BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

fimmtudagur, júlí 22, 2010

Hestar


Við nennum ekki að slá garðinn og settum því hesta inn í hann.

laugardagur, júlí 17, 2010

Tjaldið mitt.


Ánægð með tjaldið mitt. Fegin þó að ég ákvað að tjalda ekki í rokinu í nýjadal, svona í fyrsta skipti.

laugardagur, júní 19, 2010

Vindbelgjarfjall


Á toppnun og endalaust suð!

miðvikudagur, júní 09, 2010

Kúl


Flottar tölur 121010 - Annars bara komið fínt veður komið í sveitina. Eina sen stöðvar ferðir mínar er hlið, þannig að ekki er hægt að segja annað en ég fái nóga hreyfingu. Inn og út úr bílnum ;-) þyrfti helst hliðarvörð!

miðvikudagur, maí 26, 2010

Snjór í maí


Þessi mynd var tekin núna rétt áðan og já snjór í maí og ég komin aftur í ullarfötin.

sunnudagur, maí 23, 2010

Heimsókn


Þessar komu og heimsóttu mig þegar ég kom heim áðan. Eigandinn sagði að þetta væri brauðrolla og því get ég útilokað dýrslega aðdráttarafl mitt. Annars átti ég góða menningarreisu til Akureyrar í dag, bæjarferðirnar eru samt æri kostnaðarsamar en núna i bókarkosti en ekki bónusferð :-) Tókst líka að fara í bíó en sundferð fór um þúfur.

þriðjudagur, maí 18, 2010

Sauðburður

Átti erindi inn á Egilsstaði um daginn og á leiðinni "heim" þá kom ég við í sveitinni hjá bróður mínum.
En fór í fjárhúsið með honum og sá að minnsta kosti 2 lömb koma í heiminn. Ég var svo lukkuleg að hafa myndavélina mína með og smellti af þónokkrum myndum sem þið getið séð í myndaalbúminu mínu. Þau ykkar sem hafa áhuga :)

mánudagur, maí 17, 2010

Hvitt


Það hefur snjóað í nótt og var hvit jörð þegar ég vaknaði í morgun.

sunnudagur, maí 09, 2010

Gaman gaman



miðvikudagur, maí 05, 2010

304 kg


Svona líta 304 kg út. Á reyndar erfitt með að trúa því að þetta sé það mikið því það var ekki það erfitt að bera. Ef þetta eru 304 kg þá þýðir það að hver kassi er um 13 kg. Ágæt dagsverk að bera 304 kg og tól reyndar bara um 20 mín :-)

þriðjudagur, maí 04, 2010

Gatan mín


Önnur af uppáhaldsgötunum mínum á Akureyri ásamt uppáhaldshúsi ;-) en er um 16 stiga hiti núna.

Heitt


Er um 14 stiga hiti og ég er að stikna. Það verður sko keyptur ís áður en ég fer aftur í sveitina.

laugardagur, apríl 24, 2010

Kvöldkaffi


Kvöldkaffi í sveitinni.

fimmtudagur, apríl 22, 2010

Vogafjós


Svo var fengið sér vöfflu og mjólk ásamt því að klappa kúnum.

Geggjað veður


Gestirnir og ég fórum upp að Víti og fengum líka þessa rjómablíðu.

þriðjudagur, apríl 20, 2010

Gjóta -gjá


Hérna er gjótan sem varð að gjá. Gjáin sem ég datt oní með annan fótin. Að minnsta kosti held ég það því það var ein önnur sem kemur til greina. Já og ég fékk marblett.

mánudagur, apríl 19, 2010

Netið

Eftir að ég kom hingað norður þá hefur uppáhaldssíðan mín eða minnsta kosti sú sem ég kíki oftast á verið Vegagerðin og upplýsingar þar um umferð og færð.

Ekki það að ég sé svona mikið á ferðinni en einhverra hluta vegna finnst mér þetta mjög nauðsynlegar upplýsingar. Svo næsta síða á eftir sem ég hef kíkt mikið inn á og ekki hefur verið áður ern veður.is og þá Mývatnsstöðin. Þar þarf ég til dæmist nauðsynlega að vita hversu kalt mér á eftir að verða ;) en svo reyndar er ekki eins kalt hér og fyrir sunnan þó mínusstigin séu fleiri.

