BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

miðvikudagur, júní 21, 2006

Sól

Sólin skín hérna á nesinu í dag :) og komst upp í tveggja stafa hitatölu í dag.

Er ekkert smá heppin að ég var ekki föst á gestastofunni - byrjaði á því að ganga Arnarstapa-Hellnar og var svo sniðug að láta hinn landvörðinn (sem ég var að keyra á gestastofuna) taka bílinn yfir á Hellnar.

Fékk svo mútur í dag - eða gæti litið svo á að það hefði verið svo. Þegar ég var að þrífa klósettin á Djúpalónssandi var maður sem kom og færði mér litla áfengisflösku!

Gleymdi síðan alveg að minnast á að það var refaskoðunarferð seinasta sunnudag sem heppnaðist svona rosa vel. Sáum tófuna koma með fugl í kjaftinum til þess að færa yrðlingunum og svo komu yrðlingarnir út að viðra sig og þeim var greinilega nákvæmlega sama um okkur. Þannig að við sátum bara í hrauninu og fylgdumst með yrðlingunum og tófunni.

þriðjudagur, júní 20, 2006

Bleh

Svo sem ekkert að frétta héðan. Fékk góða hvíld frá gestastofu og gat nýtt tíman í rakstur, gönguferðir, klósettvesen og fleira.

Framundan lítur út fyrir að verði brjálað að gera - jónsmessugangan sem er bæði á föstudags og laugardagskvöldinu. Síðan er afmæli þjóðgarðsins 28. júni, skyndihjálparnámskeið og svo byrja föstu göngurnar í næstu viku.

Sambúðin gengur enn bara fínt - það besta við hana er eldamennskan. Jamm við skiptumst á að elda. Það er svo gott að þurfa ekki sjálfur að hugsa um hvað eigi að elda og þurfa síðan að elda það.

Ég er enn að bíða eftir sumrinu sem virðist ekkert ætla að koma!

miðvikudagur, júní 14, 2006

Átök

Maður er bara í sífellum átökum við veðurguðina hér.

Í morgun reyndu þeir sitt besta til að koma mér út af veginum þegar ég var að keyra á milli.

Ég hafði betur að þessu sinni!

þriðjudagur, júní 13, 2006

Sambúð

Sambúðin gengur bara nokkuð vel - og er bara eiginlega nokkuð notalegt að hafa félagsskap svo ég tali nú ekki um að við munum skiptast á að elda sem er þvílíkur munur.

Ég er hinsvegar ekkert hrifin af þessum kulda sem er búin að vera hér - sko ekki par sátt. Í rokinu í gær þá vorum við að reyna eiga við klósettin á Djúpalónssandi, koma þeim aftur í gang. Svo líka þessi skemmtilegheit en það sprakk á jeppanum. Ég er líka þvílíkt fegin að hafa ekki verið ein þá en í sameiningu og með einu simtali til þess að komast að því hvernig hægt væri að fá varadekkið undan bílnum þá tókst að skipta um það og koma á dekkjaverkstæðið.
Þannig að næst þegar springur og ég er ein - jamm ætti að takast ;) - nema ef ég geti ekki losað um rærnar.

Yrði svo týpískt að springi síðan næst á hinum tveimur bílunum ;) bara svo maður geti fattað allt upp á nýtt aftur!

laugardagur, júní 10, 2006

Blaður

Fór suður um daginn í frí.

Megnaði að gera ýmislegt - fór í brúðkaup, innflutningspartý, hitting, saumaklúbb og hádegismat.

Finnst það nokkuð gott afrek!

Mér var hleypt áðan útaf gestastofunni til þess að fara í fuglaskoðunarferð. Var gott að komast út þrátt fyrir rigningu, áttum líka starfsfólkið góða stund að skoða fuglalífið. Fylgdumst þar með einum silfurmávi ræna sér svartsfuglseggi og gæða sér á því og svo öðru.

Sit reyndar núna blaut á gestastofunni - var ákveðið action meðan ég var í burtu í fríi og var aftur núna í morgun. Endalaust drama hérna á nesinu ;)

Er búið að ákveða næstu utanlandsferð - fer í haust! Jíbbíi

Reyndar bara stutt ferð - helgarferð.

fimmtudagur, júní 01, 2006

Rebbar

Sá tvo rebba í gærmorgun þegar ég var að keyra yfir á gestastofuna.

