BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

sunnudagur, ágúst 09, 2009

Bíll

Langar í bíl eða allavega smá löngun farin að gera vart við sig að langa í bil.

Kom allt eftir seinustu helgi í ferðinni á strandirnar.

Fer samt í salt og þarf að skoða möguleikann hvort sé kannski bara hentugra að leigja bíl nokkra daga á ári í stað þess að eiga bíl allt árið :)

mánudagur, ágúst 03, 2009

Strandirnar

Var að koma "heim" úr góðri ferð á Strandirnar í góðum félagsskap :)

Fór loks á galdrasafnið á Ströndum, kíkti á Kotbýli Kuklarans þar sem ég ætlaði varla að þora inn. Svo hrædd um að eitthvað mundi bregða mér þar... Sögusafnið í síldarverksmiðjuna í Djúpavík var hreint út sagt frábær, frábær tímasetning hjá mér í Krossneslaugina og ljúft að vera þar - dauðlangar aftur þangað og þá að kvöldi til og jafnvel heiðríkt :)

Vegurinn í Ófeigsfjörð áhugaverður með meiru, mikil þoka og svo steinn í veginum á heimleið.

Hefði ég þorað að stoppa þá hefði ég tekið mynd af steininum sem var á veginum en þar sem ég var svo hrædd um að fleiri kæmu ákvað ég að forða mér hið fyrsta frá steinar hrynja svæðinu og hringja í lögguna til þess að láta vita :) - Þurfti reyndar fyrst að stoppa og kíkja í kort til þess að átta mig á hvar steinninn væri ;)

En sjáið bara myndir - munu koma fleiri myndir í albúmið.

Áltafjörður ber nafn með réttu














Kotbýli kuklarans














Steinn í veginum - við Kaldbakshorn hafði hrunið úr hlíðinni og á veginn














Veiðileysa














Djúpavík














Skítugur bíll


















Ljósmyndasýning














Ein í Krossaneslauginni með þetta flotta útsýni














Vegurinn í Ófeigsfjörð

laugardagur, júlí 18, 2009

Sumar og sól

Algjör snilld að vera með sólgleraugu þegar maður er úti að lesa :)

Ekki eins gott í tölvuvinnu ;)

En svona lítur hreiðrið mitt út sem ég bjó mér til í dag, jamm er að reyna að læra pínku ponsu onsu... gengur hægt.













Svona er svo útsýnið mitt - ekki amalegt :)

sunnudagur, júlí 12, 2009

Myndir

Vil bara benda á að það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið mitt.

miðvikudagur, júlí 08, 2009

Reykjavíkurferð

Verri sjón, ný gleraugu, sama manneskja.

Þurfti að gera mér ferð til Reykjavíkur til þess að fara til augnlæknis, sjónin hefur versnað um 0,5 sem mér finnst mikið en ekki augnlækninum.

Fann síðan ný gleraugu í gleraugnabúð í firðinum í Hafnarfirði - verð bara að segja að það er súper góð þjónusta þar og er líka að fá sólgleraugu jeii.

Er líka mjög ánægð með nýju gleraugun, smá breyting frá þeim gömlu.

Í gærkveldi þegar ég var að keyra "heim" þá var líka þetta flotta veður


Svo á ég nýja vettlinga - alveg hrikalega töff :)

sunnudagur, júlí 05, 2009

Helgin

Var frekar viðburðarrík og mikið að gera.

Pabbi, systirin og hele familien komu um helgina.














Á föstudaginn var aðeins kíkt á Ólafsvíkurvöku og hlustað á Hjálma, á laugardaginn var ég nærri búin að drepa þau á útiveru ;) - gerði þau minnsta kosti dauðþreytt en samt sem áður ekki nógu þreytt því spilað var actionary af miklu kappi um kvöldið og það til þrjú að nóttu.

Á sunnudeginum fengu þau smá afslöppunardag þó ég hefði nú viljað drífa þau meira út ;)















pabbi að "hrekkja" kríurnar

Vettlingar

Ég er að fara að fá vettlinga.

ligga ligga lá ;-)

Svona líta þeir út


sunnudagur, júní 28, 2009

Strandganga

Yndislegur dagur í gær - alveg meiriháttar.

Veðrið var alveg frábært - stórkostlegt gönguveður. Hefði sólin verið líka þá hefði verið alltof heitt.

Gengum í gegnum alveg frábært landslag, hraun og meira hraun. Er alveg mitt ákjósanlegt gönguland það er að segja ekki upp á móti ;)





















Var hundur með í för sem lærði að drekka af stút í ferðinni.



















Eftir góðan dag þá grilluðum við og skelltum okkur svo á tónleika.
Ákvað var á staðnum (tónleikastaðnum) að hafa fyrri partinn bara úti. Sátum við því úti við kl. níu um kvöld í þvílíkri blíðu að hlusta á ljúfa tóna.

Ég svoleiðis kolféll fyrir hljómsveitinni Árstíðum.

Á heimleið var líka svo fallegt veður og sáum vel yfir til vestfjarða og sólin við það að setjast. Sjaldnast sem ég sé líka sjóinn svona spegilsléttan hérna.

Alveg yndislegur dagur og kvöld.

Merkilegt líka að eftir að ég kom hérna vestur þá hef ég farið á þrjá tónleika og keypt mér þrjá geisladiska. Þegar ég er fyrir sunnan fer ég nú ekki svona mikið á tónleika ;)

föstudagur, júní 26, 2009

Spennandi gönguferð

Á morgun er strandganga á vegum þjóðgarðsins.

Er þvílíkt spennt fyrir þessari ferð og hlakka til.

Leið sem ég hef ekki farið og lengi langað að ganga :)

Er frá Skálasnaga að Beruvík :)

Allir velkomnir.

laugardagur, júní 20, 2009

251

251 fóru á toppinn á Snæfellsjökli í nótt.

Því miður var ég ekki ein af þeim :( - megnaði ekki meir en um 1000 m hæð og orkan þá farin.

En allt gekk vel og fengum geggjað veður.

Í dag dauðsé ég eftir að hafa ekki komist alla leið en var skynsamlegast að snúa við. Afrekaði það hinsvegar að æla líka á Snæfellsjökul.

Alveg hræðilegt þar sem maður á ekki að skilja neitt eftir, verð að muna eftir poka næst ;) eða muna að taka hann upp...

Fékk að vita úr talstöðinni þegar hópurinn var komin á toppinn - en þau komust um hálf tvö eða tuttugu mínutur yfir eitt. Lögðu svo af stað aftur rétt um tvöleytið niður.

Það fyndna var að þegar ég átti ekki langt eftir að bílastæðinu þar sem rúturnar voru þá var mér litið aftur og sá alla strolluna á leið niður eina brekku. Þannig að ég mátti næstum því hafa mig alla við að ná á bílastæðið á undan þeim ;) - þau voru reyndar að koma á mjög mismunani tíma niður.

Á leið minni niður mætti ég líka þremur konum á uppleið - einhverjum sem hafði lagt af stað eitthvað á eftir okkur vegna einhverja fatavandræða og fleira. Bjargaði "lífi" þeirra með því að gefa þeim súkkulaði mitt þar sem orkan hjá þeim var ekki mikil.

En mynd af hópnum í byrjun, svona áður en ég var stungin af ;)





















Komst ekki nær toppnum en þetta :(

föstudagur, júní 19, 2009

Jökulganga

Á leið upp á jökul.......

miðvikudagur, júní 17, 2009

Hreggnasi

Loksins loksins lét ég verða af því að ganga upp á Hreggnasa :)

jeii - frábært útsýni þaðan - eða svona þegar þokuslæðingur var ekki að flækjast fyrir.

Á toppninum hitti ég fjóra hrafna.














Útsýni frá Hreggnasa - Rif og Búrfell sést þarna.














Rauðhóll - flottur.














Annars eru fleiri myndir í myndaalbúminu mínu :)

Komst líka að því mér til skelfingar að þónokkuð er af túristum er á einum af mínum uppáhaldsstöðum. Kenni um betri veg að staðnum - spurning um að fara í skemmdarverk til þess að losna við fólkið hahaha ;)

mánudagur, júní 15, 2009

Landvörður

Landvörður var eitthvað seinn í kvöld og við farnar að hafa áhyggjur og kölluðum út þyrluna til að leita.