Svo verður það að viðurkennast að ég er að verða hálf "ónýt" að vera netlaus heima hjá mér - það var allt í lagi fyrstu 2 mánuðina en er farið að segja svoldið til sín núna. Skelfilega er maður háður þessu neti.

föstudagur, apríl 16, 2010

Myndir

Þegar ég var fyrir sunnan tókst mér að setja inn eitthvað af myndum á myndasíðuna mína.

En ég er enn bara í febrúar - tókst semsagt ekki að láta inn allar myndirnar.

Rollur á heimleið


Hvort þeim leist ekki á veðrið eða voru svangar veit ég ekki um.

miðvikudagur, apríl 07, 2010

Svaðilför


Lenti í svaðilförum í dag. En ákvað að fara að Hverfjalli (Hverfelli) til að skoða skiltin þar. Það var mikil snjór á veginum en tókst að komast áfram alveg þangað til að ég týndi veginum. Var ekki viss hvar hann héldi áfram. Þannig að ég fór út úr bílnum til að átta mig og reyna að finna út hvar hann héldi áfram, steig nokkur skref og pomp. Ég með aðra löppina óní gjótu og finn enga fótfestu. Næ ekki að koma mér upp og hugsa um það að ef ég dytti alveg í gjótuna get ég ekki einu sinni hringt á hjálp því símarnir væru í bílnum. En mér tókst að krafla mig upp hinumegin en var ekki viss hvort snjórinn mundi láta undan eða hvort eitthvað fast væri undir. En það hélt og ég komst í bílinn og var fljót að koma mér í burt. Phew þetta var smá scary á tímabili.

þriðjudagur, apríl 06, 2010

Vetur


Veturinn ræður enn ríkjum hér og aftur er ég veðurteppt og er röngu megin vid skaflinn. Er mikid að velta fyrir mer af hverju ég færði bilinn ekki í gær, ég er kannski svona bjartsýn!

fimmtudagur, apríl 01, 2010


Uppáhaldið mitt. Mjúkir kanelsnúðar og nýbakaðir. Bakaðir frá grunni af mér og eru ætir í þokkabót :-D

mánudagur, mars 29, 2010

Veðurteppt

Var veðurteppt í morgun - ferlega skrýtið.

Grunaði svo sem þegar ég vaknaði í morgun (reyndar strax í gærkveldi) að ég myndi ekki komast í vinnu í morgun, að væri komin skafl við fjárhúsið. En ákvað samt að athuga og fór því á bílnum að fjárhúsinu og út þar að kanna málið áður en ég mundi æða yfir. Sumsstaðar náði skaflinn mér upp að hné og var ég nokkuð viss um að ekki tækist að fara yfir og ákvað því að snúa við. Hinumegin við skaflinn var maður sem lagði bíl sínum og fékk far með mér tilbaka þar sem hann var að fara ryja rollur í einu af fjárhúsunum (eru nokkur sko). Ákvað að senda svo sms í morgun til manns sem býr hinumegin við skaflinn og athuga hvort ég gæti fengið far með honum ef hann væri að fara út í þorp. Um tíuleytið þá brýtur hann sér leið yfir skaflinn og kemur alla leið heim að dyrum. Ég sem ætlaði mér nú að ganga yfir skaflinn þegar hann færi en til hvers að eiga jeppa á 35 tommum ef ekki er notað ;)

En allavega um þetta sama leyti þá er bóndinn á næsta bæ komin með snjóblásarann og ég ákvað því að bíða svo ég kæmist á mínum bíl í vinnuna.
Spurning síðan með næstu daga hvort ég geymi bílinn hinumegin við fjárhúsin - sennilegast ef það heldur áfram að snjóa og blása svona eins og gerði í nótt og í gær.