Annar þeirra var hvítur og ég sá hann hlaupa yfir veginn og hringa sig svo niður, ég stöðvaði bílinn til þess að fylgjast með. Hann hringaði sig niður og ábyggilega alveg sannfærður um það að ég sæi hann ekki. Í eitt augnablik hélt ég líka að þarna væri selur komin og hugsaði hver fjárinn selur væri að gera svona langt upp á landi. Andlitið var eitthvað svo selslegt.
En þegar rebbi litli uppgötvaði það að ég var að fylgjast með honum og sæi hann alveg þá tók hann til fótanna og hvarf upp í móa.

Í morgun var svo Tjaldur einn með hávaða fyrir utan gestastofuna - ég heyrði þennan hávaða og ákvað að athuga málið því þessi fuglahljóð tilheyra ekki myndbandinu sem er sífellt í gangi. Í smástund hélt ég að fuglinn væri inni svo mikil var hávaðinn í honum en þegar ég kíkti út sá ég tjaldinn vera glápa inn um rúðuna. Þetta er sennilegast sami Tjaldur og var víst hérna í fyrrasumar en hann sá spegilmynd sína í glugganum og hefur eflaust verið að reyna að gera sér til við skvísuna sem hann sá þar og skilur eflaust ekkert í því hversu þurrkuntuleg hún er við hann að svara ekki neinu.

En ojá - skítaveður og maður fegin að vera húsvörður í stað landvörður þegar svona er, ef veðrið fer ekki að batna þá hugsa ég haldi bara aftur til Ástralíu!

þriðjudagur, maí 30, 2006

Ga ga

Ég er meira húsvörður heldur en landvörður þessa dagana.

Búin að sitja á gestastofunni undanfarna daga og mun gera það áfram - að minnsta kosti þangað til aðrir landverðir koma. Er að verða pínku spennt að hitta nýju vinnufélagana.

Annars er alltaf gott að fá staðfestingu á því að maður er ekki ga ga. Málið er að úti á Gufuskálum í landvarðarbústaðinum er baðkar og ég hef farið í bað til þess að reyna hita mér (er ofsalega kalt eitthvað)nema ég get svo svarið fyrir það að vatnið í baðkarinu var gult. Þegar ég lét svo vatn í brúsa til þess að hafa með til drykkjar þá sá ég ekki betur en það var gul slikja á því líka.
Í samtali síðan við yfirmann minn þá sagðí hún akkúrat að leiðslurnar á Gufuskálum væru ryðgaðar þannig að vatnið væri gult en þyrfti að láta renna svoldið tíma.
Þannig að héðan í frá mun ég reyna fylla alla brúsa með vatni frá Hellissandi og hafa í ísskápnum - vatnið þar er mun betra :)

Annars er ég að keppast við að lesa Da Vince Code áður en ég kem í bæinn (aftur) og það verður að segjast að mér finnst þessi bók mun mun mun betri heldur en Englar og Djöful eftir sama höfund. En hér með auglýsi ég eftir einhverjum á myndina þegar ég er í bænum!

laugardagur, maí 27, 2006

Gáta

Af hverju borða ísbirnir ekki mörgæsir?

Hver kannast ekki við þessa gátu og lenda akkúrat í að pæla í því af hverju ísbirnirnir gera það ekki.

Þar sem ég var hinumegin á hnettinum akkúrat á svæðum þar sem mörgæsirnar búa þá ákvað ég að spurja hvort þessi einhver hefði heyrt þessa gátu og lent í gildrunni - neibbs svo var ekki.

Fórum því að tala um mörgæsirnar og þar sem þær hafa víst fundist alla leið í Ecuador og komumst að því að það væri þá kannski ekkert sem segði það að þær færu ekki á norðurpólinn og ísbirnirn ættu þær þar sem engin hefði fundist þar.

Þannig að niðurstaðan er sú að ísbirnir sennilegast éta mörgæsir þar sem þær finnast ekki á norðurpólnum :)

Kosningar

Í fyrsta skipti síðan ég fékk kosningarétt þá mun ég ekki kjósa.

