Útsýni
Mikið er ég fegin að draumurinn sem mig dreymdi fyrir tveimur nóttum síðan rættist ekki. Í þeim draumi dreymdi mig að nýja aðstaða mín í vinnunni væri í kompu, sæti við gamalt eldhúsborð og í hræðilegum stól.
Þess í stað hef ég fína skrifstofu með frábæru útsýni - enda líka á fjórðu hæð og útsýni að Esju. Skrifborð og skrifstofustól.
miðvikudagur, júní 18, 2008
Birt af Linda Björk kl. 19:52
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 Mjálm:
og hvernig var ??
og hvernig er dresskótið ?? ;)
Til hamingju með nýja starfið
Dresskótið er auðvita teinótt dragt með þröngu stuttu pilsi, alveg satt ég er búin að heimsækja hana á skrifstofuna. Hún er voða fín og þorir lítið að hreyfa sig svo hún detti ekki á hælaskónum bara svona rétt á meðan hún er að venjast því að ganga á þeim ;)
kv. Ásta D
já hælarnir eru sérstaklega slæmir og halda balance á þeim. Hrikalegt enda dauðöfundaði ég þig af þínum fínum sandölum í dag.
hey ertu komin með einkaskrifstofu? :) Nú getum við farið saman að versla vinnuföt :) þegar maður er komin í svona fína vinnu hjá umhverfisráðaneitinu verður maður að eiga ákv. tegund af fötum :)
er ekki alveg komin í ráðuneytið en á stofnun undir ráðuneytinu ;) - sem betur fer er nokkuð frjálslegur klæðaburður en þarf samt eitthvað að fata mig upp ;) þannig að er alveg til í að fara...
Skrifa ummæli