Mig langaði samt hrikalega að prófa og fara í gegnum skaflinn og athuga hvort ég kæmist en skynsemin tók yfirhöndina :(



En vantar skóflu!

laugardagur, mars 27, 2010

Vetrarfærð


Enn er vetrarfærð. Átti ágætis kaupsstaðarferð til Akureyrar þar sem ég var að byrgja mig upp fyrir páska og gesti. Það rann á mig eitthvert kaupæði og keyptar 2 bækur og mynd. Langaði að kaupa fleiri en hélt aftur að mér. Verð að geyma eitthvað fyrir þá næstu :-) Náði að kaupa 3 afmælisgjafir. Góður matur var snæddur á Bautanum í góðum félagsskap en var síðan rekin af stað í sveitina svo ég næði í björtu og áður en veðrið versnaði. Fínn dagur.

föstudagur, mars 26, 2010

Helgin

Seinasta helgi var fín fyrir utan smá atvik eða þegar Safír lét okkur fá smá áfall og var heppin að lifa fallið af.

Hann fór semsagt niður háan klett sem má sjá á myndinni og förin eftir hann.
Var heldur óhuggulegt!

fimmtudagur, mars 25, 2010

Pirringur

Það er einhver pirringur í mér.

Verð að losna við hann því ég nenni ekki að vera svona ;) - nenni ekki að vera pirruð og verð því pirraðri fyrir vikið að geta ekki losnað við pirringinn.

Talandi um vítahring.

hversvegna pirringur er - veit ég ekki.... eða minnsta kosti engin góð ástæða fyrir honum.

Urr.... verð að losna við þetta.

Góðar hugmyndir?

sunnudagur, mars 21, 2010

Veisluborð



laugardagur, mars 20, 2010

Afmæliskakan



mánudagur, mars 15, 2010

Umferðarteppa


Lenti í umferðarteppu á leið heim.

sunnudagur, mars 14, 2010

Spegilslétt vatnið


Tók myndavélina með í göngutúrinn en myndir úr símanum verða að duga á bloggið.

Heima


Hrikalega gott veður og ég tími ekki að fara aftur inn.

fimmtudagur, mars 11, 2010

Í dag



Í gær



Djammsleikur

Yndisleg helgi að baki í góðum félagsskap.

Skellti mér í borgina til þess að fara þaðan strax - stoppaði ekki klukkutíma!

Förinni var heitið í sumarbústað og var alveg stór skemmtileg helgi en þreytt - fór seint að sofa sem þýðir ekki endilega að ég vakni seint.... ónei klukkan átta er það heillin.

En orð helgarinnar var tvímælalaust: Djammsleikur

Já margt sem maður lærir og verður vísari að.

Flaug svo tilbaka norður á mánudaginn og fékk góðan félagsskap þar þrátt fyrir að hafa ekki hist í meira en ár! Alveg yndislegt.

Veturinn virtist hinsvegar alveg vera horfinn þegar ég kom tilbaka norður og gleymdi ég að kaupa skófluna - held líka að kóngulær séu eitthvað að ruglast því ég er búin að sjá tvær heima ásamt járnsmiði og svo henti ég einni út í vinnunni sem var eitthvað að þvælast fyrir mér. Finnst að hún eigi bara að vera á gólfinu ef hún vill endilega vera inni!

sunnudagur, mars 07, 2010

Nammi namm



miðvikudagur, mars 03, 2010

Föst


Var dregin upp úr skafli í morgun, við fjárhúsið. Hressandi

þriðjudagur, mars 02, 2010

Flottir litir



Veður dagsins


Aðeins 19 stiga frost í morgun.

mánudagur, mars 01, 2010

Veður dagsins


Fallegt veður í dag en kalt.

Skafa

Ég hef nánast þurft að skafa bílinn alla daga síðan ég kom hingað utan örfáa daga í seinustu viku. Þvílíkur munur þá að geta bara hoppað upp í bíl og lagt af stað.

Í morgun þurfti hinsvegar að skafa enda líka frostið um 16 stig í morgun og fór hæst (að ég held) upp í 17 stigin. Það hefur nú reyndar lækkað um 10 stig síðan í morgun.

Var líka einstaklega bjartsýn í morgun, því um helgina var ekki það mikið frost að ég hugsaði með mér að kannski þyrfti ég ekki ullarfötin en ákvað að samt að tjekka á hitamælinum áður (frostamælnum) - sem betur fer þar sem það var yfir 10 stigin.

En veðrið hinsvegar alveg einstaklega fallegt, engin vindur, sólin skín og allt svo hvítt og fallegt hér í kring.