Nei ekki alveg - hún er víst hérna sem hluti af námskeiði. Að æfa ungliðina

sunnudagur, júní 14, 2009

Helgin

Annasöm helgi að baki.

Á föstudagskvöldið var skellt sér á tónleika með ljótu hálvitunum, algjörlega magnað og voru líka eiginlega bara með uppistand :)

Laugardaginn var ég svo á gestastofunni þar sem kom alveg heill hellngur af fólki og ég var vægast sagt dauðþreytt eftir daginn.

Í dag skellti ég mér svo í blómaskoðun með Hákoni, létu reyndar ekki margir sjá sig en gangan var góð.

###
Lítur út fyrir að ég þurfi að gera mér ferð í bæinn til þess að fara til augnlæknis, farið að pirra mig á þessu hvað mér finnst ég sjá illa.

Veðrið í morgun

Já já svo kemur önnur veðurmynd.
Norðanmegin


laugardagur, júní 13, 2009

Veðrið í morgun

Norðanmegin















Sunnanmegin

miðvikudagur, júní 10, 2009

Þrýstingur

Ég hef lengi ætlað mér eða stefnt að því að kaupa "fansí" myndavél, langar í góða og einfalda myndavél sem getur súmað vel inn :)

Litla systir mín átti afmæli á mánudag, varð 25 ára, nema ég var með í gjöf frá pabba og co og gáfum við henni gjafabréf á ljósmyndanámskeið. Í umræðum um hvað væri nú sniðugast að gefa henni þá sagði ég við pabba að ég hefði alltaf ætlað mér að draga þau með mér á námskeið þegar ég væri búin að fá mér góða vél.

Nema hvað þegar systir mín fékk svo gjöfin þá að sjálfsögðu spurði hún pabba hvenær þau ættu að drífa sig - hún greyið fékk svarið að það yrði ekki fyrr en í ágúst eða í haust þegar stóra systir hennar væri búin að kaupa sér vél.

Þannig að nú "neyðist" ég til þess að kaupa mér vél svo systir mín geti notað gjafabréfið sitt.

Einhverjar uppástungur - þigg alveg allar ráðleggingar :)

laugardagur, júní 06, 2009

Skrýtið

Þriðji landvörður kom í dag.

Eftir að þau voru búin í hádegismat þá fóru þau út að vinna, var frekar skrýtið að sitja eftir. Lá við að ég spyrði hvort ég mætti bara ekki koma með ;)

Þess í stað fór ég í smá göngutúr, sá tvö fiðrildi sem ég man bara ekki til að hafa séð áður hér.














En svona var/er nú fallegt veður í dag.

föstudagur, júní 05, 2009

Satt eða logið

Gæti sagt ykkur frá því hvernig ég kveikti í íbúðinni, bjargað manni frá hættu, hlaupið 10 km fyrir vinnu hvern morgun.

En þá væri ég nú bara að ljúga ;)

Þess í stað fór ég á fína tónleika hjá trúbatrixum á miðvikudagskvöldið og bara búin að vera að vinna.

Er þreytt og fegin að það sé komin helgi.

föstudagur, maí 29, 2009

Myndir

Nýjar myndir í myndaalbúminu mínu ef einhver hefur áhuga :)

miðvikudagur, maí 27, 2009

Flott veður

Jökullinn í öllu sínu veldi.

Mynd tekin bara núna rétt áðan :)

þriðjudagur, maí 26, 2009

Aulaháttur

Ætlaði mér að hjóla í morgun í vinnuna en fann ekki lykilinn að hjólinu.

Mundi síðan að lykilinn að hjólinu væri í vinnunni.

Gáfuð!

sunnudagur, maí 24, 2009

Meistarafyrirlestrar

Í næstu viku eru nokkrir meistarafyrirlestrar sem samnemendur mínir eru með.

Damn hvað ég þyrfti að vera í bænum - langar þvílíkt á þessa fyrirlestra...

laugardagur, maí 23, 2009

Orðatiltæki

Margir staðir, landshlutar eiga sitt orðatiltæki.

Þegar ég borga með korti hér fyrir vestan þá hef ég heyrt frá afgreiðslufólkinu tekuru afrit.

Tók mig smá tíma að fatta hvað var verið að meina þegar ég varð spurð að þessu fyrst og fannst þetta mjög skrýtið að segja þetta - en eru ekki allir samt.
###

Er ferlega flott veður núna - ætti að drulla mér út en er að leka niður úr þreytu. Búin að vera heldur mikil atgangur núna undanfarna daga.

Vona bara að verði svona flott veður á morgun og ég get farið í einhverja skemmtilega göngu :)

þriðjudagur, maí 19, 2009

Annars hugar

Hugsa að ég sé alveg úti að aka þegar ég fer með gleraugun í sturtu og fatta ekki neitt!

Eða hvað?

mánudagur, maí 18, 2009

Hjólað í vinnuna

Loksins hjólaði ég í vinnuna - enda líka nýlega komin með hjólið hingað vestur.

En í morgun var þetta ansi erfitt enda með vindinn á móti mér og var ég alveg búin á því og var farin að efast um að ég gæti eitthvað unnið. Heimleiðin var mun betri því ég flaug næstum því áfram og var helmingi fljótari.

Þetta er reyndar bara um 3 km leiðin en finnst vera eitthvað lengra.

En allt hafðist þetta nú þannig að ég er komin með einhverja kílómetra í hjólað í vinnuna átakinu.

sunnudagur, maí 17, 2009

Ljósmyndafyrirsæta

Óafvitandi er ég orðin að ljósmyndafyrirsætu ásamt samstarfsmanni mínum (landverði) en það er annar samstarfsmaður (landvörður) sem tók þessa mynd og hefur hana meira segja á desktopinum á tölvunni sinni. En hún er semsagt búin að setja þessa mynd inn á ársskýrslu hjá Green Globe, í glærufyrirlestra og eitthvað annað.

Það skemmtilega við þessa mynd er að það sést ekki hver ég er ;) - en allavega sést í bakið á mér og samstarfsmanni mínum þar sem við erum að horfa út á hafið.

Skemmtileg mynd með flottum litum í :)

Hún er meira segja búin að prenta út myndina og ætlar að hengja hana upp í herberginu sínu - svoldið fyndið því við ljósmyndarafyrirsæturnar erum í sitthvoru herberginu við hliðina á henni.

Fær greinilega ekki nóg af okkur ;)

laugardagur, maí 16, 2009

Synd

Þvílík blíða, hiti og fallegt veður í dag.

og ég inni - að þrífa.

Algjör synd....

Það var sko tekið á þrifunum og ekki laust við að maður sé svoldið lúin og áfram á morgun.

En svoldið skemmtilegt að í gær var tekið á móti 5 tonnum af sveitastjórum :)

mánudagur, maí 11, 2009

Augað

Engin linsa fannst í auganu.

Lækninum fannst þetta mjög spennandi - minnsta kosti sagði hann það rétt áður en hann skoðaði augað.

Mér fannst það bara kríppí að fara láta skoða augað mitt.

Kosturinn við þetta er að nú veit ég hvar heilsugæslan er í Ólafsvík ;)

Búið að vera frekar hvasst hérna og lekur inn um glugga, næstum allt á floti þegar ég kom heim í dag.

Fjör

laugardagur, maí 09, 2009

Ónæði

Ókosturinn við staðinn þar sem ég er búsett er að ef ég hef ekki kyrfilega læst þá á ég von á því að fullt af ókunnugu fólki æði inn til mín.

Er ekki svo félagslynd ;)

Merkilega nokk þá virðist fólkið sem kemur hingað um helgar ekki geta með nokkru móti munað eða vitað í hvaða íbúð það er. Það er nokkrum sinnum yfir helgi tekið í hurðahúninn hjá mér - en aldrei bankað.

Þannig að ef það væri ekki læst þá kæmi allt þetta fólk bara inn á gafl hjá mér.

Ákvað að fara í sund í Stykkishólmi í dag - sem reyndist síðan ekki vera mjög góð ákvörðun en "slys" gera víst ekki boð á undan sér.

Allavega ég náði ekki annarri linsu úr auganu á mér eftir sundið og núna er ég þræl aum í auganu, linsan (að ég held) enn þar og ég komin með fallegan lepp. Þvílíkt óþægilegt.

