Yndislegt veður
Í dag var yndislegt veður alveg hreint!
Spurning hvort ég sé að verða að bílstjórasætisljósmyndara.... en var að taka mynd af kistunni á Bárðarkistu - fannst hún koma eitthvað svo skemmtilega út þarna!
mánudagur, september 28, 2009
sunnudagur, september 27, 2009
Skömm
Ég hef farið núna tvisvar í Hagkaup í Skeifunni að kvöldi til... er ekki stolt af mér yfir því. Ætlaði mér sko ekki að fara.
En að öðru.... held að veturinn sé kominn hingað á Snæfellsnesið, sandölum þarf að leggja og heppin ég er komin með létta gönguskó.
Hef líka komist að því að það er erfitt að búa í tveimur íbúðum sérstaklega þó ísskápslega séð. Í öðrum skemmist maturinn (svo sem ekkert mjög nýtt í þeim málum) og hinn tómur, spurning hvort ég fari að ferðast með mat með mér, fái mér kælibox sem er bara í bílnum!
Sá loksins Harry Potter - vá hvað ég var greinilega ekki alveg að muna eftir bókinni eða hún er breytt og svo fannst mér þessi mynd allt öðru vísi heldur en hinar myndirnar - tökulega séð. Svo dökk og dimm eitthvað. Fyndið líka að sjá þessa krakka þroskast og vera orðin næstum fullorðin -sjæs. En já komin með plan um að lesa bækurnar aftur!
Keyrði vestur í sveitasæluna í gærkvöldi og fór yfir Fróðárheiði í snjó og smá hríð. Hressandi.
Jæja látum þessu blaðri búið í bili enda líka mikið blaður.......
þriðjudagur, september 22, 2009
Klikkaða kellan
Stundum líður mér eins og ég sé klikkaða kellan....sérstaklega þegar ég hlæ og hlæ yfir einhverju fyndnu í sjónvarpinu, tölvunni eða einhverju.
Lít í kringum mig og fatta síðan að enginn heyrir í mér, enginn sér mig.
Ég get verið eins klikkuð og ég vil ;)
Því það er þónokkuð langt í þessa einu fjölskyldu sem býr hér... ekki alveg km en svona næstum því og svo 3 km í næsta þéttbýli.
So varið ykkur á klikkuðu kellunni......... :)
hún hlær!
sunnudagur, september 20, 2009
Miðdegisverður
Enn er ég ákaflega lunkin við það að bjóða mér í mat á þessum og hinum stöðum.
Mér til varnar að þessu sinni er að ekki grunaði mig að ég mundi lenda í lambalæri og öðrum fínheitum um þrjúleytið að degi til þótt ég mundi kíkja í heimsókn.
En algjör snilld - þurfti því ekki kvöldmat og leiðin heim þá var ég södd og sæl - alla þessar 3 klst :)
Föstudagskvöldinu var eytt í æfingar á myndavélina mína og jókst skilningur til muna. Núna er því bara að halda þessu við og læra meira :) - vona þó að myndafélaginn sé ekki orðinn veikur eftir þetta útstáelsi.
Myndir teknar voru um 181 - og komst ég einnig að því að mig sárvantar þrífót. Algjör nauðsyn.
En já er aftur komin í sveitina og viðtekur klósettþríf, eftirlit og skrifstofuvinna - skemmtileg fjölbreytni :)
fimmtudagur, september 17, 2009
Lærdómur
Alltaf er maður að læra og komast að einhverju.
Seinustu helgi lærði ég það til dæmis að ég eigi að draga út svefnsófann heima hjá mér í stað þess að reyna að sofa í "sófanum" bara - eftir að hafa vaknað í hvert skipti til þess að snúa mér við þá ákvað ég klukkan fjögur um nótt að draga út svefnsófann. Eftir það gat ég snúið mér að vild.
Ég þyrfti að komast á annað ljósmyndanámskeið - eða að myndavélin eigi að gera eins og hún á að gera. En sennilegast bara vanþekking mín ;)
Lærði svo líka eilitið um Jungle Speed frá alþjóðlegum hópi núna. Frakkar og Ítalar gátu kennt mér ýmislegt sem held að hafi ekki verið notað þegar ég hef spilað þetta spil áður. Fékk sem betur fer að vera stikkfrí frá mistökunum - þ.e.a.s. að þurfa ekki að drekka vodka þegar ég gerði mistök en þau urðu svo sem ekki mörg.
miðvikudagur, september 09, 2009
Flug
Fékk póst í dag þar sem mér var sagt að búið væri að aflýsa fluginu frá London til Rvk/Keflavík :(
Þetta þýðir auka nótt í London - ætlaði mér að fara beint úr fluginu frá Bólivíu til Íslands... en neibbs, verður ekkert að því.
