BLOGGER TEMPLATES - TWITTER BACKGROUNDS »

föstudagur, september 23, 2011

Steinasafn Petru


Tókst að fara á steinasafn Petru og mátti ekki tæpara standa. Jeii

fimmtudagur, september 22, 2011

Brottför

Styttist í veru mína hérna á Austurlandinu og í raun verður nokkrum dögum styttri en áætlað var. Fékk nefnilega tölvupóst í gær sem ég hef beðið lengi eftir sem þýðir það að ég þarf að vera í Reykjavík á miðvikudaginn næsta.

Ég þarf semsagt að vera viðstödd mastersfyrirlesturinn minn eða réttara sagt að halda fyrirlesturinn, ekki það að ég sé það spennt að halda hann heldur frekar það að ég sé að ljúka þessu ferli.

Þannig að nú næstu þrjá daga þarf ég að undirbúa fyrirlestur, pakka dótinu og ganga frá, þrífa og vinna. Keyri svo suður á mánudaginn.

Enn á ég eftir líka eftir að strika meira út af listanum mínum, á eftir steinasafn Petru þannig að þyrfti helst að komast þangað líka.

hasta la vista

laugardagur, september 17, 2011

Strútsfoss


Skellti mér í göngutúr eftir vinnu og nú get ég strikað út af listanum mínum. En tók tvær tilraunir að fara eða finna og fatta réttu leið :-D Versta er að nú þarf ég að fara að elda. Enginn matur beið eftir mér þegar ég kom heim :-(

mánudagur, september 12, 2011

Kvöldmaturinn


Hann er seinn á ferð.

laugardagur, september 03, 2011

Myndir

Búin að setja inn fullt af nýjum myndum af verunni hér á Austurlandinu og ferðum sem ég hef farið ásamt einhverju meiru.

Er í myndaalbúminu mínu :)

laugardagur, ágúst 27, 2011

Gott veður


Yndislegt veður, svo gott að ég tími ekki að fara inn eftir hlaupið í morgun. Þyrfti hinsvegar ad fara í peysu þar sem það er ekkert ægilega heitt.

miðvikudagur, ágúst 24, 2011

Heyrúlla


Verður greinilega að passa sig á heyrúllum hér í sveit.

Listi

Gerði lista fyrir nokkru síðan yfir það sem mig langaði að gera í sumar og ætlaði mér að komast yfir. Það er farið að saxast aðeins af listanum :)

En eins og ávallt þá virðist maður ætlar sér mikið meira en er gert enda þýtur tíminn áfram.

Í seinustu viku fór ég á Borgarfjörð Eystra, að keyra þangað var ekki eins rosalegt og þegar ég fór þangað fyrst árið 2004. Þá stóð mér hreinlega ekki á sama en var pollróleg núna. Spurning hvað veldur, bílstjóri með 7 ára meiri reynslu heldur en síðast, bílinn, félagsskapurinn róandi áhrif (sem hann vildi meina), eða að ég var búin að mikla þetta svo fyrir mér og ýkja upp minningarnar frá því seinast.

Borgarfjörður Eystri og umhverfi er fallegt, það urðu þó smá eða mikil vonbrigði með hádegismat. Við borðuðum á Fjarðarborg en þar var bara hægt að fá ruslmat :( - hamborgara eða samlokur. Ætluðum að fá okkur kjötsúpu en var víst ekki til. Umhverfið á veitingastaðnum var heldur ekki upp á marga fiska. Eftir ökuferð út á bryggju þá var ákveðið að kíkja á kaffihúsið Álfasteini í sama bæ og það var kaffihús sem var með sérstöðu. Svona á það að vera, staðurinn var innréttaður mikið til af grjóti. Þar var boðið upp á fiskisúpu og saltfiskbollur ásamt kaffi og kökum.

