Hjólið mitt
Komið með hjólið mitt heim - jeii
Svo er gott að hjóla á því - ok á eftir að fara í langan hjólatúr en smá rúntur í innkeyrslunni sannfærði mig um ágætið.
Liturinn er alveg fínn þótt hann sé mjög óræðin.
Hvaða litur telur þú þetta vera?
Um daginn rakst ég á kónguló á baðherberginu mínu - risakónguló.
Þá var ég fegin að vera ekki í Ástralíu því ég hefði ekki viljað rekast á þessa á baðherbergi þar....
fimmtudagur, júlí 24, 2008
Birt af Linda Björk kl. 17:28
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 Mjálm:
það er ekkert um að villast hjólið þitt er baby blátt SORRY...........
kveðja Bella
haha
eftir hjólatúrinn áðan þá komst ég að því að liturinn á hjólinu er væminn.
Fýla ekki væmna liti en þetta venst og er ekki svo slæmt. En er æði að hjóla á því ;)
Hæ ti hamingju með farskjóttann... blámann eða hvað hann nú verður kallaður. Og til hamingju með að vera kominn með gæludýr ég ætla rétt að vona að þú hafir ekki drepið þessa elsku !
kv. Ásta landvörður
að sjálfsögðu drap ég hana ekki - en hún var ansi fljót að hlaupa. En út fyrir fór hún ;)
Smekklegur litur!!! Ég held að það eigi eftir að finna upp nafn á hann. Hafðir þú úr mörgum litum að velja?
neibbs - eini liturinn sem til var þannig að ég hafði úr engu að velja :( svona er að koma seint (vesen að vera veik!) því nærri öll hjólin voru farin sem komu inn vikuna á undan. Vildi ekki bíða eftir næstu sendingu eða fara á stúfana aftur að athuga með hjól
Skrifa ummæli