Ég gaf mér ekki tíma í að fara og kjósa utankjörfundar áður en ég fór vestur og dauðsé eftir því núna.

Ég held að margir átti sig ekki á því hvað það er mikilvægt að hafa kosningarrétt og nota atkvæðið sitt. Jafnvel þótt þeir séu ekki pólitisk sinnaðir eða hugsandi. Það er nú ekki ýkja langt síðan konur fengu kosningarrétt á Íslandi og þar áður voru þeir valdameiri aðeins með kosningarrétt.

Konur á Nýja Sjálandi voru þær fyrstu í heiminum sem fengu kosningarrétt og það var átjanhundruð og eitthvað.

Þannig að við ættum að nýta okkur réttinn okkar til þess að kjósa!

föstudagur, maí 26, 2006

Starfið

Starfið hefur smá breyst síðan ég var hérna seinast - eitt sem er áberandi eru klósettþrif. Frá því að vera engin þegar ég var fyrsta sumarið mitt hérna í það að vera mikil - að minnsta kosti á tveimur stöðum.

Fyrir viðkvæmar sálir ekki lesa áfram!

Klósettaðstaðan á Djúpalónssandi er að ég held svoldið erfið - aðallega vegna vandamáls með vatn. Nema hvað það var búið að opna klósettin þar en svo þegar við komum ég og annar starfsmaður þá eru þau ekki að virka. Þau sturta ekki niður. Allavega ég kom þarna daginn eftir líka með lykil að klósettunum til þess að læsa þeim en þá var svo skemmtilegt að búið var að gera stykkin sín þarna sem var svo sem eðlilegt því ekki veit fólk fyrr en eftir á að ekki er hægt að sturta niður.
Þannig að ég læsi klósettunum.

Verð mér svo út um brúsa (degi seinna), sett vatn í hann og fer niður á Djúpalónssand með hann til þess að losa nú úr klósettunum þannig að ekki verði afskaplega vond fýla þar. Ég geri þetta og held svo að stað aftur eftir að vera búin að hreinsa til þarna.
Nema mér er orðið þetta mikið mál og hafði ætlað mér að komast á Hellnar til þess að fara á klósettið þar sem ekki er hægt að sturta niður á Djúpalónssandi - ég er ekki komin langt þegar ég geri mér grein fyrir því að ég muni aldrei ná. Sný við bílnum á mjóa veginum og keyri í hendingskasti og gef mér varla tíma að stoppa bílinn, hvað þá að svissa af. Hleyp inn á klósett og sest.

Ljúft - en ekki hægt að sturta niður.

Þannig að nú verð ég að setja aftur vatn í brúsa og fara með til þess að sturta í klósettið.

En mikið rosalega var ég fegin að það var enginn þarna niðurfrá :)

miðvikudagur, maí 24, 2006

hmm...

Reyndi að blogga áður en ég fór vestur en tókst ekki. Eitthvað sambandsleysi við bloggerinn.

Er semsagt komin vestur og er að stelast - er að bíða eftir hópi í gestastofunni sem virðist ekki ætla að láta sjá sig.

Hef heila 5 manna íbúð útaf fyrir mig í um tíu daga að ég held. Munur og mun svo hafa sérherbergi. Munur frá því að vera seinustu 4,5 mánuði að deila herbergi með öðrum.

Jæja læt þetta duga í bili...

sunnudagur, maí 07, 2006

New York, New York....

Naerri 3 kvikmyndum, 4 sjonvarpsthattum og einni heimildarmynd asamt litlum blundi tha var eg komin til San Francisco fra Auckland.

Spurning hvort eg hefdi att ad taka Lord of the Rings marathon a thetta thar sem allar myndirnar voru i bodi i afthreyingarefni velarinnar!

I San Francisco var eg sest ut i vel og beid thangad til vid aettum ad fara i loftid thegar tilkynnt var ad eitthvert vandamal vaeri i gangi sem thau vaeri ad leysa ur - eftir 45 minutur forum vid ur velinni til thess ad bida eftir annarri vel til thess ad fljuga med okkur til New York en sem betur fer tofdumst vid adeins um 2 klst.

Kom til New York og a hotelid um 3 leytid ad nottu en var sem betur fer sagt herbergisnumerid hja pabba og foruneyti thar sem eg bankadi sidan i von um ad thau vaeri vakandi.

