2005
Nýtt ár gengið í garð og aldrei þessu vant hlakka ég mjög mikil til nýs árs. Yfirleitt á áramótum kvíður mér fyrir að árið sem er að líða sé að líða. Vil oft halda aðeins í það en ekki í þetta skiptið.
Núna er ég að stefna á ákveðin hlut - láta ákveðin draum hjá mér rætast og ég ætla að reyna gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að geta gert þetta. Ég er samt með stóran hnút í maganum yfir því að þetta takist ekki og þetta sé frekar óraunhæft hjá mér. Þannig að ef þessi draumur minn verður ekki að veruleika þá mun það jafnframt verða mestu vonbrigði ársins 2005.
Linda bjartsýn á nýju ári
sunnudagur, janúar 02, 2005
Birt af Linda Björk kl. 14:19
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
0 Mjálm:
Skrifa ummæli