Jákvæðis blogg fyrir Skottu
Var einn vinnufélagi sem var að kvarta yfir því að bloggið mitt væri búið að vera svo neikvætt!
Bara benda á að fyrir tveimur póstum síðan sagði ég mjög góðar fréttir frá vinkonu minni! :-)
*Allavega það sem er jákvætt í dag er að ég hitti vinkonur mínar í kvöld... alltaf jákvætt að hitta þær!
*Var á vakt á Placebo í gær með ágætisfólki og hitti stelpu sem var með mér í HÍ og vorum við töluvert saman og hún sagði mér stórmerkilegar fréttir og óska ég henni innilega til hamingju með allt saman :-)
*Svaf ekki í allt gærkveldi!
*Mun hitta tvo góða vini annað kvöld í ísferð og hugsanlega vonandi í bíó!
Ansans klikkaði á að skrifa að Árni átti afmæli 6. júlí og óska ég honum hins besta.
Nóg af jákvæðni í dag!
Linda með jákvæðis blogg
fimmtudagur, júlí 08, 2004
Birt af Linda Björk kl. 12:36
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
0 Mjálm:
Skrifa ummæli