Slapp við lögguna í Grundarfirði að þessu skipti - enda á löglegum hraða og undir allan tímann. Mætti henni meira segja rétt hjá staðnum þar sem hún tók mig um daginn. Síðan fyrir utan Rif þá var lögreglan að hraðamæla, hef aldrei séð hana áður hraðamæla hér um slóðir. En þurfti ekki að hafa áhyggjur enda undir hámarkshraða :)

helv... augað

Breytingar

Fyrir glögga lesendur þá geta þeir séð að komið er nýtt útlit á bloggið mitt.

Hef lengið langað að breyta útlitinu en ekki fundið það sem ég hef leitað að og í raun ekki enn.... var það "skásta" sem ég sá.

Veit hvernig útlit ég vil fá en hef ekki fundið það og kann ekki að gera það sjálf :(

En megið alveg kommenta á útlitið :) - er enn að fínpússa... ekki alveg ánægð hvernig komment koma út og svona...

fimmtudagur, maí 07, 2009

Læst inni

Svei mér þá ef það er ekki að koma þetta trend að fólk læsi mig inni.

Var læst inni í vinnunni í morgun - nema það slæma við það að þegar ég loks hreyfði mig þá fór allt kerfið í gang. Þvílíkur hávaði.

Veit ekki hvort ég eigi að þora til Bolivíu ef einhver tekur upp á því að læsa mig þar inni líka....

En annars vil ég ekki annan dag eins og í dag... allt á afturfótum þar sem tölva fór ekki í gang, viðvörunarkerfið af stað, enginn sem svaraði símanum þegar ég hringdi og í þokkabót snjóaði.

Já kemur nýr dagur á morgun :)

miðvikudagur, maí 06, 2009

Hjólað í vinnuna

Átakið hjólað í vinnuna hófst víst í dag.

Ég er með í því átaki ásamt minni deild.

Sniðugt.

Sérstaklega þar sem ég er á nesinu og hjólið í bænum.

En

Stendur til bóta þar sem ég er á leið í bæinn á mánudag og hjólinu verður því kippt með tilbaka :)

þriðjudagur, maí 05, 2009

Sjávarréttapasta

Kvöldmaturinn minn var sjávarréttapasta - hver hefði getað trúað því á mig?

Ekki ég ;)

En annars var þetta pasta bara með túnfisk.

Ég kemst ekki enn yfir það hvað jökulinn getur verið fallegur - sérstaklega í ljósaskiptum - hann dáleiðir mann alveg hreint. Í gærkvöldi var engin ský í kringum hann og oh boy... var svo gott útsýni meðan ég tannburstaði.

En já búin að skrá mig á alþjóðaráðstefnu landvarða í Bolivíu - jííhaa

laugardagur, maí 02, 2009

Ákvörðun

Jæja - nú er að hrökkva eða stökkva.

Lítur út fyrir að ég þurfi að fara taka ákvörðun um hvort ég skelli mér á alþjóðaráðstefnu landvarða í Bólivíu...

Hallast mikið á því að fara.... ansi mikið....

fimmtudagur, apríl 30, 2009

Beint í æð

Fallegur er hann...


Myndgæðin eru reyndar ekki nógu góð og því ekki alveg að ná því sem ég sé út um gluggann hjá mér :)

miðvikudagur, apríl 29, 2009

Viðburðarríkur dagur

Held að sé óhætt að segja að þetta hafi verið ansi viðburðarríkur dagur í dag - einum of.

Merkilegt finnst mér líka hvað ég fékk mikinn fyrirvara á símamanni sem kom til þess að setja upp adsl sjónvarpi hjá mér. En hann hringdi akkúrat þegar ég var að leggja af stað í Hvalfirðinn og þá bara að lenda næstum því fyrir utan.

Ótrúlegt alveg hreint - ég komst því ekki en staðahaldari hleypti honum inn - þannig að nú er ég komin með fullt af stöðvum. Sem er gott vont. Var reyndar að vonast bara til þess að fá þetta eftir helgina.... en oh well það verður þá bara að vera agi.... hahahaha

En já dagurinn endaði hinsvegar ekki vel :( - þar sem löggan stöðvaði mig, heldur dýrt gaman þar...hmmm... reyndar ekkert gaman!

þriðjudagur, apríl 28, 2009

Fíla náttúruna

Bara snilld!

mánudagur, apríl 27, 2009

Hitt og þetta

Farin að hallast á það að ég sé búin að þróa með mér einhverskonar ofnæmi, en gegn hverju veit ég ekki ennþá.

Búin að klæja rosalega mikið í hendurnar, nánast viðþolslaus, svo var ég góð í nokkra daga og þetta er komið aftur, kláði og ekki frá því að séu einhver útbrot líka. Fúlt.

Meiri aulinn sem maður getur stundum verið - var bara að fatta í gær eða fyrradag tvíræðnina í auglýsingum frá Byko með viðhaldið. döhhh

Annar aulaskapur hjá mér er að ég veigra mér þvílíkt við verkefnið sem ég þarf að gera. Er margsinnis búin að setjast niður og ætla að byrja. Búin að fara yfir spurningarnar og sjá að sumar eru svo sem ekkert mál en maus (svona eins og kennarinn var búin að segja) en einhverra hluta vegna á ég erfitt með að byrja.

Hálfnað verk þá hafið er ;)

sunnudagur, apríl 26, 2009

Merkilegt

Eitt finnst mér sérstaklega merkilegt við þessar kosningar.

Í norðausturkjördæmi þar sem mikið hefur borið á hugsanlegum álversframkvæmdum á Bakka, framkvæmdum á Kárahnjúkum og svo olíuleitin á Dreka að þar eru Vinstri Grænir stærstir!

Finnst þetta stórmerkilegt - þýðir þetta að fólkið sem þarna býr er ekki allt svo hrifið af t.d. framkvæmdum á Bakka?

spurning

laugardagur, apríl 25, 2009

Kosningadagur

Jamm þá er hann runninn upp.

Hef á einhverjum bloggum lesið það að ef þessi eða hinn flokkurinn næði völdum að þá mundi viðkomandi flytja úr landi.

Þvílíkt drama og rugl hugsaði ég yfirleitt.

En

Ég hugsa að ef Ástþór Magnússon mundi fá yfirburða kosningu að þá mundi ég alvarlega íhuga það að gera allt sem í mínu valdi til þess að flytja út.

###

Er núna "heima" að reyna að fara að læra - nú þarf að taka þetta með trukki. Þarf ekki að hafa áhyggjur af því að kjósa því það var afgreitt seinustu helgi :)

sé svoldið eftir því að hafa ekki dröslast á myndina Draumalandið seinustu helgi en veit ekki hvenær ég mun koma í bæinn næst og skella mér í bíó.

fimmtudagur, apríl 23, 2009

Bæ bæ sumar, halló vetur

Já já bara komin stórhríð.

Fljótt skiptast veður í lofti, svo sannarlega.

Fínt veður í dag og gat alveg farið á peysunni út í þvottahús án þess að skjálfa úr kulda og svo núna bara stórhríð.

Sjónvarpið datt út í þokkabót - veit reyndar ekkert hvort veðrið hafði eitthvað um það að segja :) en komið inn núna þannig að ég ætti að geta horft á aðþrengdar eiginkonur.

Gleðilegt sumar

Mikið hrikalega er gott að eiga frídag.

Jafnvel þótt frídagurinn fari í að þvo, koma mér betur fyrir eða ganga frá því dóti sem ég á eftir að ganga frá og einnig að reyna koma lærdómi þarna inn í.

En allt á mínum hraða :)

Fór á skemmtilegan fund í gær sem boðsgestur. En á fundinn kom leynigestur og þessi gestur tók okkur í danskennslu í 5 rhytmum (hvernig svo sem það er skrifað). Fyndið hvernig hópurinn þróaðist - feimni fyrst við að danska og fannst fyndið og í restina ófeimnari og höfðu gaman af :)

miðvikudagur, apríl 22, 2009

Eitrað

Í gær var eitrað fyrir silfurskottunum í íbúðinni minni.

Er ég vond?

Tja...

Bíð spennt eftir fréttum hvort þær séu á víð og dreif núna.

