Á leit út
Jeeiiiii.......... loksins búin að pakka...... er að fara út á morgun!!! vííííí
Ætla að reyna að skrifa eitthvað hérna á mínu ferðalagi um mitt ferðalag.... stay tuned!
see ya, látið ykkur líða vel án mín....
Linda bara á leiðinni út
föstudagur, október 31, 2003
fimmtudagur, október 30, 2003
Varúð
Ég vildi bara vara ykkur við því þegar ég hef farið til útlanda þá hafa náttúruöflin farið að láta á sér kræla.
Þegar jökulshlaupið stóra í Vatnajökli átti sér stað árið 1996 var ég stödd úti á Spáni, síðan var ég í Danmörku árið 2000 þegar stóri skjálftinn kom á 17. júní og einnig nokkrum dögum síðar. Var í Chicago þegar stóri bruninn á laugarveginum var, það flokkast reyndar ekki undir náttúruöfl í þeirri merkingu.
Þannig að það er alveg spurning hvort Katla muni þá láta á sér kræla meðan ég er úti....... en allavega viðvörunin er komin til skila.
Linda á leið út eftir 2 daga
miðvikudagur, október 29, 2003
Tónleikar
Fór á tónleika með Eivör í gærkveldi. Stelpan kom nokkuð á óvart, hélt að þetta yrði allt svona mellow tónlist einhver eins og maður hefur yfirleitt heyrt frá henni........ en nei nei..... bara fullt af hva getur maður sagt........harðarar efni? Kom skemmtilega á óvart. Frábært lagið hjá henni sem heitir Brostnar borgir en hún samdi það víst 11. september, það fyndna við þetta að kona ein fyrir framan og ein við hliðina á mér héldu fyrir eyrun. Nokkuð víst að sumt eldra fólk hefur ábyggilega ekki verið að fíla allt saman. Það var líka þrælgaman að fylgjast með trommuleikaranum...... það var svo mikið að gera hjá honum og ekki bara á trommunum.
Ég er alveg búin að sjá það að það er betra að gefa en þiggja.... mér var nefnilega boðið á tónleikana í gær og það var þvílíkt erfitt að þiggja það.... gerði það eftir smá fortölur en er samt enn á smá bömmer yfir því. Af hverju þarf maður að vera svona?
Annars gleymi ég aðalmálinu........ mamma á afmæli í dag! Til hamingju með afmælið mamma, en annars held ég að hún lesi þetta ekki en oh well....
Ótrúlegt hvernig maður getur verið stundum ruglaður..... því þegar ég var að ganga í átt að Lækjartorgi í gær til að taka strætó í gær þá fékk ég þetta þvílíka sjokk í smástund og hugsaði með mér....fokk ég hef gleymt gleraugunum mínum á kaffihúsinu.... panikkaði smá en fljótlega áttaði ég mig á því að helv.... gleraugun væru á sínum stað, eða á nefinu.
Linda á leið út eftir 3 daga
þriðjudagur, október 28, 2003
Fyrsta blogg!
Jamm....... hver hefði getað trúað þessu, ég er búin að blogga í þrjú ár!!! Pælið í því.... að vísu mismunandi mikið aktív en ef þið ýtið hér þá getið þið lesið mitt fyrsta blogg en það var færsla þann 12. október 2000, akkúrat á afmælisdaginn hennar Sólrúnar vinkonu!.
Niðurtalning hafin í ferðina..... og ekkert byrjuð að pakka eða gera aðrar ráðstafanir... nema að huga að laga til og þrífa kannski áður en ég fer.
Mér er ógeðslega kalt núna! Er í vinnu nr 2 og það er vibbalega kalt..... nánast allir að frjósa og hefur verið svona eftir að við fluttum í nýja húsnæðið. bbrrrrrrrrrr
Linda á leið út eftir 4 daga
föstudagur, október 24, 2003
Hvað er að?
Stundum held ég hreinlega að það vanti eitthvað í mig! Ekki það að ég sé kolrugluð og snarvitlaust heldur að því leyti að ég get ekki samsvarað mig við aðra. Sem dæmi þegar við vinkonunar höfum verið að spjalla saman og verið að rifja upp atburði og hvar við stöndum í dag og svo framvegis þá hafa þær flestar ef ekki allar sagt að þegar þær voru litlar þá höfðu þær alltaf hugsað sér að fyrir einhvern ákveðin aldur um 25 þá höfðu þær ætlað sér að vera búin að eignast eitt barn eða tvö, eignast íbúð o.s.frv. Hlægja síða að þessu því þegar maður er lítil þá er náttúrulega 25 ára aldurinn rosalega fullorðinn sem okkur finnst ekki í dag. Ég hef aldrei þessu líkt að segja, ég man ekki eftir að ég hafi ákveðið að fyrir þennan aldur ætlaði ég að vera búin að eignast börn, íbúð, bíl og vera búin að koma mér fyrir í lífinu. Eina sem mig fyrst dreymdi um var að ég ætlaði að vera bóndakona og ekki hafa einhvern karl til að þvælast fyrir og gera öll skemmtilegu verkin þannig að ég þyrfti að hanga inni og gera þetta leiðinlega (húsverkin), ég ætlaði sko að sjá um að mjólka, moka skítinn og það allt. Hins vegar þegar ég komst að því að maður yrði kannski svo bundinn að vera bóndi og kæmist sjaldan í frí þá bakkaði ég frá þessari annars frábæru hugmynd svo ég gæti nú ferðast eitthvað.
Núna þegar fólk á svipuðum aldri og ég í svipuðum sporum og fer að tala um það að já hann Fúsi ætti íbúð, barn og bara allur pakkinn og væru einungis nokkrum árum eldri og þau ættu ekki neitt. Nú á ég svoldið erfitt með að gera mig skiljanlega :-)
En fólkið sem virðist á einhvern hátt öfundast út í þann sem á allan pakkan en hefur ekki gert í því vegna þess að stefnan hefur ekki verið sú í lífinu hjá þeim en samt imprar á því, það á ég svoldið erfitt með að samsvara mig við.
Ég öfundast ekki út í fólkið með allan pakkann því það er ekki mín forgangsröðun í lífinu...... ef ég raunverulega vildi rosalega mikið eignast íbúð sem vissulega væri ljúft (get hætt að flytja) þá myndi ég eflaust reyna að gera eitthvað í því, en guess what það er bara ekki mjög ofarlega.
En allavega upphafspunkturinn í þessu öllu saman er að þar sem ég var ekki búin að gera þessi plön þegar ég var yngri að eignast allt heila klabbið fyrir 25 ára aldurinn er þá eitthvað að mér? Vantar eitthvað í mig sem ætti að vera?
Líka þessi „þjóðsaga“ um það að allar stelpur séu búnar að dreyma um brúðkaupið sitt síðan þær væru litlar og væru með allt á hreinu, já ég vil kalla þetta þjóðsögðu því aldrei hvarflaði að mér brúðkaup og annað þegar ég var yngri, kannski örsök þess að ég er skilnaðarbarn hahaha en ég efast um það, bara ódýr afsökun.
Linda eitthvað skrýtin eða fullkomlega eðlileg
Fyrst með fréttirnar
Já hérna kemur Linda fyrst með fréttirnar, vonandi :-)
Birgir er byrjaður að blogga, ábyggilega eftir hinu miklar umræður á vefnum hans Jens um stafsetningar hefur hann ábyggilega ákveðið að láta slag standa. En þið finnið bloggið hans hér og bráðlega mun ég linka á hann.
Til hamingju Birgir og velkomin í bloggheiminn.
Linda ánægð með nýjan bloggara
fimmtudagur, október 23, 2003
Kvenleg eður ei!
Í afmælinu á laugardagskvöldið þá var þarna einn maður sem spurði mig hvort ég hefði ekki haft æfingarleyfi á bílinn hans pabba..... ég benti á að systir mín hefði verið með æfingarleyfi en ég væri aðeins of gömul í það (var ekki komið þegar ég var að læra á bíl), þá heyrðist í einni konu sem stóð við hliðina já ert þú (ég) þessi kvenlega en Ellen systir væri þessi, svo vissi hún ekki hvernig hún átti að orða þetta pent, "trukkakona". Mér fannst þetta nú frekar fyndið þar sem aldrei hef ég litið á mig sem eitthvað kvenleg týpa eiginlega langt því frá. Þetta ætti að vera öfugt..... að minnsta kosti er systir mín þessi kvenlega týpa en ég er kannski ekki alveg trukkakonan... kannski svona mitt á milli.
Ég man ekki til þess þegar ég var lítil að ég vildi klæða mig í einhverja prinsessukjóla, leika mér með "make up-ið" hennar mömmu eða háu hælunum. Ég fílaði mig best í joggingöllunum og átti ansa marga og marga voða flotta, byrjaði til dæmis ekki að ganga í gallabuxum fyrr en eftir 12 ára aldurinn. Einnig á þessu yngri árum þá átti ég á tímabili bara stráka fyrir vini átti eina vinkonu en ég bara þoldi hana ekki, hún hefur sjálfsagt verið of stelpuleg fyrir mig og var heljarinnar frekja.
Í dag finnst mér ég oftast tengjast betur strákum heldur en stelpum, stundum auðveldara að vera vinur þeirra heldur en stelpna. Sem dæmi þá fannst mér auðveldara að spjalla við vini míns fyrrverandi heldur en kærusturnar þeirra. Það gæti líka átt sér þær skýringar að ég hitti þá oftar heldur en þær, en kannski vantar eitthvað af þessu kvenlega í mig. Reyndar þá finnst mér mjög erfitt að halda upp einhverju svona small chat...... veit aldrei um hvað ég á að tala, hvað á að segja og það allt......hef stundum funidð upp ótal ástæður þess að ég sé svona en þetta er sennilegast ekki umhverfið sem hefur gert mig svona heldur bara ég sjálf.
Linda ekki svo kvenleg
mánudagur, október 20, 2003
Veislan sjálf
Veislan sjálf var mjög skemmtileg og gert grín að pabba hægri vinstir eins og við var að búast, það var ábyggilega um 150 manns á svæðinu. Hljómsveitin var mjög góð en held að hún heiti Tilþrif og skipuð einhverju liði frá strætó. En hér koma nokkrir punktar frá kvöldinu:
Besta setning kvöldsins: Sæll, Ég er númer 3.
Besta dansparið: Pabbi og söngkona hljómsveitarinnar.
Best geymda leyndarmálið: Ég
Drukknasti maðurinn á svæðinu: Ónafngreindur en skyldur mér.
Flottasti kjóllinn: Kjóllinn minn :-)
Sætasta stelpan: Systir mín!
Besta trúnópar mamma og systir mín (hahaha)
Nýjasta parið: Ég og mágur minn!!! (hahahaha)
Aðila sem vantaði: Númer 2
Linda enn að jafna sig eftir fimmtugsafmælið
Afmælisveisla ársins!
Svei mér þá ef bara afmælisveisla ársins var bara ekki haldið núna síðastliðið laugardagskvöld, en þá hélt pabbi upp á fimmtugsafmælið með pompi og prakt.
Nema svona afmælisveisla er greinilega ekki hrist fram úr erminni svona eins og ekkert sé..... heldur er búin að vera einhver undirbúningur á bak við ásamt því að finna sal og annað slíkt.
Talandi um salinn þá var pabbi búin að hóa saman fólki á laugardeginum til þess að gera hann klárann, raða borðum og stólum, setja dúka á borð og raða bjór í kælinn.
Áfallið kom þegar pabbi mætti á staðinn........... því það var ekki hægt að segja að það hefði verið hreint þarna inni þegar við mættum. Þegar upp var komið mætti manni úturfullur dunkur með samlokubréfum, tómum gosflöskum og sígarettustubbum, inni tók ekkert betra við, gólfið hjá barnum þar var aska og bara skítugt gólf, síðan inni í salnum sjálfum þá var líka mjög áberandi skítugt gólf ásamt því að í gluggakistunum var þykkt lag af ryki.
Að sjálfsögðu hringdi pabbi í manninn til að segja honum frá þessu enda ekkert skemmtilegt að bjóða fólki í skítugt hús. Ég meina yfirleitt býður manni ekki hóp af fólki og þrífur ekkert á undan eða hvað!
Maðurinn kom af fjöllum og sagðist skyldi koma (eða svo skildist mér), við vildum heldur ekki fara að byrja að þrífa áður en maðurinn mundi sjá hvernig ástandið væri. Við biðum.......en eftir hálftíma var ákveðið að byrja að þrífa. Enda ómöglegt að hafa allt þetta fólk og ekki gera neitt. Þannig að leitað var að tuskum og öðru dóti sem hægt væri að þrífa með..... og þar tók víst ekkert skárra við því byrja þurfti á að þrífa upp þrifdótið.
