Steinasafn Petru
föstudagur, september 23, 2011
fimmtudagur, september 22, 2011
Brottför
Styttist í veru mína hérna á Austurlandinu og í raun verður nokkrum dögum styttri en áætlað var. Fékk nefnilega tölvupóst í gær sem ég hef beðið lengi eftir sem þýðir það að ég þarf að vera í Reykjavík á miðvikudaginn næsta.
Ég þarf semsagt að vera viðstödd mastersfyrirlesturinn minn eða réttara sagt að halda fyrirlesturinn, ekki það að ég sé það spennt að halda hann heldur frekar það að ég sé að ljúka þessu ferli.
Þannig að nú næstu þrjá daga þarf ég að undirbúa fyrirlestur, pakka dótinu og ganga frá, þrífa og vinna. Keyri svo suður á mánudaginn.
Enn á ég eftir líka eftir að strika meira út af listanum mínum, á eftir steinasafn Petru þannig að þyrfti helst að komast þangað líka.
hasta la vista
laugardagur, september 17, 2011
mánudagur, september 12, 2011
laugardagur, september 03, 2011
Myndir
Búin að setja inn fullt af nýjum myndum af verunni hér á Austurlandinu og ferðum sem ég hef farið ásamt einhverju meiru.
Er í myndaalbúminu mínu :)
laugardagur, ágúst 27, 2011
miðvikudagur, ágúst 24, 2011
Listi
Gerði lista fyrir nokkru síðan yfir það sem mig langaði að gera í sumar og ætlaði mér að komast yfir. Það er farið að saxast aðeins af listanum :)
En eins og ávallt þá virðist maður ætlar sér mikið meira en er gert enda þýtur tíminn áfram.
Í seinustu viku fór ég á Borgarfjörð Eystra, að keyra þangað var ekki eins rosalegt og þegar ég fór þangað fyrst árið 2004. Þá stóð mér hreinlega ekki á sama en var pollróleg núna. Spurning hvað veldur, bílstjóri með 7 ára meiri reynslu heldur en síðast, bílinn, félagsskapurinn róandi áhrif (sem hann vildi meina), eða að ég var búin að mikla þetta svo fyrir mér og ýkja upp minningarnar frá því seinast.
Borgarfjörður Eystri og umhverfi er fallegt, það urðu þó smá eða mikil vonbrigði með hádegismat. Við borðuðum á Fjarðarborg en þar var bara hægt að fá ruslmat :( - hamborgara eða samlokur. Ætluðum að fá okkur kjötsúpu en var víst ekki til. Umhverfið á veitingastaðnum var heldur ekki upp á marga fiska. Eftir ökuferð út á bryggju þá var ákveðið að kíkja á kaffihúsið Álfasteini í sama bæ og það var kaffihús sem var með sérstöðu. Svona á það að vera, staðurinn var innréttaður mikið til af grjóti. Þar var boðið upp á fiskisúpu og saltfiskbollur ásamt kaffi og kökum.
Einnig skelltum við okkur í Mjóafjörð en þangað hef ég aldrei komið áður og stóð sá fjörður svo sannarlega undir nafni. Keyrðum við einnig alla leið inn að Dalatanga. Fílaði mig svoldið eins og japanskur túristi. Reglulega var bílinn stoppaður og farið út að taka myndir - við ætluðum að styrkja líka heimabyggð með því að borða kvöldmat í Mjóafirði en búið var að loka fyrir slíkt þannig að ekkert var úr því.
Enn á ég samt eftir að fara á steinasafn Petru á Stöðvarfirði og verð ég að fara að vinna í því máli. Sérstaklega þar sem ég var of seint á ferðinni til þess að fara þangað 2004 og aftur í fyrra. Þannig að ég get eiginlega ekki látið það framhjá mér fara núna.
fimmtudagur, ágúst 18, 2011
þriðjudagur, ágúst 16, 2011
laugardagur, ágúst 13, 2011
fimmtudagur, júlí 21, 2011
Snæfell
Var í afleysingum í Snæfelli tvo daga.
Var mjög fínt að komast úr hinu venjulega umhverfi og prófa eitthvað nýtt :) og ekki síður að vita hvað bíður mín þegar ég fer aftur í ágúst að leysa af.
Kom á sunnudagskvöldinu og var þoka og súld, svona frekar hráslagalegt, einnig á mánudeginum. En það birti svo til á mánudagskvöldið og fengum við þetta himneska veður og frábæra útsýni.
Snæfell sýndi sig og
ekki verra að við sáum glitta í topp Herðubreiðar sem glóaði svo fallega um kvöldið.
Á þriðjudeginum hélt góða veðrið áfram og við fórum í smá könnunarleiðangur. Einnig er þrælgaman að tala við yfirmanninn eins og sjá má.
Sáum yfir Eyjabakka og Eyjabakkajökul.
Fór síðan niður aftur á þriðjudagskvöldinu eftir kvöldmat í smá þokubakka á heiðinni. Það var ekki einungis nýtt svæði sem ég var á í landvörslu heldur einnig prófaði ég hafragraut fyrsta skipti á ævinni á mánudagsmorgninum!
Ekki var hann alslæmur þannig að fékk mér aftur á þriðjudeginum. Spurning hvort þetta verði þá ekki bara þegar ég er uppfrá!