###
hvað er með þetta veður á þessu skeri sem við búum á?
Þori varla út en neyðist víst til þess þar sem ég tók ekki hádegismatinn með mér

mánudagur, apríl 20, 2009

Vibba veður

Hvernig datt mér í hug - eins skynsöm og ég er nú :) að fara út í sandölum í morgun. Ég hef fyrir löngu náttúrlega lært það að ég bý á Íslandi og á Íslandi er veðrið óútreiknanlegt.

Er rigning og rok en var sól og fínt í morgun.

Spurning er því hvort bílinn hafi þessi áhrif á mig eða hvort skynsemin sé farin.

Eitthvað held ég að tvær árstíðir hafi gleymst eða vorið og sumarið og haustið komið á með fullum þunga. Allavega var veðrið þannig í Reykjavík í gær og hér í dag.

Ekki nema vonda veðrið sé eitthvað að elta mig......

sunnudagur, apríl 19, 2009

Sterk

Linda sterka

Var mikið búin að velta því fyrir mér hvernig ég ætti að koma sjónvarpinu ein inn og þegar ég rann í hlað og var búin að bera allt úr bílnum nema sjónvarpið ákvað ég að prófa.

Vit menn sjónvarpið er komið inn :) jeii þá loksins fer ég líka að geta séð alennilega á það og textann hehe

Annað hvort sjónin orðin svona slöpp eða hitt tv alltof lítið.

En búin að vera ansi strembin helgi, kláraði að pakka öllu niður í íbúðinni minni og þrífa, keyrði svo vestur og henti öllu inn þar.

Þannig að nú hef ég vikuna til að jafna mig í vinnunni.... ble verð sennilegast þvílíkt þreytt í vinnunni þessa vikuna. Þannig að mikið er ég fegin að séu aðeins 3 dagar fram að eins dags fríi :)

p.s. þessi póstur var fyrsti póstur frá nettengdum Gufuskálum

miðvikudagur, apríl 15, 2009

Útnári

Lítur út fyrir að ég sé bara á útnára landsins.

Í gærmorgun og svo aftur í hádeginu þá leiddist mér og vantaði Fréttablaðið til þess að lesa og gat varla beðið eftir að vinnudagurinn væri á enda til þess að koma við í sjoppunni til þess að ná í Fréttablaðið.

Ekkert Fréttablað!

Spurði hvort það væri ekki komið og var þá sagð að það kæmi ekki hingað á útnárann. Því hefði verið hætt 1. apríl.

sjæs... hvað gera menn þá? Fá sent úr bænum og les nokkra daga gömul? Eða kannski þegar maður fer í bæinn að ná í gömul blöð hjá ættingjum og vinum og fer að lesa viku og jafnvel mánaðargamlar fréttir?

Annars bara fínt hérna á nesinu en frekar kalt

hasa la vista

sunnudagur, apríl 12, 2009

Verðlaun

Loksins fékk ég verðlaun í árlegu páskafélagsvistinni - reyndar skammaverðlaun en hey verðlaun!

Var hörð samkeppni milli mín og Geirs en ég hafði vinningin. Það var spilað á fimm borðum og mér tókst ekki einu sinni að fara á þau öll - átti eitt borð eftir.

Mér var reyndar gefin fyrstu verðlaunin líka þannig að nú sit ég uppi með tvö páskaegg, fyrstu verðlaun og skammarverðlaunin.

Jæja á eina nótt hérna heima við áður en ég gerist dreifbýlistútta!

föstudagur, apríl 10, 2009

Pakka niður

Er að reyna skipuleggja mig og fara pakka niður.

Eitthvað þvælist þetta fyrir mér, sérstaklega þar sem ég þarf að taka helling með mér og setja svo eitthvað í geymslu og svo skil ég eftir slatta.

Hvernig skipuleggur maður það?

Ég æði eiginlega úr einu í annað....

arggg.... hvað það er leiðinlegt að pakka niður!

mánudagur, apríl 06, 2009

Mistök

Mistök að setja í þvottavél svona rétt fyrir miðnætti, sérstaklega þar sem ég hætti við að þurrka af og ryksuga og geyma það þar til eftir vinnu (á mánudag).

Nú þarf ég að bíða eftir vélinni og sjónvarpsdagskráin búin, búin að senda áætlun af stað, súpan mallar í pottinum og ég er þreytt og langar til þess að fara að sofa.

Ný klósettseta er loksins komin á klósettið :)

sunnudagur, apríl 05, 2009

Tíðindi

Það þykir tíðindi þegar mér er ekki kalt :)

Sit hérna niðri í skóla á stuttermabolnum og það eru bara stórtíðindi.

Fyrir utan að það er náttúrulega líka tíðindi að ég sé niðri í skóla ;) en var hérna líka í gær. Nú á sko að taka á því og ljúka verkefnum. Búin að ljúka einum af mínum hlut í einu þangað til annað kemur í ljós.

Nú þarf sko að klára annað.

Er sko busy sunnudagur - ansi busy.

Búin að fara í ræktina, gera eitt verkefni og fara að klára annað. Þegar heim er komið þarf að byrja á súpunni fyrir morgundaginn, laga til og þrífa.

já ansi busy sunnudagur

miðvikudagur, apríl 01, 2009

Einn koddi

Það er alveg vonlaust að vera með einn kodda.

Gafst upp um daginn að vera með koddann sem var rifinn, hefting var ekki að ganga upp og fiður út um allt. Tók mig því til og henti þeim kodda og eftir stendur ein vesæll koddi.

Er búin að gera tilraun til þess að kaupa kodda - ok fór að skoða kodda en leist ekki á neinn og var ekki alveg á því að kaupa kodda fyrir 6000 kr.

Hugsa að koddamálið fari í salt til haustins - safna bara í koddasjóð á meðan :)

By the way ég vil mjúkan fluffy kodda - ekki harðan sem ekkert er hægt að móta!

mánudagur, mars 30, 2009

Ertu ekki að grínast í mér!

Er búin að vera með lag á heilanum í allan dag og það er búið að vera gera mig vitlausa.

Þetta var lag sem var í Eurovision og held að Ingó hafi sungið það - nema hvað í bílnum á leið í skólann áðan var ég algjörlega laus við lagið en kom það þá ekki í útvarpinu...

föstudagur, mars 27, 2009

Meira líf

Lífið á heimilinu var aldeilis ekki búið eftir að ég veiddi silfurskottuna í ganginum í gær.

Þegar ég var um það bil að fara sofa þá missti ég símann minn í gólfið. Til þess að ná í hann aftur þurfti ég að færa náttborðið.

Nema hvað þegar ég færði það þá blasti við mér kónguló!

Jamm nema hún var heldur fljótari en ég og náði að koma sér undan - hvert hef ég ekki hugmynd um.

Orðið ansi mikið líf hérna fyrir minn smekk - er soddan rólegheitamanneskja ;)

Ekki hress

Jæja nú er ég ekki hress, bara næstum því furious.

Þegar ég kom heim í kvöld fann ég silfurskottu á ganginum.

Ekki ánægð.

Ég meina þær höfðu baðherbergið sem "sitt umráðasvæði" en nú eru þær farnar inn á mitt umráðasvæði. Þannig að núna er ég komin með 3 silfurskottur í þessari viku - ekki gerst áður þannig að spurning hvort sé eitthvað mikið um að vera núna!

Þótt þær eigi að vera meinlausar þá er ég núna að spá í eitrun!

föstudagur, mars 20, 2009

Ég um mig frá mér til mín

Afmælisstelpa :)

miðvikudagur, mars 18, 2009

Hláturskast

Það er eitthvað svo bjánalegt að fá hláturskast ein.

Á mánudagskvöldið var ég að horfa á Jay Leno og fékk þetta þvílíka hláturskast eftir að hafa horft á tvö brot hjá honum. Svo mikið að ég ætlaði ekki að geta hætt að hlæja, og svo hló ég enn meira yfir bjánanum mér að finnast það bjánalegt að fá hláturskast ein ;)

í ruglinu

Hvað rugl er það að brjóstahaldari kosti 10.000 kr, ég endurtek 10.000 kr!

Helvítis fokking fokk

Var líka í meiri rugli í gær, fór vestur á Snæfellsnesið og rétt áður en við komum að Grundarfirði þá fór ég að æla :( - ældi svo meira á Grundarfirði og svo á fundinum sem ég var á, þurfti alltaf reglulega að yfirgefa salinn.