Síðan var salurinn skúraður, strokið úr gluggakistum, ryksugað svæðið hjá barnum og niður allan stigann, tínt upp úr dunkinum með ruslinu.
Á salernunum þá var eitt klósett stíflað á kvennasalerninu og þar var reyndar ekki svo slæmt en samt skemmtilegra að þrífa þar inni sem var líka gert.
Þegar þrifunum var loksins lokið þá gátum við hafist handa við að raða borðum og stólum og var því lokið milli hálf fjögur og fjögur (nb við mættum klukkan eitt). En enn var maðurinn sem sá um salinn ekki enn komin og okkur vantaði dúkana sem hann ætlaði að redda svo við gætum sett þá á borðin. Maðurinn kom svo um fjögur leytið..... síðan þegar við fórum nú að útskýra hvernig hafði verið umhorfs þegar við komum á svæðið þá þvertók hann fyrir að það gæti hafa verið eitthvað slæmt. Hann hefði nú verið þarna sjálfur í gærkveldi og ekkert hefði verið skítugt!
Hann var með svo leiðinlegt attitude gagnvart okkur að váá.... hvað ég var reið....... hann var svo dónalegur. Þarna var fólk samankomið sem var að kaupa ákveðna þjónustu við hann og var óánægt og hann er bara fúll á móti og með leiðindi.
Ég var ekkert smá reið og held barasta að ég hafi verið dónalega á móti........ hann nefndi að það væri allt öðruvísi að sjá salinn í björtu heldur en á kvöldin þegar dimmt væri, ég benti þá honum á að hann hefði verið þarna í gærkveldi þannig að þá hefði hann varla séð skítinn eins og við sáum hann í björtu miða við það sem hann sagði. Ég vissi að við hefðum átt að bíða, svo eftir á datt mér í hug að við hefðum átt að taka myndir ef við hefðum getað útvegað stafræna myndavél.
En síðan þegar hann talaði við pabba eftir á þá sagði gaurinn að hann gæti slegið 6.000 krónur af reikningnum (váá) því það hefði hann borgað þeim sem þrifu....... nema svo þar sem það væri ekki leyft að fólk væri eitt í húsinu heldur þyrfti einhver starfsmaður að vera þá mundi hann ekki rukka pabba fyrir það. Nafna mín benti nú honum á hann hafi ætlað að koma klukkan eitt til þess að hleypa þeim inn en ekki hefði hann komið. Þannig að honum var ósköp orðafátt varðandi það.
Svo öðrum víti til varnaðar........ ekki skipta við fóstbræðraheimilið á Langholtsvegi 109 og ef þið gerið það þá örugglega sjáið til þess að það sé hreint og ef það er ekki þá linnið ekki látum fyrr en gaurinn kemur á svæðið til þess að skoða. Nota bene gaurinn sagði að það hefði verið rennirí um 50-70 manns þarna um vikuna frá því að hefði verið þrifið síðast og enginn hefði kvartað., (og það kemur skítur undan 50-70 manns sem ganga þarna um). En ég meina enginn af þeim var að hafa einhverja flotta veislu heldur voru þarna um æfingar að ræða þar sem skiptir kannski ekki svo miklu máli hvernig umhorfs er og enginn kannski sérstaklega mikið að spá í því.
Endilega látið líka aðra vita um þessa sögu því það á ekki að skipta við svona fólk sem getur ekki komið almennilega fram.
Linda pirrraða yfir dónalegu fólki
laugardagur, október 18, 2003
Falleg fyrirheit
Alveg merkilegt hvernig maður getur á kvöldin svona rétt áður en maður sofnar lofað sjálfum sér hinu og þessu. Eins og til dæmis það að á morgun skal maður vera duglegur og byrja að æfa og byrja á hinu og þessu og er svo ánægður með sjálfan sig yfir þessum ákvörðunum. Svo þegar maður vaknar daginn eftir þá eru þessi fögru loforð fokin út í veður og vind.
Í gærkveldi lá við að ég yrði andvaka yfir hugsunum um bloggið..... ekki það að ég væri að lofa mér einhverju heldur hvort ég ætti að hafa áherslubreytingar hér. Hætta að fjalla svona mikið um daglega lífið og hafa eitthvað meira....... en málið á sínum tíma þá bakkaði ég út úr því að hafa mínar hugsanir hér. Bæði vegna þess að ég vildi ekki opna mig of mikið hér í sambandi við mínar hugsanir því þá gæti fólk a) hneykslast á mér, b) fundist þær bjánalega, c) þær séu bjánalegar o.s.frv. En sennilegast stafast þetta allt saman af minnimáttarkennd. Ég sé ekki nógu góð og allt það. Ég á nefnilega oft erfitt að koma einhverju frá mér á málefnalegan hátt og þegar ég hef verið að skrifa hérna inni þá er það oft í einhverjum flýti og ég gef mér ekki mikinn tíma í það. En núna þar sem ég er komin með adsl-ið heim þá gæti ég farið að breyta þessu. En spurningin er sú hvort ég vilji það.
Jú að sjálfsögðu vil ég að bloggið mitt sé gott og skemmtilegt. Reyndar held ég að þeir sem lesi það séu alls ekki ókunnugir heldur vinir og vandamenn. Einhverjir sem þekkja mig. Þannig að við hvað ætti ég að vera hrædd??
En ég hugsa að ég haldi mig bara við það að skrifa um það sem mig langar til..... og verði ekki að binda mig við eitt né neitt..........
Linda með áherslubreytingar??
föstudagur, október 17, 2003
Steggjapartý
Ég er miður mín.
Af hverju? Jú vegna þess að ég var að uppgötva það um daginn að þar sem ég er kvenkyns þá gæti ég að öllum líkindum ekki verið að steggja vini mína. Það er reyndar bara einn góður vinur sem er trúlofaður og ef maður fær einhvern fyrirvara á brúðkaupinu þá má ég sennilegast ekki að vera með í steggjun ef slíkt væri gert og mér finnst það alveg hræðileg. Ég er eiginlega bara miður mín..... ég vil vera með. Sometimes life just sucks
Hann Árni sem er einmitt þessi góði vinur sem mig langar til að steggja :) er með góða færslu á síðunni sinni í dag um álfa.
Hin hugsandi Linda
fimmtudagur, október 16, 2003
Út að borða!
Pabbi var bara flottur á því og bauð okkur börnunum og nöfnu minni út að borða! Takk fyrir mig.
Ég á svoddans snilling fyrir systur því hún tók sig til og bjó til vísu til að setja í kortið til pabba því hann átti nefnilega að leita að gjöfinni sinni frá okkur systrum. Ég ætla að taka mér það bessaleyfi að birta það hér:
Spurningn er nú
hvar er gjöfin.
Leita mátt þú,
þó er það ekki gröfin!
Þetta er til að breyta,
úti líður best.
Nú er það búið að skreyta
elsku pabbi hvað notar þú mest?
Þetta olli pabba svoldlitlum heilabrotum meðan hann var að spá í þessu.....nema svo ákvað hann að fara aðeins í göngutúr að bílnum því virtum vera svoldið jákvæðar í því að það væri bílinn sem hann væri að nota mest.
Það fynda var að hann gekk einn hring um bílinn án þess að fatta neitt. Síðan tók hann eftir að búið var að skipta um númeraplötur. Hann er nú með númerið HALLIP þannig að ef þið takið eftir stórum gulum bíl með þessu númeri þá er pabbi þar á ferð.
Svo í öðrum fréttum þá er ég loksins komin með ADSL-ið jíbbíii, enda sit ég hérna upp í rúmi núna og með engar snúrur í tölvuna og er að blogga. Alveg ógesslega kúl! Eða finnst ykkur það ekki?
Linda adsl kúlisti
Fimmtugur
pabbi kallinn á afmæli í dag og það bara stórafmæli. Til hamingju með afmælið pabbi, er nokkuð viss að þú munt lesa þetta :) , vona að þú njótir dagsins.
hann á afmæli í dag..... hann á afmæli í dag.......
miðvikudagur, október 15, 2003
Styttist
Sem betur fer er ég ekki farin að styttast, enda mætti varla við því. En það styttist í að ég fari út....nærri bara 2 vikur. Skrýtið að þá er ég eiginlega búin að missa móðinn við að skipuleggja ferðina. Nenni ekki lengur að leita að netinu að hinu og þessu og ég á enn eftir að ákveða og skoða betur hvað ég og Sigga gerum þessa daga sem við höfum........ þvílíkt kæruleysi.... enda er það kannski alveg ágætt. Grunar samt að Sigga gæti farið svoldið yfirum ;-), svo á ég líka eftir að ákveða hvað ég ætla að gera á Kúbu.... en ég hugsa þó að það ráðist að mestu þegar ég kem þangað. Ætla ekki alveg að fara að binda mig við eitthvað ákveðið plan ef það skyldi eitthvað skemmtilegt detta í fangið á mér.
Það styttist einnig í að pabbi kallinn verði fimmtugur! En það gerist bara á morgun, takk fyrir!
Linda bara Linda
þriðjudagur, október 14, 2003
Þoli ekki....
Þoli ekki þegar ísskáðpurinn er tómur.............
þoli enn síður að vera alltaf að fleygja úr ísskápnum tveimur vikum eftir að ég keypti eitthvað í hann......
Þoli ekki þegar sjónvarpið slokknar á sér af sjálfu sér..........
þoli ekki kók sjálfsalana.............
og síðan er ég bara alls ekki að þola danska skólahópa..........
Annars finnst mér bara nokkuð gott þegar ég byrjaði í morgun að skrifa um að ég þoldi ekki að verða bensínlaus því ég ætlaði að skrifa meira um það sem ég þoldi ekki en bara mundi ekki neitt............. þannig að ég er kannski bara stálheppin hahahaha!
Linda þolgóða!!
sunnudagur, október 12, 2003
Bílar
Ekki var ég lengi að bíllaus í þetta skipti, rétt svo liðin sólarhringur frá því að ég skilaði bílnum (reyndar skildi hann bara eftir á farfuglaheimilinu) þangað til það var hringt í mig og mér boðin annar bíll í viku. Jamm núna er ég komin á bílinn hans Birgis. Hann hringdi í mig í gær, held reynda að honum hafi bara vantað far niður á flugvöll til að sækja bíl mömmu sinnar og þegar hann komst að því að ég var búin að skila bílnum þá bauð hann mér sinn til afnotar meðan mamma hans er í burtu.
Annars fær ladan hans Birgis mig til að fá minnimáttarkennd. Þá í sambandi við það að ég sé lélegur bílstjóri :( því bílinn á það til að hiksta ansi oft.
Á föstudaginn var hringt hjá mér bjallan og úti fyrir stóð ungur drengur sem sagðist vera nágranni minn og bað um hvort hann gæti fengið klósettrúllu lánaða þar sem foreldrar hans höfðu farið í sumarbústað og engin klósettpappír til. Mér fannst þetta nú frekar fyndið og stráksgreyið frekar vandræðalegur. Að sjálfsögðu lét ég hann fá eina rúllu, var reyndar að pæla í að spurja hann hvort hann þyrfti fleiri en síðan er spurning því í ósköpunum fór hann ekki út í búð að kaupa klósettrúllur? Var kannski einhver vinur hans fastur á klósettinu og vantaði ASAP.
Linda klósettpappírreddari
föstudagur, október 10, 2003
Opinbert!
Ég ætla hér með að gera það opinbert á þessari síðu að ég er á leið til Kúbu! Þótt langflestir vita það eflaust.
Í gær fékk ég bréf frá sendiherra Kúbu í Svíþjóð sem innihélt túrista visað þannig að ég fæ inngöngu í landið. Þetta gekk þvílíkt fljótt fyrir sig.... var búin að undirbúa mig fyrir að bíða í einhverjar vikur en nei, þetta kom innan við viku tilbaka. Sendi bréf til þeirra seinasta föstudag og búin að fá frá þeim svar viku síðar. Þetta eru bara góð vinnubrögð eða er það ekki?
Kettir!
Það eru komnir núna þrír kettir hérna á farfuglaheimilið! Maður hefur ekki við að henda þeim út, í fyrstu var bara alltaf einn köttur að álpast hingað inn og maður sífellt að henda honum út, í fyrradag bættist síðan nýr köttur við og í dag er ég að sjá þriðja köttinn.
Maður gerir bráðum ekki annað en að hlaupa eftir þeim til þess að henda þeim út. Nema svo eru kettirnir svo vinsælir hjá gestunum og þeir sífellt að hleypa þeim inn aftur, halda eflaust að þetta séu kettir farfuglaheimilisins.
Linda kattaútkastari með meiru!
fimmtudagur, október 09, 2003
Að gefast upp!
Ég er að fara að lúta í lægra haldi og hugsa að ég ætti bara að halda mig heima!.
