Dagurinn
Áhugaverður dagurinn í dag.
Byrjaði líka með well.... sjokki.
Var í langferðabíl þar sem var verið að keyra upp brekku í mikilli hálku þegar hann komst ekki lengra, nema byrjaði að renna aftur á bak og bremsurnar ekki að gera neitt það er að segja þegar bílinn komst ekki lengra þá var stigið á bremsur sem dugði ekki og við byrjuðum að renna aftur á bak. Bílinn stjórnlaust og svo enduðum við þvert á veginum og nálægt því að fara útaf.
Rétt áður en við fórum upp brekkuna var mér á orði að mig langaði út og ganga þetta - aðallega því mér leist ekkert á þetta.
En allt fór þó vel sem betur fer :)
fimmtudagur, febrúar 19, 2009
Birt af Linda Björk kl. 19:20
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 Mjálm:
Það er aldeilis hasar á minni, það fylgir ekki sögunni í hvaða langferð þú varst en það væri engu að síður gaman að vita það. Ertu kannski að flýta þér í dreifbýlið?
Kv.Guðmunda
ekki mjög langt - var einungis farið í Hvalfjörðinn :)
Skrifa ummæli