Hef svo sem ekkert á móti auka nótt en held ég verði bara of þreytt eftir flugið til þess að geta notið London og þess utan er gisting svo skrambi dýr þarna.
Hef hugleitt að eyða bara nóttinni á flugvellinum, gæti geymt farangurinn minn í geymslu í London og farið svo á flugvöllinn um kvöldið og verði þar nóttina....... en nenni því ekki.
Langar ekki alveg að vera meðvitundarlaus þegar ég kem heim aftur ;)
laugardagur, september 05, 2009
Tilkynning og spurning
Búin að setja inn helling af myndum í myndaalbúmið mitt.
Júlí, ágúst, september ásamt ferðinni á Vestfirði (reyndar mest "vinnumyndir" þar).
En hef heyrt hjá nokkrum að þau hafi ekki getað kommentað í kommentkerfið eða lent í erfiðleikum.
Er búin að vera að skoða allt hjá blogger og sé ekkert blokkerað eða neitt.
En eru fleiri að lenda í þessu - mega alveg láta mig vita svo ég viti af því, annað hvort með því að gera tilraun og setja í kommentkerfið eða senda mér tölvupóst. Svo að sjálfsögðu má alltaf hringja í mig :)
Góða helgi
föstudagur, september 04, 2009
Gestastofa
Búin að taka nokkrar vaktir á gestastofunni undanfarið og ávallt þegar ferðalangar koma þangað inn stari ég þvílikt á myndavélarnar þeirra og reyni að sjá hvaða tegund af myndavélum þau eru með.
Held að flestir séu með Nikon, hef einungis séð eina með olympus vél, mjög gamla og var ábyggilega filmuvél :)
En það sem mér finnst alveg frábært við vélina mína er að þegar ég tek sjálfsmyndir þá kemur umhverfið með það er að segja ég fylli ekki upp myndefnið hehe heldur kemur umhverfið með inn í.... það er frábært þannig að ég ætti að geta tekið fullt af sjálfsmyndum úti í Bolivíu og umhverfinu - jíbbíi
Talandi um Bolivíu þá er ég loksins búin að bóka flug.
Var í Reykjavík í gær og fór í íbúðina mína og faðmaði hana að mér.
Mikið rosalega var gott að koma þar inn :) - gekk svo um Laugardalinn og fékk mér að borða á Kaffi Flóru.
Yndislegt!
miðvikudagur, september 02, 2009
Þetta og hitt
Fór í bæinn (Rvk) um daginn og fékk að gista hjá systur minni.
Svona voru móttökurnar sem ég fékk :)
Þennan dag sem ég fór suður þá var brjálað veður eða mjög hvasst.
Svo hvasst að rúða brotnaði á gestastofunni og bíll fauk útaf.
fimmtudagur, ágúst 27, 2009
Myndavél
Keypti mér flotta myndavél á þriðjudaginn :) - mjög lukkuleg með hana. Búin að prófa að taka sjálfsmynd og ég er með opin augu - þannig að hlýtur að vera hin fínasta vél.
Hérna er fyrsta myndin úr henni!
Mjög óspennandi mynd :)
Í dag eftir vinnu þá lá ég í sófanum hálf dottandi þegar ég heyrði eitthvað hljóð, opnaði augun og leit framm í eldhús (úr sófanum) - sá ég þá ekki eitthvað skjótast úr matarkörfunni og inn í geymslu.
Beið ég átektar og sá síðan mús koma og klifra upp í grindina - í matinn hans Hákons. Ég spratt úr sófanum, upp í herbergi....... að sækja myndavélina :)
Settist svo aftur í sófann og beið, tilbúin til þess að skjóta.
Ekki birtist músin aftur.
Þegar Hákon kom heim fórum við að ræða aðgerðina mús úr húsi. En fórum einmitt í eina slíka aðgerð á seinasta ári.
Vandamálið enn og aftur að við vorum ekki með neitt stígvél - eins og allir vita er það nauðsynlegt í músaveiðum. Við nenntum ekki strax í aðgerðina og borðuðum því fyrst, við frágang eftir matinn fór Hákon inn í geymslu og tók eftir músinni í einum af "endurvinnslu" kassanum. Kassinn því tekinn og settur út.
Músin frjáls og á lífi - ólíkt því sem var á seinasta ári.
Músin í kassanum.
Svo hljóp músin út í haga... á þvílíkum hraða
sunnudagur, ágúst 23, 2009
laugardagur, ágúst 22, 2009
Söfn
Í sumar hef ég farið á þónokkur söfn og bættist enn eitt safnið við þegar ég fór til Ísafjarðar um daginn. En við komum við á Eiríksstöðum.