Sjæs - ekki gaman.

Sem betur fer var heimferðin alveg ælulaus.

Algjört rugl!

sunnudagur, mars 15, 2009

Hugmyndir óskast

Ég er í vandræðum með hvað ég eigi að gera næsta föstudag.

Þannig að hér með óska ég eftir hugmyndum um hvað ég get gert :)

fimmtudagur, mars 12, 2009

Týnt

Ég bý ekki í stórri íbúð en samt tekst hlutum að hverfa héðan.

Kannski kóngulærnar taki þessa hluti!

En allavega er búin að leita um allt að gataranum mínum - þegar maður er búin að eyða regnskógunum þá þarf maður náttúrulega að gata þá og koma fyrir í möppu ;)

en ansans gatari....

###

En annars átti ég bara mjög óvænt kvöld - það er að segja spontant. Alltaf skemmtilegt :)

þriðjudagur, mars 10, 2009

Skil ekki

Síminn fór að taka gjald fyrir "leigu" á router/beini, það sem ég skil ekki er hvernig þeir geta það við "gamla" viðskiptavini.

Á sínum tíma gerði ég 12 mánaða bindandi samning við símann um adsl þjónustu og ef ég man rétt og skildi þetta rétt að með því að gera þennan binandi samning þá væri ég að fá routerinn og hann væri minn.

Þennan samning gerið ég haust 2006 og rann því út haust 2007 og því ætti routerinn að vera minn. Nú einu og hálfu ári seinna ákveða þeir að taka gjald fyrir leigu á einhverju sem er mitt. Hvernig er það hægt.

Ég skil það og mundi skilja ef þetta væru viðskiptavinir sem kæmu inn í dag í adsl viðskipti og væru að fá router eða þeir sem eru að fá nýjan router.

Bara skil ekki hvernig þeir geta gert þetta.

mánudagur, mars 09, 2009

Sköpunargáfa

Ég er gjörsamlega gjörsneydd allri sköpunargáfu - ekki svo sem ný tíðindi hér á ferð fyrir mig. Verra fyrir verkefnið sem ég er að vinna í :)

Spurning um að brjótast úr skelinni og leyfa gyðjunni að koma fram (sköpunargyðujunni sko).

sunnudagur, mars 08, 2009

Aðstoðarmanneskja

Ég hef verið að hugsa að ef ég skyldi einhvern tímann vera það vel stödd að ég gæti ráðið einhverja manneskju til að aðstoða mig, við hvað það ætti að vera.

Ég er semsagt komin að niðurstöðu.

Ég mundi ráða einhvern sem mundi elda ofan í mig - þannig að ég þyrfti þess ekki og helst ekki heldur hvað ætti að vera í matinn. Mundi þá eiginlega bara elda ef ég fengi yfirþyrmandi þörf fyrir það sem ég efast um að myndi gerast :) Væri gott líka ef manneskjan mundi taka til hádegismat þá daga sem ég er heima eins og helgar og svona.

En já væri alveg til í að heyra hvernig manneskju þið munduð vilja - skiljið bara eftir í kommentum :)

fimmtudagur, mars 05, 2009

Kalt

Eruð þið ekki að grínast með kuldann?

Hélt ég mundi ekki lifa gönguna af í morgun, hélt ég yrði bara frosinn einhversstaðar í Laugardalnum og mundi kannski "finnast" þegar þýða kæmi.

Heppni bara að var logn - meira segja ipodinn minn hélt ekki kuldann út en sem betur fer búin að þiðna núna, ipodinn sko.

þriðjudagur, mars 03, 2009

lúði

Er algjör lúði

Varð veik í gær :( - seinnipartinn í vinnunni varð mér flökurt en hélt samt nánast vinnudaginn allan út. Náði líka að labba heim úr vinnunni áður en uppköstin byrjuðu en rétt náði.

Í morgun var ég síðan að reyna að ákveða hvort ég ætti að fara í vinnuna, fékk mér ristabrauð sem ég er ekki búin að skila og ákvað síðan að fara í vinnu. Nema ég var ekki komin langt þegar ég ákvað að væri kannski ekki alveg sniðugast að fara. Maginn ekki alveg komin í lag og ekki með neitt þrek. Það ásamt því að bílamengunin var alveg að fara með mig.

Gekk því aftur heim og lét vinnuna vita - algjör lúði semsagt

sunnudagur, mars 01, 2009

Bónorð

Fékk bónorð í gærkvöldi.

Varð eiginlega svoldið kjaftstopp og vissi ekki hvað ég átti að segja, ég meina hvernig hryggbrýtur maður 3 ára snáða?

En hann var líka ósköp sætur í gær og sagði mér hvað eftir annað að ég mætti eiga hann og hann var alveg með svar við því hvar rúmið hans og dótið ætti að vera.

En hugsa að hann hafi líka ásælts flugvélina mína - hún hefur alveg ótrúlegt aðráttarafl fyrir hann :)

laugardagur, febrúar 28, 2009

Lok

Jæja seinasti dagur febrúarmánaðar og seinasti póstur febrúarmánaðar.

Líf heldur áfram að kvikna á baðherberginu - var að þrífa þar í dag þegar ég sá kónguló en lét hana eiga sig. Þegar ég fór síðan að ryksuga var þessi blessaða áttfætlingur horfin og hef ekki hugmynd um hvert.

En er annars að elda mexíkósúpu.... vona sko að hún muni bragðast unaðslega :)

föstudagur, febrúar 27, 2009

Stelpumynd

Sá stelpumynd í gær í bíó.

Einstaklega amerisk mynd - sem kom svo sem ekkert á óvart en reyndar bjóst við að myndin yrði einhvern vegin fyndnari og skemmtilegri. Var alveg ágætis afþreying sko en... já

Myndin var líka rosalega mikið um stereotýpur og staðlanir á fólki (að mér fannst) og finnst alveg stórmerkilegt að virðist vera í ameriskrí menningu þessi rosa áhersla á hjónaband. Fólk er hreinlega ekki bara í lagi ef það giftist ekki það er að segja geta ekki bara búið með einstaklingnum.

Ég bara neita að trúa því að þetta sé út um allt í Bandaríkjunum það hlýtur að fyrirfinnast fólk sem "bara" býr saman og er ekki svona upptekið af því að verði að giftast.

Já sumir gætu túlkað að ég sé hreint og beint á móti hjónaböndum eða eitthvað annað og túlki það hver sem vill.

Ég neita bara því að allir séu steyptir í sama mót :)

Fyrst ég er á annað borð farin að tala um bandarískar bíómyndir þá ætla ég að nefna annað sem fer rosalega í taugarnar á mér eða mér finnsta alltaf jafn hallærislegt.

Hafið þið tekið eftir því í kvikmyndum og þáttum að þá er oft manneskja sem kemur til einhverrar og segist þurfa að tala við hana í einrúmi. Með því sama þá yfirgefa allir aðrir sem voru í herberginu staðinn? Af hverju fara ekki þessar tvær manneskju út - miklu einfaldara og að mér finnst kurteisara að þau víkji til hliðar hehe

Finnst þetta alltaf jafn stórmerkilegt.

###

En annars var ég á silfurskottuveiðum í nótt - komst að því að þær geta víst líka aðeins farið lóðrétt, minnsta kosti var þessi á veggnum. Tókst að ná í gleraugun og krukku til að veiða hana í áður en henni tókst að forða sér.

fimmtudagur, febrúar 26, 2009

Agi

Auglýsi eftir aga og skipulagi.... :)

En já senn líður að lokum febrúarmánaðar og því daglegrar færslna.

Sem er gott í ljósi þess að ég hef ekkert um að skrifa núna :) allavega ekkert sem dettur í hug.

hasta la vista

miðvikudagur, febrúar 25, 2009

Sauður

Held það sé alveg óhætt að segja að ég er algjör sauður :)

Var í kvöld að elda heima hjá systur minni, kom með panini brauð sem ég var mikið búin að hlakka til að borða með matnum.

En allt kom fyrir ekki og ég steingleymdi brauðinu. Mundi ekki eftir því fyrr en þegar búið var að ganga frá og allt eftir kvöldmatinn.

Þvílikur illi.