Er búin að vera að leita að netinu að ódýrri og góðri lausn að ferðast frá Kaupmannahöfn til Búdapest og það virðist bara vera engin leið. Það er ógeðslega dýrt að fara með lest fyrir utan tímann sem það tekur og svo finn ég ekkert flug þangað :( , og nú er ég búin að bíta það í mig að fara til Búdapest. Hvað skal gera?
Ætti ég að hætta að hugsa um Búdapest og fara eitthvert annað, á ég að borga fúlgu fjár til þess að komast til Búdapest eða reyna að halda áfram að leita til þess eins að vera svekkt!
Lindu sem langar til Búdapest!
þriðjudagur, október 07, 2003
Kennt um!
Öllu er nú hægt að kenna manni um. Ég hef nú aldrei talið mig með fyndnari manneskjum þó það geti nú kannski eindrum og eins dottið eitthvað skondið upp úr mér. En núna er Árni að kenna mér um það að hann hlægi svo mikið að samstarfsfólkið hans kemur fram til að athuga hvað væri svona fyndið! Ég sem er bara að tala við hann á msninu, kannski var bara eitthvað heimskulegt komment sem ég sagði og hann er að hlægja yfir ruglinu í mér!
Linda ekki svo fyndin!
hmm.....
Forrest Gump!
What movie Do you Belong in?(many different outcomes!)
brought to you by Quizilla
þá höfum við það
föstudagur, október 03, 2003
Dónaskapur!
Ég á bara ekki til orð yfir dónaskap í sumum, áðan kom maður hingað í vinnuna sem kynnti sig varla. Hann króaði þá sem var í móttökunni af til þess að fara að kynna henni lífeyrissparnað. Hann spurði hana ekki einu sinni hvort hún hefði tíma eða áhuga til þess að kynna sér þetta. Þetta fannst mér bara argasti dónaskapur, koma og trufla starfsfólkið í vinnu og hún hafði litla möguleika til þess að koma sér undan.
Mig langaði svo til þess að fara fram og segja við hann að mér þætti þetta argasti dónaskapur en þar sem ég er svo prúð gerði ég það ekki og sé að sjálfsögðu eftir því. Þar sem stelpan í móttökunni vildi nú ekki skrifa undir á staðnum og vildi kynna sér þetta þá varð hann bara fúll og sagði henni líka að hann gæti sagt henni allt það sem hún vildi vita um þetta. Þegar hún spurði hvort það væru ekki upplýsingar um þetta á netinu eða eitthvað álíka þá sneri hann bara út úr og fór að tala um eitthvað allt annað. Hann spurði einnig hvort stelpan inni (ég) mundi ekki hafa áhuga. Ég sagðist ekki hafa áhuga þá varð hann eiginlega bara fúll á móti og sagði að sjálfsögðu hefur þú áhuga en maðurinn sem kom með honum sagði þá loksins já hún ræður því að sjálfsögðu.
Við vorum báðar mjög pirraðar eftir að hann fór og sú sem er í móttökunni er að hugsa um að hringja til þess að kvarta yfir honum sem mér finnst sjálfsagt að gera.
Það rétta í stöðunni fyrir þennan mann ef hann vill ná starfsfólki í fyrirtækjum er að hringja á undan sér til þess að athuga hvort það sé í lagi að hann komi og reyni að koma á fund þar sem flest allt starfsfólk er á svo hann geti nú kynnt þetta.
Eða er það ekki?
Linda sem er pirruð yfir dónaskap
fimmtudagur, október 02, 2003
Dugnaður
Ég var svo dugleg í dag að áður en ég fór í vinnuna þá afrekaði ég það að þrífa heima hjá mér (ekki veitt af), þreif meira að segja búrið hjá Pabló, fór í sund og synti, dreif mig síðan upp úr því það var orðið svo hvasst. Eftir þetta dreif ég mig til skattstjóra til að borga framkvæmdarsjóð aldraða. Þvílíkt flókið sem þetta hús getur verið. Gat ekki með góðu móti fundið staðinn þar sem ég þurfti að fara til að borga, spurðu því næstum á hverju einustu hæð hvert ég ætti að fara (smá ýkjur).
Annars er ég sennilegast að fara út að borða á þriðjudagskvöldið....... vei vei :-) , lítur bara út fyrir að ég þurfi að dissa símavinnuna þá eina ferðina enn.... ég meina hvort mundið þið velja að fara út að borða á þriðjudaginn eða fara að vinna?
Linda dugnaðarforkur
miðvikudagur, október 01, 2003
Mikið að gera
Búin að vera að standa í ströngu í vinnunni eða þannig........ var að reyna að laga bloggerinn minn þannig að hann pósti gamla pósta. Er ekki alveg búið að takast..... en er kannski allt í áttina. Get eflaust einbeitt mér meira að þessu þegar ég er búin að fá ADSL-ið en það ætti að fara að koma mjög fljótlega.
Linda að dunda sér
Löt!
Nenni eiginlega ekki að vera í vinnunni, langar til þess að gera eitthvað allt annað. Þarf einnig svo mikið að þrífa heima hjá mér og laga til. Ef einhver er tilbúin að bjóða sig fram þá þigg ég það með þökkum.
Það er líka að koma spenningur í mig fyrir ferðina í næsta mánuð, en nú er einungis mánuður þangað til ég fer......... váa. Það er nefnilega alltaf búin að vera svo langt í þetta.
Endilega komið með tillögur um hvaða land/lönd ég og Sigga eigum að heimsækja þegar ég fer til hennar. Við vorum búnar að ákveða að fara til einhverja af eftirtöldum löndum: Austurríki, Ungverjalands, Slóveníu, Slóvakíu, Tékklands........ endilega komið með uppástungur hvert þeirra landa helst eða ef þið hafið aðrar uppástungur. Við höfum einungis nokkra daga frá 5. nóvember til svona 10. nóvember en þá þarf Sigga að fara tilbaka til Danmerkur en ég flýg síðan til London 12. nóvember.
Linda sem er farin að telja niður
þriðjudagur, september 30, 2003
Þoli ekki
Ég þoli ekki þegar maður er farin að lifa fyrir mánaðarmótin, þ.e.a.s. bíður eftir þeim með tilhlökkun því maður er orðin svo blankur.
En mánaðarmótin komu aðeins fyrr hjá mér, þarf ekki að bíða til morgundagsins, jeeiiii.
Linda þolinmóða......
Helgin!
Helgin var bara mjög fín og hún skynsamlega notuð í góðum félagsskap. Orðið eyða finnst mér svo neikvætt að ef ég mundi segja að ég hafi eytt helginni í góðum félagsskap þá finnst mér það svo neikvætt. Er einhver með gott orð sem ég get notað í staðinn?
Var að vinna í gærkveldi á farfuglaheimilinu og þetta var í fyrsta skipti sem ég var að vinna þarna að kvöldi til. Það var eiginlega bara mjög þægilegt, gott og rólegt andrúmsloft í húsinu, margir af gestunum voru í sameiginlega rýminu og þá að horfa á sjónvarpið, rabba saman eða spila fótboltaspilið, enda líka ágætt að það sé svo því ég verð á kvöldvöktum á næstunni, sem gerir gott fyrir budduna og væntanlegu utanlandsferðina.
Vinnan mín hjá símanum hefur flutt og við komin í annað húsnæði. Er pínku furðulegt því það er svo mikið af fólki í húsinu, þjónustuverið, siminn internet, eve online og bakvinnslan er til húsa á sama stað og þetta er allt í stórum sal....... kosturinn við þetta er kannski sá að úthringiverið er loksins komin með sín eigin borð og tölvur.
En hvað maður getur nú sett fólk í bása......sá tvo frekar "nördalega" samt ekki þetta voru svona furðulegar týpur hérna hjá símanum. Þeir voru ekki beint þannig útlits að þeir ynnu hjá símanum þannig að fyrsta hugsunin var sú að þeir hlytu að vera hjá eve online deildinni. Það sem maður getur nú verið að setja fólk alltaf í bása.
Lindau sem langar heim
föstudagur, september 26, 2003
Könnun á Gagnkynhneigð
Var að surva bloggera og rakst á þessa könnun á einum þeirra, alveg stórsniðug.
Það er mikið af erlendum skólahópum á farfuglaheimilinu þessa dagana og það sem mér finnst einna merkilegast við það að unglingarnir í þessum hópum taka yfirleitt leigubíla þegar þau eru að fara í bæinn eða koma úr bænum í stað strætó. Því lang flestir hinna gestanna sem koma á eigin vegum eru að taka strætó!
Lindu sem hlakkar til að fara í helgarfrí!
miðvikudagur, september 24, 2003
Nágrannar
Var á pínku sjónvarpsflakki í gær eftir að judging Amy bar búin og svo skemmtilega vildi til að ég skipti yfir á popp tívi og hvað haldið þið. Gesturinn í stólnum hjá strákunum í 70 mínútum var enginn annar en nágranni minn......... spurning samt hvort það sé rétt nefni þar sem íbúðin mín er inni í húsinu sem hann býr........ ah kemur kjánalega út oh well.
Allavega þá var hann þarna í viðtali og til að kynna myndbandið sem hann og hljómsveitin sem hann er í voru að gera. Horfði síðan á myndbandið og ég sá bara ekki betur en húsið "mitt" væri bara í myndbandinu. Þar sem stelpan leikur þá er það herbergi stráksins.... og svo útidyrnar og allt. Voða merkilegt allt saman. Annars var ég held ég svo upptekin af myndbandinu að ég gleymdi alveg að fylgjast með laginu og söngnum. Held samt að ég hafi heyrt stráksa syngja betur :-) , vorum eitt sinn á sama tíma á Dubliners þar sem hann tók lagið og þá fannst mér hann hafa voða fína rödd.
Út í aðra sálma þá er ég voða stolt af mér þar sem í dag að ég afrekaði það að nota loftþrýstismælir á dekkin á bílnum og setja loft í þau. Þetta fyrirbæri loft, dekk og setja loft hefur einhverja hluta vegna hrætt mig. Aðallega þó vegna þess að ég var alltaf svo hrædd um setja svo mikið að þau mundu hvellspringa! En ekkert slíkt gerðist.
Linda í næsta nágrenni við frægðina!
þriðjudagur, september 23, 2003
Haustlegt
Það er ekkert smá haustlegt um að litast úti núna!
Ég er ekki alveg að skilja tölvuna mína eða tenginguna því þegar ég er tengd netinu ætla ég mér að skoða blogg en ekki tekst að fara á síðuan og hef ég heimildir fyrir því að öðrum tókst það en ekki mér. En svo hafa líka aðrir tímar komið þar sem það hefur tekist.
En núna er bara að bíða eftir ADSL tengingunni og vona að það komi fljótt í hús.
Svo er allt að koma meira í ljós með ferðina mína í nóvember en ég og Sigga gátum svona nokkurn veginn ákveðið hvaða átt og lönd við ættum að huga að þegar ég kem til hennar.
Linda sem hlakkar til morgundagsins
laugardagur, september 20, 2003
fimmtudagur, september 18, 2003
Bílleysi
Bílleysið varði ekki lengi......... og nei ég er ekki orðin það rugluð að ég hafi líka keypt mér bíl, heldur verð ég að passa bíl næstu vikurnar. Steffi vinnufélagi er að fara út og vantaði einhvern til þess að passa bílinn sinn á meðan, þarf að viðra hann daglega. Bílinn þarf nefnilega hreyfingu þar sem annars hann gæti alveg hætt að gangaef hann er látinn standa. Jamm.... bíl með sál.
Annars er ég farin að æfa mig áður en ég fer út og þá í því að borða ein á veitingastöðum. Var áðan á Old West þar, fyrr í sumar fór ég á Madonnu og síðan hef ég nokkrum sinnum farið á Krús Thai til að borða.
Linda ekki bíllaus mikið lengur
þriðjudagur, september 16, 2003
Hæfileikar
Í móttökunni þarf maður að vera hinum ýmsum hæfileikum gæddur og geta svarað öllu.
Í dag kom par sem átti bókað nema þegar þau voru búin að ganga frá því þá spurðu þau mig hvort ég þekkti einhvern sem hefði keyrt opel astra. Ég mundi ekki eftir því en spurðu ástæðuna fyrir því.
Ástæðan var frekar spaugileg og þau vandræðaleg vegna þess. Málið var að þau gátu ekki komið bílnum í bakkgír og höfðu alltaf lagt þannig að þau þyrftu nú ekki að bakka. Þannig að ég bauðst til þess að fara með þeim út og kíkja á bílinn, hvort ég gæti þetta nú eftir að hafa keyrt hina ýmsu bíla.