Sem ad sjalfsogdu thau voru eda svona flestir ;)

Svoldid skrytid ad vera komin i felagsskap og akveda med odrum hvad eigi ad gera og annad. Svoldid vandasamara heldur en ad vera bara einn a thvaelingi :)

En jaeja hafid thid thad gott - ekki laust vid ad eg se sma threytt thar sem eg for ekki ad sofa fyrr en um sex leytid ad New York tima og vaknadi um 10 leytid eftir ad hafa verid a thvaelingi i um einn og halfan solarhring.

föstudagur, maí 05, 2006

P.s.

Er buin ad setja inn allar myndirnar fra fjorhjolaferdinni - held ad se ekki haegt ad setja inn video-in in a myndasiduna. Ef svo er tha tharf eg kennslu i thvi seinna meir.

kvedja fra Nyja Sjalandi

fimmtudagur, maí 04, 2006

Hanmer Springs

Hanmer Springs er mest thekktur og vinsaelastur fyrir Thermal pools.
Mikid af folki fra Christchurch fer thangad um helgar og stadurinn er mjog vinsaell a sumrin.

En thvilik vonbrigdi - eg for i thermal pools og sorry thetta er bara eins og sundlaug heima a Islandi. Kannski adeins fleiri heitir pottar heldur en ein venjuleg sundlaug er med heima.
Okey svo lyktadi 3 pottar af sulfur eda hveralykt kom ur theim - hef ekki fundid thad i sundlaugunum.

Svo eg kvarti adeins meira en eg var ad reyna ad sannfaera sjalfa mig um ad svona er thetta bara i Nyja Sjalandi en finnst thetta samt svo akaflega heimskulegt ad eg a ekki til ord.

Thad sem mer finnst svona heimskulegt er buningsklefarnir, thad eru buningsklefar fyrir sitthvort kynid en skapar eru fyrir utan buningsklefan. Thannig ad thu tharft ad skipta um fot og fara sidan med fotin fyrir utan til thess ad annadhvort setja thau i laestan skap sem kostar 2 dollara (aukakostnadur) eda setja thad i opid holf en enn fyrir utan. Inni i buningsklefanum er thvi heilmikid onytt plass thar sem gaeti verid skapar og svo aukaskapar fyrir utan fyrir tha sem vilja.
Sidan thegar madur kemur upp ur pottunum og saekir fotin sin tha verda thau natturulega blaut thvi madur er blautur thegar madur kemur upp ur.

Finnst thetta frekar heimskulegt - svo er maelt med ad folk fari i sturtu fyrir og eftir sundlaugaferdina. oh well svona gera Nysjalendingar thetta - finnst thetta samt heimskulegt!

En jaeja - timinn i Nyja Sjalandi er annars ad verda buin og thetta ad ollum likindum seinasta faerslan hedan og sennilegast ur ferdinni. Flyg til Auckland a morgun og thadan til San Francisco og svo til New York thar sem eg hitti pabba og foruneyti.

Veit ekki alveg hvort eg se tilbuin til thess ad koma heim!

miðvikudagur, maí 03, 2006

Fyrirsaeta

Jamm filadi mig sma eins og fyrirsaetu i dag enda heilmikid af myndum og video teknar af mer i dag.

ja og hvad var eg ad gera?

Eg for i fjorhjolaferd og mikid rosalega var gaman :) - er enn eiginlega i skyjunum. Thetta toppar algjorlega jetboatid i Queenstown.

Eg var buin ad hugsa mer ad fara kannski i River Rafting herna i Hanmer Springs ef thad vaeri odyrara en svo sa eg lika baekling um fjorhjolaferd og var svoldid tvistigandi hvort eg aetti ad gera. En se sko ekki eftir valinu.

Eg var ein i ferdinni med guidnum minum sem var kona komin a eftirlaun - hahaha hun var ekki thad gomul sko. En reiknadi ut ad hun vaeri um 45 ara og elskar hjolin.

