held bara áfram að tala um kanínur!

Hahaha

Er ekkert spillt



You're Mexico!

While some people think you're poor and maybe a little corrupt, you
know where it's at, enjoying good food and nice beaches.  You like to take things a
little slower than those around you, and you really wish the air were cleaner, but sometimes
compromises must be made.  For some reason, Chevrolet keeps trying to sell you Novas
as well, even though they don't really go.

Take
the Country Quiz at the href="http://bluepyramid.org">Blue Pyramid

Rupali

Rupali mín á afmæli í dag! Til hamingju með afmælið og ef mér reiknast rétt þá er hún orðin níu ára stelpuhnokki.

Rupali býr á Indlandi og er stelpan "mín" en ég hef styrkt hana frá því að hún var sex mánaða í gegnum SOS. Fyrir hver jól þá fæ ég mynd af henni og "systkinum", mjög gaman að fylgjast með stelpunni stækka og þroskast!

Kannski einn daginn gefst mér tækifæri til þess að hitta hana, vonandi!

hún á afmæli í dag....

fimmtudagur, febrúar 19, 2004


vargur

Oscar
Agility
5
|Strength
7
|Stamina
7

Battle Rating
19

Origins
vargur was found, still alive, lodged in the throat of a dead man


Can your fishy beat vargur ?

Rusl

Það er svona komið fyrir okkur að jörðin dugar ekki lengur til þess að rusla út en það að við þurfum geiminn til þess líka :(
Samkvæmt þessari frétt á mbl.is þá eru Tævanar að fara að bjóða upp á útför í geimnum.
Verður fallegt eftir nokkur ár þegar við förum í útsýnisflug til tunglisins að sjá svífandi um allskonar rusl og hylki utan um ösku.... sjáið þið þetta ekki alveg fyrir ykkur?

Ég þjáist af króniskri leti þessa dagana....... kannski er það bara veðrið. Eina sem mig langar til þess að gera er að vera heima í minni hreinu íbúð, liggja upp í rúmi og glápa á sjónvarpið.

Svo hef ég heyrt því fleygt að önnur föðursystir mín eigi afmæli í dag! Til hamingju með afmælið Ingibjörg mín :) vonandi nýtur þú dagsins!

Linda letidýr

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

Bear
What Is Your Animal Personality?

brought to you by Quizilla

Færeyjar

Spurning hvort verður af eða á...... er allavega búin að setja það í gang, verst að ég næ ekki í sambandi við einn aðila til þess að athuga hvort sé ekki enn með. Síðan á ég náttúrulega eftir að hafa samband við aðal aðilann til þess að athuga hvort hann verði nú ekki í Færeyjum og geti tekið á móti okkur.

Bjössi ertu að lesa? Langar þig ekki að fá okkur frænkugengið í heimsókn í mars?

Ég mun koma með Catan spilið :-)

sjæs mig langar til þess að fara og akkuru er ég komin með þetta sjæs á heilann? Nota það við öll möguleg og ómögleg tækifæri.

Kannski eða kannski ekki

þriðjudagur, febrúar 17, 2004

Blogg

Ég er orðin forfallinn blogglesandi og það fyrir lifandi löngu síðan! Á mína uppáhalds svona fyrir utan þá sem ég þekki náttlega, en það er alveg þrælgaman oft að fylgja linkunum á síðunum. Maður fer inn á eina bloggsíðu og fer á einhvern link þar sem leiðir mann áfram.

Svona núna er ég að lesa þetta blogg og verið að skoða myndirnar líka og orðin græn að öfund!
Það er semsagt stelpa/ung kona sem er að skrifa um ferðalagið sitt en hún er búin að vera á Indlandi, var að koma frá Burma og er í Tælandi þessa stundina að flytja sig yfir til Laos að ég held...... þetta er eitthvað sem mig hefur bara dreymt um.... en vonandi draumur sem rættist.

Sigurjón hefði átt afmæli í dag og það stórafmæli.... 25 ára! Systir mín skrifa betur um þetta svo ég bendi bara á hennar blogg.

mánudagur, febrúar 16, 2004

Brill helgi

Föstudagur - Eftir vinnu héldum við nokkar úr vinnunni í Laugar og í baðstofuna þar sem við vorum í tvær klukkustundir í afslöppun, gufur, heitum potti og hvíldarherbergi. Pöntuðum okkur svo pizzu sem við borðuðum reyndar síðan í vinnunni þar sem ein af okkur þurfti því miður að vinna. Góð afslöppun eftir vinnuvikuna.