Að sjálfsögðum var ég þeim hæfileika gædd að finna út úr því hvernig þau gátu sett blessaðan bílinn í bakkgír og sýndi þeim það og fékk mikið þakklæti fyrir :-)
Linda sem saknar tölvunnar sinnar
mánudagur, september 15, 2003
Ný talva
Fyrsta færslan í nýrri tölvu!
Já ég gerði mér lítið fyrir og gerði mér ferð í Svar til þess að kaupa mér fartölvu. Ekkert smá grand á því skal ég segja ykkur. Komin síðan strax með tölvuna í hendur og komin á netið.
Annars hélt ég að ég mundi ekki ná upp í Svar fyrir lokun vegna bilunar á bíl. Málið er að ég fór með mömmu upp í svar nema hvað hún náði í mig í vinnuna þegar hún var búin að vinna um fimmleytið. Þegar ég svo settist inn í bílinn hennar og ætlaði að loka hurðinni þá bara stóð hún á sér og ekki hægt að loka.
Við vorum eitthvað að bissast við þetta þarna fyrir utan farfuglaheimilið og kemur rúta frá kynnisferðum sem var að pikka upp farþega og bílstjórinn kemur eitthvað út og ætlar að reyna að hjálpa okkur en ekkert tekst. Því næst eru góð ráð dýr og við ákvaðum að fara á næstu bensínstöð til að athuga hvort þeir geti nú eitthvað hjálpað okkur. Að sjálfsögðu keyrðum við með opna hurð farþegamegin og mig langaði mest til þess að sökkva niður í sætið af skömm. Við komust þangað og einn starfsmaður kom og hjálpaði okkur en ekkert gekk honum betur og einnig var komin bílstjóri á rútu til þess að aðstoða hann. En allt kom fyrir ekkert og ekki vildi hurðin haggast. Á endanum urðum við að gefast upp fyrir hurðinni. Þegar mamma var svo í símanum til þess að athuga hvort við gætum nú ekki skilið bara bílinn eftir á sundlaugaveginum í stað þess að keyra alla leið í Hafnarfjörð með opna hurð þá prófaði ég hurðina aðeins aftur. Hurðin lokaðist oggulítið meira heldur en áður en samt ekki alla leið en maður fann samt að það væri möguleiki að skella henni núna. Þannig að mamma tók sig til og skellti hurðinni. Þannig að eitthvað hefur ábyggilega eyðilagst. En við þorðum ekki fyrir það minnsta að opna hana aftur. En við rétt náðum í svar fyrir sex og ég orðin nokkrum krónum fátækari....... eða verð það svona á næstum mánuðum.
Linda tölvu ríkari en peningum fátækari!
miðvikudagur, september 10, 2003
jáhá
Japan -
Viewed as the technological powerhouse of the 21st
Century, it has lived a reletively solemn and
singular history.
Positives:
Technologically Advanced.
Economic Superpower.
Healthy Populace.
Negatives:
Small.
Isolated and Sometimes Ignored.
Unlucky with Disasters.
Which Country of the World are You?
brought to you by Quizilla
Það var þá það!
laugardagur, september 06, 2003
Gsm síminn
Var að fá þær upplýsingar áðan að síminn minn hefði flust í símann hans Jens ef ég næ ekki að svara í hann, veit ekki hvernig mér tókst að breyta þessu þannig, man ekki til þess að ég hafi nokkurn tímann ætlað að færa símtöl mín í síman hans Jens. Hann sem er í Prag þannig að það er nú ekkert spaug að fá símtal svona frá mínum síma. Ég biðst innilegrar afsökunar á þessu Jens. Er vonandi búin að aftengja þetta núna en ef svo er ekki og einhver sem hringir í símann minn en fær Jens þá mætti viðkomandi láta mig vita með smsi :-) Engin smá aulaháttur! En takk Stebbi fyrir að láta mig vita af þessu.
Búin að vera að vinna í móttökunni í morgun, var frekar mikið að gera og ég búin að vera eitthvað hálfpirruð í dag. Ferlegt þegar svona dagar koma og manni finnst túristarnir fara í taugarnar á sér og koma með heimskulegar spurningar......... en svo koma betri dagar þegar maður getur brosað við öllum........ en oh well........ það er best að fara að halda heim á leið.
Linda með enga gsm kunnáttu
föstudagur, september 05, 2003
Strætó
Guðmunda og Stebbi eru komin heil á höldnu frá Namibíu. Ég fór út á völl í gær til að sækja þau í ógeðslega veðrinu. Þrátt fyrir viðvarir mínar um veðrið þá vildu þau koma heim frekar heldur en að dvelja lengur í Þýskalandi. Með því þá náttúrulega missti ég bílinn sem ég var svoooooo góð að passa fyrir þau. Ég hugsa bara að bílinn þeirra sé í ágætu ásigkomulagi þar sem ég fór nánast daglega út til þess að viðra bilgarminn og leyfa honum að hreyfa sig aðeins, það er kannski bara ég sem hlýt eitthvað slæmt af að hafa haft bílinn þennan mánuð því hreyfingin sem ég fékk af að labba í og úr strætó fór.
Síðan er það bara spurning hvernig ég venst strætó aftur eftir þennan mánuð. Byrjaði reyndar ekki vel í morgun því ég missti af strætó og þurfti því að bíða í 10 mínútur eftir næsta vagni í þvílíkri grenjandi rigningu sem endilega þurfti að komast inn í strætóskýlið.
Komin á eitthvað ærlegt flipp með peninga, eyði þeim eins og ég hafi bara aldrei gert neitt annað um ævina! Mætti halda að ég sé farin að skíta peningum miða við eyðslu!
Linda money maker!
miðvikudagur, ágúst 27, 2003
mánudagur, ágúst 25, 2003
Augnlæknir!
Lét loksins verða af því að heimsækja augnlæknirinn minn í annað skiptið því mig grunaði að sjónin hafði versnað. Sá grunur var algjörlega á rökum reistum og því þarf ég að fá mér sterkari gleraugu :( buuhuuu.
Ég ákvað að spyrja um linsur svona af því að ég var þarna, hann skoðaði í mér augun með tilliti til þeirra líka. Ég reyndar byrjaði að lýsa efasemdum mínum á að ég gæti haft linsur því ég gæti sennilegast ekki komið þeim upp í augað hvað þá tekið þær úr.
Hann reyndar lýsti því yfir að ég væri með hrá augu og væri ekki góður stuðningur fyrir linsurnar, því væri ég með viðkvæm augu og myndi eflaust finna meira fyrir þeim heldur en aðrir. Síðan tróð hann linsunum í augun og eftir það fékk ég kennslu hjá aðstoðarkonu hans í að taka úr linsuna. Það tók nokkrar tilraunir en að lokum tókst það. Þannig að nú á ég linsur og þá þarf ég
"bara" að kaupa mér ný gleraugu.............
Gerðist nokkuð sniðugt í vinnunni áðan, það kom maður að hitta forstöðukonuna yfir farfuglaheimilinu áðan því hann ætlar að leigja eitt herbergi í september hjá okkur og vinnur fyrir leigunni að einhverju leyti nema þessi maður var Ítali og maður sem ég er búin að þekkja síðan ég var sex ára :-). Hann var nefnilega að passa mig á Brekkukoti þegar ég var sex ára og hef hitt hann í gegnum árin svona á förnum vegi. Mér finnst þetta gífurlega sniðugt!
Gaman að þessu!
sunnudagur, ágúst 24, 2003
föstudagur, ágúst 22, 2003
Póstkort
Fékk frábært póstkort í gær. Það eina sem á póstkortinu stóð I´m here you are NOT, svo mynd af kalli, engin undirskrift eða neitt. Frímerkið frá Namibíu og mynd af fíli og einhverju öðru dýri framan á. Mér finnst þetta brilliant póstkort, verst að ég hef ekki haft hugmyndarflug til þess að senda svona kort.
sjúbbí dú da da
miðvikudagur, ágúst 20, 2003
Símtal
Í dag í vinnunni, reyndar eftir að minni vinnu lauk en bara vildi svo til að ég var ennþá stödd í vinnunni þá hringir síminn. Það er að sjálfsögðu ekkert óvanalegt að hann hringir nema þar er beðið um einhvern sem talar íslensku. Nefnilega sú sem svaraði er austurrísk og talar því ekki íslensku. Stelpan sem átti að vera í móttökunni var ekki þar akkúrat þá stundina og því biður sú austurríska mig um að taka símann sem ég og gerði. Ekkert óvanalegt við það.
Nema nú kemur sá partur símtalsins sem gerist vanalega ekki. Í símanum var síðan kona sem talaði ensku (mér fannst eilitíð skrýtið að sú manneskja hafi verið að biðja um einhvern sem talaði íslensku) en allavega hún kynnir sig og segist vera að hringja frá Kanada og sé að framleiða einhvern sjónvarsþátt og eitthvað blablabla sem ég tók ekki mikið eftir því eins og áður segir þá var ég hætt að vinna og vildi því losna fljótt. Nema síðan spyr hún mig hvort ég kunni íslensku og ensku........ að sjálfsögðu segi ég já. Þá segir hún næst að hún vilji að ég mundi þýða frasa úr ensku yfir á íslensku...... ég hika smá og segist ætla að reyna að gera það..............
Hvað haldið þið að hún hafi beðið mig um að þýða............. alveg handviss um að þú gast ekki getið upp á þessu!
Hún bað mig um að þýða frasann I´m horny yfir á íslensku........ að sjálfsögðu spurði ég hvers vegna, hún sagði að það ætti að vera einhver sem maður sem ætti að segja þetta við einhvern kvenkarakter. Ég þessi saklausa unga stúlka verð að sjálfsögu við hennar ummælum og segir Ég er graður en mér fannst nú frekar óþægilegt að segja þetta og fannst nú eins og verið væri að hafa mig að fífli......... síðan biður hún mig að stafa þetta sem ég gerði einnig....... svo endurtók þessi manneskja orðin nokkrum sinnum og spurði hvort þetta væri rétt. Nema þegar hún bað mig síðan um að segja þetta við pródúsentinn sinn svo hann heyrði líka hvernig þetta væri borið fram þá sagði ég bara hinga og ekki lengra og neitaði manneskjunni.
WHY WHY WHY........... ég er bara ætluð að lenda í einhverju svona..... mér líkaði ekkert smá illa við þetta og hefur sínar ástæður. Þegar ég var að vinna á talsambandinu þá lenti maður stundum í einhverjum klámhundum sem voru að hringja inn og spurja um hitt og þetta eða stynja í simann. Oft þá byrjuð þeir sakleysilega þannig að það var eins og þeir væru að spyrja um eitthvað vildu fá kollegt símtöl en svo byrjuðu þeir að klæmast.
Svo ég endi þetta nú á góðu nótum og með smá skemmtisögu um símtal þá fékk ég annað símtal á mánudaginn.......... nema þar var maður sem ég var búin að bóka og hann var að spurja einhverjar loka spurningar um bókunina. Nema þennan dag var ég að vinna í móttökunni og hann staddur á farfuglaheimilinu og þegar ég tala í símann þá horfi ég á hann vera að tala í simann við mig! Hann var á svæðinu við móttökuna. Henni Steffi fannst þetta að sjálfsögðu mjög fyndið ásamt mér þannig að hún æddi að manninum og spurði hvort hann hefði ekki verið að tala við Lindu og sagði síðan jamm þetta er Linda. Greyið maðurinn fór í smá kleinu en hló síðan að þessu og spurði mig síðan loka spurningar.
Linda sakleysingi!
mánudagur, ágúst 18, 2003
Vanþakklæti
Haldið þið að það sé nú, sit hérna heima hjá mömmu til þess að hleypa honum Kobba út úr búrinu sínu og gefa honum mat, hann er páfagaukur og mamma í burtu. En hann Kobbi situr á öxlinni minn og er reyndar að narta bæði í eyrað á mér og hálsfestina mína en hann þurfti endilega að gera stykki sín á öxlina á mér líka :(. Þetta finnst mér vanþakklæti á háu stigi......... reyndar er hann kannski bara að passa tölvuna og símreikninginn fyrir mömmu.... en common on!
Annars er ég líka búin að sjá það út að ég þarf held ég að fá kennslu í að þrífa bíla, þetta virðist bara ekki ganga hjá mér......... þeir eru eiginlega engu skárri þegar ég er búin að þvo þá :-(
Linda sem kann ekki að þvo bíla
laugardagur, ágúst 16, 2003
Ansans!
Dauði og djöful.................. ég er svekkt, mig langaði svo að sjá íslenska dansflokkinn núna á menningarnótt og ég hafði heyrt að þeir ættu að vera um kaffileytið í landsbankanum. En nei....... svo loksins þegar ég fann dagskrána þá eru þeir 19.45 og það kalla ég sko ekki kaffileytið, of seint fyrir kaffitíma og of snemmt fyrir kvöldkaffið............ kaffileytið my ass. Jamm þið getið spurt ykkur af hverju ég fari ekki bara þá en ég er bara búin að plana annað á þessum tíma. En kannski er ég bara ekki að missa af miklu þar sem þeir eru bara í um korter.