En var eg buin ad segja ykkur hvad var gaman - forum nokkrum sinnum yfir a - reyndar alltaf tha somu a mismunandi stodum. Einu sinni komst hun ekki yfir thvi var of straumhart og eg thurfti ad draga hana upp ur. Einu sinni festi eg mig thegar eg var alveg ad koma ad bakkanum.
Keyrdum upp thessa rosalega brekku - var reyndar sma skelkud tha :) og vid thurftum ad hafa hradann sama til thess ad festast ekki en guidinn festist einu sinni en tokst ad losa sig. Eg festi mig tvisvar og hun thurfti ad koma til min ad hjalpa mer thar sem vid ruggudum hjolid til og fra svo thad mundi fa grip.

En astaedan fyrir thvi ad mer leid eins og fyrirsaetu er ad hun var med myndavel og var sifellt ad taka myndir af mer - stundum sagdi hun mer ad vera kjurr og hun myndi keyra a undan og svo aetti eg ad koma og hun mundi taka mynd/video. Thannig ad eg fae myndirnar og videoid a morgun adur en eg fer.

boy hvad thad var gaman.........

sunnudagur, apríl 30, 2006

Heppin

Ja Nyja Sjaland er ekkert svo olikt Islandi.

Madur var natturulega buin ad heyra um heitu hverina, joklana og fjollin en thad sem eg vissi ekki og kom mer skemmtilega a ovart var ad thad eru einbreidar bryr herna lika. Ad minnsta kosti a vesturstrond Sudureyjunnar tha eru heill hellingur af einbreidum brum/bryr/bru (veljid eitt af thessu - vona ad eg hafi haft eitt rett ad minnsta kosti).

En eg er buin ad vera einstaklega heppin - thvi thegar eg for til Franz Josef tha hellirigndi alla leidina og madur var var vid natturuna thar sem a morgum stodum hafdi fallid ur hlidunum og a veginn.

En daginn eftir a fimmtudaginn semsagt tha kom thetta lika fallega vedur thegar eg var buin ad akveda ad fara i gongutur ad Franz Josef joklinum og thetta goda vedur er buid ad haldast sidan.

I Queenstown tha fekk eg thetta lika fallega vedur. Thar sem baerinn er einna thekktastur fyrir sem adrenalin ithrottir/ jadarsport.
Eg er buin ad fara i jetboat - sem er semsagt batur sem var hannadur til thess ad vera i grunnu vatni og getur siglt a 10 cm grunnu vatni og hradast kemst baturinn 75 km a klst og fer i 360 grada beygjur. Var mjog gaman en ekki alveg adrenalin rush sem eg helt ad yrdi :)

Teygjustokk er alveg ut ur myndinni hja mer og eg er svona fallin fra thvi ad fara i fallhlifarstokk. Nyja Sjaland er orugglega stadurinn til thess ad fara i fallhlifarstokk en hef farid fjar hugmyndinni eftir thvi sem eg eldist. Er ad verda nokkud raunsae um ad eg mundi sennilegast ekki fast ut ur flugvelinni thegar upp er stadid.

Thad er lika haegt ad fara i river rafting og body surf. Vaeri til i ad fara i river rafting en aetla ad athuga hvort thad se kannski odyrar i Hammer Springs. Vaeri einnig til i ad profa fara i body surf en tha er madur semsagt i wetsuid (blautbuningi), med hjalm og bretti sem madur liggur a og fer nidur a. Held eg geymi thetta thangad til eg kem naest til Nyja Sjalands og kem tha ad sumri til ;)

En i gaer for eg lika i gondol - sem er cable car sem fer upp a topp a 700 m fjalli fyrir ofan Queenstown og faer madur thetta lika flotta utsyni. Tharna uppi getur madur svo farid i thad sem their kalla Luga sem er nokkurskonar farataeki. Thad er semsagt pallur med hjolum og og styri eins og er a hjolum og svo er bara ad renna nidur brekkuna. Thetta var thraelgaman og vaeri alveg til i ad fara aftur. Var samt ekki alveg ad fila skidalyftuna sem eg for i ;)

I dag for eg svo i Arrowtown - sem er baer um 25 min akstur fra Queenstown en thad er gamal gullnamubaer og hefur gotu sem er naestum bara villta vestrid. Allavega fallegur baer.