Einnig skelltum við okkur í Mjóafjörð en þangað hef ég aldrei komið áður og stóð sá fjörður svo sannarlega undir nafni. Keyrðum við einnig alla leið inn að Dalatanga. Fílaði mig svoldið eins og japanskur túristi. Reglulega var bílinn stoppaður og farið út að taka myndir - við ætluðum að styrkja líka heimabyggð með því að borða kvöldmat í Mjóafirði en búið var að loka fyrir slíkt þannig að ekkert var úr því.

Enn á ég samt eftir að fara á steinasafn Petru á Stöðvarfirði og verð ég að fara að vinna í því máli. Sérstaklega þar sem ég var of seint á ferðinni til þess að fara þangað 2004 og aftur í fyrra. Þannig að ég get eiginlega ekki látið það framhjá mér fara núna.


fimmtudagur, ágúst 18, 2011

Borgarfjörður Eystri


Á leiðinni

þriðjudagur, ágúst 16, 2011

Hafragrautur


Morgunmatur upp til fjalla. Smakkaði hafragraut í fyrsta skipti þegar ég var seinast hérna í Snæfelli og nuna farin að elda hann hérna. En annars er seinasti dagurinn minn hérna uppfrá og búið að vera fint fyrir utan að ég virðist alltaf vakna þegar birti.

laugardagur, ágúst 13, 2011

Ullarsokkar


Bráðnauðsynlegir

fimmtudagur, júlí 21, 2011

Snæfell

Var í afleysingum í Snæfelli tvo daga.

Var mjög fínt að komast úr hinu venjulega umhverfi og prófa eitthvað nýtt :) og ekki síður að vita hvað bíður mín þegar ég fer aftur í ágúst að leysa af.

Kom á sunnudagskvöldinu og var þoka og súld, svona frekar hráslagalegt, einnig á mánudeginum. En það birti svo til á mánudagskvöldið og fengum við þetta himneska veður og frábæra útsýni.



Snæfell sýndi sig og

ekki verra að við sáum glitta í topp Herðubreiðar sem glóaði svo fallega um kvöldið.

Á þriðjudeginum hélt góða veðrið áfram og við fórum í smá könnunarleiðangur. Einnig er þrælgaman að tala við yfirmanninn eins og sjá má.


Sáum yfir Eyjabakka og Eyjabakkajökul.

Fór síðan niður aftur á þriðjudagskvöldinu eftir kvöldmat í smá þokubakka á heiðinni. Það var ekki einungis nýtt svæði sem ég var á í landvörslu heldur einnig prófaði ég hafragraut fyrsta skipti á ævinni á mánudagsmorgninum!

Ekki var hann alslæmur þannig að fékk mér aftur á þriðjudeginum. Spurning hvort þetta verði þá ekki bara þegar ég er uppfrá!

Flottur tarfur


Sá þennan í morgun ekki langt frá heimilinu.

miðvikudagur, júlí 06, 2011

Hálslón


Farið upp að Kárahnjúkastíflu í dag og nágrennið skoðað. Sólin sýndi sig í dag - loksins. Var komin í mikla þörf fyrir að sá sólina :-)

sunnudagur, júní 19, 2011

Kvöldmaturinn



laugardagur, júní 11, 2011

Í Fljótsdal


Svona er veðrið í dag í Fljótsdal, sit úti á stuttermabol og berfætt :-D og er að velta fyrir mer að ná í bók að lesa. Lífið er ljúft á góðviðrisdögum.

föstudagur, júní 10, 2011

Hengifoss


Gönguferð upp að Hengifossi.

fimmtudagur, júní 09, 2011

Slydda


Slydda á Egilsstöðum.

Upp á heiði


Í snjókomu 9. júní

sunnudagur, júní 05, 2011

Eldhúsglugginn


Útsýnið úr eldhúsglugganum. Rollurnar að leita skjóls undan rigningunni eftir að hafa komist að því að ég væri meinlaus á bakvið gluggann.

Heimilið


Nýja tímabundna heimilið.