Annars er ég að myndast við að reyna að vera dugleg, svo lengi sem ég missi mig ekki á netinu ;-), ég er komin í odda og ætla að fara að reyna að gera eitthvað af viti....... en verður ábyggilega að óviti...... en oh well.
Just in case ef ég kemst ekki á netið á morgun þá á Guðmunda vinkona afmæli á morgun!!!! Til hamingju með afmælið Guðmunda mín á morgun. En ég mun ekki geta hringt í hana né heimsótt þar sem hún er stödd í Namibíu og kemur ekki fyrr en í byrjun septembers. Ég mun senda hlýja strauma til þín.
Ein svekkt!
miðvikudagur, ágúst 13, 2003
miðvikudagur, ágúst 06, 2003
þriðjudagur, ágúst 05, 2003
Afríka
Var að fá e-mail frá Guðmundu og Stebba en þau voru að lenda í Namibíu, ekkert smá gaman að fá e-mail frá þeim og vona bara að maður fái reglulega fréttir. Á meðan fékk ég það ábyrgðamikla hlutverk að passa bílinn þeirra, fara með hann út að keyra daglega og svona. Annars var ég að hugsa að taka að mér bara svona bílagæslu fólki algjörlega á kostnaðarlausu, tek þá að mér að viðra bílana reglulega og svona. Kostaboð. Ef einhverjir vilja notfæra sér þetta þá er bara að hafa samband :-)
Linda sem tekur að sér bíla
föstudagur, ágúst 01, 2003
fimmtudagur, júlí 31, 2003
Snillingur
Ég ætla að tilnefna snilling dagsins, vikunnar ef ekki mánaðarins.
Snillingur mánaðarins er enginn annar en ÉG......... jamm ég ég ég ég. Mér tókst að koma komment kerfinu í lag og það sýnir núna hversu mörg skilaboð hafa komið. Ég er svo stolt, barasta að rifna úr monti......... jeeiiii fyrir Lindu.
Nú megið þið kommenta á það að ég nefndi kommentið mitt Mjálm :-) Látið í ykkur heyra elskurnar mína!
Linda að rifna úr monti yfir sjálfri sér
Veður!
Hvað er málið með veðrið!
Merkilegt hvað hægt er að velta sér upp úr veðrinu og hvað það hefur mikið áhrif á mann, bæði andlega og hvað maður áorkar og gerir eftir því hvernig veðrið er.
Farið að minnka vinnan í vinnunni og merkilegt nokk þá verður minna um afköst hjá mér...........
alveg dæmigert
Frétt frá Grænlandi
Sorgleg frétt frá Grænlandi getið þið lesið um hér.
Það er ekki svo ýkja langt síðan ég var á Austur Grænlandi en ég var reyndar í Kulusukk en ekki í Tiniteqilaag þar sem þessi atburður gerðis að sýslumaðurinn var skotinn til bana.
:-(
miðvikudagur, júlí 30, 2003
Soddans asni
Jamm ég get verið soddans asni, ég var að verða hálf fúl yfir því að engin kommentaði neitt. Hélt bara að enginn elskaði mig! Já það er samsem merki þarna á milli hehehe
En ég hef komist að öðru það er einhverjum þarna úti sem þykir vænt um mig! jíibíi.
En aðallega það að kommenta kerfið sýnir ekki á bloggernum að það sé búið að kommenta eitthvað en ég prófaði að skoða og það voru skilaboð til mín :-) Þannig að ég hef ástæðu til þess að brosa aftur.
Ég er reyndar að spá í hvort ég ætti ekki að skipta þessu komment kerfi út því ég fór inn á yaccs til þess að reyna að laga þetta en þá bara fann ég ekki þar sem það er hægt. Allavega þetta bull er held ég að fara að verða óskiljanlegt!
Svo ég svari Guðmundu þá var borðfélagi minn á Krús Thai lítill 2 ára snáði :-), hann var eitthvað að sniglast þarna í kring og svo tók hann sig bara til og settist hjá mér. Foreldrunum fannst þetta voða sniðugt og sagði að hann hefði nú ekki gert þetta áður. Þetta segir nú bara um aðdráttarafl mitt..... eða er það ekki!
Linda að plana
þriðjudagur, júlí 29, 2003
Helgin
Helgin var bara mjög fín, ánægjuleg og ekki síst áhugaverð!
Ég byrjaði á að fara í paintball strax eftir vinnu á föstudaginn! Það er alveg yndislegt að vera að gera hitt og þetta og þurfa ekki að borga fyrir það.
En paintball var brilliant. Þegar við komum á staðinn þá var okkur sagt að við myndum keppa á móti hermönnum á vellinum en eins vantrúuð og ég er þá sagði ég bara yeah right! Nema hvað inn skunduðu 5 kanar af vellinum, hef reyndar ekki hugmynd um hvort þeir voru allir hermenn eða hvort þetta væru ekki bara flugvirkjar :-) en eftir tvo leiki þar sem við unnum báða þá var okkur sagt að einn af þeim væri að þjálfa fyrir navy seals, hann var líka eini sem lifið af leik nr 2 hjá þeim :)
Þetta var lika kannski pínku ósanngjarnt þar sem þeir voru 5 en við fyrst 8 og síðan 10 en þá reyndar fór starfsmaður sem var með okkur yfir til þeirra.
Eftir það fór aðeins að halla á okkur en leikar enduðu 5-4 fyrir okkur!!!
Við fengum svo góðan grillmat og vorum þarna í góðu yfirlæti.
Ég fékk einnig næturgesti sem dveljast enn hjá mér :-) og íbúðin er í samræmi við það. Verður smá breyting á högum manns þegar allt í einu eru 4 auka manns í stað þess að það sé bara ég, þar af 2 börn, en það er alltaf gaman að fá gesti.
Ég og gestirnir mínir fóru síðan í bæinn á laugardagskvöldið þar sem fyrsti viðkomustaður var NASA út af millers kvöldinu en eitthvað leist okkur ekki vel á það þannig að við fórum yfir á Dubliners vegna góðrar minninga síðan seinast.
Allavega þetta reyndist hið áhugaverðasta kvöld svo ekki sé meira sagt og líka ágætis skemmtun, nefnilega í þessu litla herbergi sem við dvöldumst í voru líka tveir menn sem við fylgdumst með þarna um kvöldið. Ég og Heiðdís vorum líka búin að finna út að þarna væri ágætis mannkostur á ferð því hann reyndi að bjarga pilsi hjá einni konu þar sem rennilás hafði eyðilagðst og gat bullað endalaust í einhverjum mjög drukknum einstaklingi. Enda líka þegar við vorum á förum þá þökkuðum við fyrir góða skemmtun og spurðum þá að nafni.
Sunnudagurinn var síðan mjög mjög þreyttur........ og vorum við síðan svo skemmtileg öll þrjú að við sváfum yfir Nilo og stich en stelpurnar litlu gátu nú eitthvað horft á það.
Það fína lika við að fá næturgesti að nú er ég búin að fá kvöldmat alveg 4 kvöld í röð og man varla hvenær það gerðist síðast.
Njóttu dagsins!
miðvikudagur, júlí 23, 2003
Grænland
Fór loksins til Grænlands í gær, brilliant er alveg til í að fara aftur en reyndar kannski ekki til Kulusukk. Búin að fara þangað að skoða, lærði margt um Grænlendinga. Hlustaði á Grænlenskan söng um Gæs og Hrafn sem felldu hugi saman.
Ferðin byrjaði líka ansi vel því á flugvellinum sá ég þennan rosalega sæta strák sem ég er nokkuð viss um að er starfsmaður Hótel Kulusukk því ég sá hann síðan fara á jeppa merktan hótelinu...... kannski maður ætti bara að gista á hótel Kulusukk :-). Verst með allt ruslið :-( það er greinilega ekki komin sterk umhverfisvitund til Kulusukk því á leiðinni var ekkert nema tómar bjór- og kókdósir en bjórdósir þó í meirihluta.
Linda reynslunni ríkari og með meiri vitneskju heldur en daginn á undan gærdeginum
mánudagur, júlí 21, 2003
Moment of truth!
Á ég eða á ég ekki......... það er spurningin hvort ég læt verða af stóru orðunum......hmmm.....
Ég er samt búin að láta ansi marga vita það var góð strategia svo ég mundi nú ekki hætta við en núna er ég tvístígandi yfir þessu öllu saman en er núna búin að finna fargjald sem er tiltölulega á sanngjörnu verði (að mér finnst) svo kemur náttúrulega alltaf spurningin hvort maður finni eitthvað ódýrara......
Er Linda skræfa eftir allt saman?
föstudagur, júlí 18, 2003
Borðfélagi!
Ég eignaðist nýjan borðfélaga í gær en ég efast þó um að við eigum eftir að hittast á reglulegum basis eða hvað þá að hittast aftur. Aðallega þó að sökum ungs aldurs borðfélaga míns :-)
viltu vita meira!
fimmtudagur, júlí 17, 2003
Að sjálfsögðu!
You are Trinity, from "The Matrix."
Strong, beautiful- you epitomize the ultimate
heroine.
What Matrix Persona Are You?
brought to you by Quizilla
or not
Vinna!
Sú sorglega staðreynd er komin í ljós en líf mitt er vinna og vinna er mitt líf....... er ég ekki skáldleg. Ég ætti kannski að segja upp íbúðinni og fá bara að liggja í einu rúmi hérna á farfuglaheimilinu..... er hvort sem er nógu mikið hérna fyrir :-) en þetta minnkar í vetur og þá verður kannski bara ágætt að geta haft sitt pleisi fyrir sig.
Búin að vera ein hérna í bókunum síðan á mánudaginn, en það hefur alveg gengið ágætlega þótti reyndar voða sorglegt að missa af góðviðrisdeginum í gær.
En stefnan er tekin á Grænland á mánudaginn að skoða Grænlenska grund í 4 tíma eða svo :-) bara krossleggja fingurnar og vona að ég komist með.
Draumóramanneskjan Linda
laugardagur, júlí 12, 2003
Vonbrigði
Ég var búin að hugsa mér að skrifa um Harry Potter bókina númer 5 hérna á síðunni en hún olli mér pínku vonbrigðum en eftir nánari umhugsun þá hef ég ákveðið að sleppa því.
Ég bíð hins vegar eftir bók númer 6 :-)
Linda í ferðahug
miðvikudagur, júlí 09, 2003
Quiz
Ég er komin í þennan gírinn að taka þessi quiz........algjör sukker hehe
EARTH is your chinese symbol!
What Chinese Symbol Are You?
brought to you by Quizilla
mánudagur, júlí 07, 2003
Mánudagur!
Það er einhver leiðindar mánudagur í mér :( ef það er hægt þá.
Dagurinn byrjaði svo sem allt í lagi þrátt yfir smá erfiðleika að vakna en svo hefur dagurinn einvhvern veginn legið bara niður á við......... því verr og miður.
Það virtist sama hversu mörgum e-mailum ég svaraði í dag þá komu bara fleiri en það er loksins vonandi að komast aðeins áfram núna en ég er enn í vinnunni. Mig langar mest til þess að fara heim og undir sæng og breiða hana yfir mig alla.
Annars ætla ég að vera algjör hetja í vinnunni í næstu viku og vera ein í 4 daga í bókunum........ Steffi ætlar nefnilega að skreppa til Þýskalands. Svo þeir sem vilja hitta mig er ráðlegt að reyna það í þessari viku hehe því ég verð ábyggilega ekki viðlátin í næstu og svo dauð eftir hana...........
Jamm jákvæðnin og bjartsýnin að gera út af við mig núna.
brostu framan í heiminn og heimurinn brosir við þér :-)
Hnútur í maganum
Ónei.......BBC sjónvarpsstöðin gerði hálftíma þátt um Reykjavík fyrir stuttu síðan sem þeir sýndu síðan 16. júní, nema hvað þar var Farfuglaheimilið í Reykjavík kynnt sem aðalgistingin í bænum og þar af leiðandi voru þeir að taka hér upp. Síðan var ég að heyra að ég hafði sést :(
Ég vissi það að ég hefði átt að loka mig inn á skrifstofu bak við hurð meðan þeir voru hér........ grrr.... En eitthvað er það sem er að trekkja að hér því það er mjög mikið bókað...... muhahahaha
Maður verður nú aðeins að hefja sjálfan sig upp.......... en er með hnút í maganum yfir að fara að horfa á þetta.
Linda í tremmu
sunnudagur, júlí 06, 2003
Afmæli!