þriðjudagur, febrúar 24, 2009

Leikhús

Fór óvænt í leikhús í kvöld.

Skemmtilegt þegar ísferð breytist í leikhúsferð svona í einu svipan.

Var shakespear leikrit þannig að textinn var torskilinn og þurfti að einbeita sér að textanum. Var fín sýning en ekki sú besta sem ég hef séð hjá Halanum. Verð þó reyndar að viðurkenna að ég man ekki hvaða sýningar ég hef séð þar... eitthvað er minninu að hraka.

En já félagsskapurinn var ekki af verri endanum :)

mánudagur, febrúar 23, 2009

Hjólið

Búin að vera á hjólinu mínu undanfarna daga.

Mikið er það nú ljúft, er svo fljótari á milli staða og svona. Þarf samt virkilega að þrífa þetta blessaða hjól.

En annars gleðilegan bolludag.

og já er komin með matargest í mexíkósúpuna :) - fegin því þá hefði ég annars þurft að skrifa póst um hugsanlega ástæður þess að fólk vill ekki koma í mat :).

sunnudagur, febrúar 22, 2009

Langar

Yfirleitt þá langar manni svo mikið, svo mikið að ekki er hægt að gera það allt og því verður að forgangsraða. Nú eða hlutirnir einfaldlega að bíða útaf einum eða öðrum ástæðum.

Hinsvegar ætla ég að reyna að ráðast á þá hluti sem mig langar að gera núna og eru gerlegir og ekki mikið mál.

Mig langar nefnilega mikið í mexíkósúpuna nema sú súpa er betri í félagsskap. Er svona félagsskapsmatur. Ég meina eru allnokkrir réttir sem eru algjörlega félagsskapsmatur og annar sem mér dettur í hug er racklett. Ég meina það er ekkert gaman að hafa racklett ef maður er einn að dunda sér við að steikja kjötið sitt :)

En allavega áfram um mexikósúpuna - þar sem þetta er félagsskapsmatur þá þýðir það náttúrulega að fólk komi og borði með mér. En ég get ekki ákveðið eða veit ekki hverjum ég ætti að bjóða í mat. Þannig að ég ætla að bjóða fólki að bjóða sér í mat til mín. Þeim sem hafa áhuga á að fá mexíkósúpu. Kannski réttilega að taka það fram að ég hef hugsað mér að bjóða þeim sem ég þekki ;)

En allavega þeir sem hafa áhuga hafi sambandi, hvort sem er í gegnum kommentin, tölvupóst, síma, sms eða í persónu.

p.s. fyrstur kemur fyrstur fær :)

laugardagur, febrúar 21, 2009

Póstkort

Skemmtilegar og óvæntar uppákomur eru alveg hreint meiriháttar. Svona eins og fá póstkort þegar maður á ekki von á því - jafnvel þótt viðkomandi er líka bara í sama landi :)

Finnst það yndislegt.

Hrifin af jákvæðum og góðum uppákomum, ekki eins hrifin að þeim leiðinlegu.

###

En annars skall hurð nærri hælum núna - var næstum því búin að gleyma að blogga. Eða ég mundi eftir þessu fyrr í kvöld og dag en ákvað að geyma aðeins og var því næstum búin að gleyma. En rétt náði :)

föstudagur, febrúar 20, 2009

Rupali

Rupali mín á afmæli í dag - og ef ég hef reiknað rétt þá er hún 14 ára.

###

Er frekar óþægilegt að vera rassblautur - sérstaklega þegar það er í lengri tíma.

Það gerðist akkúrat fyrir mig í dag - fór nefnilega á hjólinu í morgun og áttaði mig ekki á að væri rigning og tók því ekki regnbuxurnar með. Þegar hjólið var svo búið að vera úti í smá tíma í hellirigningu þá varð ég að sjálfsögðu rassblaut þegar ég fór á hjólið.

fimmtudagur, febrúar 19, 2009

Dagurinn

Áhugaverður dagurinn í dag.

Byrjaði líka með well.... sjokki.

Var í langferðabíl þar sem var verið að keyra upp brekku í mikilli hálku þegar hann komst ekki lengra, nema byrjaði að renna aftur á bak og bremsurnar ekki að gera neitt það er að segja þegar bílinn komst ekki lengra þá var stigið á bremsur sem dugði ekki og við byrjuðum að renna aftur á bak. Bílinn stjórnlaust og svo enduðum við þvert á veginum og nálægt því að fara útaf.

Rétt áður en við fórum upp brekkuna var mér á orði að mig langaði út og ganga þetta - aðallega því mér leist ekkert á þetta.

En allt fór þó vel sem betur fer :)

miðvikudagur, febrúar 18, 2009

Dreifbýlistútta

Jæja - er búin að skrifa undir samning þess efnis að gerast dreifbýlistútta.

Reyndar verður það einungis hluta úr árinu, en enga að síður spennandi. Fer skrefinu eða skrefunum lengra en dreifbýlistútturnar vinkonur mínar því ég mun vera mun lengra í burtu en reyndar líka í styttri tíma ;)

En bara gaman að þessu.

þriðjudagur, febrúar 17, 2009

Augnlæknir

Ég hef á tilfinningunni að sjónin mín hafi versnað. Hef hug á að láta staðfesta nú eða hrekja þessari tilfinningu minni með því að fara til augnlæknis sem segir mér hið sanna í málinu.

En þá kemur smá klípa, því ég ætla mér ekki að kaupa ný gler eða gleraugu alveg strax, ef ég skyldi vera komin með verri sjón. Þannig að ef ég fer til augnlæknis núna og ef hann staðfestir það að sjónin mín hafi versnað þá mun ég að öllum líkindum sjá bara mikið verra heldur en ég geri nú bara útaf vitneskjunni ;)

En þá geta sumir spurt sig af hverju ég fresta þá ekki heimsókninni til augnlæknisins sem er alveg gild spurning.... en bara vil fara fyrir mars :)

sem gerir það að verkum að ég þarf að fara að panta tíma og fara að sjá svo illa ;)

mánudagur, febrúar 16, 2009

Já já

Ekki varð mikið úr skrifum í gær vegna vesenist með hausinn. Reyndar ekki með verstu hausverkum en því verri eða meiri uppköstin sem fylgdu.

Skemmtilegt

Ætlaði mér nefnilega að vera svo dugleg í gær að t.d. að snúa þessu við hjá mér að eiga erfitt með að sofna á sunnudögum, vakna svo á mánudögum alveg þvílíkt þreytt að það endist vikuna. Tókst svo sem að fara að snemma að sofa en vaknað annað slagið í nótt með hausverkinn og varð að sjálfsögðu þreytt í morgun.

En tókst að þrífa í gær áður en þetta helltist allt yfir. Hefði sennilegast verið sniðugast að fá mér að borða á undan - spurning hvort ég hefði þá sloppið við allt þetta vesen.

En já nóg um leiðindin í bili... meira seinna

sunnudagur, febrúar 15, 2009

hausverkur

skrifa seinna..........

laugardagur, febrúar 14, 2009

Árstíðir

Í sumum af þessum könnunum sem eru til gamans gerðar þá kemur stundum spurning hvaða árstíð er uppáhalds.

Á alltaf í sömu vandræðunum með að svara, því á enga uppáhalds. Ég meina hver árstíð (sumar,vetur, vor og haust) hefur sinn sjarma. Ég meina það er gaman þegar vorið kemur og maður upplifir birtuna sem kemur og allt að vakna til lífsins. Sumarið þá er allt bjart og yfirleitt hlýrra veður. Á haustin þá er farið að dimma og gott að fá það eftir alla birtuna :) og tala nú ekki um alla litina sem koma. Veturnir geta verið heillandi sérstaklega þegar snjóar og hvítt og fallegt yfir öllu.

Þannig að ég get ekki valið á milli, veturnir eru kannski stundum helst til langir og svo náttúrulega er mér oft kalt en samt...

Jæja hver er ykkar uppáhalds árstíð og af hverju?

föstudagur, febrúar 13, 2009

Lög

Þeim sem finnst erfitt að lesa lög á íslensku ættu að prófa að lesa lög á ensku, enn skemmtilegra :)

Það var það sem ég eyddi megnið af deginum í

###
Af baðherberginu mínu að frétta þá er allt með rólegum nótum þar. Hef ekki séð stóru feitu kóngulóna, né aðrar kóngulær eða silfurskottur.