Laugardagur - Þurfti að vakna snemma til þess að bruna aftur niður í vinnu, ekki þó til þess að vinna heldur voru leiðbeinendur BUSL með fund þar sem stóð frá 10 til 18.30. Þegar fundurinn var búinn þurfti ég að bruna heim, fara í búð og bruna svo til Sólrunar og Bjarna. En það var matarboð hjá vinahópnum þar sem ég átti að koma með salatið. En vegna tímaskorts þá skar ég niður salatið hjá þeim og tafðist því maturinn um pínku onku pons, en ekkert sem kom að sök og salatið bætti líka allt því það var svoooo gott!.
Áttum alveg brilljant kvöld þar sem við hlógum mikið og var rifjað upp hinir ýmsu skandalar sem við stelpurnar höfðum gert.... og rætt um þann nýjasta hahaha!
Strákarnir voru svo myndarlegir að þeir fóru í eldhúsið og voru að ganga frá.... að því sem við héldum best... kom síðan í ljós að það var bara Bjarni og hinir að halda honum félagsskap á meðan!
Mínus við kvöldið var að bílgarmurinn fór ekki í gang þegar ég ætlaði heim..... þannig að ég fékk bara bíllykil að öðrum bíl (bíl húsráðenda) og keyrði heim.

Sunnudagur - Lá í leti fram eftir degi..... ákvað síðan að skila bílnum og koma hinum í gang, eftir smá gláp á Mission Impossible hjá Sólrúnu og Bjarna kom Bjarni með mér út til þess að ýta bílnum svo við kæmust nú að rafgeymnum. Ekki að spurja að því en bílinn rauk í gang og fór ég í síðdegiskaffi til mömmu, sem sendi mig svo heim með vöffludeig og járn þar sem hún frétti að von væri á gestum til mín til að spila Catan.
Kom heim og var dugleg að þrífa og laga til en möst þegar maður er að fá gesti ekki satt!
Var svo til rétt nýbúin að ganga frá og fara að byrja vöfflubakstur þegar þau komu. Komst svo að nýju í sambandi við reglurnar sem ég vissi ekki áður.

Þannig að helgin var pökkuð og einstaklega ánægjuleg........

Linda endurnærð

föstudagur, febrúar 13, 2004

Gamalmenni

Ég veit hvernig gamalmenni mig langar til þess að verða..... spurningin er bara hvað á að gera from now to then?

Kannski ég þurfi bara að safna peningum og verða rík til þess!

En þessi fyrirhugaða nektarmynd hefur ekki dregið að aðsókn né komment.... fékk þó eitt þar sem ekki var mælst til slíks sem ég met mikils :), vinur þar á ferð!

Færi ábyggilega fyrst í fegrunaraðgerð en þar sem ég er eiginlega andvíg því og.... er svo sem alveg nógu sæt... (borða svo mikið nammi!) þá þarf ég þess ekki.

Linda ekkert nektardýr

miðvikudagur, febrúar 11, 2004

Spá

Var að spá í hvort ég ætti að setja nektarmynd af mér hér til þess að auka fjöldann og kommentin!

Svíður sárt að sjá það að Jens er komin í miklu hærri tölu en ég á blogginu sínu...... flaug alveg hreint fram úr mér og eitthvað verð ég að gera.

Gæti verið sniðugt þar sem fólk er alltaf til í hryllingsmyndir! hehe

Núna hafa ábyggilega pabbi og mamma misst andlitið....hefði verið gaman að sjá það :)

Linda súra

goodbroken
Your wings are BROKEN and tattered. You are
an angelic spirit who has fallen from grace for
one reason or another - possibly, you made one
tragic mistake that cost you everything. Or
maybe you were blamed for a crime you didn't
commit. In any case, you are faithless and
joyless. You find no happiness, love, or
acceptance in your love or in yourself. Most
days are a burden and you wonder when the
hurting will end. Sweet, beautiful and
sorrowful, you paint a tragic and touching
picture. You are the one that few understand.
Those that do know you are likely to love you
deeply and wish that they could do something to
ease your pain. You are constantly living in
memories of better times and a better world.
You are hard on yourself and self-critical or
self-loathing. Feeling rejected and unloved,
you are sensitive, caring, deep, and despite
your tainted nature, your soul is
breathtakingly beautiful.


*~*~*Claim Your Wings - Pics and Long Answers*~*~*
brought to you by Quizilla




Which 1990's Subculture Do You Belong To?


[Another Quiz by Kris
@ couplandesque.net]

Fyrirsögn

Sá ekki þessa umtöluðu fyrirsögn í DV þar sem var talað um að íslenskur hommi vann danska Eurovision keppni sem vissulega sló mig þegar ég heyrði um hana..... en ég er búin að komast að niðurstöðu.
DV var bara eingöngu að reyna að vekja athygli og þá er ég ekki að meina með einhverja grípandi fyrirsögn svo lesandinn fari að kaupa blaðið og lesi fréttina. Heldur til þess að fá þetta umtal hvort sem er á jákvæðu eða neikvæðu nótunum og þeim tókst það svo sannarlega. Eins og sagt er að betra er neikvætt umtal heldur en ekki neitt umtal!

