BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

fimmtudagur, febrúar 27, 2014

Sögulegt

Keypti mér mitt fyrsta sjónvarp í gær!

miðvikudagur, febrúar 26, 2014

Fallegur morgun



þriðjudagur, febrúar 25, 2014

Myndarskapur


Eldaði lasagna í kvöldmat. Er svo búin að setja í 2 box sem fara í frysti. Svo er afgangurinn í hádeginu á morgun.

laugardagur, febrúar 01, 2014

Eitt fjall á mánuði

Ákvað að taka þátt í verkefninu hjá Ferðafélaginu - Eitt fjall á mánuði - léttara.

Fyrsta gangan var 11. janúar en hinsvegar fór ég ekki þá því ég var ekki alveg búin að ákveða mig hvort ég myndi taka þátt og hvort ég hefði tök á því.

Í dag var hinsvegar fyrsta gangan mín, önnur ganga verkefnisins, og var gengið á Blákoll í Svínahrauni. Þegar við hittumst fyrir utan hús FÍ í morgun var hið besta veður - logn og bara flott veður. Hinsvegar breyttist það þegar komið var í Litlu Kaffistofuna - rok. En við heldum af stað - 65 manns og einn hættulegasti parturinn var að fara yfir Suðurlandsveginn.

Gangan var hinsvegar frábær og náðum að vera í logni og smá vari þegar við borðuðum nestið okkar en seinasti parturinn upp á toppinn var hvasst - mjög hvasst. Þegar á toppinn var komið var varla stætt. Náði þó að taka nokkrar myndir og fararstjórinn að segja okkur hitt og þetta. Svo var haldið tilbaka.

En mikið hrikalega var hressandi og gaman að bæði að ganga svona að vetrartíma þrátt fyrir að sé erfiðara og gaman að takast á við veðrið. Eina skiptið sem mér var kalt var þegar ég settist í snjóinn til að borða nestið.

En það verður hinsvegar að viðurkennast að ég er búin að vera frekar dösuð eftir að ég kom heim. Hlakka þó heilmikið til næstu ferðar eftir mánuð :-)

Hressandi



mánudagur, janúar 27, 2014

2013

Þá er komið að gera upp 2013 þótt fyrr hefði verið :)

En já árið byrjaði svo sannarlega vel eða í Guatemala og byrjaði því á að vera á nýjum stað og gera eitthvað nýtt sem er stefnan hjá mér að gera á hverju ári - það er að segja eitthvað nýtt. Hvort sem það er staður sem ég fer á eða eitthvað annað.

Fyrstu fjórir mánuðir ársins voru í útlöndum á nýjum stöðum að upplifa fullt af nýjum hlutum.

Ný lönd 2013
**Guatemala
*Belis
*El Salvador
*Honduras
*Nicaragua
*Costa Rica
*Panama
*Kanada

**Guatemala var kannski ekki alveg nýtt land 2013 þar sem ég kom þangað í desember 2012 en hinsvegar nýtt að upplifa áramót þar ásamt því að ég ferðaðist síðan um landið en hafði gert lítið af því í desember :)

Þetta var því líka mögnuð byrjun á árínu en upplifði það líka að verða ofboðslega þreytt á því að ferðast. Þannig að fyrir vikið stoppaði ég lengi í Panama borg til þess að bæði átta mig á hvað ég vildi gera og hvert ég ætti að fara. Ákvörðun svo tekin eftir 18 daga í Panama borg að halda til Kanada.

Því miður fór ég í engar göngur á árinu 2013 og því engar nýjar gönguleiðir gengnar - tel ekki með útivistarsvæðið fyrir ofan Egilsstaði með.

En fór á nokkra nýja staði innanlands líka sem ég hafði ekki komið á áður - allt í sömu ferð, ja nema einn.

Nýjir staðir innanlands
*Laugarvalladalur
*Sænautasel
*Skessukatlar
**Kverkfjöll og nágrenni

**Var að rugla smá með gönguleiðir en gekk upp Virkisfell við Sigurðarskála í Kverkfjöllum, gekk frá jökli og inn að skála. Ég hafði komið áður í Kverkfjöll fyrir löngu síðan en ekkert stoppað en í haust bauðst mér tækifæri til þess að vera eina helgi - seinustu helgina sem var opið í Kverkfjöllum og var að ganga frá. Það var magnað.

Einnig prófaði ég örnámskeið í salsa í nóvember sem var stórskemmtilegt.

Þannig að nú er bara að finna nýja staði, gönguleiðir og nýja hluti til að gera árið 2014

laugardagur, janúar 11, 2014

Göngutúr



þriðjudagur, desember 31, 2013

Seinasti dagur ársins

Þá er bara seinasti dagur ársins komin en árið 2013 hófst í Guatemala.


Mjálmið hans Vargs óskar þér og þínum Gleðilegs nýs árs!

þriðjudagur, desember 24, 2013

Gleðileg jól


Gleðileg jól
og 
farsælt komandi ár.


laugardagur, desember 07, 2013

Mál og menning



miðvikudagur, desember 04, 2013

Orð

Var að fatta það að ég hef ekki skrifað neitt hérna inn frá því að ég kom heim í apríl. Hef bara birt myndir, jú með smá texta en ekkert meir.

En stefni á að breyta því og á næstum dögum ætla ég að gera samantekt um sex mánaða ævintýrið mitt :)  - var að lesa gamlar færslur eða frá ferðinni og sá þvílíkar villur. Innsláttavillur og fleira ásamt því hvað þetta var oft samhengislaust - eingöngu greinilega fyrir mig ;-)

En mun taka saman samantekt fljótlega um ferðina.

sunnudagur, nóvember 24, 2013

Náttborðin


Komin heim. Enn að ákveða hvort verði náttborð eða kannski í stofunni.

Laufabrauð


Sá tími ársins.

laugardagur, nóvember 23, 2013

Helmingur


Búið að bæsa aðra hin eftir og lakka

Búið að pússa



Búið að pússa



föstudagur, nóvember 22, 2013

Systurdottirin


Flott á tónleikum.

Allt að koma


Mjakast hægt og rólega.

þriðjudagur, nóvember 19, 2013

Lakkleysir



Pússa