Finnst svoldið kómískt að þegar ég er á leið inn á baðherbergið þá kveiki ég fyrst ljósið áður en ég stíg inn i herbergið og rannsaka gólfið vel og vandlega áður. Enda langar mig ekkert til þess að stíga á neitt kvikt.

fimmtudagur, febrúar 12, 2009

Komið gott

Komið alveg gott af þessum kulda, má nú alveg fara að hlýna dáldið.

Væri ekki amalegt að vera þvælast í Suður Ameríku núna eða vera hjá litla frænda, stóra frænda og konunni hans í Guatemala. Spurning hvort maður væri að kvarta yfir hita þess í stað!

Nú er ég búin að vera líka "úti" eða ekki heima við 3 kvöld í röð og er bara alveg búin á því. Eitthvað þvílíkt þreytt en spurning hvort það tengist því að hafa verið að heiman er spurning.

Stóð mig þvílíkt í skonsugerð í gær eða EKKI, voru ekki að gera sig þessar skonsur en voru nú samt eitthvað étnar. Til þess að kórona allt saman þá var grjónagrauturinn heldur ekki upp á sitt besta.

miðvikudagur, febrúar 11, 2009

Samtal

Átti mjög áhugavert samtal í gær.

En samtalið snerist um það hvað margir frá upphafi hafi dáið, hve stór jörðin er og hvað það væru þá margir fm af jörðinni sem mögulega enginn hafði dáið á miða við fjölda og stærð. Var mér tjáð það að væri sennilegast á stærð við fótboltavöll. Nema hvað líkurnar á því að eru mun stærri svæði hér á landi heldur en t.d. í austurlöndum sem er líklegt að enginn hafi dáið á.

Fannst þetta bara mjög áhugavert því oft er það þannig að maður vill ekki búa nærri kirkjugarði eða í íbúð sem maður veit að einhver hefur dáið í.

Voru góðar pælingar á göngu heim á leið.

þriðjudagur, febrúar 10, 2009

Hmm....

Það verður að viðurkennast að núna er ég alveg blank, veit ekkert hvað ég á að rita hér. Undir venjulegum kringumstæðum þá hefði ég að sjálfsögðu sleppt því en þar sem ég ákvað að blogga á hverjum degi í febrúarmánuði þá ætla ég mér að standa við það. Allavega reyna.

Hefði kannski getað geymt það þangað til síðar en.. veit ekki hvort ég verð í netsambandi seinna í dag.

En einhverjar hugmyndir sem þið hafið um blogg sem ég get skrifað? :)

mánudagur, febrúar 09, 2009

Létt og laggott

Var sko ekki búin að gleyma að skrifa á bloggið, það er að segja ekki í dag en núna þegar ég er loksins komin heim þá var það næstum því búin að gleyma þessu en augljóslega gerðist það ekki.

Þetta raus verður ekki um smjörið létt og laggott og ekki heldur í boði létt og laggotts :)

Heldur er þetta vaðið úr einu í annað.

Líst bara dæmalaust vel á kennara minn í þessu námskeiði sem ég er í, ákvað að tala aðeins við hann í dag um mastersverkefnið mitt og það hjálpaði mér eða held það allavega. Líka var svo almennilegur og bauð mér að hafa samband ef ég hefði fleiri spurningar :)

Svo er líka svo yndislegt að keyra bíl þar sem skyggnið ver mig fyrir sólargeislum og ég sé á götuna. Semsagt sat það hátt uppi að skyggnið náði alveg, yfirleitt er það þannig að sætin eru það lág og skyggnið það hátt uppi að það gagnast mér ekkert nema ef sólin er einstaklega hátt á lofti sem hún er ekki þessa dagana.
já hlæjið þið bara.........

læt þetta duga í bili

sunnudagur, febrúar 08, 2009

Umhverfisvænt

Ég reyni eftir megni að nota vörur sem eru umhverfisvænar, merktar t.d. með svaninum.

Verð þó að viðurkenna að ég er að gefast upp á einni vöru eða uppþvottaleginum sem er merktur svaninum. Hef verið að þrjóskast hingað til að nota þennan uppþvottalög og svo sem ekkert að því. Það er bara að það blokkerast alltaf fyrir opið á brúsanum þannig að brúsinn stíflast og vandræði að ná einhverju úr brúsanum.

ekki upplýsandi og skemmtilegt að vita :)

laugardagur, febrúar 07, 2009

Kalt

Er kalt - sem kemur svo sem ekkert á óvart ;) nema nú er þreytan líka eitthvað að hellast yfir mig. En kannski kemur það bara til að ég er komin niður í skóla og er að fara að læra.

slökknaði á mér frekar snemma í gærkveldi en að sjálfsögðu þegar ég ætlaði mér að fara að sofa að þá tókst það ekki.

Fór á annan meistarafyrirlestur í gær, komst að því að best væri bara að reyna að útksrifast úr hagfræðideildinni. Komu margir á þennan fyrirlestur, prófdómari var síðan bara með auðveldar spurningar miða við þær sem komu úr salnum.

ansans.... mér er kalt

föstudagur, febrúar 06, 2009

síminn minn

Er að verða klikkuð á gsm símanum mínum. Síminn sjálfur virkar alveg vel og batteriið er enn fínt. Það er stýripinninn sem er til vandræða þannig að ég á erfitt með að fletta upp í símaskránni, skoða sms eða opna eitthvað annað í símanum svona eins og að stilla vekjaraklukkuna. Frekar böggandi þar sem annars er í lagi með símann og tala nú ekki um batteriið.

Er því búin að vera skoða síma og símarnir sem mig langar í eru dýrir :( það er hinsvegar eitt sem ég var að spá í, símar sem eru með diktafón veit einhver hvort það sé eitthvað vit í því. Þarf nefnilega á diktafóni að halda og var því að spá hvort væri sniðugt að sameina það í síma en spurning er hvort diktafóninn sé eitthvað góður sem finnst í síma?

fimmtudagur, febrúar 05, 2009

Meistarafyrirlestur

Var á mínum fyrsta meistarafyrirlestri og vörn áðan.

Núna er ég að leita allra leiða til þess að útskrifast úr hagfræðideild til þess að þurfa ekki að hafa fyrirlestur ;) eða svona nokkurn veginn.

Annars var prófdómari ekkert svo harður og fór allt mjög vinsamlega fram.

Er að spá í að fara líka á annan meistarafyrirlestur á morgun til þess að athuga hvort sá verði nokkuð tekin af lífi.

###
Annars fór ég í bíó í gær á Viltu vinna milljarð, var barasta ánægð með myndina, kom reyndar á óvart hvað voru margir í bíó og þetta snemma líka eða um sexleytið.

miðvikudagur, febrúar 04, 2009

Afmæli

Lenti í óvæntri afmælisveislu hérna upp í skóla. Var sagt að væri afmæliskaffi í fundarherberginu og afmælisbarnið vissi ekkert af því.

Horfðum á kerti á kökunni brenna upp til agna því afmælisbarnið var upptekið og náði ekki í tæka tíð fyrir kertin. Þannig að kertavax var kroppað af kökunni ;)

En það skemmtilega var að rétt áður hafði ég sest hjá afmælisbarninu í hádeginu og borðað hádegismat með henni án þess að vita að hún ætti afmæli.

þriðjudagur, febrúar 03, 2009

Strætó

Uppáhalds umræðuefnið ;)

En nú þarf ég að vera fljót að ákveða mig hvort ég taki næsta vagn sem er eftir um 15 mínútur eða hvort ég bíði þá klukkutíma eftir næsta.

Fúlt

Tilraun

Hef ákveðið að gera tilraun með að blogga alla daga febrúarmánaðar. Veit ég klikkaði á fyrsta degi febrúarmánaðar en það verður þá bætt upp með tveimur færslum einhverja aðra daga.

Bak við þetta er mjög skrýtin hugmyndafræði hjá mér að með auknum skrifum á blogginu mínu komi aukin afkastageta á öðrum sviðum :)

Febrúarmánuður var líka valin vegna þess að hann er með fæsta daga mánaðains.

mánudagur, febrúar 02, 2009

Rann á rassinn

Lítur út fyrir að nýrri ríkisstjórn hafi tekist að komast á koppinn áður en mér tókst að útrýma skólaleiða.....

nei kannski ekki... skólaleiðinn er svo sem að hverfa en ekkert skipulag, áætlun eða aðgerðaráætlun hefur hinsvegar litið dagsins ljós.

