fimmtudagur, ágúst 18, 2011
þriðjudagur, ágúst 16, 2011
laugardagur, ágúst 13, 2011
fimmtudagur, júlí 21, 2011
Snæfell
Var í afleysingum í Snæfelli tvo daga.
Var mjög fínt að komast úr hinu venjulega umhverfi og prófa eitthvað nýtt :) og ekki síður að vita hvað bíður mín þegar ég fer aftur í ágúst að leysa af.
Kom á sunnudagskvöldinu og var þoka og súld, svona frekar hráslagalegt, einnig á mánudeginum. En það birti svo til á mánudagskvöldið og fengum við þetta himneska veður og frábæra útsýni.
Snæfell sýndi sig og
ekki verra að við sáum glitta í topp Herðubreiðar sem glóaði svo fallega um kvöldið.
Á þriðjudeginum hélt góða veðrið áfram og við fórum í smá könnunarleiðangur. Einnig er þrælgaman að tala við yfirmanninn eins og sjá má.
Sáum yfir Eyjabakka og Eyjabakkajökul.
Fór síðan niður aftur á þriðjudagskvöldinu eftir kvöldmat í smá þokubakka á heiðinni. Það var ekki einungis nýtt svæði sem ég var á í landvörslu heldur einnig prófaði ég hafragraut fyrsta skipti á ævinni á mánudagsmorgninum!
Ekki var hann alslæmur þannig að fékk mér aftur á þriðjudeginum. Spurning hvort þetta verði þá ekki bara þegar ég er uppfrá!
miðvikudagur, júlí 06, 2011
sunnudagur, júní 19, 2011
laugardagur, júní 11, 2011
föstudagur, júní 10, 2011
fimmtudagur, júní 09, 2011
sunnudagur, júní 05, 2011
laugardagur, júní 04, 2011
mánudagur, maí 30, 2011
þriðjudagur, maí 24, 2011
Stúdentsafmæli
Ég á 15 ára stúdentsafmæli í dag!
Til hamingju ég :)
Hópurinn sem útskrifaðist á sama tíma í dag var einhvern veginn aldrei samheldur - eða allavega tilfinningin mín, getur svo sem verið að ég hafi verið "outsider" en útskriftarbókin sem var hefð að kæmi út kom ekki út. Minnsta kosti er ég ekki með eintak. Ég er einungis í facebook "sambandi" við eina úr hópnum sem ég í raun var ekki í tengslum í menntaskóla. Það var ekki fyrr en í háskólanum þegar við byrjuðum á sama tíma í sama námi.
Að þessu sögðu þá er búið að stofna facebook hóp (já aftur að facebook) fyrir hópinn sem útskrifaðist fyrir 15 árum og stefnt að reunion í haust.
Ótrúlegt.
sunnudagur, maí 08, 2011
Fyrsta ganga sumarsins
Þá er fyrstu göngu sumarsins lokið og það á stuttermabolnum.
Þvílík blíða - en gengið var á Búrfell í Heiðmörk eða Reykjanesfólkvangi. Ekki alveg viss á því. En félagsskapurinn var góður ásamt veðrinu.
