Annars fara líka DV auglýsingarnar í sjónvarpinu afskaplega mikið í taugarnar á mér! Kannski af því ég er ekki að fatta þær.... en þær eru hundleiðinlegar.

Þorrablótið í vinnunni í gær var mjög fínt, þrátt fyrir einhver skot á mig! Ísinn minn sló í gegn ásamt eftirréttinum hennar Ragnhildar......komst að ýmsu um samstarfsmenn......... áhugavert! Á sumt sameiginlegt með nokkrum þeirra......

Sakna jóga.... hef ekkert farið í þessari viku en áður en farið er að hneykslast á mér þá er ég búin að vera þeim duglegri í Laugum..... jámm fengum vikukort í Laugar og Baðstofuna. Fór í body shape á mánudaginn og svo í gufurnar og heita pottinn á eftir.... var alveg himneskt.....vorum í hvildarherberginu og svona. Fór síðan á hlaupabrettið í gær og actually hljóp... í dag er síðan stefnan aftur á body shape og ég sem er að fara að losna við strengina eftir síðasta tíma.
En er samt að sjá að jóga er meira fyrir mig..... meira ÉG! Hver svo sem það er hehehehe

Linda að klikkast!

mánudagur, febrúar 09, 2004

Búin

Ég er alveg búin á því núna....................... skrifa meira um það seinna....

Var minnst á Ísland í CSI... tengslum við lunda!

Sniðugt!

sunnudagur, febrúar 08, 2004

hhahaha





what decade does your personality live in?


quiz brought to you by lady interference, ltd




enn meira hahaha

föstudagur, febrúar 06, 2004

Ansans vandræði

Fann catan online þar sem virðist hægt að spila catan online..... nema hvað allt er á þýsku :( og ég bara fatta þetta ekki.... hvernig virkar. Prófaði samt að installa því en... nada.

Ætla að fara að horfa á Brad Pitt.... Interwiev with the vampire

Linda vonsvikna

miðvikudagur, febrúar 04, 2004

Ekki vond!

Vissi það svo sem :-)


How evil are you?


Linda ekki vond

Start 101

Ég held ég sé orðin bara fullnuma í start 101, já bílinn hennar Steffiar fór ekki í gang áðan eftir vinnu og það var einu sinni ekki svo kalt.
Allavega ég ákvað að taka málið bara í mínar hendur. Tók einn af bílaleigubílunum sem voru fyrir utan hjá okkur traustataki og keyrði upp að skrjóðnum. Opnaði húddið á báðum bílunum og tengdi kaplana. Hringdi meira segja ekki í pabba til þess að tjékka nú örugglega á því hvor færi hvert, en setti rauða í + og svarta í - (var þetta ekki rétt pabbi?).
Bílinn fór í gang á nóinu, pakkaði dótinu saman, kom bílaleigubílnum á sinn stað og inn með lyklana. Núna er bara stóra spurningin hvort hann fari í gang á eftir þegar ég held heim á leið.

Annars á föstudaginn var ég vitni að hinum ýmsu útgáfum á því hvernig startkaplarnir voru tengdir. Bílinn fór semsagt ekki í gang seinast föstudag og fékk ég manninn uppi til þess að gefa mér start. Að sjálfsögðu tengdi hann nema hann setti rautt í plús og svart í mínus, nema pabbi var búin að segja mér að áður en maður setti svartan þá ætti hann fyrst að tengjast hjá mér (dauða bílnum) svo í hinn bílinn. Maðurinn uppi tengdi síðan svarta fyrst hjá sér og svo hjá mér. Eftir smá rúnt og að ég hélt nógu langan fór ég í 11-11 til þess að kaupa mér að borða, þegar ég kom síðan út kom í ljós að ég hafi ekki rúntað nóg því bílinn fór ekki í gang. Ég litaðist því um bílastæðið að væntanlegu fórnarlambi og sá einn mann í bílnum sínum með krakkann sinn sofandi í aftursætinu. Hann vildi fúslega gefa mér start en hann að ég held var ekkert að pæla hvort væri hvað svona nánast og skellti þessu í og gaf mér start. Eftir það fór ég líka í langan langan bíltúr og lagði bílnum síðan í brekku.

Gleymdi að segja það en ég skrifaði á síðuna hans Árna í gær fyrir þá sem lesa um fyrstu kynni mín af honum og Sjálfsbjörg.

