BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

laugardagur, apríl 20, 2002

Ótrúlegt!

Það er til eitthvað sem sem segir hvaða smokkur þú ert :) það sem fólk býr til og það sem ég tek þátt í. Allavega þá er ég þessi smokkur



What Condom Are You?


Partý Partý Partý!

Það var partý hjá landafræðinni í gær hjá henni Gunnþóru í Garðabænum. Það má eiginlega þakka fyrir það að við vorum í einbýlishúsi en ekki til dæmis á stúdentagörðunum. Þetta var mjög gaman og sá maður svona nokkrar nýjar hliðar á samnemendum sínum, hef ekkert verið of dugleg við að djamma með þeim né heldur farið á árshátiðir. Það hefur heldur ekki verið oft að ég held bekkjarpartý. Það var haldið síðan í bæinn eitthvað eftir tvö og að ég held stefndu flestir á Nasa en ég hélt heim og við Ingibjörg skiluðum bílnum hans Gunna heilum á höldnu á bílaplanið á Stúdentagörðunum.

Gangið hægt um gleðinnar dyr!

0 Mjálm: