Snilld
Margt snilldarlegt búið að gerast seinustu daga.
Fór til Péturs frænda í gær sem hjálpaði mér við kortið mitt, mér líst vel á það og vona bara að gagnrýnandinn segi það sama. Var snilldarlegt hjá mér að fara til Péturs því þar fékk ég að borða hjá Erlu frænku, mamma hringdi reyndar á meðan og var sagt að ég hefði verið vælandi fyrir utan um mat ;-)
Saumaklúbburinn var á fimmtudaginn þar sem við fengum racklett - var snilld líka. Stoppaði mjög stutt þar sem ég skellti mér á námskeið um menningarheim Araba, Guðmunda vinkona var snilld og gaf mér þetta námskeið fyrir þessa 3 áfanga á næstunni hjá mér. Eins gott að standast þá alla hehehe.
jæja ætla svo snilldarlega að skella mér í næsta verkefni og gera það snilldarlega!
Linda snilld
p.s. þeir sem ekki tóku eftir því var snilld þema dagsins!
laugardagur, janúar 22, 2005
Birt af Linda Björk kl. 15:20
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
0 Mjálm:
Skrifa ummæli