Næstum því alveg viss að ég ætlaði að skrifa eitthvað meira en bara man það ekki núna!

fimmtudagur, febrúar 25, 2010

Te

Held barasta að ég hafi aldrei drukkið jafn mikið te og þessa dagana.

Þrír bollar búnir fyrir hádegi í dag!

Ullarfötin, ullarsokkar, trefill og samt er ég inni.... jamm kuldaskræfan ég - enda fékk ég líka smá nett áfall þegar ég sá á þriðjudaginn að spáð væri 19 stiga frosti hérna á morgun, enn meira áfall þegar mér var sagt að aðfaranótt föstudags ætti að vera 33 stiga frost. Sem betur fer hefur spáin breyst og kuldinn ekki eins mikill.

Spennan á morgnana og eftir vinnu er í hámarki það er að segja hvort ég komist heimreiðina alla leið heim. En það snjóar í skafl við fjárhúsið en annars er vegurinn næstum auður. Hingað til hef ég sloppið en smá klaufaskapur og maður situr fastur. Þarf líka að fá mér skóflu, betra að hafa hana svona í bílnum.

En um helgina var ég stödd í bænum og skellt mér m.a. á tónleika með Emilíönu Torrini, var bara mjög sátt við tónleikana og hversu ræðin hún var. En yfirleitt finnst mér hún nefnilega ekkert ræðin á tónleikum.

Þegar ég flaug norður aftur var búið að snjóa töluvert og í keyrslu innanbæjar missti ég stjórn á bílnum og fór einhvern hálfhring á veginum og var alveg einstaklega heppin að hafa ekki mætt bíl. Þetta gerði það að verkum að ég þurfti þvílíkt að telja í mig kjark að fara yfir Víkurskarðið og alla leið í Mývatnssveitina. Enda lá við að ég hoppaði út úr bílnum og stigi hamingjudans þegar ég var komin yfir skarðið en ákvað að bíða með hamingjulætin á leiðarenda.

en já spurning um einn tebolla í viðbót!

mánudagur, febrúar 22, 2010

Snjór


Svona var bílinn minn þegar ég kom að honum á flugvellinum á Akureyri. Var smá maus að ná öllum snjónum af honum og koma honum út úr stæðinu. Snjórinn kringum bílinn náði mér upp að hnjám. Sumum finnst það kannski ekki mikið þegar miðað er við mig en er dáldið fyrir mig :-D

föstudagur, febrúar 19, 2010

Veðrið í Rvk


Ekki eins spennandi umhverfi og í Mývatnssveitinni! Eða hvað?

sunnudagur, febrúar 14, 2010

Veður dagsins


Er ekki hægt að segja annað en að veðrið sé að versna.

Heimld


Hérna er heimild fyrir því að ég bakaði. Að vísu með smá hjálp :-D

Brauðbollur


Heimildir eru fyrir því að brauðbollurnar séu ætar og smakkist jafnvel bara vel svona nýkomnar úr ofninum þar sem smjörið bráðnar á þeim. Að vísu er það einungis ég sem er heimildin fyrír því.

Linda bakar


Undarlegir hlutir eru farnir að gerast í sveitinni. Bakaði brauðbollur - hugsa samt að ég láti þetta ekkert berast í borgina þar sem ég gæti fengið einhverjar kröfur á mig þegar ég kem aftur þangað.

föstudagur, febrúar 12, 2010

Heim


Séð frá vinnunni og "heim" og veðrið í dag. Heim er þarna í fjarska burtu.

Húsið



Hefðir

Bolludagur, sprengidagur og öskudagur nálgast óðfluga.

Undanfarin ár hefur mér alveg verið svo til sama hvort ég fengi bollu á bolludaginn, saltkjöt á sprengidag og verður bara að segjast alltaf pirrað mig á öskudeginum og Reykvíkingum ;)

Núna í ár er þetta öðruvísi farið - mig dauðlangar í einhverskonar bollur á bolludaginn, saltkjöt og þá sérstaklega uppstúf á sprengidag og gaman væri að vera á Akureyri á öskudag (en ekki raunhæft).

Lítur ekki út fyrir að ég hafi saltkjöt og uppstúf á sprengidag - of mikið vesen ;) en líka það að það þurfi hveiti og ég nota það aldrei annars og finnst mér það mikil sóun að kaupa helling af því til þess eins að nota smá. Og nei ekki mikil von að ég noti meira af því seinna meir!

