Spelka
Er með rosa spelku á löngutöng hægri handar - er frekar ljót, stór og hugsa ég gagnslaus. Jamm það réttist ekkert úr puttanum eftir að hann klemmdist og sinin er sennilegast farin í sundur að sögn læknis á árbænum. Ég fer hinsvegar á endurkomudeild á þriðjudaginn - læknirinn vildi frekar að þeir mundu sjá um þetta þar sem ég hef heldur engan heimilislækni. Þannig að ég fæ að fara í frekari læknisheimsókn - jeiijeii.
Það var gerð nánast dauðaleit að fingurspelku áðan upp í heilsugæslu svo þeir gætu gert eitthvað bráðabirgðarspelku. Held ég hafi frekar viljað að hún hefði ekki fundist ;-) Annars býst ég fastlega við því að ég muni ekki nota hana um helgina og morgun því ég þarf að vera dugleg!
Linda að hlaupa milli vinnustaða
fimmtudagur, janúar 06, 2005
Birt af Linda Björk kl. 16:57
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
0 Mjálm:
Skrifa ummæli