Stirð
Skil ekkert í þessu hvað ég er eitthvað stirð bæði hendur og fætur. Búið að vera að gera grín að mér í dag að ég sé enn eftir mig eftir að hafa haldið ræðuna í brúðkaupinu á laugardaginn.
Búin að vera bera á lakkleysir á rúmgafla á rúm sem ég er að fá.... ekkert smá leiðinlegt. Svo á eftir að pússa það og lakka, spurning hvort ég setji einhvern lit á.
Fer aftur á Snæfellsnesið á morgun, verð að viðurkenna að ég væri alveg til í að fá smá lengra frí - til þess að gera ekki neitt og klára Harry Potter.
miðvikudagur, júlí 25, 2007
sunnudagur, júlí 22, 2007
Brúðkaupið
Gulli frændi og Þórdís giftu sig í gær - í minkahúsi í Hrútarfirðinum. Allt saman var mjög flott og úr varð heljarinnar partý fram á morgun. Ég er nú ekki mikið kjólafan en Þórdís brúður var í geðveikum kjól.
Svo sæt
Fyrir mig var svoldið sérstakt því bæði mamma og pabbi voru í brúðkaupinu - ekki það að þau hafi ekki verið í veislum saman en þá bara þegar það tengist mér (ferming, stúdent og útskrift úr HÍ :)) og einnig voru því systkini sitthvoru megin. Til þess að flækja málin líka enn meira þá voru systkini bróður míns einnig viðstödd - já eða hluti af þeim.
systir mín, bróðir minn og ég en þau eru ekki þó systkini.
Ég hélt smá ræðu í brúðkaupinu, get ekki sagt að ég hafi verið stolt af því þar sem ég titraði svo mikið meðan á því stóð að ég var farin að hafa áhyggjur af því að lappirnir mundu ekki halda mér uppi meðan á þessu stæði. Foreldrar mínir vissu ekki af þessu að ég ætlaði að gera þetta og systir mín sagði að svipurinn á þeim hefði verið óborganlegur. Enda ég líka kannski ólíklegasta manneskjan til þess að fara upp og halda ræðu. Eins og sannaðist því ég titraði ekkert smá. Er samt fegin að hafa látið verða af þessu því Gulli frændi var mjög ánægður :)
Myndir úr brúðkaupinu eru komnar á myndasíðuna mína - sama password og venjulega.
miðvikudagur, júlí 18, 2007
Nakin
Ég var fyrir því óláni að slíta hálsfestina á hálsmeninu mínu á mánudagskvöldið. Er frekar súr yfir því þar sem ég er búin að vera með þetta hálsmen yfir 20 ár - jamm
Það hefur einu sinni áður gerst að hálsmenið slitnaði en það var þegar ég var 12 ára og eftir slagsmál við strákana í sveitinni.
Allavega núna tek ég mjög eftir því að það vanti eitthvað - áður fannst mér ég aldrei finna fyrir því að ég væri með hálsmen en án þess finnst mér eins og ég sé nakin.
En þessu verður reddað (vonandi) þegar ég kem í bæinn en ég fer í frí á morgun.... oh ég hlakka svo til!
mánudagur, júlí 16, 2007
Símtal
Það kemur fyrir að hringt er í gemsann minn og viðkomandi er að hringja í rangt númer.
Finnst það reyndar koma alltof oft fyrir en stundum getur það farið alveg hryllilega í taugarnar á mér. Sennilegast eftir því í hvaða skapi ég er í.
Áðan var hringt og spurt eftir einhverjum manni - að sjálfsögðu svaraði ég að hann væri ekki í þessu númeri.
Þá var spurt af viðkomandi hvaða númer þetta væri - og að mér finnst með frekjulegri rödd.
Ég svaraði honum að sjálfsögðu og sagði að þetta væri númerið sem hann hefði hringt í :)
Verkamannabrúnka
Yndisleg helgi að baki.
Vinkonurnar létu sjá sig um helgina, reyndar mismikið og mislengi en þær komu ásamt fjölskyldum. Meira segja Danafarinn lét sjá sig með Dananum. Mitt hlutverk fyrir helgina var að sjá um veðrið og sem tókst svona ljómandi vel.
Eftir helgina er ég þess vísari að ég er með verkamannabrúnku að sögn einnar vinkonu og er að verða ljóshærð - í það minnsta hefur hárið á mér lýst eða er sólbrunnið.
Borðuðum góðan mat um helgina, fórum í leiki og held ég bara að allir hafi verið tiltölulega sáttir og fannst Snæfellsnesið fallegt.