A morgun fer eg svo til Christchurc og fer framhja Mount Cook a leidinni :) og svo thridjudaginn fer eg til Hammer Springs sem er lika thermal baer og stefni a ad profa heitu hverina hja theim adur en eg fer aftur til Christchurch thar sem eg hef flug til Auckland a laugardaginn.

Jaeja krakkar - megid alveg vera dugleg ad kommenta hja mer. Synist folk vera ad missa ahugann......... eda hvad!

laugardagur, apríl 29, 2006

Er ad setja inn nyjar myndir - eda hluta af theim.

Nae ekki ad setja allt inn.

Er annars i Queenstown sem er mjog fallegur baer!

Annars a Sigga afmaeli i dag og er su 4ja i rodinni ad verda 30!

Til hamingju med afmaelid Sigga!!!!!!!!

þriðjudagur, apríl 25, 2006

Ahugavert

Thad er ekki annad haegt ad segja en ferdin i Abel Tasman thjodgardinn hafi verid ahugaverd.

Hun var ahugaverd fyrir thaer sakir t.d. ad:

Eg kom til Abel Tasman kayaks a rettum tima og komst ad thvi ad vid vaerum bara 3 i ferdinni asamt guidinum. Sem var alveg fint. Finnst bara fint ad hafa faa i ferd en thegar eg komst ad thvi ad hin tvo voru bara i dagsferd og mundu ekki gista um bord i batnum eins og eg tha runnu a mig tvaer grimur!

En oh well ekkert panikk thad hljota ad vera adrir um bord og guidinn minn hlytur ad tala mig i gegnum daginn og daginn eftir hvad eg verd ad gera o.s.frv.
En jaeja fyrir framan husid hja Abel Tasman Kayaks var batur i kerru og traktor fyrir framan, vid forum upp i batinn og fengum okkur saeti asamt odrum kayak hop og gongufolki sem var ad fa far med "watertaxi" i thjodgardinn. En jaeja traktorinn helt svo af stad og hugurinn minn for ad hugsa hvernig i anskotanum aetla thau ad koma okkur i sjoinn og vonandi innilega ad traktorinn faeri ekki ad baka sidan nidur einhvern rampa til thess ad dumpa okkur i sjoinn.

En ja eftir sma runt tha komum vid ad sjonum og traktorinn beina leid oni sjoinn. Ja hann keyrdi okkur i sjoinn - tok sma hring og let okkur flakka.
Eg hef aldrei vitad annad eins - en thetta var ekki sem kom a ovart. Thvi eins og nafnid gefur til kynna a batnum tha er hann water taxi (sjoleigubil) og var ad droppa folki ur batnum her og thar. Nema hvad thegar vid komum ad fyrsta drop out stadnum tha komst eg ad thvi ad baturinn fer eins nalaegt strondinni og hann kemst og sidan verdur folk ad hoppa ut i sjoinn og ganga rest.
Baturinn fer tiltolulega nalaegt en thu verdur samt ad vada sma adur en thu kemst ad strondinni.

Fyrir folkid sem er ad fara kayak ferdir tha er thetta minna mal thvi thu verdur hvort sem er blautur en get imyndad mer ad se adeins verra fyrir gongufolkid. Thvi thu tekur ju af ther skona og sokka svo their verdi ekki blautir en thu ert med blautar faetur thegar thu ferd i skona og sokkana nema thu ad sjalfsogdu vitir hvernig hlutirnir eru og tokst med ther litid handklaedi :)

En jaeja okkur var hent ut ad lokum og gerdum okkur klar fyrir kayakferdina - eg i Kayak med guidnum og parid saman i kayak. Var fint og ja fann fyrir sma sjoveiki tharna um morguninn :( - thad var nefnilega ekki lygnur sjor og hellirigndi a okkur.
Vid forum i land a einni strond til thess ad fa okkur hadegismat en Abel Tasman thodgardurinn er semsagt thekktur fyrir strendurnar sinar og thad tekur hver strondin vid af annari. Best til thess ad ferdast um gardinn er kayak eda taka sjotaxa og lata hann droppa ser ut og ganga tilbaka. Thad er ekki haegt ad keyra.

