Útnári
Lítur út fyrir að ég sé bara á útnára landsins.
Í gærmorgun og svo aftur í hádeginu þá leiddist mér og vantaði Fréttablaðið til þess að lesa og gat varla beðið eftir að vinnudagurinn væri á enda til þess að koma við í sjoppunni til þess að ná í Fréttablaðið.
Ekkert Fréttablað!
Spurði hvort það væri ekki komið og var þá sagð að það kæmi ekki hingað á útnárann. Því hefði verið hætt 1. apríl.
sjæs... hvað gera menn þá? Fá sent úr bænum og les nokkra daga gömul? Eða kannski þegar maður fer í bæinn að ná í gömul blöð hjá ættingjum og vinum og fer að lesa viku og jafnvel mánaðargamlar fréttir?
Annars bara fínt hérna á nesinu en frekar kalt
hasa la vista
miðvikudagur, apríl 15, 2009
Birt af Linda Björk kl. 17:10
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 Mjálm:
Þú verður bara að nýta þér upplýsingatækni internetsins betur en áður og leggja pappírnum :-)
Kv. Guðmunda
lítur út fyrir það. Núna verður þá tölvan á borðinu meðan ég les fréttir og borða morgunmatinn :)
Skrifa ummæli