Verð að segja ða það var alveg brilliant og mikið sem ég dáðist að "safnafólkinu" - það tekur á móti fólki og segir frá. Virðist ekki vera neinar ákveðnar tímasetningar heldur kemur fólk inn og þau byrja að segja frá og svo kemur næsti og þau byrja aftur...
Er ábyggilega þvílíkt álag - þau voru líka svo flott þar sem þau voru í vikingafötum :)
###
Er búin að vera að skoða flug til Bolivíu... mikið svakalega er það dýrt!
Svo langaði mig líka að "koma við" í Guatemala áður en ég færi á ráðstefnuna en það kostar svo mikið auka að ég veit ekki barasta ekki hvað ég á að gera.
En annars er sennilegast að fæðast plan um hvað ég geri eftir ráðstefnu en vil samt hafa það opið ef eitthvað óvænt kæmi nú hendurnar... eitthvað spennandi :) eins og þjóðgarðsheimsókn eða eitthvað!
En Amazon heillar....
miðvikudagur, ágúst 19, 2009
Hellissandur-Rvk-Hellissandur-Ísafjörður-Hellissandur
Öll þessi leið á aðeins þremur dögum: Hellissandur-Rvk-Hellissandur-Ísafjörður-Hellissandur
Eða í raun tveimur og hálfum dögum.
Já var þreytt þegar helgin kom loks í seinustu viku.
Mánudagskvöld eru vinsæl til að halda grillveislu og búin að skella mér aftur í sjóinn.
Átti undarlegt samtal í búðinni í gær - eða í fyrstu var maður sem ruglaði á mér og einhverjum öðrum. Skil ekki hvernig - ég er einstök :)
hahaha
en já lífið er ljúft, búin að vera í klósettmálum og smá útiveru í vinnunni.
þriðjudagur, ágúst 11, 2009
Sjósund
Ég er í tískunni.
Ótrúlegt en satt!
Ég og tveir aðrir strand/landverðir skelltum okkur í sjóinn um kvöldmatarleytið.
Var ekki mikið um sund þar sem var líka svo mikið um öldur og því meira um busl í öldunum.
Gríðarlega hressandi og kom mér á óvart að hafa skellt mér - kuldaskræfan mikla.
Hákon var búin að nefna þetta við mig nokkrum sinnum hvort við ættum nú ekki að fara í Skarðsvík og í sjóinn - sagði alltaf bara jájá. Handviss um að yrði ekkert af þessu eða ég mundi guggna.
En eru til meira segja myndir af þessu á facebook.
Og nei þær munu ekki koma á bloggið :)
sunnudagur, ágúst 09, 2009
Bíll
Langar í bíl eða allavega smá löngun farin að gera vart við sig að langa í bil.
Kom allt eftir seinustu helgi í ferðinni á strandirnar.
Fer samt í salt og þarf að skoða möguleikann hvort sé kannski bara hentugra að leigja bíl nokkra daga á ári í stað þess að eiga bíl allt árið :)
mánudagur, ágúst 03, 2009
Strandirnar
Var að koma "heim" úr góðri ferð á Strandirnar í góðum félagsskap :)
Fór loks á galdrasafnið á Ströndum, kíkti á Kotbýli Kuklarans þar sem ég ætlaði varla að þora inn. Svo hrædd um að eitthvað mundi bregða mér þar... Sögusafnið í síldarverksmiðjuna í Djúpavík var hreint út sagt frábær, frábær tímasetning hjá mér í Krossneslaugina og ljúft að vera þar - dauðlangar aftur þangað og þá að kvöldi til og jafnvel heiðríkt :)
Vegurinn í Ófeigsfjörð áhugaverður með meiru, mikil þoka og svo steinn í veginum á heimleið.
Hefði ég þorað að stoppa þá hefði ég tekið mynd af steininum sem var á veginum en þar sem ég var svo hrædd um að fleiri kæmu ákvað ég að forða mér hið fyrsta frá steinar hrynja svæðinu og hringja í lögguna til þess að láta vita :) - Þurfti reyndar fyrst að stoppa og kíkja í kort til þess að átta mig á hvar steinninn væri ;)
En sjáið bara myndir - munu koma fleiri myndir í albúmið.
Áltafjörður ber nafn með réttu
Kotbýli kuklarans
Steinn í veginum - við Kaldbakshorn hafði hrunið úr hlíðinni og á veginn
Veiðileysa
Djúpavík
Skítugur bíll
Ljósmyndasýning
Ein í Krossaneslauginni með þetta flotta útsýni
Vegurinn í Ófeigsfjörð