Eigið góða helgi!

fimmtudagur, febrúar 11, 2010

Mynd dagsins


Fallegt veður í dag. Tekin á Skútustaðagígum. Sést í Vindbelg þarna í fjarska.

Kalt

Í gær var hlýjasti dagurinn hérna síðan ég kom, fór í plúsinn. En þrátt fyrir það var mér hreint ótrúlega kalt - sérstaklega þó í vinnunni. Mér hlýnaði ekki fyrr en ég fór að ganga og dagurinn í gær var með fallegt veður þrátt fyrir að væri skýjað og fallegt veður líka dagurinn á undan gærdeginum og þar á undan og undan honum ásamt deginum í dag.

Að vísu er ekki búið að vera skýjað í dag og hitinn komst aftur í plús þrátt fyrir það þurfti ég að skafa í morgun en bara örlítið.

Seinasta laugardag fór ég í bæjarferð til þess að byrgja mig upp af mat - er nefnilega að átta mig á því að ef skyldi koma eitthvað veður (snjókoma) þá gæti ég bara lokast inni og þá er verra að vera matarlaus ;)
Mögulega kannski bankað upp á næstu bæjum en vildi þó helst sleppa því.

En set kannski inn mynd af deginum í dag aðeins seinna - ótrúlegt en satt þá er ég oft farin að blogga og senda frá símanum mínum. Myndirnar sem hafa komið hér undanfarið eru allar frá símanum mínum.

mánudagur, febrúar 08, 2010

Geggjað veður


Veðrið var alveg frábært i dag. Reyndar alveg eins og hina dagana. En þetta er Sandvatn og Vindbelgur sést þarna líka.

laugardagur, febrúar 06, 2010

Frá útidyrunum


Veðrið í dag.

Útsýnið


Svona er útsýnið frá útidyrahurðinni hjá mér.

föstudagur, febrúar 05, 2010

Vetrarríki

Já það er óhætt að segja að ég er komin í vetrarríkið hér fyrir norðan. Nokkuð langt síðan maður hefur verið í vetri - svo miklum að þarf að kaupa sér auka ullarföt svona til þess að hafa til skiptanna þegar maður þvær ;) því ekki getur maður verið án þeirra.

Annað sem er merki þess að maður er í vetrarríki er það að skafa þarf að bílnum og það stundum tvisvar á dag - á leið í vinnu og eftir vinnu! Úff og púff, svoldið munur frá því að bíða út á stoppistöð og ganga svo inn í "misheita" strætisvagnana.

En það er fallegt hérna - ekki hægt að neita því :)




Mynd af Víti - tekin í dag!

fimmtudagur, febrúar 04, 2010

Fallegt


Enn einn fallegur dagur í fallegu umhverfi.

miðvikudagur, febrúar 03, 2010

Blíðviðri


Var líka fallegt veður í dag og frekar jólalegt þar sem ég var að ganga í dag. Hressandi gönguferð.

þriðjudagur, febrúar 02, 2010

Mývatnssveit


Svona var nu fallegt veður í dag. Vorum vid Leirhnjúk og myndin er af Hófi. Ekki amalegt ad byrja 'fyrsta' vinnudaginn svona. Var ad vísu vöruð vid ad væri ekki alltaf svona gott veður hér en trúi því ekki ;-)
Það var að vísu 10 stiga frost en króknaði ekki úr kulda!

fimmtudagur, janúar 28, 2010

Innkaup

Eitthvað finnst mér flókið að fara út í búð þegar ísskápurinn er galtómur en þú mátt samt ekki kaupa það mikið til að fylla hann, einungis eitthvað sem dugar í nokkra daga.

Því ekki nenni ég að fara að keyra með stútfullan bíl af einhverjum matvörum landshorna á milli þegar hellingur af öðru drasli verður í bílnum.

Heppin ég að hafa heldur ekki verið alveg flutt inn aftur - eftir einungis um 2 mánuði og 2 vikur þá held ég aftur af stað en að þessu sinni í annan landshluta. Þannig að þarf ekki að pakka eins mikið niður núna eins og seinast :)

Verður eflaust skrýtið að vera á gamalkunnugum slóðum, rétt hjá þar sem maður ólst upp.

föstudagur, janúar 22, 2010

Brandari ársins

Í október verður tuttugu ár síðan ég fermdist!