En well sidan kemur ahugaverdasti parturinn af thessu ollu saman - thegar eg for ad spurja guidinn minn um hvad eg yrdi ad gera a morgun - hvort eg faeri a kayak eda hvernig thetta yrdi tha var voda fatt um svor. Svarid sem eg fekk tilbaka var a tha leid ad hann spurdi mig hvad sagdi i planinu minu sem eg hafdi. Eg sagdi honum ad tha aetti eg ad ganga eftir hadegismatinn en hann virtist ekki hlusta!
En eftir hadegismat tha forum vid a kayak aftur og forum einhverra strond nedar thar sem var pikk upp stadurinn fyrir thau. Eg spurdi hvernig eg kaemist i batinn og fekk ad vita ad sjotaxinn mundi skutla mer thangad.

En engu naer var eg ad vita hvad yrid um mig daginn eftir. Eg var samt ekkert ad panikka og hugsadi med mer ad tha hlyti manneskjan a batnum ad vita eitthvad.

En neibb hun vissi ekkert - en sagdist mundi hringja i Abel Tasman kayaka morguninn eftir til thess ad athuga. En eftir ad hafa talad vid hina ferdalangana um bord i batnum (jamm eg var ekki ein) tha reiknadi eg med thvi ad eg aetti ad ganga til baka til Marihuan (upphafsstadarins). Eg ad minnsta kosti reiknadi med thvi.

Kom a daginn sidan ad eg hafdi rett fyrir mer - en eg gat i rauninni radid thvi hvort eg gekk tilbaka sem var um 3-4 klst ganga eda taeki sjotaxa thar sem var hellirigning um morguninn thegar vid voknudum.

Eg akvad ad ganga og thad voru hollensk hjon um bord sem voru ad fara ad ganga thangad lika (thau attu i raun ad ganga annad) thannig ad thau budu mer ad verda samferda sem var mjog gott.

Eg held vid hofum ekkert stoppad thessar 3 klst sem gangan tok - enda eru lappirnar a mer bunar nuna - mer er svo illt undir loppunum ad eg haltra. Baedi sandalarnir og skornir minir rennandi blautir thannig ad eg er i bandaskonum minum - voda flott utlitis.

Eg kvaddi sidan hollensku hjonin thegar vid vorum komin nidur til byggda til thess ad leita ad Abel Tasman Kayaks og fa bakpokann minn tilbaka og vita hvenaer naesta ruta faeri til Nelson sem eg kaemist i - thegar eg var buin ad vera thar i sma stund tha birtist hollenski madurinn sem eg gekk med og baud mer far til Nelson. Thau voru ad fara til Picton og mundu keyra framhja Nelson.

Eg var ekkert sma anaegd med thad og tok bodinu og akvad ad athuga hvort eg gaeti fengid endurgreitt rutufargjaldid sem eg fekk!

Eg hefdi lika thurft ad bida i klst eda meira eftir naestu rutu thannig ad thetta var mjog gott. Komst i thurr fot fyrr og svona.
Thegar eg komst lika a hostelid i Nelson tha held eg hafi nanast thvegid oll fotin sem eg var med - hef ad minnsta kosti aldrei thvegid svona mikid sidan eg byrjadi a ferdalaginu.

En jaeja i fyrramali held eg til Franz Josef thar sem eg mun sja jokull - held eg fari samt ekki i ferd upp a Franz Josef jokulinn. Laet mer naegja ad dast ad honum ur fjarlaegd.

Bid ad heilsa ur rigningarlandinu!

sunnudagur, apríl 23, 2006

Rigning

Thad rignir i Motueka.

Fekk mer gongutur i rigningunni og sa netkaffi a leidinni og akvad ad skella eins og einni faerslu inn.

Er her i Motueka eingongu vegna thess ad a morgun verd eg sott til thess ad fara i 2 daga kayak og gonguferd i Abel Tasman thjodgardinum.

Ferdin var til thess ad eg fornadi litlum stad sem heitir Takaka og mig langadi ad fara til en mun ekki gefa mer tima til thess thar sem mig langar lika ad komast til Queenstown og dvelja thar eitthvad.

I gaer var Lord of the rings dagur hja mer en fyrst for eg i ferd thar sem var synt helstu stadina i kringum Wellington thar sem their toku upp. Var alveg agaetis ferd og gott ad vid saum brot ur myndinni a ferdatolvu og svo var paelt i stadnum. Saum medal annars Rivendell, Helms Deep svo eitthvad se nefnt.