En annars var ég með báðar göngurnar um helgina. Fékk 23 á laugardeginum, hef aldrei farið með svona marga en gekk held ég bara ágætlega. En á sunnudeginum var ég með minni hóp aðeins 6.
Úr göngunni á laugardaginn
föstudagur, júlí 13, 2007
Strandganga
Fyrsta strandgangan var í gær og tókst líka svona ljómandi vel og góð þátttaka :) ég var að mestu í að túlka. Komu nefnilega þrír útlendingar og ég gerði tilraun til þess að túlka. En að túlka eða reyna að finna hvað bóluþang, beltisþari, klettadoppa og þangdoppa er á ensku er hinsvegar ekki alveg mitt. Gekk aðeins betur í að túlka sögurnar.
Svona er mitt útsýni í göngunum - sé alltaf í bakið á hópnum :)
Lífið í pollunum
Kjalfar

Smakkaði líka þara í gær og GLP tók hellings af myndum af því tilefni...
fimmtudagur, júlí 12, 2007
Vika
Vika þangað til ég fer í frí - farin að hlakka smá til enda farin að sakna íbúðarinnar minnar eins fáranlegt og það hljómar.
Þórunn og Hákon komin í frí og ég á eftir að gráta mig í svefn útaf söknuði ;)
Enn er sól þrátt fyrir að ég keypti sólarvörn um daginn.
Illa komið fyrir mér - þurfti nál og tvinna í gær þar sem saumspretta var á buxunum mínum þannig að ég heimsótti sérfræðinginn sem endaði á því að hún skellti buxunum í saumavélina.
miðvikudagur, júlí 11, 2007
Sólarofnæmi
Sólarofnæmið er að taka yfir í andlitinu á mér.
En þá er ég svo sem í stíl við lubbann sem hárið á mér er :) spurning hvort stelpurnar fái áfall þegar þær koma hingað um helgina.
Annars áttum við stórgóðan mánudag - en annars eru flestir dagar stórgóðir þessi var bara einstaklega góður.
Var þetta glampandi sól og fína veður og þegar við vorum búin að tína mesta ruslið úr Malarrifsfjöru borðuðum við nestið okkar þar með hafið og jökulinn sem útsýnið okkar. Pössuðum okkur svo að enda vinnudaginn sunnan megin þannig að leið okkar lá á Fjöruhúsið eftir vinnu til þess að fá okkur kvöldmat. Sátum þar í sólinni í eina fjóra tíma eða þangað til þau fóru að loka. Ljúft líf....
En annars bara minnast á fyrstu strandgönguna sem byrjar á fimmtudaginn.
Krossavík-Þórðarklettur
Fimmtudaginn 12. júlí kl. 19
Í göngunni verður leiðsögnin með áherslu á fjörulífið og söguna en leiðsögumenn verða þau Sæmundur Kristjánsson og Erla Björk Örnólfsdóttir. Gangan tekur um 3-4 klst. Mæting við áningarborð í Krossavík við gamla íshúsið. Ekkert gjald.
laugardagur, júlí 07, 2007
Mosi
Í minni barnslegu trú hélt ég að það væri búið að stimpla inn í þjóðarvitund Íslendinga að mosi er viðkvæmur og er mjög lengi að vaxa. Því ætti ekki að rífa upp mosa, ganga mjög varlega þegar maður er að ganga á mosa og bara alls ekki að keyra á mosa.
En þetta virðist ekki vera.
Ég lærði þetta mjög ung en hjá hverjum eða hvar man ég ekki.
###
Var að keyra um daginn (svo sem ekki nýtt) niður í Hólavog þegar ég fyrir tilviljun rak augun í fugl með 3 unga - þeir voru svo samlitir veginum að erfitt var að koma auga á þá þannig að sjálfsögðu stoppaði ég til þess að keyra nú ekki yfir ungana og fylgdis með þeim í smá tíma. Ég fór reyndar svo út úr bílnum í tilraun til þess að taka myndir af þeim. Fuglinn sem ég tel vera sandlóu var fljót að gefa ungunum sínum skipun um að fara í eina átt svo hljóp hún í áttina til mín og lék það síðan að vera særð. Það var svo sætt og fyndið að sjá þetta og lék sandlóan þetta bara mjög vel og var mjög sannfærandi.
Ég ætla bara að vona að tekist hafi að sameina fjölskylduna aftur.
###
Ég er komin með sólarofnæmið aftur :( - og skítt að vera með það á handleggjunum. Finnst það öllu verra að vera komin með það í andlitið. En hef heldur ekki verið að nota sólarvörn.
mánudagur, júlí 02, 2007
Fjöruhúsið
Við erum soddans lúxus landverðir hér að við getum af og til skroppið á kaffihús.