Hann Árni vinur minn á afmæli í dag! Til hamingju með afmælið :-) vonandi nýtur þú dagsins í botn...... er ekki líka að fara að koma að ísferð? Hvernig er það?
Annars var ekkert smá gott að eiga frí í gær og ég gerði ekkert að viti þannig lagað annað en að lesa...... en ég var bara heima allan gærdaginn og las Harry Potter, tók mér hlé um kvöldið til þess að horfa á sjónvarpið. Hefði í raun ekki átt að gera það því þá væri ég kannski búin með bókina núna. Vildi óska þess að ég hefði ekki þurft að fara í vinnuna núna........ hefði getað bara haldið áfram að liggja heima og lesa.
Linda sem er alveg að verða búin með fönisregluna
föstudagur, júlí 04, 2003
Vinna!
Ég er enn í vinnunni en er á leið heim loksins!
En ég á frí á morgun en kem þess í stað á sunnudaginn til þess að Steffi geti átt frí.
þreytt
fimmtudagur, júlí 03, 2003
Hvað er málið
Ég er alltaf að laga þetta blogg núna því það sífellt hendir út íslensku stöfunum í hausnum og fleira..... er bara ekki að skilja hvað er að gerast með bloggerinn, svo er vinnuumhverfið aftur breytt...... spurning hvort það fari eftir tölvu sem það ætti ekki að vera. Því í vinnunni í morgun þá fékk ég gamla vinnuumhverfið en svo í hinni vinnunni núna kemur sama nýja útlitið og kom í gær þegar ég var akkúrat hér líka.
Ég er bara engan veginn að nenna þessu.................. mig langar í eitthvað skemmtilegt í líf mitt núna eitthvað smá annað en vinnu! En samt sem áður þá hef ég alveg verið að gera ýmislegt, flaug í fyrsta skipti með Stebba um daginn til Akureyrar, Guðmunda og vinnufélagi hans voru líka í vélinni. Ég mæli heldur ekki með því að vera á fastandi maga áður en maður flýgur því þegar við komum norður þá leið mér ekkert allt of vel í maganum! En á leið heim þá var maginn fullur og fann ekkert fyrir fluginu........ nema það er ekki þægilegt að sofa í svona litlum rellum...... þarf einhvern stað til þess að leggja hausinn á og þorði ekki fyrir mitt litla líf að hræða vinnufélaga hans Stebba með því að skella hausnum á öxlina ;-)
Við reyndum að komast til Grímseyjar en það tókst ekki að þessu sinni en það verður vonandi gerð önnur tilraun sem skilar okkur á leiðarenda.
hva er með Grænland og Grímsey!
Al-shurprais! You shudd speaq ARABIC `as al-
lankhu'adj.
What language are you supposed to speak?
brought to you by Quizilla
yeah right
You're smart, shy, and often nonsensical. You have dreams of being famous, and you're quirky enough that you just might pull them off. Some would call you a genius, others would call you insane, but in reality you're pretty well-adjusted. Take a vacation once in a while- it'll help take your mind off of your troubles. |
Loksins!
Jæja loksins lítur bloggið mitt út eins og áður og ég virðist við fyrst sýn vera búin að laga allt nema að geta publishað gömlu skrifin.
Annars kom Adam bróðir í helgarleyfi úr sveitinni um helgina, það var nú alveg ágæt að sjá strákgreyið........ hann er að vaxa upp úr öllu valdi en að sjálfsögðu verður hann aldrei stærri en ég ;-) en það fyndna við það að eftir þennan smá tíma í sveitinni fyrir austan þá er hann komin með hreim, farin að tala með áherslum.... ekki alltaf en það komu þarna orð. Það er bara í fínu lagi enda talar fólk fyrir norðan og sumsstaðar af Austurlandinu miklu flottar heldur en þessir Reykvíkingar sem nenna ekki að tala og allt er svo linmælt.
Ég er líka ekkert smá fegin að útlitið á blogginum þ.e.a.s. vinnuumhverfið er komið aftur í sama horf og áður.
Linda þreytta!
miðvikudagur, júlí 02, 2003
Breyta bæta laga
Er að reyna að laga hérna á blogginu mínu en er ekki enn búin að takast að gera allt sem ég vil, teljarinn allt í einu týndur :( en nafnið mitt komið í lag.... púfff........ og ég á að vera að vinna!
Mig langar að halda áfram að lesa Harry Potter........ er ekkert komin áfram í henni því miður.......
Hvernig væri nú ef hann Árni mundi koma upp heimasíðunni sinni aftur í sumarfríinu sínu!
hmm...... hvað á ég að gera nú!
Nýtt útlit
Neibb það er ekki nýtt útlit á mér heldur vinnuumhverfið í bloggernum og svona í fyrstu þá er ég ekki mikið að fíla það, en maður venst svo sem öllu.
hana nú
þriðjudagur, júlí 01, 2003
Áminnig
Muna að fara í íþróttabrjóstahaldara áður en farið er á hestbak!
Annars lítur út fyrir að ég fari til Grænlands......verð bara að vera á standby með það. Getur dottið inn svona einn, tveir og þrír..... jíibíi :-) Reyndar enn sem komið er kannski bara dagsferð en.......erum að vinna í kannski einni nótt eða svo.
Hef alltaf ætlað mér að skrifa um VikAkra ferðina en hef ekki enn komist í það en bendi á frétt hjá sniglunum um þetta hér
Annars er ég voða stolt af mér í sambandi við það því ég hjólaði á reiðhjóli fyrsta hluta ferðarinnar sem var frá miðbæ Akranes til Ferstiklu um 33km leið....... en ég fékk lík að kenna á því um nóttina þvílíkar harðsperrur í fótunum.... en svo batnaði þær tiltölulega fljótt á sunnudeginum.
Krakkarnir stóðu sig með einsdæmum vel og sumir voru svoldið þrjóskir og ætluðu sér sko að klára þetta þrátt fyrir þreyttu og annað vildu þau ekki hvíld.
Sniglarnir sem komu með voru frábærir....og margir hverjur með þvílík flott hjól........ reyndar enn sár yfir því að hafa ekki verið boðinn einn rúntur eða svo ;-) en c´est la vie eins og sagt er.
Komust líka að því að það er jafn há bilanatíðini á rafskutlum og mótorhjólum því eitt mótorhjólið þurfti að setja upp í sendibílinn sem við höfðum með í för og geymdi rafskutlurnar.
En í lok helgar þá var maður bara tiltölulega sáttur!
Linda á leið til Grænlands
fimmtudagur, júní 12, 2003
miðvikudagur, júní 11, 2003
Tilkynning!
Ár fatlaðra......
BUSL, unglingastarf Sjálfsbjargar mun standa fyrir tveggja daga maraþonferð unglinga á rafdrifnum farartækjum frá Akranesi til Reykjavíkur um næstu helgi. Tilgangurinn er að safna fyrir ferð hreyfihamlaðra unglinga til Svíþjóðar á næsta ári, þar sem ætlunin er að hitta aðra krakka í svipaðri aðstöðu.
Lagt verður af stað frá Akranesi laugardaginn 14. júní kl. 10. Áætluð koma til Reykjavíkur á Olísstöðina í álfheimur er kl. 16:30 á sunnudag. Þangað er fólki boðið að mæta og verða samferða unglingunum og bifhjólasamtökunum Sniglunum í nokkurskonar skrúðgöngu að Sjálfsbjargarhúsinu, hátúni 12.Um er að ræða eins konar boðakstur rafdrifinna! hjólastóla sem um 15 hreyfihamlaðir unglingar munu taka þátt í auk sjálfboðaliða Rauða krossins, sem verða þeim til aðstoðar.
Félagar í ungmennahreyfingu Rauða krossins í Reykjavík og Ný-ung Sjálfsbjargar hafa unnið með fötluðum ungmennum í Sjálfsbjörgu í sjálfboðavinnu í sex ár. Starfið hefur það markmið að efla félagslegt sjálfstæði hreyfihamlaðra krakka með því að taka þátt í margvíslegri starfsemi – svo sem köfun, þotuskíðaferðum, útreiðartúrum, bíósýningum, vélsleðaferðum og öðru álíka.
Þeir sem vilja taka þátt í söfnuninni geta hringt í söfnunarsímann 908-2003 og þá verða dregnar 700 krónur af símreikningi.
Með maraþoninu vilja Rauði krossinn og Sjálfsbjörg einnig minna á að 2003 er ár fatlaðra.
fimmtudagur, júní 05, 2003
Vei!
Íslensku stafirnir eru komnir inn nema í nafninu mínu :( svo er dagsetningin líka komin á íslensku en það er samt ekki alveg nógu íslenskt þar sem mánuðurinn er á undan og ég veit ekki hvort hægt sé að breyta því.
Þarf að skoða þetta betur. Það er líka nýtt útlit á bloggernum..... í vinnuumhverfinu þannig að ég þarf að venjast því líka.
Hey ég fékk mína fyrstu gjöf í vinnunni í gær! jíbbí.... og það var sem betur fer ekki áfengi og ekki kaffi, ég fékk veski. Þetta var ekkert smá sætt. Það var kona sem spurði eftir mér, beið þarna fyrir framan feimin og kynnti sig en ég náði nafninu ekki alveg 100% :( því miður en hún gaf mér þetta veski og í því var miði með nafninu hennar þannig að þá mundi ég eftir henni. En það fyndna er að fyrst þegar ég var að bóka hana þá var ég alveg viss á því að þetta væri bara eitthvað rugl og hún mundi aldrei koma og svo var líka þvílkt vesen......... en svo var hún svo sæt að gefa mér þetta.
Finnst þetta samt skrýtið því ég held að Íslendingum mundi aldrei detta í hug að gefa einhverjum starfsmanni á hóteli, gistiheimilum eða álíka gjafir fyrir að vinna sína vinnu! En sem betur fer eru ekki allir eins ;-)
Því miður samt eftir að konan hafði gefið mér þetta þá rauk hún bara í burtu...... gaf sér ekkert tækifæri til að tala við hana eða neitt.
Linda sem er að vinna of mikið
þriðjudagur, júní 03, 2003
Ansans
islensku stafirnir hafa dotti? ut :( hef ekki tíma til thess ad spa i thvi nuna. Reyni ad p?la ? ?essu br??lega og ?a? m? alveg koma me? snilldar r??leggingar.
Sein
Var núna að taka próf um hvaða afstöðu ég tæki til flokkanna og já kosningum er löngu lokið, ætla að prufa að athuga hvort þetta birtist.
Niðurstaða:
Stuðningur þinn við stefnu flokkanna er eftirfarandi:
Afstaða
1. 50% Frjálslyndi flokkurinn
2. 42% Vinstri Grænir
3. 42% Samfylkingin
4. 33% Sjálfstæðisflokkurinn
5. 25% Framsókn
Framsóknarflokkur (xb).
Sjálfstæðisflokkur (xd).
Frjálslyndi flokkurinn (xf).
Samfylking (xs).
Vinstri grænir (xu).
Sem betur fer var Sjálfstæðisflokkurinn ekki þarna efst á blaði, fékk fyrst sjokk því ég hélt það væri hann.
Linda sjálfstæð kona en styður þó ekki sjálfstæðisflokkinn
sunnudagur, júní 01, 2003
Þetta og annað!
Hafði ekki hugmynd um hvernig fyrirsögn ég ætti að hafa. En fyrir ekki svo löngu síðan skrifaði ég á bloggið að það hafði maður sem ég hafði verið að svara í tengslum við vinnuna og bókað, hann nefndi að ef allir á Íslandi væru eins yndislegir og ég þá yrði ferðin hans yndisleg. Allavega þessi maður er komin og farin nema hvað þegar hann kom þá spurði hann eftir mér, en eitthvað leist stelpunni í móttökunni ekki á hann þannig að hún sagði honum án þess að athuga að ég væri ekki komin í vinnuna. Henni fannst hann nefnilega láta það í ljós að tölvupóstarnir sem fóru okkar á milli hefðu verið svo spes. Þegar hún kom til mín og sagði mér frá honum þá var ég heldur ekki yfir mig spennt að hitta hann þannig að seinna þennan sama dag þá spurði hann aftur eftir mér og hún sagði þá að ég væri í fríi. Allavega svo kom helgi og ég mætti á mánudagsmorgun í vinnu og enn spurði maðurinn eftir mér þannig að ég ákvað að hitta hann sem var allt í lagi, fannst þetta hálf skondið allt saman. Svo þegar maður fór þá kvaddi hann mig líka og tjáði mér að hann ætlaði að koma aftur um veturinn og fór að spurja mig um það. Sagan er ekki búin hér því ég var að fá tölvupóst frá honum aftur þar sem hann var að þakka fyrir sig sem er alls ekki óvenjulegt að fólk gerir eftir að það kemur heim. Nema það óvenjulega við þennan tölvupóst er að hann sendi mynd af sér á baki íslenska hestinum! Jamm sumir eru furðulegir en aðrir........ spurning hvort ég prenti hana ekki bara út og hengi upp á vegg hérna í skrifstofunni hehehe
bla bla
miðvikudagur, maí 28, 2003
Danska
Hverjum hefði dottið það í hug að það sé kallað á mig bæði fram í afgreiðslu eða í símann þegar vantar einhvern með dönskukunnáttu, eða vantar einhver sem talar "góða" dönsku. Annað hvort segir það mikið um mig eða þær hehehe.