Vinnustaðurinn


Þetta er vinnustaðurinn næstu mánuðina.

laugardagur, júní 04, 2011

Öskumistur



mánudagur, maí 30, 2011

Á Skeiðarássandi


Var i smá öskufoki á Skeiðarássandi og stuttu seinna i krapa

Öskufok



þriðjudagur, maí 24, 2011

Stúdentsafmæli

Ég á 15 ára stúdentsafmæli í dag!

Til hamingju ég :)

Hópurinn sem útskrifaðist á sama tíma í dag var einhvern veginn aldrei samheldur - eða allavega tilfinningin mín, getur svo sem verið að ég hafi verið "outsider" en útskriftarbókin sem var hefð að kæmi út kom ekki út. Minnsta kosti er ég ekki með eintak. Ég er einungis í facebook "sambandi" við eina úr hópnum sem ég í raun var ekki í tengslum í menntaskóla. Það var ekki fyrr en í háskólanum þegar við byrjuðum á sama tíma í sama námi.

Að þessu sögðu þá er búið að stofna facebook hóp (já aftur að facebook) fyrir hópinn sem útskrifaðist fyrir 15 árum og stefnt að reunion í haust.

Ótrúlegt.

sunnudagur, maí 08, 2011

Fyrsta ganga sumarsins

Þá er fyrstu göngu sumarsins lokið og það á stuttermabolnum.

Þvílík blíða - en gengið var á Búrfell í Heiðmörk eða Reykjanesfólkvangi. Ekki alveg viss á því. En félagsskapurinn var góður ásamt veðrinu.

sunnudagur, maí 01, 2011

Vor í Reykjavík



fimmtudagur, apríl 21, 2011

Tóm gleði


Á seinustu metrunum og með hollustu fæði!

föstudagur, apríl 15, 2011

Á leiðinni


Í Varmarhlíð á leið til Akureyrar.

sunnudagur, apríl 10, 2011

Hvasst


Grindverkið eða hluti af því fokið um koll.

laugardagur, mars 26, 2011

Árstíðir


Var á tónleikum með Árstíðum. Þeir voru yndislegir að vanda EN stillingar voru ekki í lagi. Heyrðist of lítið í söngnun og sérstaklega einum og soundið í sumum hljóðfærum of hátt. Heyrði og sá agent fresco líka í fyrsta skipti. En voru pínku furðufuglar, voru fínir en féll ekki fyrir þeim eins og fyrst þegar ég heyrði í Árstíðum.

sunnudagur, mars 20, 2011

35

mánudagur, mars 14, 2011

Kaka


Tók mig til og bakaði köku líka en með góðri hjálp frá Betty -einfalt og þægilegt :-)

Pakki


Ekki auðvelt ad pakka gjof inn í coco puffs pakka. En þarf bara að endast þangað til í fyrramali!

laugardagur, mars 12, 2011

Gott veður


Fallegt og gott veður í borginni í dag. En að vanda hékk ég inni yfir ritgerð. Fór samt í smá göngutúr nidur í bæ og að vanda ílengdist ég í bókabúð.

fimmtudagur, febrúar 24, 2011

Hollusta


Hollustan ávallt í fyrirrúmi!

fimmtudagur, febrúar 17, 2011

Hvorki fugl né fiskur

Þegar sagt er að þetta er hvorki fugl né fiskur.

Þá hlýtur þetta að vera lífvera sem gengur á jörðinni, syndir hvorki í úthöfum eða vötnum eða flýgur um himinn.

Er það ekki bara gott líka?

:)

mánudagur, febrúar 07, 2011

Faust

VÁ!

laugardagur, febrúar 05, 2011

Næs dagur

Átti einstaklega næs dag, svona fyrir utan Kringluferð ;)

Var í hátt í þrjá klukkutíma á kaffihúsi, man ekki til þess að hafa verið svona lengi áður. Stjórn landvarðafélagsins hittist og margt að spjalla um. Fundurinn tók reyndar ekki alveg svona langan tíma.

Gekk svo um bæinn í ljómandi veðri og slabbi.