Í veðurblíðunni í gær og fyrradag skruppum við Þórunn á Fjöruhúsið eftir vinnu - ekki amalegt að sitja úti og njóta umhverfisins meðan maður er að borða.
En svo verður maður líka að vera duglegur að fara á nýja kaffihúsið á Rifi sem heitir Gamla Rif.
Já já maður sleppir ekki menningunni þótt maður sé úti í sveit ;)
laugardagur, júní 30, 2007
Á toppnum
Komst á toppinn!
Tók hlutverk mitt mjög alvarlega og var seinust á toppinn á Snæfellsjökli á jónsmessunni en svo sem alveg eins og ég bjóst við. Á bara þessa einu mynd af mér á toppnum ásamt Hákoni en hann var ábyggilega búin að vera þar í klukkutíma áður en ég kom á toppinn. Vorum með talstöðvar með okkur og eina gagnið sem var af þeim þegar athugað hvar ég væri og til þess að hvetja mig upp ;)
Guðrún Lára tók video af mér þegar ég var að komast á toppinn - var að sjálfsögðu spurð af því hvernig væri að vera komin á toppinn - eina sem mér datt í hug að svara að ég nennti ekki að labba niður aftur!
En mikið búið að vera að gera, skyndihjálparnámskeið og vorum einhverja 4 tíma með fuglafræðingum um daginn sem var mjög skemmtilegt. Skoðuðum sjófuglana ásamt kríunni en þeir voru að skoða vörpin hjá þeim.
Dagskrá landvarða hefst um helgina og fyrsta ganga mín er á miðvikudaginn.
laugardagur, júní 23, 2007
Skrönglast
Jæja - ég stefni upp á Snæfellsjökul í kvöld.
Ef einhver stefnir á að fara með og er hræddur um að vera síðastur þá þarf sá ekki að hafa neinar áhyggjur því ég mun taka það að mér að vera síðust.
Fórnfús
Já
föstudagur, júní 22, 2007
Jónsmessunæturganga
Á Jónsmessunótt verður ganga á Snæfellsjökul á vegum þjóðgarðsins. Gengið verður frá Jökulhálsi og hefst gangan kl. 21 (ATH breyttur tími frá áður auglýstri dagskrá) laugardaginn 23. júní. Leiðsögumaður verður Snævarr Guðmundsson fjallaleiðsögumaður og ljósmyndari.
Gengin verður fremur auðveld leið og tekur ferðin í heild um 4-6 klst. Góður útbúnaður er nauðsynlegur, góðir vatnsheldir gönguskór, hlý gönguföt (alls ekki gallabuxur!) og nesti. Mjög gott er að vera með göngulegghlífar og göngustafi. Mæting er við snjóröndina á Jökulhálsi uppfrá Arnarstapa. Skráning og nánari upplýsingar í símum 436 6860, 436 6888 og 822 4009 eða á netfanginu snaefellsjokull@ust.is
ATH Ekki verður farið á Jökulinn nema aðstæður verði góðar svo fólki er bent á að hafa samband samdægurs eða daginn áður til að kanna stöðuna.
mánudagur, júní 18, 2007
Dugleg
Finnst ég hafa verið rosa dugleg í fríinu mínu.
Búin að mála og koma hillunum upp aftur - reyndar þarf að laga neðstu hilluna en það gerist næst þegar ég kem í frí.
Búin að ákveða húsgögnin sem ég ætla að kaupa mér
Búin að hitta fólk og hund.
Búin að fara í langan og góðan göngutúr.
Á reyndar eftir að gera leiðinlegan hlut eins og finna mér sundbol og strigaskó.
###
Í einu af þessum fólkshitting flugu nokkuð áhugaverð og skemmtileg komment. Ég fór nefnilega að tala um orðræðu.
Kom því upp að ekki væru um feitar konur að ræða heldur konur með fituheilkenni. Besta setning kvöldsins var hinsvegar manneskjan sem sagði: "Ég held ég sé komin með anorexíu því ég sé feita konu þegar ég lít í spegilinn"
Því að sjálfsögðu þó að um háalvarlegt mál sé um að ræða eins og anorexíu þá verður maður nú líka geta haft húmor fyrir hlutum.
föstudagur, júní 15, 2007
Mála
Aftur byrjuð að mála.
Í þetta skipti er það gangurinn. Búin með eina umferð á loftið og á reyndar eftir að kaupa málninguna á vegginn.
Íbúðin mín er ekki stór en samt tekst þessum gangi að hafa 6 dyrakamra.