Hef ekki meira tíma núna......
laugardagur, maí 24, 2003
7 ár
Í dag eru 7 ár síðan í útskrifaðist úr Menntaskóla, ekki það að það sé ýkja merkilegur atburður eða eitthvað sem ætti að halda upp á. Ég bara tók eftir dagsetningunni og mundi eftir þessu. En það verða bráðum 10 ár..... það er svakalegt.
Annars á miðvikudaginn fór ég í River Rafting, boðsferð sem var mjög skemmtileg. Við jeppuðumst aðeins fyrst og fórum þúsund vatna leiðina eins og bílstjórarnir kölluðu það og gerðum ekkert nema fara yfir þessa sprænu hvað eftir annað. Bílinn lak, þ.e.a.s. það kom vatn að ofan inn í hann þannig að ég þurfti náttúrulega aðeins að blotna. Við fórum síðan í sex bátum niður Hvítá og jíbbíi guidinn í okkar bát var bara svoldið sætur. Verst að ég fattaði það ekki fyrr en eftir á þegar við vorum komin úr ánni...... ;-) sem betur fer datt ég ekki út í.... langaði ekki til þess að vera kalt, og það var bara ein sem datt út í hjá okkur (í bátnum okkar) fyrir utan þá þrjá eða fjóra sem hoppuðu út í. Sú sem datt út í reyndar hrinti mér út í alveg í lokinn en það var svo grunnt að ég lenti á hjánum eins og asni en slasaðist ekkert. Var bara kalt.
Eftir það var grill, bjór, rauðvín og hvítvín......... jamm ég var pirruð af hverju í ósköpunum er ekki hugsað fyrir fólk sem kannski vill ekki drekka, drekkur ekki eða eru óvirkir alkar!!!!! Grrrr....... ég spurðist fyrir hvort það væri ekki til eitthvað annað að drekka og mér var sagt að maðurinn sem sæi um veisluþjónustuna/matinn væri að redda því og síðan kom á borðið sódavatn....... ég var alveg himinlifandi sérstaklega þar sem ég drekk ekki heldur sódavatn þannig að ég fór inn í eldhús og fékk könnu að vatni. Þetta var hin ágætasta ferð en var samt svoldið löng. Því við vorum sóttar í vinnuna klukkan eitt og ég kom í ártúnið um hálf tólf og var orðin mikið mikið þreytt.
En það er best að fara að halda áfram að vinna!
Lengi lifi vinnandi manneskja eða eitthvað....
miðvikudagur, maí 21, 2003
miðvikudagur, maí 14, 2003
Að grípa gæsina
Að grípa gæsina þegar hún gefst. Stundum þarf ég að vera duglegri að grípa hana en held þó að ég sé alveg ágæt í því svona.... annars hef ég ekki hugmynd um það. Bauðst reyndar kosta boð í dag að fljúga til Akureyrar á morgun en því miður kemst ég ekki með þar sem ég er að vinna, þarna hefði ég samt smá átt að slá öllu upp í kæruleysi og fá frí í vinnunni og bara skella mér en þar sem ég er svo samviskusöm og það er mikið að gera þá eiginlega gat ég það ekki. Er líka á leiðinni norður á laugardaginn svo ég afþakkaði þetta góða boð. Vona bara að mér bjóðist það síðar ;-)
Ellen systir hefur verið voða dugleg að skrifa blogg undanfarið enda var hún líka í prófum, gaman að sjá hvort þessi dugnaður heldur áfram :), Jens er lika búin að vera ágætlega duglegur að skrifa en Árni mætti aðeins bæta úr :) en annars hef ég ekki efni á að skjóta á aðra með að skrifa lítið enda sjaldnast sem ég get gefið mér tíma nú orðið.
Samgöngur í þessari borg eru alveg merkilegar sérstaklega þessar í árbæjarhverfinu. Það er kannski stefnan að hafa alla í Árbæ heilsuhraust sem er í sjálfu sér ekki slæmt út af fyrir sig. En á laugardagskvöldið þá þurfti ég að koma mér úr árbæ og í Breiðholtið nema ég fer að athuga með samgöngur á milli og viti menn ég er fljótari að ganga þangað sem ég var að fara sem ég og gerði heldur en að bíða eftir vagninum sem fer úr Ártúni yfir í Breiðholtið. Fólkið í árbænum er ekki hátt skrifað hjá strætó. En svona aðeins að jákvæðari nótum um strætó þá náttúrulega vinnur pabbi þarna :) og svo eru líka nokkrir bílstjórar á leið 5 sem eru frábærir. Það er alltaf sagt góðan daginn og brosað og þvílíkur munur. Var reyndar líka mjög ánægð um daginn þar sem strætó beið eftir mér :) og bílstjórinn með bros á vör. Málið er að ég var að ganga yfir götuna hjá hótel Esju til að taka fimmuna en strætó keyrir þá framhjá og inn á stoppistöðina til að hleypa fólki út en svo dokar hann við og bíður eftir mér. Að sjálfsögðu er ég alveg viss í minni sök að hann tók eftir mér þarna að ganga yfir götuna og ákvað að doka við eftir mér.
pffff
þriðjudagur, maí 13, 2003
Kosningarsamkunda
Ég var samankomin með nokkrum vinum á laugardagskvöldið til þess að fylgjast með kosningunum og spila. Verð bara að segja að það er ekki voðalega gaman að vera ein sú sem kaus öðruvísi en allir hinir á staðnum. Þá að sjálfsögðu er ég ekki að meina að ég sjái eftir því sem ég kaus (sem ég geri ekki) né að ég hafi viljað kjósa öðruvísi það bara að gleðin var ekki sú sama og maður naut sín ekki. En þess fyrir utan þá var spilið mikið skemmtilegra heldur en kosningarsjónvarpið, þessi hljómsveit hundur í óskilum var ekki að gera sig.
Fyrst þegar ég byrjaði í vinnunni hjá símanum í úthringingunum þá passaði ég mig alltaf að kynna mig vel og hvaðan ég væri að hringja ef að það væri kvenmaður eða barn sem svaraði og ég þurfti að spyrja eftir karlmanni. Þetta var til þess að konurnar færu nú ekki að gruna mann sinn um græsku eða ég yllli nú hjónaerjum. Hins vegar núna þá náttúrulega í flestum tilfellum kynni ég mig og segi hvaðan ég er að hringja, en það er vegna kurteisis sakir. Ef konu greyin treysta ekki manninum sínum eða hann er bara ekki traustsins verður þá er það bara ekki mitt mál.
Linda með viðhorfsbreytingu!
þriðjudagur, maí 06, 2003
Kjaftæði
Ein af forsendum þess að álverið á Reyðarfirði á að reisa er til þess að auka atvinnumöguleika á Austurlandi, nú er verið að auglýsa eftir fólki til að vinna við Kárahnjúkavirkjun. Vinnumiðlunin sem er að ráða fólk er í Reykjavík, því í ans.... er ekki vinnumiðlun á Austurlandi að sjá um þetta? Var ekki verið að tala um það að auka atvinnumöguleika og er þetta þá ekki tilvalið verkefni þar?
Atvinnumiðlun á Austurlandi ætti alfarið að sjá um þetta og ef þeir eru ekki í stakkbúnir þá gætu þeir verið í samvinnu við einhverja aðra.
grrr............... ég þoli ekki svona kjaftæði...... Ég veit ég er ekki voða málefnaleg núna (ef ég er það einhvern tímann) og er ekki að útskýra þetta nógu vel en ástæðan er sú að ég hef ekki mikinn tíma og er að flýta mér. Langaði að koma þessu frá mér.
þangað til næst
miðvikudagur, apríl 23, 2003
Bækur
Það er víst dagur bókarinnar í dag. Ég rak upp þessi stóru augu í dag þegar ég fór í strætó, það héngu nefnilega kiljur aftan á sætisbökunum í strætó, illa farið með bækur en samt nokkuð sniðugt. Þarna gefst farþegum strætó að glugga í hinar ýmsu bækur, því miður fyrir mig þá settist ég í sæti þar sem Bridget Jones bókin var og þar sem ég er búin að lesa hana þá langaði mig ekkert að glugga í hana.
Talandi um bækur þá beið mín pakki þegar ég kom heim í gærkveldi, þrjár bækur en þetta var Bridget Jones framhaldið, Galdrar eftir Vilborgu Davíðsdóttur og Eitruð epli eftir Gerði Kristný (held ég) en ég hlakka mest til þess að lesa eitruð epli.... Veit eiginlega ekki hvað er að koma yfir mig ég er búin að kaupa mér mikið af bókum undanfarið sem safnast bara upp því ég hef ekki haft tíma til þess að lesa þær. Ég hef þá eitthvað að gera ef ég finn ekki vinnu í haust ;)
Linda bókaormur
Pirruð
Í dag er ég búin að vera pirruð og er enn :( eitthvað sem ekki hefur gengið upp og svo bara þegar maður er þannig stemmdur þá fara svo margir hlutir í taugarnar á mér. En ég ætla að reyna að skrifa mig út úr pirringnum þannig að þetta á ekki að vera leiðindarblogg.
Um daginn var tónlistarstríð heima hjá mér (sennilegast bara af minni hálfu) en það lýsir sér þannig að ég var í sakleysi mínu að hlusta á Sigur rós meðan ég var að dunda mér við eitthvað sem ég man ekki lengur hvað er. Allavega eftir smá stund tek ég eftir að strákarnir sem búa í húsinu eru farnir að spila lika einhverja tónlist og er hún í hærra lagi. Þeir eða hann spiluðu meðal annars Ný dönsk og svo einhver rokk lög þannig að þegar kom svona pásur inn á milli hjá sigur rós þá heyrðist alveg þessi þvílika tónlist. Ég ákvað því að skipta um tónlist hjá mér vegna þess að það er ekki hægt að hlusta á sigur rós með eitthvað annað undir lika. Þannig að Bob Marley var fyrir valinu sem var svo sem ágæt. En það var sennilegast bara ég í þessu tónlistarstríði því þeir hafa ábyggilega ekki heyrt í tónlistinni minni.
Páskarnir voru alveg ágætir hjá mér, finnst reyndar frekar fyndið að ég keypti mér páskaegg nr. 3 því ég bjóst ekki við að fá páskaegg frá neinum og það er ómöglegt að hafa páska án þess að fá málshátt en svo endaði ég uppi með þrjú egg. Mamma gaf mér eitt og einnig pabbi og Linda, en ég gaf þá eggið sem ég hafði keypt handa mér enda er enn eitt og hálft páskaegg eftir heima.Takk fyrir eggin :) Einn málshátturinn sem ég fékk hljómar svona: Ef allir eru jafnir er enginn mestur er ekki mikill sannleikur í þessu?
„If everybody in Iceland are as nice as you my trip will be wonderful“. Þetta er setning sem kom til mín í tölvupósti í dag, annars var ég að minnast á þetta við eina sem vinnur með mér og hún sagði að það væru líka nokkrir sem kæmu með gjafir þannig að ég bíð spennt eftir sumrinu hvort ferðamennirnir koma ekki færandi hendi.
Linda sem bíður sumarsins
fimmtudagur, apríl 10, 2003
Mikið að gera
Það hefur verið mikið að gera að undanförnu og ég ekki gefið mér tíma til þess að skrifa hér inn, sem dæmi um það hvað ég var utan við mig um daginn þá var ég að fara að taka upp strætókortið mitt en tók lyklana í staðinn og stóð svo smá stund með þá áður en ég fattaði hvað ég hafi gert.
Annars eru ánægjulegar fréttir því Ellen systir er aftur farin að skrifa blogg. Núna er ég eitthvað voða andlaus en er þó búin að vera hugsa um margt sem ég get skrifað hér inn en bara nenni ekki að gera núna. Enda bara að bíða eftir strætó til þess að geta flutt mig til á vinnustað.