Eftir ferdina for eg svo i safnid Te Papa - sem er alveg hreint rosa gott safn og kostar lika ekki neitt. En thar er syning i gangi sem heitir Lord of the rings exhibition og thad kostar reyndar inn thar. Eg for semsagt a tha syningu og var hatt i 3 klst bara thar. Var rosalegt ad sja buningana, their voru svo flottir. Svo sa eg Boromir i batnum sem hann var settur i eftir ad hann do - brudan sem var gerd er ekkert sma raunveruleg - thad er i raun hendurnar sem koma upp um ad thetta se ekki lifandi mannvera en Va.

Eitt sem mer finnst alveg stormekilegt og aetla ad segja ykkur fra en thad er um innfaedda her og i Astraliu.

I Astraliu eru thad Aborginal og i Nyja Sjalandi er thad Maoar. Thetta er semsagt their sem voru fyrir adur en Evropubuar settust ad.

Thad sem mer finnst svona merkilegt er munurinn a milli thessara tveggja landa og innfaeddu.
Her i Nyja Sjalandi tha hafa their blandast mikid meira inn og eru hluti af thjodfelaginu og thad eru margir stadir sem heita nofnum fra theim innfaeddu. Their fengu lika kosningarett snemma og hafa verid mikid meira inn i ollu sem kemur vid Nyja Sjalandi. Their eru stoltir af sinum uppruna og eru ad halda i sina hefdir og venjur svo thad deyji ekki ut og restin af Nyja Sjalandi sem eru ekki afkomendur Maoa virdast lika vera stolt og halda i thetta.

I Astraliu er allt onnur saga og thratt fyrir ad baedi londin hafa verid undir Breskri stjorn.
En i Astraliu tha var thad ekki fyrr en 1967 sem Aborginales voru bara yfirhofud taldar vera mannverur. Fyrir thann tima ad ef thu skyldir hafa drepid Aborginal tha var thad ekki mord thvi thu varst ekki ad drepa manneskju!

Ju nuna er komid upp sofn og adrar minningar og sagt fra stodum og hefdum og menningu Aborginales. En thad er eitthvad meira ad mer finnst yfirbordslegt. Thad hefur hingad til alltaf verid hviti madurinn sem hefur sagt sogurnar. Einnig virdist sem thetta se tvo thjodfelog - Aborginaels og hviti madurinn. Theim hefur ekki tekist ad blandast svona vel saman eins og i Nyja Sjalandi.
Yfirleitt thegar madur sa sidan Aborginales tha var thad a neikvaedu notunum :( - semsagt i hopum i gordun eda einhversstadar a gotu uti og ja halfgerdir ronar. Held ad atvinnuleysi se hatt medal theirra og thad gaeti lika verid meira hvita manninum ad kenna an thess ad eg viti thad med vissu!

Las reyndar lika einhvern timan i skolanum um Aborginales i Astraliu ad sykurinn fari illa med thau og thau tholi thess vegna verr afengi og lika hinn vestraena mat!
Nyverid er lika byrjad ad kenna theirra mal i skolum fyrir Aborginales.

Finnst alveg stormerkilegt ad se svona mikil munur milli thessara tveggja landa og serstaklega i ljosi thess ad Bretar voru yfir badum londunum!

Kvedja ur rigningunni!

by the way - flispeysan for aftur i bakpokann daginn eftir ad eg tok hana upp og hefur ekki verid tekin upp sidan!

fimmtudagur, apríl 20, 2006

Lord of the rings

Sa Mount Doom i dag (sem var i Lord of the rings) - tok mynd af thvi lika. Tha er stadsett i elsta thjodgardi i Nyja Sjalandi. Man ekki hvad fjallid heitir thau i raun og veru.

Er i Wellington - thad er bodid upp a ferd til thess ad sja stadi thar sem Lord of the rings var tekin ad hluta upp og King Kong. Langar sma en veit ekki hvort eg aetti ad fara.

Held mer liki bara vel vid Wellington - er ad spa i ad vera 3 naetur i stadinn fyrir 2 en thad minnkar timan a Sudureyjunni og gaeti sed eftir thvi seinna. En akvordun tekin a morgun.