Bara fjör
fimmtudagur, júní 14, 2007
Í bænum
Jæja komin í bæinn í smá frí!
Þurfum víst annað slagið að fá svoleiðis - er samt farin að sakna pínku sveitarinnar og ég sem kom bara í dag.
Var þrátt fyrir það mjög ljúft að koma í íbúðina mína en þegar ég gekk svo út í búð í dag þar sem ísskápurinn minn er galtómur (erfitt að halda "heimili" á tveimur stöðum) þá fannst mér ekkert voða ljúft að ganga í steypunni innan um bílana og húsin!
Ekki ferska sveitaloftið!
Var líka mun skemmtilegra að hlaupa eftir rollum í gær í hrauninu heldur en ganga þessa vegalengd út í búð.
Jamm fór í smalamennsku í gær - reka rollur úr friðlandinu á Búðum. Var fyrst með girðingamanninum á sexhjóli þar sem við vorum að sækja ýmislegt rusl og ég hafði séð rollur innan girðingar þá fórum við í smalamennskuna eftir að við vorum búin að ná í ruslið.
Annars held ég að ég sé hætt að vera dekurbarnið hjá mömmu þar sem mér tókst ekki að bjóða mér í mat til hennar í kvöld.
þriðjudagur, júní 12, 2007
Úti
Mér var hleypt út af gestastofunni í dag!
Þess í stað fékk ég að þræla ;) - tókum niður vörðu í dag, tilraun til að bjarga henni undan verktökunum sem eru að gera veginn. Hver steinn var merktur og myndaður og svo þurfti að bera þetta allt saman upp smá brekku og setja á pallinn á bílnum og flytja svo í geymslu. Voru um 105 steinar - og fimm steinar/hellur enn á staðnum þar sem var aðeins of þungt fyrir mig að bera. Verðum að leyfa Hákoni að bera smá ;)
Ekki nóg með að ég sé landvörður heldur er ég orðin ljósmyndafyrirsæta líka.... held það sé samt ekki í kjarasamningum.
mánudagur, júní 11, 2007
Tekur á
Það tekur á að keyra í gegnum þjóðgarðinn.
Verið er að vinna í og undirbúa að malbika Útnesveg sem er akkúrat vegurinn sem liggur í gegnum þjóðgarðinn. Efnið sem þeir nota í veginn er tekið úr þjóðgarðinum og finnst svo sárt að sjá stórar vinnuvélar vera að taka hóla og moka úr þeim og mala grjót og svo koma stórir haugar af möluðu grjóti við veginn. Og ég keyri þarna framhjá tvisvar á dag.
Það er líka hluti þess að vegurinn er slæmur fyrir jökul og fólk þarf að sjá til þess að varadekkið sé með og sé í lagi ;)
laugardagur, júní 09, 2007
Gestastofan
Er núna 5 daginn minn í röð á gestastofunni og á 3 eftir. Ástæðan fyrir því að ég er svona lengi er sú að Hákon er í fríi og ekki komin annar landvörður á svæðið.
Gestastofan hjá okkur er rosa flott :) - ég varð mjög hrifin af henni þegar ég sá hana fyrst í fyrra og svo er nánast annar hver gestur sem kemur hingað sem hrósar gestastofunni. Eitt það skemmtilegast við hana er að það er hægt að prufa ýmislegt og finnst mér skemmtilegast þegar fólk prufar. Til dæmis eru skinnskór hér sem hægt er að prufa að ganga í hrauni og mér finnst bara alltof sjaldan sem fólk prufar þá svo eru líka aflraunasteinar sem krakkar og fullorðnir geta prófað að lyfta ásamt fleiru. Bara drífa sig og sjá gestastofuna :)
###
Meira af dagskránni en það er mikið að gerast um næstu helgi en ég reyndar missi af því öllu þar sem ég verð farin í frí. En hér kemur það
Er rebbi heima?
Heimsókn að refagreni
Laugardaginn 16. júní kl. 14 – Farið verður að refagreni í ábúð. Staðsetning nánar auglýst síðar.
Lestu blóm?
Dagur villtra blóma
Sunnudagurinn 17. júní er samnorrænn dagur villtra blóma og verður af því tilefni haldin plöntugreiningarkeppni í léttum dúr við Rauðhól. Keppnin er fyrir unga sem aldna og hefst kl. 16. Plöntuhandbækur leyfðar. 2-3 klst.
###
Jónsmessunæturganga á Snæfellsjökul 23. júní
Á Jónsmessunótt verður ganga á Snæfellsjökul. Gengið verður frá Jökulhálsi og hefst gangan kl. 23 laugardaginn 23. júní. Hafið með ykkur nesti og hlý föt. 4-6 klst.