Sá leikritið hjá Halaleikhópnum um daginn og það var mjög gott stykki, kom líka á óvart að sjá fólkið sem maður þekkir taka allt í einu upp míkrafóninn og syngja. Árni söng til dæmis ein þrjú lög einn, svo söng Halli einnig en hann er fyrrverandi Buslari og orðinn reyndar leiðbeinandi þar núna en hann syngur þrusuvel strákurinn. Verð reyndar að viðurkenna að ég saknaði BUSL smá þegar ég var þarna að horfa á leiksýninguna en það voru nokkrir Buslarar sem tóku þátt í sýningunni og voru að vinna í kring um hana.
þangað til næst
þriðjudagur, mars 25, 2003
Á vitlausum tíma
Það leit út fyrir að þetta yrði skrýtin dagur þegar ég vaknaði í morgun. Mér fannst ekkert eins og vanalega og það var að rugla mig í ríminu og ég var handviss um að ég væri eitthvað að ruglast. Þurfti því að lita nokkrum sinnum á klukkuna til að sannfæra sjálfa mig um að ég væri nú ekki að ruglast á tíma né hafði sofið yfir mig.
En málið er að þegar ég vaknaði þá fannst mér bjartara úti heldur en vanalega þannig að ég hélt ég hefði vaknað of seint. Nema þegar ég kem út þá er líka óvenju mikil umferð miða við alla hina dagana, það er meira segja fólk úti við og ég sé yfirleitt engan. Þegar ég kem í strætóskýlið þá er reyndar sama kona og venjulega þar þannig að ég sannfærðist um að ég væri kannski ekki það rugluð eftir allt saman. Í þokkabót þá var meiri umferð en vanalega.
Árni ég þarf þá kannski bara þessa sálfræðimeðfer eftir allt saman.
Linda ruglaða
sunnudagur, mars 23, 2003
Skattskýrsla
Jæja þá er maður búin að skila skattskýrslunni, fór niður í skóla til að komast á netið og kláraði þessa skattskýrslu, er ekki enn búin að koma netinu í gang heima. Eitthvað vesen með módemið.
Gekk alveg ágætlega að passa í gær, sofnaði að vísu í sófanum og dreymdi nokkrum sinnum að pabbi og Linda væru komin heim og svo þegar ég rankaði við mér fór ég að pæla í því hvort þau væru komin heim. Þar sem strákarnir voru heldur ekkert óþekkir þá dreymdi mig það bara í staðinn. Dreymdi að einn þeirra væri að stelast til að horfa á sjónvarpið og á bannaða mynd.... þokkalegt það!
Þoli að vísu ekki þegar mig dreymir svona og er síðan ekki viss hvort þetta hafi gerst eða ekki. Hef líka dreymt undanfarið að það sé verið að senda mér sms og er síðan ekki viss hvort það hafi verið eða ekki. Þarf þá náttúrulega að tjekka á símanum til þess að athuga hvort smsið sé þarna eða ekki.
Linda að fara yfirum
laugardagur, mars 22, 2003
bla bla
Stolist á netið, ég er hérna að passa heima hjá pabba og meðan Númi er að reyna að sofna þá er ég að stelast á netið. Þá veistu það pabbi :)
Annars var sungin fyrir mig afmælissöngurinn í vinnunni á föstudaginn, það var ein sem komst að því að ég átti afmæli á deginum áður og kallaði á aðra og þær tóku sig til og sungu fyrir mig :) var frekar vandræðalegt hehe
Mér var boðið út að borða í tilefni af afmælinu mínu og fór ég á Hereford steikhúsið sem var alveg fínt. Var svo södd að ég hafði síðan ekki lyst á því sem ég hafði útbúið ef fólk kíkti í heimsókn til mín. Sem betur fer þó var smá afgangur eftir af kjúklingasalatinu sem ég útbjó og gat ég tekið það með í vinnuna. mmmmm hvað það var gott. Mig langar bara endalaust meira í það.
Fékk síðan keramikskálina sem ég málaði á fimmtudaginn, og hún var alls ekki svo hræðileg. Get alveg sýnt hana og hún þarf ekki að dúsa upp í skáp. En allavega held ég að Númi sé sofnaður eða við það að sofna þannig að ég er farin að athuga hvað hinir strákarnir eru að gera af sér.
Linda barnapía með meiru
fimmtudagur, mars 20, 2003
Afmælisdagur
Þá er afmælisdagurinn runninn upp og um fimm mínútur í fæðingardaginn minn. Dagurinn byrjaði ekki vel og á ég þá við atburði síðastliðnar nætur. Ég vaknaði reyndar um fimm í morgun og komst þá að því að stríðið væri hafið. Dagurinn byrjaði svo á því að ég fylgdist með fréttunum sem hófust um sjö í morgun.
En af skemmtilegri málefnum þá er ég búin að fá rafrænt afmæliskort og símhringingu til að óska mér til hamingju með daginn :) takk fyrir það :)
Linda sem er búin að færast upp stigann
þriðjudagur, mars 18, 2003
Talið niður!
Bush telur niður stundirnar í stríð við Írak, ég ætla hins vegar að telja niður í eitthvað skemmtilegra eða telja niður í afmælið mitt. Núna er semsagt 38 klst í fæðingartímann minn.
Linda sem á bráðum afmæli
laugardagur, mars 15, 2003
Númi 2 ára
Yngsta systkinið mitt (að minnsta kosti enn sem komið er) er 2 ára í dag. Til hamingju með afmælið Númi Steinn, pabbi kannski les þetta fyrir þig þannig að skilaboðin komist til skila. Afmælinu hans Núma er reyndar frestað þangað til næstu helgi.
svöng
föstudagur, mars 14, 2003
Enginn listamaður hér
Það býr sko enginn leyndur listamaður í mér, annars var þetta nú alveg ágætt að mála keramikið. En allt of erfitt var að ákveða hvað ég ætti að fá mér, hvernig lit og svo framvegis. Stelpurnar reyndust hinu ágætistu ráðgjafar.
Annars á Númi Steinn afmæli á laugardaginn og Stebbi afmæli á sunnudaginn þannig að þeir fá fyrirfram hamingjuóskir. Til hamingju strákar.
Sá í dag á netinu að flugfar til Akureyrar á 999 kr en ég missti af því annars hefði ég svo stokkið til Akureyrar.
Linda ekki listamaður
fimmtudagur, mars 13, 2003
Afmæli og pirringur
Happy birthday Mor!
Hvaða endemis rugl er þetta, ég var að reyna að senda e-mail á hotmailinu mínu og þar kom að ég hefði sent hámark pósta á seinustu 24 klst. Hvaða rugl er þetta að takmarka sendingar á póstum sem maður sendir.... ég á bara ekki til orð yfir þessu og er frekar pirruð.
Annars er ég að fara í keramik fyrir alla á laugarveginum með stelpunum í kvöld, ætli leyndi listamaðurinn brjótist fram í mér!
Linda pirraða
miðvikudagur, mars 12, 2003
Sundbolaleit lokið!
Er ekkert smá fegin því að vera búin að finna sundbol, þannig að ég ætti ekki að þurfa að ganga í gegnum þetta aftur fyrr en eftir nokkur ár. En ég er til í sund bara hafið samband :-)
Það er enn eitt afmælið í dag en lítil frændi minn hann Arnar Gauti er 4 ára í dag. Til hamingju með afmælið Arnar Gauti minn.
Annars er fyndið hvernig nöfn þróast og hvað maður kallar fólk. Til dæmis heitum við systkinin pabba megin öll tveimur nöfnum samt finnst mér ég meira vera vör við að bæði nöfnin eru notuð hjá bræðrum mínum bæði þegar verið er að tala um þá eða tala við þá, en ekki eins hjá okkur systrum. Það er í raun bara ein manneskja sem hefur yfirleitt alltaf kallað mig Lindu Björk og það er mamma hans Arnars Gauta. Bræður mínir tveir hjá mömmu heita líka tveimur nöfnum en þar er t.d. yfirleitt bara annað nafnið notað.
Ég þarf að beita mig þvílíkum viljakrafti til þess að fara í vinnuna á kvöldin, ég er svo ekki að nenna að mæta. Þegar ég er búin með mína átta tíma hjá BÍF þá langar mig helst bara að fara heim en það hefur sjaldnast gerst þessar 3 vikur og 3 daga sem ég hef unnið þar. Ég ætla mér nú samt að vera bara 2 kvöld í viku hjá símanum finnst það bara yfirdrifið nóg. Svo fer líka að koma að því að ég þarf að vera eitthvað lengur á hinum staðnum.
Brostu framan í lífið og þá mun lífið brosa framan í þig
þriðjudagur, mars 11, 2003
Afmæli
Aldís vinkona á afmæli í dag! Til hamingju með afmælið Aldís mín.
Annars er ótrúlega margir sem eiga afmæli í mars, enda kannski ekki skrýtið þar sem þetta er besti mánuðurinn :) jamm ég á líka afmæli í mars og það styttist óðum í það. Veit reyndar ekkert hvað ég að gera eða hvort ég eigi að gera eitthvað yfir höfuð.
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag......
mánudagur, mars 10, 2003
ha ha
Ég var að lesa færsluna mína yfir aftur og það kemur út eins og ég hafi farið í bíó með stórstjörnunum en auðvita skartaði myndin þessum stjörnum. Það var Guðmunda hins vegar sem var bíófélagi minn og hún er ábyggilega ekkert verri heldur en Nicole Kidman og þær stöllur. Jafnvel betri..... því við fengum að minnsta kosti frið til þess að horfa á myndina!
Linda grínisti af líf og sál
Sundbolaleit
Ég sem hélt alltaf að brjóstahaldarar væru með því verra sem maður gæti mátað í mátunarklefum, en ég er búin að komast að annari niðurstöðu. Það er hræðilegt að vera að leita sér að sundbol og þurfa máta þá. Frekar óþægilegt að standa hálfnakinn inn í mátunarklefa í einhverri búð þar sem maður gæti fengið hvern sem er inn á sig. Ekki alveg my thing. Ég kann mjög vel við minn gamla bara þar sem hann er að fara að eyðast upp og ég er ekki mikið fyrir að flagga því sem ég hef þá neyðist ég til þess að leita mér að nýjum. Það er ekki gaman, ég fór á fimmtudaginn og laugardaginn að leita að sundbol og er ekki búin að finna neinn, veit ekki hvort ég sé svona rosalega skrýtin eða kröfuhörð því sundbolurinn má ekki vera svona og hinsseginn.
Annars fór ég á the hour með Nicole Kidman, Julianne Moore og Meril Streep á laugardaginn, var reyndar svo sniðug að ég ákvað að fara til Guðmundu um sjöleytið til að sækja hana þannig að ég bauð mér í mat. Mjög hentugt. En myndin var góð og núna verð ég að prófa að lesa eitthvað eftir Virginiu Wolf........ það er bara must ásamt öllu hinum bókunum sem bíða eftir mér.
Á fimmtudagskvöldið var ég að passa yngsta systkinið mitt hann Núma Stein sem NB verður 2 ára núna 15. mars en ég semsagt komst að því að hann er algjör fantur, hann var alltaf eitthvað að pikka í mann og það ekkert laust. Hann er algjör grallari, kannski ekkert skrýtið heldur að hann sé fantur í ljósi þess að hann á fimm bræður og þar af þrjá sem eru 9 ára og einn 11 ára. Greyið litla hann á sér ekki viðreisnar von. Við systur höfum náttúrulega ekkert nema góð áhrif á hann :-D
Linda litla ljós
miðvikudagur, mars 05, 2003
Dett út af
Þvílík leiðindi núna er ég svo þreytt þegar ég kem heim á kvöldin að ég dett út af fljótlega eftir að ég kem heim. Var staðráðin í því í gær að horfa á survivor þar sem ég sé ekki fram á að ég muni sjá hann næsta laugardag. En þegar Jay Leno var með sinn fyrsta viðmælenda þá datt ég gjörsamlega út, rankaði aðeins við mér þegar sjónvarpið var búið og komst að því mér til ama að ég hafði misst af survivor. En þetta verður kannski til batnaðar bráðum þar sem ég stefni á að minnka símavinnuna niður í 2 kvöld og hafa frí á mánudagskvöldum þegar survivor er.
Nýja vinnan er alveg ágæt, lenti reyndar smá vandræðum í gær þar sem það var hálfpartinn enginn hérna sem ég gat leitað ráða til við ýmis mál og þurfti að svara í simann og kom þá ekki einmitt hópapöntun sem ég var ekki viss hvernig ætti að afgreiða. Gerði það hins vegar samt og komst að því mér til mikillar gleði að ég hafði ekki gert neitt af mér í þeim málum.
Það er ekki enn búið að gera við sturtuna :( en ég lét vita af þessu á laugardaginn en á eftir þá að tala aftur við þau. Jæja er að hugsa um að yfirgefa vinnuna og fara að kíkja á ljósmyndasýninguna í kringlunni en Birgir er með ljósmyndir þar til sýnis.
saumaklúbbur í kvöld :-)