Linda fullnuma

þriðjudagur, febrúar 03, 2004

Stundaskrá

Jamm búin að vera að púsla saman smá stundaskrá fyrir mig í huganum til þess að skipuleggja mig, þá sérstaklega þannig að ég geti nú mætt í jóga. Þetta mun því líta svona út:

Mánudagar:- jóga eftir vinnu, ef ég næ ekki 17.15 tímanum þá fer ég í 18.25 tímann. Fæ mér að borða, kíki á ritgerðina.
21.00 - horfi á survivor
22.00 CSI
Þriðjudagar:- eftir vinnu nr. 1 fer ég í vinnu nr. 2 og fyrr úr vinnunni til þess að fara í jóga kl. 21.10
Miðvikudagar:-eftir vinnu nr. 1 fer ég í vinnu nr. 2 .
Fimmtudagar: - Fer í kraftjóga kl: 18:25, fer síðan heim eftir það og fæ mér að borða og kíki á ritgerðina.

Planið er síðan að fara í jóga í hádeginu á laugardögum eða sunnudögum og vera dugleg í ritgerðinni.

Að sjálfsögðu má síðan eitthvað aðeins hliðra til þegar eitthvað sérstakt stendur til :-)

Linda með stór plön

Aðstoð

Í næstu viku verður hálfgert Þorrablót í vinnunni þar sem bæði starfsfólk og langtímaleigjendurnir koma saman. Nema þar sem við erum svo alþjóðleg þá mun hver koma með traditional dish frá sínu heimalandi..... nema ég veit ekki hvað ég á að koma með.... og það er einhver sem ætlar að koma með hrútspunga, sviðasultu og harðfist...... þarf að koma með eitthvað létt, auðvelt og ódýrt :-)

Einhverjar hugmyndir?

Linda ekki fyrir þorramatinn

Poetry
You are Poetry.
You are often the most emotional of the arts. You
are introverted, in that you tend to let people
come to you rather than trying to get their
attention. You get along well with Music and
Literature.


What form of art are you?
brought to you by Quizilla

mánudagur, febrúar 02, 2004

Árekstur

Komin á þriðja bílinn núna á stuttum tíma, skipti við Steffi þar sem hún fékk golfinn til að setja nýjar rúðuþurrkur og afturljós á bílinn o.fl. Það seinasta sem Steffi segir við mig áður en við kveðjum er ekki lenda í árekstri. Sem ég var síðan mjög nálægt í dag! Ojá ég mætti bara bíl á móti mér í hringtorgi og ég var á réttri leið..... náði að negla niður... en þvílíkt sem mér brá.... og svo var *%$#** konan bara hissa á þessu öllu saman., svona eins og hvenær var hringtorginu breytt! Arrggg ég var svo pirruð. En ekkert sem jóga bjargaði síðan.

Linda sem rétt slapp fyrir horn

Útborgað!

Held það hafi aldrei verið jafn leiðinlegt að fá útborgað og í dag :-( , komin bara í þunglyndi yfir þessu öllu saman!

Linda þunglynda

Ánetjun

Ég held ég sé farin að ánetjast Catan, er búin að spila 4 kvöld í seinustu viku. Spilaði sunnudags-, miðvikudags-, föstudags- og laugardagskvöld. Er líka farin að breiða út boðskapinn því ég plataði heimilisfólkið hjá mömmu að spila það á laugardaginn. Svona í flestum tilfellum fannst þeim það gaman enda vann mamma spil nr. 2, Bubba gekk alltaf illa og var mjög óheppin með teningana og Kristjón gekk alveg ágætlega. Kannski svona full ungur fyrir spilið.

Hitti loksins gæjann hennar Ásdísar á sunnudaginn í skírninni eftir heilt ár..... þokkalega verið að halda mér í burtu........ var að ég held sú eina sem hafði ekki hitt hann. Enn ein dísin búin að bætast í hópinn þar sem stelpan hennar Bellu, Óskars og Eyþórs fékk nafnið Hjördís Anna :-), hún var alveg til fyrirmyndar í skírninni og veislunni.

Bílahrakningar halda áfram hjá mér og mikið búin að vera að spöglera hvort ég ætti að setja á netið bílahrakningasögur Lindu...... bara ábyggilega flestir sem lesa þekkja ábyggilega þær sögur :-)

Fékk smá sjokk á laugardaginn þegar ég og Stebbi fórum að versla skírnargjöfina, keyptum voða flottan púða þar sem nafnið á Hjördísi verður saumað í... nema þegar við komum í verslunina og vorum að spá púðanum þá spyr konan okkur... já hvað á barnið að heita. Ég var náttlega mjög græn og segi já það kemur á morgun.... og afgreiðslukonan spyr hva eruð þið ekki búin að ákveða nafnið..... döööö ég fór næstum því í kleinu!

Linda catan sjúklingur