Ef það er ekki brandari þá veit ég ekki hvað..


Ég að verða gömul.... neiheii :)

laugardagur, janúar 16, 2010

Helvítis fokking fokk

Þannig er líðanin núna - upplifði líka í morgun alveg óstjórnanlega mikla löngun til þess að öskra á manneskjuna við hliðina á mér en þurfti virkilega að beita sjálfsstjórn.

Hún semsagt er þarna einhversstaðar - sjálfsstjórnin.

Næsta lá mér við að hágráta því mér fannst allt svo ósanngjarnt.

Já svona getur lítill svefn gert.

föstudagur, janúar 08, 2010

Ókeypis

Allt það besta í lífinu er ókeypis!

Fyrir ári síðan (minnir mig) þá var átak eða auglýsingaherferð í gangi hjá Skjá 1 sem gengu út á það að allt það besta í lífinu er ókeypis.

Þannig að rökrétt ef ég miða út frá þessum auglýsingum að skjár 1 er ekki lengur það besta í lífinu.

Uppgötvun - þvílík!

Nýtt ár

Það er víst runnið upp nýtt ár!

Er svoldið rosalegt að hugsa til þess að það eru 4 ár síðan ég fór í ferðalagið mitt - og já ég mun lifa á þessu sem eftir er ;)
Eru að verða 5 ár þegar ég flutti í íbúðina mína en hef flutt tvisvar úr henni á þessum fimm árum og þriðja skiptið núna í ár aftur - eftir að hafa bara verið nokkra mánuði í henni eða vikur er kannski betra að segja og var því heldur ekki búin að flytja allt dótið aftur í hana sem betur fer.

Árið 2009 var áhugavert og sérstaklega er ég ánægð með allt það nýja sem ég gerði á því ári - eða fór á nýja staði o.s.frv.

Nýju staðirnir sem standa upp úr eru:
Bólivía
Strandirnar (norðaverðir Vestfirðir)
Gönguleiðin Skálasnagi - Beruvík (í þjóðgarðinum Snæfellsjökli)

Framundan eru fleiri nýjir staðir og nýjar upplifanir og nýtt sem ég geri.

fimmtudagur, desember 31, 2009

Gleðilegt ár

Óska öllum lesendum gleðilegs árs og með þökk fyrir lestur og samveru á því gamla!

Gangið hægt inn um gleðinnar dyr.

fimmtudagur, desember 24, 2009

Gleðileg jól

Mjálmið hans Vargs óskar öllum lesendum nær og fjær gleðilegrar jóla og frábærs komandi árs!

laugardagur, desember 19, 2009

Upplifun

Föstudag fyrir viku síðan fór ég á sýningu sem heitir Hnykill , nema ég komst að því að þetta var ekki sýning heldur gjörningur.

Upplifun

Sviðsmynd var rosalega flott og öll umgjörðin - líka þessi upplifun.

Ég var í raun Lísa í Undralandi sem fór í ferðalag og hitti ýmsa skrautlega persónur.

Mundi hiklaust mæla með þessu en sýningar eru búnar.

sunnudagur, desember 13, 2009

Snæfellsjökull

Tekið 8.desember 2009


fimmtudagur, desember 10, 2009

Linsur

Notaði linsur í gær i fyrsta skipti síðan í maí þegar ein linsan festist í auganu á mér.

Mér til mikillar ánægju gerðist það ekki í gær, enda fór fljótlega önnur linsan úr og ég var bara með linsu í hægra auga sem ég náði út aftur.

Leynivinavikan var mjög skemmtileg og gekk vel að gleðja vin minn og hann grunaði mig alls ekki :) - ég hafði líka kolrangt fyrir mér við leynivin minn sem var að gleðja mig. Var alveg með það á hreinu að það væri karlmaður en það var það sko ekki og var hún eiginlega næstum því móðguð út í mig :) hehehe

Ryksugan mín er á einhverjum bömmer og er ekki með neinn kraft og því ekki hægt að ryksuga með henni :( - frekar fúlt þar sem jólin eru að koma og yfirleitt svona krafa hjá manni að hafa hreint þá.

jæja læt þetta duga í bili....