En þarf þá bara rísa upp, dusta af rassinum og halda áfram þar sem frá var horfið.
Enda lítið val núna - hópaverkefnið komið af stað og þarf að skila rannsóknaráætlun þar á föstudag. Leist ágætlega á þennan hluta af hópnum sem ég hitti en ég mun sennilegast aldrei hitta tvær úr hópnum sérstaklega þar sem ein býr í Noregi.

Annars eru tímamót núna í mínu lífi. Eru að verða fjögur ár sem ég hef haft lögheimili mitt á sama stað en það er það lengsta tímabil hjá mér, hafði aldrei verið meir en 3 ár. En þrátt fyrir að þetta þá hef ég reyndar ekki enn búið á staðnum samfellt í fjögur ár og á eftir að brjóta það met mitt (3 ár) en virðist ætla vera eitthvað erfiðara að ná því.

föstudagur, janúar 30, 2009

Renna út á tíma

Er sennilegast að renna út á tíma hérna að gera áætlun, skipulag og aðgerðaráætlun. Það er að segja ef ég ætla að verða starfhæf áður en ný ríkisstjórn tekur við. Er samt eitthvað í áttina - á góða daga og slæma í afköstum.

Verst bara hvað ég er eitthvað lengi að lesa.

###

Meira af kóngulóm

Einn morguninn núna í vikunni gekk ég inn á baðherbergi (ekkert óvenjulegt við það), þar sá ég einhverja dökka þúst við vegginn sem ég var nokkuð viss um að hefði ekki verið þar í gær. Þannig að ég fór tilbaka inn í herbergi að ná í gleraugun (já sé illa :() og þegar ég kom tilbaka sá ég hvað þessi dökka þúst var.

Það var stór og feit kónguló - ekki sú sama og ég sá fyrir einhverjum dögum síðan. En ég ákvað að láta hana vera og hún hvarf, hvert veit ég ekki en er mjög forvitin að vita hvar þær halda til því engir eru kóngulóavefirnir í sjónmáli.

En í morgun þegar ég var inn í herbergi (ekki baðherberginu) þá skaust kónguló framhjá mér og þar sem hún var á hreyfingu þá vissi ég hvað þetta var svona gleraugnalaus og sú var fljót að fjúka. Er alveg nokkuð viss um að þetta var ekki stóra og feita sem ég sá í vikunni heldur hin. Er með þá kenningu að þessi stóra og feita hafi rekið þessa út úr baðherberginu.

En þær verða að vita sinn sess...

Eru ekki annars allir spenntir fyrir að koma í baðherbergið mitt? :)

mánudagur, janúar 26, 2009

Greining

Er búin að greina sjálfa mig.

Já ég er svo hæfileikarík :)

Er komin með skólaleiða, að minnsta kosti sat ég í tíma í dag og hreinlega nennti ekki einu sinni að hugsa til þess að þurfa að gera hópverkefni og einstaklingsverkefni. Hryllti hreinlega yfir þeirri hugsun.

En núna þarf að koma áætlun, svo skipulag og aðgerðaráætlun um að útrýma þessum skólaleiða og fara á fullt.

Takmarkið er að verða starfhæf áður en ný ríkisstjórn tekur við - held það verði ekki vandamál - sérstaklega ekki ef ekkert verður fyrr en í maí - sem er mjög ólíklegt.

En þarf að finna gleðina í skólanum á ný!

sunnudagur, janúar 25, 2009

Deyfð

Deyfð yfir blogginu mínu og yfir mér...

Kem mér ekki að verki og hef ekki almennilega komist í gang núna í janúar, sem er ekki nógu gott því hef nóg að gera og markmið til þess að ná.

Veit ekki hvernig ég get sparkað í rassinn á mér og komið mér almennilega að verki. Á kannski einn góðan dag en síðan ekki daginn eftir. Ekki vantar góðu fyrirheitin á kvöldin að daginn eftir ætli ég mér að verða þvílíkt dugleg.

Á líka ónýtan kodda - er komið gat á hann og því fiður um allt - var að reyna bráðabirgða viðgerðir á honum með því að hefta gatið saman :) má alltaf vera bjartsýnn á að það virki :) svona eins og ríkisstjórnin hahaha

var hjá systkinabörnum mínum á föstudag fram á laugardag. Litli guttinn var að leika sér með hákarl og krókódíl (nei ekki lifandi dýr) og þegar ég kvartaði yfir því að þau væru að borða mig (dýrin sko) þá tók hann sig til og lét þau bara kyssa mig í staðinn :) góður strákur

mánudagur, janúar 19, 2009

Snákar

Undanfarið hefur mig dreymt snáka.

Í nótt var það ekki góður draumur - reyndar sjaldnast gott að dreyma snáka því ég er heilluð af þessum kvikindum en finnst þeir samt sem áður alveg hryllilegir og er voða gott að þeir búa annarsstaðar en á Íslandi.

En annars er ég í átaki með sængurveri mín. Ég á nefnilega svo mörg og nota aðeins brot af þeim sem ég á þannig að núna er ég markvisst að fara að nota þau öll. Þó ekki öll í einu ;)

sunnudagur, janúar 11, 2009

Baðherbergið

Baðherbergið mitt er mjög vinsælt.....

af kóngulóm.

Var með tvær milli jóla og nýárs og var að fá eina nýja núna. Velti mikið fyrir mér hvaðan þær koma.

En þessi nýja er eitthvað feimnari því sá bara glitta í hana í gær og hef ekkert séð hana í dag.

Spennandi tímar

laugardagur, janúar 03, 2009

Nýtt ár

Fyrsti pistill á nýju ári.

Er búin að hugleiða hvort ég ætti að skrifa annáll fyrir 2008 en ákvað að gera það ekki :) en.........

2008 fyrir mér er
*mjög lærdómsríkt ár (vinnulega ásamt öðru)
*þar sem allar áætlanir og varaplön urðu að engu :) en samt allt í lagi því annað kom í staðinn
*litla systir gifti sig og var viðstödd óhefðbundins brúðkaups á Snæfellsjökli og svo hálf veik í því þriðja
*Fyrsta skipti sem ég og litla systir eru saman í skóla ;)
*2008 var líka árið sem ég fór ekkert til útlanda síðan 2001

2008 þá ætlaði ég mér að vera um helming af árinu erlendis eða í Ástralíu en þau plön breyttust allhressilega og þess í stað var ekkert farið út fyrir landsteinana og ég komst að því að ég hef nánast farið eitthvað til útlanda allt frá árinu 1995 með árið 2001 og núna 2008 til undantekningar.

Útlandaferðir
1995: London - Fyrsta skipti sem ég fór ein með vinkonu til útlanda
1996: Berlin (með skólanum), Majorka og svo til Englands í enskuskóla og vinna
1997: Kaupmannahöfn (dvaldi 3 vikur hjá Gulla frænda)
1998: Prag og svo til Hollands
1999: Sviþjóð (sumarbúðir á vegum rauða krossins)
2000: Danmörk (BUSL ferð) og Frakkland (Paris og Chamonix)
2001: Ekki neitt en átti að verða Kúba með HÍ í námsferð
2002: Chicago, USA
2003: Grænland (dagsferð til Kulusukk á vegum vinnunar), Kaupmannahöfn, Svíþjóð, London og Kúba (allt í sömu ferð, 1 mánuður í allt)
2004: Færeyjar (heimsækja Bjössa frænda)og Austurríki (skyndihjálparkeppni)
2005: Kaupmannahöfn til þess að keyra til Þýskalands í brúðkaup
2006: Ferðin mín mikla :) Kína, Malasía, Ástralía, Nýja Sjáland og New York (farið út í janúar og komið heim í maí) um haustið til Barcelona (vinkonuferð)
2007: Rúmenía (ráðstefna landvarða)
2008: Ekkert farið en átti að verða Ástralía ;)

Spurning hvort 2009 verður eitthvað ferðaár en er á óskalista að fara á ráðstefnu landvarða í Bólivíu :)