Helgiganga undir Jökli 6.-7. júlí Tveggja daga helgiganga Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls og Ingjaldshólskirkju. Fyrri daginn er gengið frá Saxhóli um Prestahraun eftir farbæn við Saxhól kl. 19:30 og lýkur göngunni um 2:30 við Ingjaldshólskirkju með klukknahringingu og stuttri helgistund. Seinni gangan hefst við Einarslón kl. 16 og lýkur við Hellnakirkju með næturmessu um kl. 22:30. Leiðsögumenn verða Dr. Pétur Pétursson og Sæmundur Kristjánsson.
Það sem ég er spenntust fyrir því mér hefur alltaf langað til þess að ganga alla ströndina eru þessar göngur (reyndar getur verið að dagsetning á seinustu göngu breytist):
Ströndin eins og hún leggur sig!Í sumar verður hafin ganga eftir endilangri strönd þjóðgarðsins með fróðu leiðsögufólki. Þrír áfangar verða gengnir í sumar og áformað að klára ströndina næsta sumar.
Fimmtudaginn 12. júlí kl. 19
Krossavík – Þórðarklettur. Fjörulíf og saga. 3-4 klst. Leiðsögumenn verða Sæmundur Kristjánsson og Erla Björk Örnólfsdóttir.
Fimmtudaginn 26. júlí kl. 19
Hólahólar – Djúpalónssandur. Náttúra og vermennska. 3-4 klst. Leiðsögumaður verður Sæmundur Kristjánsson.
Laugardaginn 18. ágúst kl. 11
Skálasnagi – Beruvík. Fuglar og saga. 5-6 klst. Leiðsögumaður verður Sæmundur Kristjánsson.
###
Ljósmyndasýning á Djúpalónssandi í sumar
Gunnar Ólafur Sigmarsson opnar sýningu á náttúruljósmyndum af Snæfellsnesi á Djúpalónssandi föstudaginn 25. maí kl. 18. Sýningin stendur fram eftir sumri.
Ljósmyndasýning í Malarrifsvita
Hollvinasamtök Þórðar frá Dagverðará standa fyrir ljósmyndasýningu í Malarrifsvita í sumar. Sýningin verður opnuð 30. júní og stendur til 5. ágúst. Opið verður laugardaga og sunnudaga milli 10 og 16.
Hlaupið undir Jökli 11. ágúst
Hlaupið undir Jökli verður haldið í fyrsta skipti þann 11. ágúst. Boðið verður upp á 4 vegalengdir, Amlóða 2,5 km, Hálfdrætting 5 km, Hálfsterkan 21,1 km (hálft maraþon) og Fullsterkan (heilt maraþon) 42,2 km.
Dagskrá
Föst dagskrá hjá okkur í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli byrjar 30. júní til 15. ágúst.
GAMAN SAMAN - kl. 11 – 12 laugardaga
BARNA- OG FJÖLSKYLDUSTUND við tjaldsvæðið á Arnarstapa.
Landverðir taka á móti börnum alla laugardaga kl. 11 við tjaldsvæðið á Arnarstapa og rannsaka með þeim náttúruna, segja sögur, fara í leiki og margt fleira skemmtilegt. Barnastundir eru miðaðar við börn 6-12 ára. Foreldrum er velkomið að taka þátt með börnum sínum. 1 klst.
GÖNGUFERÐIR MEÐ LEIÐSÖGN
FÓLKIÐ OG NÁTTÚRAN - Sunnudagar kl. 14, Búðir – Frambúðir.
Gestir hitta landverði við Búðakirkju kl. 14. Auðveld ganga í gegnum blómaskrúð og hraunmyndanir að Frambúðum þar sem minjar eru um útgerð fyrri tíma. Þeir sem vilja geta fengið tilsögn um göngu að Búðakletti. 1-2 klst.
ÆVINTÝRI SJÁVARINS - Miðvikudagar kl. 14, Djúpalónssandur.
Gestir hitta landverði við bílastæðið á Djúpalónssandi. Gengið um Djúpalónssand og nágrenni og fjörulífið skoðað. 1-2 klst.
LÍFIÐ Í BJARGINU - Laugardagar kl. 14, Svalþúfa – Lóndrangar.
Landverðir taka á móti gestum hjá bílastæðinu við Svalþúfu. Rölt er fram á Þúfubjarg þar sem Kolbeinn og kölski kváðust á forðum. Í bjarginu er mikið fuglalíf og stundum lætur tófan sjá sig á þessum slóðum. Gengið að Lóndröngum en þar eru minjar um vermennsku fyrri tíma. 1 klst.